Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20071 Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Impra í samstarfi við Fram­ leiðnisjóð landbúnaðarins fóru af stað með átaksverkefni um atvinnusköpun í sveitum sem kallast Vaxtarsprotar fyrr á þessu ári. Nú er 10 mánaða ferli lokið norðan­ og sunnanlands en á uppskeruhátíð verkefnisins fyrir sunnan hlutu hjónin Eyrún Jónasdóttir og Steingrímur Jónsson í Kálfholti í Ásahreppi sérstaka viðurkenningu. Erfitt að gera upp á milli verkefna „Það voru mörg mjög fín verk- efni og erfitt að gera upp á milli þeirra en við sambærileg tilefni höfum við ákveðið að velja einn úr. Verkefni Kálfholtshjónanna er á hefðbundnu sniði á sviði ferða- þjónustu en þau eru með fastmót- aða stefnu og ólíka nálgun í sínum ferðum fyrir afmarkaða hópa sem gerir þeirra hugmyndir svolítið sér- stakar. Mest um vert eru þó þeirra vinnubrögð í gegnum námskeiðs- ferlið en þau skrifuðu og skil- uðu fullmótaðri viðskiptaáætlun og nýttu sér alla þætti sem í boði voru í kringum verkefnið þannig að þetta spilaði allt saman,“ segir Elín Aradóttir, verkefnisstjóri yfir Vaxtarsprotaverkefninu. Þátttakendum verkefnisins stendur enn til boða ráðgjöf hjá Impru og eru þeir studdir í að sækja um styrki í Framleiðnisjóð landbúnaðarins. Á næsta ári verður einnig lagt af stað með verkefnið á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra með áherslu á Þingeyjarsýslu. „Það var þó nokkuð um það að aðilar sem væru með rekstur hyggðu á frekari þróun. Þó nokkur breidd er í þessu en mörg verkefn- in eru ferðaþjónustutengd. Það er einnig gaman að þessum verkefn- um sem eru ekki beint í ferðaþjón- ustu eins og iðnframleiðendur og nefni ég sem dæmi á Suðurlandi hugmyndina um íslenska hágæða viðarklæðning hjá Guðmundi Magnússyni í Steinahlíð þar sem hann hugsar hvernig hægt er að nýta íslenskan við. Einnig er fyr- irtæki Steins Mássonar, Helluísstöð á Hellu að framleiða ístöð sem er skemmtileg tenging við það sem er að gerast í sveitum landsins, það er, hestamennsku. Heimavinnsla afurða er að koma inn sem bygg- ir á að mjög margir bændur hafa þekkingu á sviði kjötiðnaðar því margir þeirra hafa unnið um tíma í sláturhúsi í mörg ár samhliða búrekstri. Það er fyrst og fremst skemmtilegt að fólk horfi í kring- um sig og nýti tækifærin,“ segir Elín. Fjölskylduferðir okkar sérkenni Á uppskeruhátíðinni var eitt verk- efni sem hlaut sérstaka viðurkenn- ingu en það er verkefni á vegum Eyrúnar Jónasdóttur og Steingríms Jónssonar í Kálfholti í Ásahreppi. Þau nýttu Vaxtarsprotaverkefnið til frekari uppbyggingar á fyrirtæki sínu sem þau nefna Kálfholt hesta- ferðir. „Það er mikill heiður og hvatn- ing fyrir okkur að fá viðurkenn- inguna. Það sem við lærðum á námskeiðinu hefur haft mikla þýð- ingu því við höfðum aðgang að góðum ráðgjöfum varðandi mark- aðsmál, hvaða markhóp við ættum að velja og hvernig við ættum að koma vörunni frá okkur. Síðan getum við haldið áfram að leita til þessa ráðgjafa sem er mjög jákvætt,“ segir Eyrún. Þau Eyrún og Steingrímur hafa starfrækt hestaferðirnar í þrjú ár og reka einnig hestaleigu samhliða sem er starfandi allt árið. „Við leggjum áherslu á hesta- ferðir fyrir mismunandi hópa og viljum að þetta sé fyrir alla fjöl- skylduna. Okkar sérkenni eru fjölskylduferðirnar hér í byggð þar sem annað eða báðir foreldrar koma með. Einnig erum við með hálendisferðir fyrir mismunandi hópa og fyrir eldri krakka sem kallast ævintýrahópur og kvenna- ferðir sem nefnast valkyrjuferðir. Eins og hestamennskan er í dag er þetta eitthvað sem fólk mun sækja í meira mæli í,“ útskýrir Eyrún. ehg Hjónin Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík við Steingrímsfjörð eru kraft­ miklir sauðfjárbændur sem hafa hug á að auka virði afurða af búinu hjá sér. Þau ætla að fram­ leiða lúxusmatvöru, sem hefur fengið heitið Lostalengjur, úr blá­ berjalegnu og reyktu ærkjöti. „Hugmyndina erum við búin að ganga með í maganum síðan 1999 og hugsa mikið um það síðastliðin þrjú ár hvernig væri hægt að gera þetta,“ segja þau. Matthías fór til Þýskalands 1999 og sá hvernig hlutirnir eru gerðir þar. Árið 2003 fóru þau svo til Austurríkis, en þar er mikil ásókn í heimaunnar vörur, sem eru rekjanlegar til býlis. „Þar eru ekki margir millilið- ir milli bænda og viðskiptavina. Bændurnir fara t.d. út í þorpin með kælibíl og selja úr honum kjöt, pylsur og fleira. Þarna sáum við að úr því að Austurríki, sem er aðili að Evrópusambandinu, getur þetta, hlytum við að geta það líka,“ segja þau. Hafdís og Matthías telja tví- mælalaust að í heimavinnslu liggi vannýtt tækifæri og segja að koll- egar þeirra verði æ meira varir við að neytendur vilji borða kjöt sem framleitt er á svæði sem þeir tengj- ast persónulega. Því séu bændur í auknum mæli farnir að taka heim kjöt sem þeir láti hluta niður að óskum neytenda og afhendi þeim síðan persónulega. Tínir tíu lítra á klukkustund Matthías hefur alla tíð búið í Húsa- vík og tók við búskapnum af for- eldrum sínum 1977, en Hafdís flutt- ist þangað fimm árum síðar. Í dag eru þau með 460 fjár á fóðrum, þar af um 430 ásettar ær. Matthías vann í sláturhúsi allan þann tíma sem slátrað var á Hólmavík og hefur því góða þekkingu á kjöti og eiginleik- um og meðhöndlun þess. Einnig tóku þau hjónin þátt í að halda námskeið um niðurhlutun á ófrosnu kjöti sem haldið var á Ströndum fyrir nokkrum árum. Bæði eru þau búfræðingar frá Hvanneyri og Hafdís er um þess- ar mundir að ljúka meistaranámi frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, en hún hefur stundað nám á landnýtingarsviði. Nýlega var hún svo ráðin í starf hjá Nátt- úrustofu Vestfjarða á gróðurdeild. Starfið er meðal annars tilkomið í kjölfar svokallaðrar „Vestfjarða- skýrslu“ og mun Hafdís hafa starfs- aðstöðu á Hólmavík. Aðspurð um hugmyndina að Lostalengjum segja Hafdís og Matthías: „Við höfum alltaf verið órög við að gera tilraunir með meðhöndlun kindakjöts. Við höfum reykt okkar kjöt nokkuð lengi og gert alls konar tilraunir í tengslum við það. Það hefur sumt komið skemmtilega út og vakið mikla lukku í fjölskyldu og vinahópi.“ Prufur af Lostalengjum verða tilbúnar á næstu dögum. Kjötið er látið liggja í aðalbláberjalegi og reykt á eftir. Vinnsluferlið tekur um viku til tíu daga. „Matthías sér um berjatínsluna,“ segir Hafdís, „og er fljótur að, tínir um tíu lítra á klukkutíma.“ Matthías bætir þvi við að þetta ár hafi verið gríðarlegt berjaár, hið besta í manna minn- um, og telur sig hafa verið um 8-12 tíma að tína það magn sem þurfi að nota í ár. Þau nefna að þó að kjötið þeirra sé ekki látið „krydda sig sjálft“ taki það vissulega bragð af því beitilandi sem skepnan gengur á og sauðféð úði í sig berjum ef það hefur aðgang að þeim. Kjötið er reykt við tað en formúlan að reykn- um er ekki gefin upp, hún er fram- leiðsluleyndarmál. Þau segja enda mikilvægt að ákveðin blanda sé til staðar í reyknum til að maturinn taki góðan keim. Hafdís og Matthías telja að vinnsla af þessu tagi kosti ekkert óyfirstíganlegt reglugerðafargan, þar sem þau ætla ekki að fara út í slátrun. Hins vegar mun flutningur kjötsins frá sláturhúsi verða stór kostnaðarliður, enda langt í næsta sláturhús. Sjálf láta þau slátra á Blönduósi, en styst er í sláturhús á Hvammstanga. Tækjakostur til vinnslu á losta- lengjum er fyrst og fremst fólginn í áhöldum til niðurskurðar, kæli- og pökkunarbúnaði. Húsnæði er til staðar í Húsavík en eftir er að setja niður hvaða lausn komi best út fjár- hagslega í því sambandi. Einnig nefna þau að skortur á þriggja fasa rafmagni geti orðið framleiðslu af þessu tagi til trafala, en binda vonir við að úr því fáist bætt á næstunni. Einnig nefna þau að netsambandið mætti vera betra: „Við erum með „aðkenningu“ að ADSL sambandi, náum því á lágmarkshraða sem dugar þó til tölvupóstsendinga og heimasíðugerðar,“ segir Hafdís. Vandamál eru ekki til Viðskiptaáætlun um Lostalengjur var unnin í verkefninu Vaxtarsprotar sem þau Hafdís opg Matthías tóku þátt í ásamt fjölmörgum öðrum ábú- endum á lögbýlum við Húnaflóa. Verkefninu Vaxtarsprotum lauk með uppskeruhátíð að Staðarflöt í Hrútafirði fyrr í þessum mánuði, en það hafði þá staðar yfir síðan í febrúar. Námskeiðið segja þau hjónin hafa nýst sér vel, þar hafi verið farið vel yfir þætti sem hafa þarf í huga við stofnun fyrirtækja. „Það var mikið gagn og gaman að því að hitta hina og fá þeirra við- horf, varpa á milli sín hugmynd- um og skiptast á skoðunum.“ Þau segja námskeið af þessu tagi vel til þess fallinn að koma áfram hug- myndum sem fólk gengur með en kemur ekki í framkvæmd og telja að hópvinna geti oft gefið lausnir á því sem hefðu annars geta verið vandamál. „Vandamál eru ekki til,“ bætir Matthías við, „þau eru viðfangs- efni. Það kom mér á óvart, en þó ekki, hve mikið er af snilldarhug- myndum á þessu svæði. Sumir þurftu að velja úr nokkrum jafn- góðum hugmyndum til að vinna með. Umræðan á námskeiðinu var mjög skemmtileg og frjó.“ Hafdís og Matthías eru sammála um að fjármálahliðin sé flóknust í svona vinnuferli, enda sé erfitt að setja verðmiða á allt. „Maður hefur samt mjög gott af þeirri vinnu, en manni hrýs hugur við henni í upphafi,“ segir Hafdís. Fólk horfir í kringum sig og nýtir tækifærin Hópurinn á Suðurlandi við útskrift af námskeiðum verkefnisins sem fór fram í félagsheimilinu á Hvolsvelli 2. nóvember síðastlið­ inn. Hjónin Eyrún Jónasdóttir og Steingrímur Jónsson í Kálfholti í Ásahreppi fengu sérstaka viðurkenningu en þau sérhæfa sig í hestaferðum fyrir mis­ munandi hópa. Lostalengjur sem verða lúxusvarningur Hjónin í Húsavík, Matthías og Hafdís, kynna lostalengjurnar sínar á uppskeruhátíð Vaxtarsprotaverkefnisins að Staðarflöt í byrjun nóvember.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.