Bændablaðið - 20.11.2007, Qupperneq 1

Bændablaðið - 20.11.2007, Qupperneq 1
20 Dagur með bónda nýtur mikilla vin­ sælda í skólunum 22 Greinargerð LK um innflutning á nýju kúakyni 20. tölublað 2007 l Þriðjudagur 20. nóvember l Blað nr. 271 l Upplag 17.000 16 Stundar búskap þrátt fyrir lömun neðan mittis Hættir á toppnum Brynjar Vilmundarson, hrossabóndi á Feti í Rangárþingi, var útnefndur „Ræktunarmaður ársins 2007“ á uppskeruhátíð hesta­ manna sem fram fór á Broadway 10. nóv. sl. Þetta er í þriðja sinn sem Brynjar hampar þessum verðlaunum og í tólfta sinn sem bú hans er tilnefnt til verðlaunanna, en ekkert annað bú hefur verið tilnefnt svo oft frá því verðlaunaveitingar þessar hófust. Brynjar hefur nú selt búið og skilar því af sér á komandi ári. Það má því segja að hann hætti á toppnum og eins og Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðu- nautur BÍ, sagði við afhendingu verðlaunanna verður það nýjum eiganda gríðarmikil áskorun að taka við arfleifð þessa magnaða ræktunarmanns. Á meðfylgjandi mynd eru þau hjón Brynjar Vilmundarson og Kristín Torfadóttir með verðlaunin. Sjá nánar á bls. 12-13 Bændablaðsmynd: HGG Þessi kalkúnaungi kom í heiminn í áliðnum október og nær því væntanlega að lifa af jólin, en kalkúnum er slátrað 10­ 12 vikna gömlum. Hann býr á Reykjum í Mosfellsbæ þar sem Jón Magnús Jónsson starfrækir gamalgróið alifuglabú. Landbúnaðarráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í síðustu viku um breytingar á lögum um fram­ leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með breytingunum er markmiðið að fella úr lögum ákvæði um verðmiðlunargjald og verðtilfærslugjald á mjólk. Landbúnaðarráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í síðustu viku um breytingar á lögum um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með breytingunum er markmiðið að fella út úr lögunum ákvæði um verðmiðlunargjald og verðtilfærslugjald. Markmiðið með frumvarpinu er að minnka afskipti ríkisvaldsins af framleiðslu og vinnslu mjólkurafurða. Í umsögn fjármálaráðuneytis segir að markmið frumvarpsins sé að draga úr afskiptum ríkisvaldsins af framleiðslu og vinnslu mjólkuraf- urða og bregðast við athugasemd- um Samkeppniseftirlitsins um að jafna samkeppnisstöðu afurða- stöðva. Jákvætt skref Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði í sam- tali við Bændablaðið að hér væri um að ræða tímabæra einföldun á starfsumhverfi mjólkuriðnaðarins og því jákvætt skref. Fyrir bændur minnkar þetta ýmiss konar milli- færslur og eftir að mjólkuriðnaður- inn er orðinn að næstum einu fyr- irtæki eru þessar jöfnunaraðgerðir óþarfar. Mjólkuriðnaðurinn hefur burði til að gera þetta sjálfur. ,,Við hjá Bændasamtökunum höfum tekið þátt í að móta þetta og það er mikil samstaða hjá bændum, verkalýðshreyfingunni og mjólk- uriðnaðinum um þessar breyting- ar,“ sagði Haraldur Benediktsson. Rekstrarstyrkir Verðmiðlunargjaldið hefur verið m.a. notað til að lækka flutnings- kostnað mjólkur en verðtilfærslu- gjaldið lækkaði verð tiltekinna afurða í heildsölu Í frumvarpinu er lagt til að lögbundið verðmiðlunargjald skv. 19 gr. laganna og lögbundið verð- tilfærslugjald skv. 22. gr. verði afnumið. Verðmiðlunargjaldið hefur hingað til verið notað sem rekstrarstyrkir til afurðastöðva, til að jafna flutningskostnað framleið- enda og til að styrkja flutning hrá- efnis og mjólkurvara milli afurða- stöðva og til fjarlægari staða þar sem ekki eru fyrir afurðastöðvar. Verðmiðlunargjaldið nam 0,65 kr. á hvern lítra af mjólk sem lögð var inn í afurðastöð innan greiðslu- marks. Verðtilfærslugjaldið hefur aftur á móti verið notað til að lækka verð tiltekinna afurða í heildsölu. Gjaldið hefur verið 2,65 kr. af hverjum lítra mjólkur. Tekjur og gjöld ríkisins lækka um 383 milljónir króna Í fjárlögum 2007 námu gjöld fjár- lagaliðarins „Verðmiðlun landbún- aðarvara“, samtals 383 m. kr. og voru þau að fullu innheimt af ríkistekjum. Af þeirri fjárhæð komu 296 m.kr. til á viðfangsefn- inu „Verðtilfærslugjald á mjólk“ og 87 m. kr. á viðfangsefninu „Verðmiðlun landbúnaðarvara“. Verði frumvarpið að óbreyttu sam- þykkt munu tekjur og gjöld ríkis- sjóðs lækka um 383 m. kr. S.dór Frumvarp um afnám verðmiðlunar- og verðtilfærslugjalds komið fram á Alþingi Dregið úr ríkisafskiptum Þriggja fasa rafmagn ekki á 2.489 lögbýlum Í svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn frá Jóni Bjarnasyni á Alþingi um þriggja fasa raf­ magn kemur fram að 2.489 lögbýli í landinu hafa ekki að­ gang að þriggja fasa rafmagni og eru það 38% þeirra. Langflest þeirra eru á Norð- urlandi eða 1.170 en fæst á Vest- fjörðum eða 50. Á Vesturlandi eru 437 lögbýli án þriggja fasa rafmagns, 351 á Austurlandi og 481 á Suðurlandi. S.dór Stórbruni varð á bænum Stærra­ Árskógi á laugardag þegar fjósið brann til kaldra kola ásamt nær­ liggjandi hlöðu. Í fjósinu voru um 220 nautgripir og brunnu þeir inni, utan hvað rúmlega 30 kvígur komust út af eigin ramm­ leik og var bjargað í hús á næsta bæ, Kálfsskinni. Fjósið á Stærra-Árskógi er að hluta til gamalt en byggt var við það fyrir tæpu ári. Auk þess voru marg- ir gripir geymdir í hlöðunni. Talið er að eldsupptökin hafi verið í raf- magnstöflu í mjólkurhúsi en hjónin á bænum, sem voru ein heima, urðu eldsins vör þegar nýr mjaltaþjónn gaf merki um að hann fengi ekkert rafmagn. Þegar komið var út í fjós varð ekki við neitt ráðið, húsið log- aði stafnanna á milli. Ekki er ljóst hvers vegna eldurinn magnaðist svo hratt sem raunin var en kenn- ingar eru á lofti um að gas í haug- húsi undir eldra fjósinu sé orsökin. Norðan bálviðri var og kafalds- bylur sem gerði allt björgunar- starf afar erfitt. Leiða varð vatn um langa leið heim að fjósinu og þurftu slökkviliðsmenn að setja dælur með jöfnu millibili á slöngurnar svo ekki frysi í þeim jafnharðan. Slökkvistarfi lauk um áttaleytið um kvöldið en vakt var staðin við húsin fram á sunnudag. Veðrið gekk niður þá um nóttina og hófst rannsókn á rústunum þegar dagur rann. Ljóst er að þetta er mesti skepnu- fellir sem orðið hefur af völdum elds sem um er vitað hér á landi. Tjónið er metið eitthvað á annað hundrað milljóna króna. –ÞH Hátt í 200 nautgripir brunnu inni á Árskógsströnd Riðuveiki komin upp í Hrunamannahreppi Riðuveiki varð vart á bæn­ um Skollagróf í Hruna­ mannahreppi í síðustu viku. Auður Lilja Arnþórsdóttir, dýralæknir á Landbúnaðar­ stofnun, sagði að riðuveiki hefði oft komið upp á þessu svæði. Lögum samkvæmt bera að aflífa allar ær í Skolla­ gróf en þær munu vera um 130. Auður sagði að ekki hafi þótt ástæða til að skera niður á fleiri bæjum í Hrunamannahreppi en þeim sem veikinnar hefur orðið vart á hverju sinni og þannig verður það núna. Hún sagði að veikinnar hefði að þessu sinni orðið vart á besta tíma þar sem allt fé er heima við. Vorið væri versti tíminn, ær með lömbum og ef til vill búið að sleppa fé. S.dór Hver á þessa bláu hönd?

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.