Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007 Á námskeiðum sem ég hélt á vegum Iðntæknistofnunar og Ax hugbúnaðarhúss tiltók ég í upp- hafi nokkur af þeim atriðum sem útreikningur launa krefst. Í upp- talningunni voru m.a. þekking á lögum, reglum og kjarasamningn- um, kunnátta í skattareglum, lífeyr- issjóðsgreiðslum og tryggingum og að sjálfsögðu nákvæmni. Sem sagt „piece of cake“ eins og einn þátttakandi sagði á góðri íslensku. Því ætla ég að fjalla aðeins um þessa kökusneið: Laun, greiðslur í lífeyrissjóði og stéttarfélög og launatengd gjöld, – vonandi án þess að nokkur geispi alltof mikið... Launakjör Bændasamtökin semja við Starfs- greinasambandið um laun skamm- tímaráðinna starfsmanna á bænda- býlum. Samningar eru yfirleitt lágmarkssamningar, og þumalfing- urreglan er að ef samið er um annað verða launakjörin að vera jafngóð eða betri. Almennur taxti fyrir 18 ára og eldri er 126.716 kr. fyrir 40 stunda vinnuviku, sem þýðir að unnar eru 173,33 klst. að meðaltali á mánuði. Dagvinnukaup er 731,07 kr. á klst. og yfirvinna er 1.315,95 kr. sem greið- ist fyrir vinnu umfram þessar 173,33 klst. Einnig reiknast 10,17% orlof af heildarlaunum. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um kjarasamning- inn á www.bondi.is og www.ninukot. is. Núgildandi kjarasamningur renn- ur út 31. desember 2007. Kostnaður vegna fæðis og hús- næðis samkvæmt kjarasamningum er 1.739 kr á dag fyrir 18 ára og eldri. Mikilvægt er að hafa í huga að kostnaðurinn er dreginn frá eftir að búið er að reikna staðgreiðslu, greiðslur í lífeyrissjóð og stétt- arfélagsgjald út frá heildarlaunum starfsmannsins. Þarf að borga í stéttarfélög? Svarið er einfalt: Já, það þarf að borga í stéttarfélag og gildir einu hvort viðkomandi er íslenskur eða erlendur ríkisborgari. Þrátt fyrir að svarið sé einfalt, þá vill þetta samt vefjast fyrir fólki. Ástæðan fyrir því er að það ríkir félagafrelsi á Íslandi. Og eins og einn viðmælandi minn orðaði það og var orðið soldið heitt í hamsi, þá hlýtur það að þýða frelsi til að borga ekki. Félagafrelsi þýðir að fólk hefur rétt til að stofna og ganga í félög að eigin geðþótta og er aðeins háð reglum hlutaðeigandi félags um inngöngu. Hins vegar er litið á stétt- arfélög á Íslandi sem grunneiningu á vinnumarkaði. Stéttarfélagsgjaldið er eiginlega þóknun launamanna til félagsins fyrir að semja fyrir þeirra hönd á vinnumarkaðnum og gæta hagsmuna þeirra. Finna má nánari ákvæði um þetta í lögum nr. 55/1980 og nr. 94/1986. Þjónusta stéttarfélaga er mjög viðamikil og ráðleggjum við öllum að ganga í stéttarfélag. Einnig þarf að athuga hvort sækja þurfi sér- staklega um aðgang í stéttarfélagið á svæðinu eða hvort það sé nóg að skila stéttarfélagsgjaldi og framlagi atvinnurekanda til að vera skráður félagsmaður. Stéttarfélagsgjald launamanns er yfirleitt 1%, en getur verið mis- munandi eftir stéttarfélögum. Einnig geta reglur um mótframlag atvinnurekanda verið mismunandi, en algengt er að borga 1% af laun- um í sjúkrasjóð og 0,25% í orlofs- heimilasjóð. Að leggja til hliðar fyrir elliárin „Ég skil bara ekki af hverju ég þarf að vera borga í lífeyrissjóð, – ég verð löngu fluttur heim áður en ég kemst á eftirlaunaaldur og hvern- ig ætla þeir að finna mig?“ sagði Stefan frá Þýskalandi nýlega við mig. Lögin á Íslandi eru alveg kýr- skýr varðandi greiðslu launþega og sjálfstæðra atvinnurekenda í lífeyrissjóði. Allir verða að borga, – launþeginn 4% og atvinnurekandi 9%. Lífeyrissjóðsgreiðslur reiknast af öllum launum sem eru skatt- skyldar. Starfsmenn geta ekki valið líf- eyrissjóð, eða eins og 2. mgr. 2. gr. lífeyrissjóðslaganna segir: „…aðild að lífeyrissjóði fer eftir þeim kjara- samningi sem ákvarðar lágmarks- kjör í hlutaðeigandi starfsgrein, eða sérlögum ef við á.” Einstakir starfsmenn geta ekki ákveðið að greiða í annan lífeyr- issjóð en lögin ákveða. Ágætt er að hafa samband við verkalýðsfélagið á svæðinu til að fá upplýsingar um hvaða lífeyrissjóð á að greiða í. En hvað með Stefan? Samkvæmt lögum er lífeyrissjóðum frjálst hvort þeir endurgreiða erlendum starfsmönnum, sem eru ekki frá Evrópska efnahagssvæðinu, lífeyr- issjóðsgreiðslur þeirra þegar þeir yfirgefa landið eða ekki, – sem þeir almennt gera. En ekki íbúum Evrópska efnahagssvæðisins. „Þú, ásamt hinum þúsundum starfs- manna frá Evrópu, verður bara að muna að þið eigið lífeyrissréttindi hér á Íslandi þegar þið farið á eft- irlaun og sækjast eftir þeim í gegn- um viðkomandi Tryggingastofnun, Stefan minn,“ sagði ég. Launatengd gjöld Launatengd gjöld eru m.a. mótfram- lag í lífeyrissjóð og stéttarfélög, og tryggingargjald til skattsins. Hægt er að nálgast upplýsingar um skil á staðgreiðslu og útreikning trygg- ingargjalds á www.rsk.is Eygló Harðardóttir Ráðningaþjónustunni Nínukoti eyglo@ninukot.is – www.ninukot.is Erlendir starfsmenn í sveit Krónur og aurar Námskeiðfyrir þig! Frá örfoka landi til skógar Kennarar: Ása L. Aradóttir prófessor við LbhÍ og Þórunn Pétursdóttir héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins. Tími: Fös 23. nóv. kl. 16:00-19:00 og lau. 24. nóv. kl. 09:00-16:00 á Hvanneyri. Verð kr. 14.800. Rúningsnámskeið I Kennari: Guðmundur Hallgrímsson verkefnisstjóri á Hvanneyri. Tími: Lau. 24. nóv. kl. 10:00-18:00 og sun. 25. nóv. kl. 09:00-18:00 í Mófellsstaðakoti í Skorradal. Verð kr. 22.900. Alþjóðlegi gagnagrunnurinn WorldFengur Kennari: Jón Baldur Lorange forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtaka Íslands. Tími: Lau. 24. nóv. kl. 10:00-16:30 á Hvanneyri. Verð kr. 14.000. Sauðfjársæðingar Kennsla: Þorsteinn Ólafsson dýralæknir. Tími: Mið. 28. nóv. kl. 13:00-18:00 á Hesti í Borgarfirði Verð kr. 9.200. Legubásafjós Kennari: Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri búrekstrar við LbhÍ. Tími: Fim. 29. nóv. kl. 09:00-18:00 í Sveinbjarnargerði, Eyjafirði. Verð kr. 12.500. Hvernig er best að fóðra hestinn? Kennari: Guðrún J. Stefánsdóttir lektor við hrossaræktardeild Hólaskóla. Tími: Lau. 1. des kl. 13:00-17:00 á Hvanneyri. Verð kr. 12.000. Sauðfjársæðingar Kennari: Þorsteinn Ólafsson dýralæknir. Tími: Þri. 4. des. Kl 13:00-18:00 á Stóra-Ármóti. Verð kr. 9.200. Góð gjöf Er með góðar gjafir, kíkið á www.bangsi.barnaland.is Uppl. í síma 699 3436 Samkvæmt Vefriti fjármálaráðu­ neytisins frá 13. september síð­ astliðnum hefur ríkisstofnunum sem tilheyra framkvæmdavald­ inu fækkað úr 250 árið 1998 í 204 í október 2006. Stærð ríkisstofn­ ana er breytileg. Sú fámennasta er með tvo starfsmenn en sú fjölmennasta 4.700 manns. Þótt stofnunum hafi fækkað hafa þær hins vegar stækkað. Stærð ríkisstofnana er mjög breytileg hvort sem litið er til fjölda stöðugilda eða starfsmanna. Mestur er munurinn á meðal heil- brigðisstofnana. Fámennasta heil- brigðisstofnunin er með tíu starfs- menn en sú fjölmennasta er með ríflega 4.700 manns. Að jafnaði eru heilbrigðisstofnanir fjölmenn- ustu vinnustaðirnir jafnvel þótt litið sé fram hjá Landspítalanum sem er allra fjölmennastur. Framhalds- og háskólar eru einnig fjölmennar stofnanir en fámennustu vinnustað- irnir eru stofnanir á sviði skatta- og tollamála. Fjöldi ríkisstarfsmanna 1. októ- ber 2006 var um 21.600 í 17.600 stöðugildum. Til samanburðar má geta þess að á fjórða ársfjórð- ungi 2006 voru 169.900 manns starfandi á vinnumarkaðnum í heild. Töluverðar sveiflur geta verið í starfsmannafjölda stofnana eftir árstíma, til að mynda vegna sumarleyfa eða verkefnastöðu. Meðalfjöldi starfsmanna og stöðu- gilda er því nokkuð hærri ef litið er á heilt ár í einu í stað ,,punktstöðu“ líkt og hér er gert. Yfirlit yfir fjölda stofnana, starfsmanna og stöðugilda Stofnanahópur Fjöldi stofnana Fjöldi starfsmanna Fjöldi stöðugilda Æðsta stjórnsýsla 16 735 707 Sýslumannsembætti, löggæsla og fangelsi 30 1642 1571,3 Stofnanir skatta- og tollamála 13 512 488,2 Aðrar stofnanir fjár-, dóms- og kirkjumálaráðuneyta 11 603 474,1 Heilbrigðisstofnanir 23 8210 6413,5 Stofnanir félags- og lýðheilsumála 22 2005 1465,5 Framhalds- og háskólar 33 4480 3538,2 Aðrar mennta-, menningar- og vísindastofnanir 20 936 805,9 Stofnanir atvinnumálaráðuneyta, umhverfis-, skipulags- og samgöngumála 36 2.444 2.149,6 Samtals 204 21.567 17.613,3 Ríkisstofnunum hefur fækkað úr 250 í 204 á síðustu níu árum Framkvæmdum við Norðfjarðarveg flýtt Vegagerðin hefur kynnt tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður­ Múlasýslu. Byggja á jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og í tengslum við framkvæmdina verða nýir vegir byggðir, beggja vegna gangamunnanna. Alls er um að ræða framkvæmdir við um 16 kílómetra og nær hún frá Norðfjarðarvegi, sunnan Eskifjarðar, að núverandi Norðfjarðarvegi norð- an Norðfjarðarár í Norðfirði. Til- gangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austfjörðum og styrkja byggðarlög á Austurlandi. Ekki er gert ráð fyrir að verkefn- inu verði áfangaskipt. Fyrstu fjár- veitingar til fyrirhugaðrar fram- kvæmdar voru á vegaáætlun 2011- 2014. Fjárveitingu til verksins hefur hins vegar verið flýtt til 2009-2010. Allur undirbúningur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2009. Hægt er að kynna sér tillöguna á vef Skipulagsstofnunar. www.bbl.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.