Bændablaðið - 20.11.2007, Page 32

Bændablaðið - 20.11.2007, Page 32
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20073 Líf og starf Stefán Hrafn Magnússon býr ásamt konu sinni Lone og tveim­ ur börnum þeirra við Isortoq á Grænlandi. Bústofn þeirra er nokkuð óvenjulegur, að minnsta kosti á íslenska vísu, en þarna syðst og vestast á Grænlandi búa þau með hreindýr og telur hjörð þeirra rúmlega fjögur þúsund hreindýr, hið minnsta. Nú á haustdögum var slátr- að um 1100 dýrum úr hjörðinni en í Isortoq hefur Stefán reist fullkomið sláturhús sem er með Evrópuviðurkenningu til að slátra hreindýrunum í. Að slátruninni kom fjölþjóðlegt lið frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og síðan að sjálfsögðu Grænlandi. Hreindýrunum er smalað úr sumarhögunum á þyrlu inn í slát- urhagana sem eru afgirtir, allt að sex ferkílómetrar að stærð. Þaðan eru dýrin rekin eftir hendinni, oft 200 til 300, inn í réttina þar sem tarfarnir eru teknir úr, snaraðir, heftir, markaðir og síðan dregnir út úr réttinni með hesti og þeim sleppt. Það var ekki hægt að lóga törfum í þetta skiptið vegna þess að komið var fram í október og komið brundbragð af kjötinu. Síðan eru dýrin sem eftir eru rekin inn í sundurdrátt þar sem ungar kýr og efnilegar kvígur eru teknar úr til ásetnings, markaðar, merktar og síðan sleppt, en restinni lógað. Lógunardýrin eru gamlar kýr, kvígur sem ekki eru efnilegar til ásetnings af einhverjum orsök- um og geldingar. SigAð Hreindýrabúskapur og slátrun á Grænlandi Það er mikil ferð á dýrunum þegar verið er að reka þau inn í réttina og tekst ekki alltaf í fyrstu atrennu. Myndir: SigAð Svo brugðu menn sér á snæhéraveiðar eftir vel heppnaða sláturtörn. Maríus Halldórsson hampar hér einum vænum. Þegar tarfarnir hafa verið snaraðir er farið með þá á staurana þar sem þeir eru heftir og lagðir niður. Oftast eru tarfarnir dregnir út með hesti en hér hefur mannshöndin leyst af þarfasta þjóninn og hestarnir hvílast við réttarvegginn. Það er líf í tuskunum þegar verið er að snara tarfana en það er eins með það og annað að ,,æfingin skapar meistarann“. Það þurfti líka að gera kjötinu gott og hér hefur Maríus Halldórsson frá Bjarnastöðum brugðið sér úr slátruninni í kjötvinnsluna. Tarfarnir eru frelsinu fegnir. Stefán Hrafn Magnússon hrein­ dýrabóndi merkir efnilega hrein­ dýrskvígu til lífs með aðstoð þeirra Klaus og Maríusar. Þegar rekið er í réttina er haldið utan um hreindýrin með hvítum plaststrig­ arenningi. Dýrin hlaupa ógjarnan á renninginn og hræðast hvíta litinn, sem er áberandi í þeirra augum því að þau sjá í svarthvítu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.