Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007 Niðurstöður athugana vegna Greinargerð um vænlegustu kúakynin í samanburðinum Í greinargerðinni segir m.a. ,,Þegar athugað er hvaða kyn kemur til greina að flytja til landsins, bein- ist athyglin mjög að þeim kynj- um sem við getum fengið frá Norðurlöndunum. Heilbrigðis- ástand gripa þar er með því besta sem gerist í heiminum. Kynbóta- starf er mjög öflugt, aðgengi að upplýsingum er gott og fyrirtæki sem stunda útflutning á erfðaefni eru starfrækt í öllum þessum lönd- um. Annað land sem fellur undir þessi skilyrði um heilbrigðisástand er Nýja-Sjáland en þar er ræktunar- starf líka mjög öflugt og útflutning- ur á erfðaefni talsverður atvinnu- vegur. Niðurstaðan er síðan sú að eft- irtalin kúakyn eru talin áhugaverð- ust: ► NRF (Norsk Rødt Fe): mjög mikil áhersla á heilsufarseig- inleika, frekar lítil áhersla á aukningu í afkastagetu. ► SRB (Svensk röd och vit boskap): mikil áhersla á heilsu- far, talsverð á afkastagetu, tví- nytja kyn. ► SLB (Svensk låglandsboskap): feikileg afkastageta, talsverð áhersla á heilsufar, það kyn sem er í hvað örastri erfðaframför. ► NZF (New Zealand Friesian): mjólkurlagnar kýr, endast mjög vel, heppileg stærð, áhersla á mjög hátt hlutfall gróffóðurs og beitar í fóðri gripanna. Baldur H. Benjamínsson vann greinargerðina og útdráttinn. Samanburður á rekstrar­ hagkvæmni mjólkurfram­ leiðslu íslensku kýrinnar og fjögurra annarra kúakynja Verkefni þetta var unnið að beiðni verkefnisstjórnar Landsambands kúabænda um mat á hagrænum ávinningi af innflutningi erfðaefnis til kynbóta á íslenska kúastofninum. Verkefnisstjórnin leitaði til LbhÍ um að vinna úttekt á áhrifum innflutn- ings á arðsemi einstakra kúabúa. LbhÍ skipaði starfshóp sem í sátu Daði Már Kristófersson, Emma Eyþórsdóttir, Grétar H. Harðarson og Magnús B. Jónsson. Fyrir lágu tillögur um fjögur kúakyn sem til greina kæmi að flytja inn. ► NRF (Norsk Rødt Fe) ► SRB (Svensk röd och vit boskap) ► SLB (Svensk låglandsboskap) ► NZF (New Zealand Friesian). Hægt er að fara margar leið- ir til að nálgast þetta verkefni. Þær hafa þó allar þá sömu annmarka að framleiðsluaðstæður hér á landi og erlendis eru ólíkar og því nokkur óvissa um yfirfærslugildi niðurstaðn- anna. Sú leið var valin að byggja samanburðinn annars vegar á upp- lýsingum úr skýrsluhaldsgögnum og upplýsingum frá ræktunarfélögum viðkomandi kynja og hins vegar á tilraunaniðurstöðum þar sem fram- leiðsluaðstæður líkjast íslenskum aðstæðum. Í nokkrum tilvikum var stuðst við handbókarupplýsingar s.s. um mjaltaafköst erlendu kynjanna. Það kom í ljós að upplýsingar eru misítarlegar og t.d. eru heilsufarsupp- lýsingar mun fátæklegri um íslenska kúakynið en hin erlendu. Á grundvelli þessara forsendna er síðan sett upp líkan sem er af svip- aðri gerð og núverandi verðlags- grunnur en þó mun ítarlegra hvað varðar t.d. heilsufar. Breytilegir kostnaðarliðir byggja á útreikn- uðum þörfum fyrir aðföng eins og áburð, vinnu, þjónustu dýralæknis o.s.frv. Þeir liðir sem ekki er tekið sérstaklega á í líkaninu eru látnir fylgja langtíma samhengi kostnaðar og umfangs rekstrar samkvæmt gagnasafni Hagþjónustu landbún- aðarins. Könnun á vinnuþörf við mjaltir var framkvæmd í tengslum við verkefnið vegna ábendinga um að umtalsverður munur væri á vinnuþörf vegna íslenskra og erlendra kúa. Niðurstöður könn- unarinnar benda til að mjaltir hér á landi séu umtalsvert vinnufrekari en erlendis en samkvæmt þeim má gera ráð fyrir að við bestu aðstæð- ur séu afköst í mjaltabás hér á landi um 3,60 mínútur/grip/dag meðan sambærilegar tölur fyrir erlend kyn eru 3,05 mínútur/grip/dag. Mjaltir með mjaltaþjónum eru jafnframt nokkuð vinnufrekari hér á landi en gerist erlendis. Samkvæmt nið- urstöðum könnunarinnar eyða íslenskir bændur að meðaltali 1,5 klst. á þjón á dag í mjaltir og annað sem því við kemur miðað við 51 kú á hvern þjón. Þessi vinna felur í sér rekstur á kúm í mjaltaklef- ann, tölvuvinnu í fjósinu og aðstoð við mjaltir ef illa gengur, t.d. að setja hylkin á spenana handvirkt. Samsvarandi erlendar niðurstöður voru 0,5 klst. á þjón á dag, og með 54 kýr á hvern þjón. Niðurstöður líkansins byggja á kúabúi sem er með 60 íslenskar kýr í fjósi og leggur megináherslu á mjólkurframleiðslu, þannig að einungis kvígur eru aldar til full- ar stærðar. Gert er ráð fyrir mjölt- um í mjaltabás þó svo útreikning- ar hafi einnig verið gerðir miðað við mjaltaþjón. Fjórar útkomur voru metnar með tilliti til umfangs rekstrar eftir að skipt hefur verið um kúakyn. 1. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir óbreyttum fjölda gripa, þ.e. íslensku kúnum er einfaldlega skipt út með erlendu kúnum. Þetta er einfaldasta útfærslan en gefur góða mynd af afkastagetu nýrri fjósa þar sem óverulegar breytingar þyrfti til þó skipt væri um kúakyn. Þetta er gert bæði fyrir viðmiðunarbú með mjalta- bás en til viðbótar fyrir viðmið- unarbú með mjaltaþjóni. Gert er ráð fyrir að mjaltaþjónninn sé fullnýttur og þar af leiðandi er ekki raunhæft að reikna út nið- urstöðuna fyrir hann m.v. hinar forsendurnar hér á eftir. 2. Í öðru lagi er miðað við óbreytta vinnuþörf enda er vinnuafl oft takmarkandi þáttur til sveita og sá framleiðsluþáttur sem setur bústærðinni skorður til lengri tíma litið. 3. Í þriðja lagi er miðað við óbreyttan fermetrafjölda. Þar er stuðst við erlendar viðmið- unartölur fyrir Jersey og stærri kyn, en reikna má með að rým- isþörf Jersey kúa sé svipuð rým- isþörf íslenskra kúa. Miðað við þær þurfa NRF, SRB og NZF kúakynin um 5% meira rými á hvern grip en íslenskir gripir á meðan SLB þarf um 10% meira rými. Þessi viðmiðun gerir ráð fyrir fullnýtingu fjóss fyrir og eftir breytingar. Aðalfundur Landssambands kúabænda árið 2006 samþykkti að láta gera úttekt á hagkvæmni þess að framleiða mjólk á Íslandi með öðru kúakyni en því sem hér hefur verið frá öndverðu. Í kjölfar þess var skipaður stýrihópur sem í voru Þórólfur Sveinsson, formaður LK, Ágúst Sigurðsson, rektor LBHÍ, og Pálmi Vilhjálmsson, þáverandi framkvæmdastjóri SAM. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK, vann einnig með hópnum. Að frumkvæði þessa hóps var tekin saman greinargerð um hvaða kúakyn kæmu til greina í samanburði á framleiðslukostnaði, m.v. íslenska kúakynið, starfshópur á vegum Land­ búnaðarháskóla Íslands gerði samanburð á rekstrar­ hagkvæmni mjólkurframleiðslu íslenska kúakynsins og fjögurra annarra kúakynja, gerðar voru tvær skoðanakannanir og ein rýnihópakönnun á viðhorf­ um neytenda til málsins, og að síðustu voru Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði, SAM, fengin til að taka saman greinargerð um þau atriði í þessu máli er lúta að mjólkuriðnaðinum. Frá Landssambandi kúabænda afkastameira kúakyns Þórólfur Sveinsson bóndi, formaður Landssambands kúabænda thorolfu@centrum.is nautgriparækt Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda bhb@lk.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.