Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 19
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20071
Fjölmenni sótti
Bændadaga í
Skagafirði
„Mér fannst Bændadagarnir
takast frábærlega vel. Aðsókn
var feikigóð og fólk notfærði sér
að vörurnar voru á mjög lágu
verði þannig að sala varð mikil,“
sagði Árni Kristinsson, versl
unarstjóri í Skagfirðingabúð á
Sauðárkróki. Verslunin gekkst
um síðustu mánaðamót, ásamt
afurðastöðvunum á Króknum,
fyrir hinum árlegu Bændadög
um. Auk þess koma félög kúa
og sauðfjárbænda að dögunum
þannig að bændafólk sér að
mestu um kynningar á vörunni.
Bændadagarnir eru ávallt tveir,
fimmtudagur og föstudagur, og
yfirleitt haldnir í lok sláturtíðar. Þá
eru kynntar flestar mjólkur- og kjöt-
vörur sem afurðastöðvarnar fram-
leiða og varan boðin á mjög góðu
verði. Einnig er þessu jafnhliða
gefinn út bæklingur með nýjum
uppskriftum að ýmsu góðgæti úr
þessum vörum. Bændadagarnir
hafa mælst vel fyrir hjá neytendum
og kemur fólk í talsverðum mæli úr
nágrannabyggðum í þeim tilgangi
að versla og jafnvel birgja sig
upp af kjötvörum. Dagarnir gefa
líka framleiðendum, starfsfólki
afurðastöðvanna og neytendum
tækifæri til að hittasta og skiptast
á skoðunum. Því má fullyrða að
Bændadagarnir í Skagafirði, sem í
upphafi voru hugsaðir sem tilraun
til að kynna landbúnaðarvörur fyrir
neytendum, hafi heppnast prýði-
lega. ÖÞ
Elvar bóndi á Skörðugili við pottinn og Guðmundur
Gíslason, kokkur og sölustjóri sláturhússins, fylgist
með. Myndir: ÖÞ Fjölmenni fékk að smakka á ýmsu góðgæti í Skahgfirðingabúð við þetta tækifæri.
Nú í takmarkaðan tíma bjóðum við þýsku DEUTZ-FAHR
Agrotron K-110 dráttarvélarnar á sérstöku tilboðsverði sem er
um 500.000 krónum undir venjulegu verði!
Agrotron K-110 dráttarvélarnar eru löngu búnar að sanna sig
hér á landi þar sem saman fer einstaklega sparneytinn og kraft-
mikill 6 strokka DEUTZ díselmótor og níðsterk vökvaskipting
frá ZF. Ökumannshúsið er eitt það besta og þægilegasta sem
völ er á í dag. Og lipurð vélarinnar er ótrúleg.
Bændur, látið ekki þetta einstaka tækifæra ganga ykkur úr
greipum. Hafið samband sem fyrst og kynnið ykkur nánar
þetta frábæra tilboð okkar á þýsku DEUTZ-FAHR Agrotron
K-110 dráttarvélunum.
ÞÓR HF | Reyk jav ík : Ármúla 11 | S ími 568 -1500 | Akureyr i : Lónsbakka | S ími 461 -1070 | www. thor. i s
DEUTZ Agrotron K110
. . . alvöru þýsk dráttarvél !
118 ha 6 strokka sparneytinn DEUTZ mótor
Vökvaskiptur ZF gírkassi (24x8)
Öflugur kúplingsfrír vökvavendigír
Vökvakerfi samtals 83 lítrar, 200 bar.
Lyftigeta beislislyftu 6220 kg
Þrjár vökvasneiðar (6 vökvaúrtök)
Vökvavagnbremsutengi
Lyftutengdur vökvaskotkrókur
Rafstýrt beisli með EHR stýrikerfi.
4ra hraða aflúrtak, 540/540E/1000/1000E
180 lítra eldsneytisgeymir
6 pósta ökumannshús með fjöðrun
Loftpúðasæti með öryggisbelti. Farþegasæti.
Öflug miðstöð með loftkælingu (A/C)
Útvarp með geislaspilara
Loftlúga úr gleri.
10 öflugir ljóskastarar. Afturrúðuþurrka
Flothjólbarðar: 540/65R24 & 540/65R38
Staðalbúnaður:
85 lítra álagsstýrð vökvadæla
33 lítra sérbyggð stýrisdæla
PowerCom rafstýrikerfi
APS sjálfskipting á alla milligíra
Fjórar rafstýrðar vökvasneiðar (8 úrtök)
Tölvustýrð miðstöð með A/C
ProfLine lúxuspakki:
DEUTZ-FAHR Agrotron K110
býðst nú á sérstöku tilboðsverði
fram að 30. nóvember n.k.
Verð aðe ins k r. 5 .300.000- * ) án vsk
*)Verð til bænda á lögbýlum. Tilboðið gildir til 30. nóvember 2007 eða meðan birgðir endast.
P r o f i L i n e l ú x u s p a k k i k r. 4 0 0 . 0 0 0 -
* )
án vsk
Rússalerkið
vinsælast
Árið 2007 voru gróðursett
ar samtals 1.473.116 plöntur
bæði í skóg og skjólbelta
rækt á Norðurlandi.
Þetta er aukning upp á rúm-
lega 80 þúsund plöntur miðað
við síðastliðið ár. Skiptingin
er þannig að ríflega helmingur
allra plantna, 55% var gróð-
ursettur að vori, 43% að auki og
rúm 2% plantna fór í skjólbelti.
Líkt og fyrri ár er mest gróð-
ursett af rússalerki eða tæplega
726 þúsund plöntur.
Alls voru gróðursettar 23
tegundir í ár að því er fram
kemur á vef Noðurlandsskóga.
Rússalerkið vermir fyrsta sætið
sem fyrr segir, þá kemur ilm-
björk, en af þeirri tegund voru
gróðursettar ríflega 29o þús-
und plöntur í ár, tæplega 146
þúsund stafafurur, nær 95 þús-
und plöntur af sitkabastarði
fóru í norðlenska mold þetta
árið og um 73 þúsund blágren-
isplöntur.