Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007 Málgagn bænda og landsbyggðar LEIÐARINN LOKAORÐIN Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 5.100 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.300. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 – Ritstjóri: Þröstur Haraldsson, ábm. th@bondi.is – Sími: 563 0375 Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. Upplag: sjá forsíðu – Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Jólin nálgast í ríki andstæðanna Það er farið að halla ískyggilega í aðventuna og eins og fyrri daginn kemur það jafnflatt upp á fólk að liðið sé ár frá því hún heimsótti okkur síðast. Eins og vaninn er verðum við fyrst vör við að jólin séu að nálg- ast í auglýsingum fjölmiðla. Að þessu sinni eru það ekki hvað síst dótabúðirnar sem hafa verið duglegar að láta okkur vita af því hvað í vændum er. En svo er líka farið að verða meira spennandi þessa dagana en venjulega að kíkja á vöruúrval bókabúðanna. Leikfangaæðið virðist hafa gripið þessa þjóð svo heiftarlega að fréttir herma frá slagsmálum við opnun nýrra verslana. Spaugstofan gerði þessu ágæt skil um síðustu helgi og benti á þá athyglisverðu staðreynd að sennilega erum það við þessi fullorðnu sem göngum lengst í dótaæðinu. Ekki þannig að við séum endilega að kaupa stjörnustríðsmusteri eða barbí- veraldir heldur heitir dótið okkar öðrum og virðulegri nöfnum. Þannig hefur mátt lesa í blöðum að undanförnu að bandarískir bílar flæða inn í landið sem aldrei fyrr. Ástæðan er fyrst og fremst sögð vera lágt gengi Bandaríkjadals, en innst inni vitum við að það er tylli- ástæða. Hagstætt gengi er aðeins skálkaskjól fyrir hinn íslenska karlmann sem um langan aldur hefur átt þann draum sætastan og stærstan að aka um á virkilega öflugum og umfangsmiklum amer- ískum bensínháki. Fjölmiðlar virðast vera sam- mála um það hver jólagjöfin verður í ár. Það sem alla dreymir mest um er að eignast svonefnt GPS-staðsetningartæki. Vissulega má sjá nokkurt vit í því að það þurfi slík tæki í alla nýju jeppana og amerísku kaggana þegar eig- endurnir fara að þenja þá upp um fjöll og firnindi. Vonandi hefur þetta GPS-æði líka þá ánægjulegu hliðarverkun að færri týnast við veiðar eða annað hálendisflakk. Þá geta björgunarsveitirnar einbeitt sér að því að fullnægja annarri frumþörf hins íslenska karldýrs: flugeldaástríðunni. En eins og lesa mátti á forsíðu Moggans í gær hafa ekki allir landsmenn efni á að kaupa sér GPS-tæki. Í miðri velmeguninni – sem enginn endir virðist ætla að verða á – fjölgar þeim fjölskyld- um sem þurf að leita ásjár hjálp- arsamtaka til þess að eiga fyrir mat á jólunum. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur á von á því að til hennar leiti ríflega 2.000 heim- ili um matargjöf fyrir jólin og í Eyjafirði er talið að heimilin verði vel á fjórða hundraðið. Þessi vaxandi neyð er reyndar ekki bundin við jólin ein því þeim fjölskyldum fjölgar einnig ört sem þiggja vikulegar matargjafir Mæðrastyrksnefndar í Reykjavík allan ársins hring. Nú teljast um 400 manns til þess hóps og hefur fjölgað um 10-15% frá því í fyrra. Hópurinn sem á ekkert eftir fyrir mat og öðrum lífsnauðsynjum þegar föst gjöld hafa verið greidd fer stækkandi. Á sama tíma fjölgar þeim einn- ig sem finnst GPS-tæki heldur fánýtir smámunir og velja fremur að gefa sínum nánustu demanta, silfur og skínandi gull – nú, eða þá amerískan kagga. –ÞH Lokaskýrsla um hreint neysluvatn komin út Bændasamtökin héldu fund fyrir nokkru um framtíð matarverðs eins og fjölmiðlar gerðu ágæt skil. Daginn eftir þann fund sátu 500 full- trúar á aðalfundi dönsku bændasamtakanna – Dansk Landbrug – og ræddu á sama hátt þróun á matarverði. Hækkandi verðs á mjólkurvörum er farið að gæta í verslunum. Samkeppni um mjólk frá bændum hefur á undanförnum vikum verið hörð. Þannig hafa bændur í Svíþjóð og Danmörk og jafnvel norskir bændur sent mjólkurbíla með mjólk í þýskar mjólkurstöðv- ar sem borga hátt verð. Umræðan á aðalfundi dönsku samtakanna endurspeglaði líka þá staðreynd að kjötverð hefur ekki enn hækkað svo nokkru nemi, frek- ar lækkað. Á fundinum kom skýrt fram hve illa það er farið að leika bænda í svínabúskap og fleiri kjötframleiðendur. Frummælendur í mál- stofu um búvöruverð voru samt sammála um að kjötverð myndi hækka, þótt skiptar skoðanir væru á aðafundinum um hve mikil hækkunin yrði og hve lengi hátt verð myndi standa. Þeir voru sammála um að þess yrði langt að bíða að verðið yrðu jafnlágt og það hefur verið til skamms tíma. Framleiðendur á korni voru hins vegar mjög bjartsýnir á að kornverð héldist áfram hátt. Um ástæður þessa hefur áður verið rætt hér í Bændablaðinu, þurrkar og ótíð víða í Evrópu hafa valdið lélegri kornuppskeru. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir korni til framleiðslu á líf- eldsneyti aukist og sömuleiðis neysla á korni og öðrum búvörum í Kína og fleiri Asíuríkjum. Allt er það kunnugt en á fundinum í Herning var einnig bent á að stuðningsgreiðslur Evrópu- sambandsins við búvöruframleiðslu gætu átt stærri þátt í hækkun á verði mjólkur en menn hafa hingað til talið. Nú væri að koma í ljós að þegar beinn framleiðslustuðningur hafi verið afnuminn hefði framleiðsla dregist saman. Verð- ið sem framleiðendur fengju væri alltof lágt. Sú þróun myndi halda áfram ef verðið lækkaði á nýjan leik. Framleiðslustyrkirnir hefðu því í raun lækkað matarverð til neytenda, líkt og þeim var ætlað, en margir hafa fullyrt að þeir þjónuðu ekki þeim tilgangi lengur. Umræðan meðal danskra bænda er ekki síst hvernig neytendur breðgast við þessari stað- reynd. Áratugum saman hafa matarútgjöld sem hlutfall af framfærslu fólks lækkað verulega. Í Danmörku fara að meðaltali 10-11% af ráð- stöfunartekjum til kaupa á mat, líkt og hér á Íslandi. Þetta er umhugsunarefni. Hér á landi hefur stundum verið rætt um nauðsyn þess að aftengja stuðninginn framleiðslumagni og taka upp grænar greiðslur. Víst er ekki með öllu óskynsamlegt að gera slíkt hér, en það má alls ekki rífa allt úr samhengi. Margir sjálfskip- aðir fræðimenn um íslenskan landbúnað hafa einmitt talið slík ráð bestu leiðina til að frelsa bændur úr ánauð kerfisins. En líkt og í Evrópu væru verulegar líkur á að það sama gerðist hér, að viljinn til að framleiða hyrfi með slíkum breytingum. Við það myndi verð til neytenda hækka. Atburðir á heimsmarkaði undanfarna mán- uði hafa einmitt kennt okkur hve nauðsynlegt er að veikja ekki á nokkurn hátt íslenskan landbúnað. Því miður er það ekki sjálfsagt að í útlöndum fáist endalaust ódýr matur. Svo vitnað sé til orða Martins Haworths, sem var gestur BÍ á fundinum á dögunum, þá bendir allt til þess að tími hins lága matvælaverðs í heiminum sé liðinn. Miklu frekar má nú ráða af umræðu manna erlendis að þjóðir taki á nýjan leik til við að efla landbúnað sinna landa í því skyni að tryggja velferð almennings og mat- vælaöryggi. En hækkun á markaðsverði búrvöru á sér líkar aðrar hliðar. Boðað er að verð á áburði hækki nú umtalsvert á milli ára, fyrst og fremst vegna mikillar eftirspurnar. Verð á sáðvöru fer væntanlega sömu leið. Þar á ofan er mikil verðbólga hér á landi farin að segja verulega til sín í rekstri bænda með hækkunum á vörum og þjónustu. Í lokin er hér ein athugasemd um vísunda- og mjólkurkúarækt Hagstofunar. Þessa dagana eru bændur að fara yfir skrán- ingu á atvinnuvegi sínum. Innleiðingu á nýju atvinnugreinaflokkunarkerfi – ÍSAT 2008 – er að ljúka, að því er segir í bréfi frá Hagstofu Íslands og Ríkisskattstjóra til bænda. Oft getur innleiðing á erlendum tilskipunum eða reglum tekið á sig grátbroslegar myndir, en þessi slær þeim öllum við. Undirritaður telst hér eftir vera ræktandi mjólkurkúa og vísunda. Mér er hulin ráðgáta hvers vegna ekki var hægt að gefa atvinnugrein kúabænda nafn með öðrum hætti. Því er stundum haldið fram að íslensk stjórn- völd innleiði evrópskar tilskipanir án þess að gera minnstu tilraun til að laga þær að íslensk- um veruleika. Þetta virðist staðfesta með eft- irminnilegum hætti að sú kenning sé rétt. HB Af matarverði og vísunda- rækt Á vegum Umhverfisstofnunar er komin út lokaskýrsla um átak um hreint neysluvatn sem hófst árið 1998. Þá kom til fram­ kvæmda í Evrópusambandinu tilskipun um neysluvatn, sem felldi úr gildi eldri tilskipun um sama efni. Á þessum tíma var í gildi hér á landi reglugerð um neysluvatn frá 1995 sem tók til Evrópuskipana um yfirborðsvatn og neysluvatn og auk þess reglu­ gerð um ölkelduvatn. Innleiðing nýju neysluvatnstilskipunarinn­ ar leiddi af sér viðamiklar breyt­ ingar og var sett ný reglugerð um neysluvatn 2001. Meðal breytinga sem þar komu fram má nefna: Breytingar Breytt fyrirkomulag eftirlits og rannsókna, breytinga á sýnafjölda, mæliþáttum og viðmiðunargildum þeirra. Nákvæmar skilgreind við- brögð við menguðu neysluvatni og upplýsingarskylda yfirvalda gagn- vart neytendum. Veigamesta breytingin varðaði þó ákvæði um að allar vatnsveitur, sem þjóna yfir 50 manns eða 20 sumarhúsum eða þjóna matvæla- fyrirtækjum, skyldu hafa starfsleyfi og að haft skyldi reglubundið eftir- lit með þeim. Víðtæk krafa neysluvatnsreglu- gerðarinnar um starfsleyfi var aðal- hvati þess að Umhverfisstofnun ákvað að hrinda af stað ,,Átaki um hreint neysluvatn.“ Annar hvati að átakinu var vilji opinberra yfirvalda sem fram kom eftir útgáfu reglu- gerðarinnar til að auka samvinnu og fá fram betri yfirsýn fjölda, gerð og frágang vatnsveitna. Ábendingum hafði líka verið komið á framfæri við Umhverfisstofnun um að líklegt væri að vatn frá minni vatnsveitum stæðist í mörgum tilfellum ekki mörk neysluvatnsreglugerðarinnar, hvorki þeirrar frá 1995 né hinnar nýju frá 2001. Átakið fór formlega af stað um áramótin 2001/2002 og er nú með þessari skýrslu formlega lokið. Umhverfisráðuneytið og tvenn heildarsamtök bænda veittu átakinu fjárstuðning. Vitundarvakning Færa má rök fyrir því að fram- kvæmd átaksins hafi með beinum og óbeinum hætti aukið umræðu og vitund í þjóðfélaginu um mikilvægi hreins og öruggs neysluvatns. Eigendur vatnsveitna hafa ráðist í endurbætur eða slegið saman í gerð nýrra vatnsveitna og oftar hefur verið borað eftir vatni. Samkvæmt ákvæðum neyslu- vatnsreglugerðarinnar er það í hönd- um heilbrigðisnefnda að fara með eftirlit með ákvæðum hennar undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar. S.dór

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.