Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 25

Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 25
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007 Viðbætir Stjórn Landssambands kúa­ bænda lítur svo á að nú sé lokið þeirri vinnu sem aðalfundir LK 2006 og 2007 óskuðu eftir í þessu máli. ► Nú liggur fyrir hvaða kúakyn, eitt eða fleiri, er áhugaverðast að skoða í framhaldinu. ► Í skoðanakönnunum og vinnu með rýnihópum hefur skýrt komið í ljós að neytendur bera mikið traust til íslenskrar mjólkur og mjólkurvara. Hvað drykkjarmjólkina varðar er þetta traust að einhverju leyti tengt eiginleikum íslenska kúakyns- ins. Sjálfsagt er að koma til móts við þessi sjónarmið og í þeim kunna að vera sóknarfæri á markaði. ► Nýting mjólkur til afurðavinnslu er hin sama, óháð því úr hvaða kúakyni mjólkin kemur. ► Í skýrslu starfshóps Landbún­ aðarháskóla Íslands er gert ráð fyrir lækkun framleiðslukostn- aðar um 8-12% með notkun afkastameira kúakyns. Það er í góðu samræmi við niðurstöður Fagráðs í nautgriparækt frá því árið 2001, þar sem gert var ráð fyrir lækkun framleiðslukostn- aðar mjólkur um 9-14%. Í báð- um tilfellum var jákvæðum áhrif- um á nautakjötsframleiðsluna sleppt, svo og framtíðaráhrifum minni erfðaframfara í íslenska kúastofninum. ► Segja má að yfirgnæfandi rök séu fyrir því að engin ein aðgerð geti haft jafn mikil áhrif til lækkunar á framleiðslukostnaði mjólkur eins og að taka í notkun afkastameira kúakyn. Jafnframt er líklegt að full þörf verði fyrir þá auknu hagkvæmni á komandi árum ef íslenskir kúabændur vilja áfram halda stöðu sinni á innlenda markaðnum. Á þessu stigi er ekki vitað hvað gerist næst. Það gæti orðið þetta: 1. Það sem snýr beint að bænd­ um: Líklegt er að stofnað verði félag þeirra sem vilja flytja inn erfðaefni. Ákveða þarf hvaða kúakyn verður valið og hvernig staðið verður að framkvæmd- inni, umfang ofl. Að mörgu leyti virðist síðan einfaldast að rækt- unarfélag semji við BÍ og bún- aðarsamböndin um geymslu og dreifingu á sæði. Það gerist ekk- ert fyrr en einhver aðili tekur af skarið og sækir um heimild til innflutnings á erfðaefni, (sæði). 2. Það sem snýr að mjólkuriðn­ aðinum: Mjólkuriðnaðurinn þarf að taka ákvörðun um aðkomu sína að verkefninu, og ákveða síðan í samráði við kúabændur, (og eftir atvikum stjórnvöld), hvort drykkjarmjólkin verði áfram úr núverandi kúakyni. Það er líka hægt að ákveða að neytendum muni standa til boða drykkjarmjólk úr núverandi kúa- kyni. Þetta er mjög mikilvægt atriði sem snertir bæði viðhorf neytenda og hugsanlega þörf á aðgerðum hins opinbera til að vernda kúakynið. Þó skal haft í huga að verndun búfjárkynja er þjóðréttarleg skuldbinding sem snertir ekki eiganda viðkomandi gripa. Í Nýmjólk, Léttmjólk, Fjörmjólk og Stoðmjólk fara ca. 31 milljónir lítra og til að fram- leiða það magn þarf ca. 6-7 þús- und kýr. 3. Afstaða stjórnvalda til máls- ins hlýtur að ráðast mjög af því hvaða fyrirætlanir verða kynntar. Höfundar: Baldur Helgi Benjamínsson og Þórólfur Sveinsson. Jeppadekk Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 Heilsársdekk 31" kr. 12.900 (31x10.50R15) 33" kr. 15.900 (33x12.50R15) Úrval annarra stærða upp í 38". Felgustærð 15", 16" 17" og 18". Sendum frítt um land allt! Við mælum með míkróskurði P IPA R • S ÍA • 70 622 Nánar á jeppadekk.is Bókin er til sölu hjá eftirtöldum aðilum: Búgarður Óseyri 2 Akureyri, s. 460-4477 Búgarður Garðarsbraut 5 Húsavík, s. 464-2491 Byggðir og bú Suður-Þingeyinga 2005 Í bókinni eru hefðbundnar upplýsingar um jarðir og ábúendur þeirra auk mikils fjölda ljósmynda, ýmiskonar fróðleiks og ábúendatöl jarða. Útgefandi er Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga. Bókin er í 2 bindum, 1150 síður. Verð 15.800 kr. Bændasamtök Íslands Reykjavík, s. 563-0300 Sparisjóður Suður-Þingeyinga Laugum, s. 464-6200 Sparisjóður Suður-Þingeyinga Húsavík, s. 464-6210 Út er komin ljóðabókin „Til blárra fjalla tinda“ eftir Þóreyju Jónsdóttir frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal. Útgefandi er Félag ljóðaunnenda á Austurlandi. Auk þess að alast upp í Breiðdal og hafa átt heima þar um skeið, hefur hún búið vestur á fjörðum, þ.e. í Dýrafirði, en lengst á Akranesi og í Reykjavík. Hún hefur verið virk í félagsmálum, svo sem í verkalýðsbaráttu, leik- starfsemi og í kirkjukórum, auk þess að hafa lagt fyrir sig mynd- list og gefið sig að ljóðlist. Þá er hún lærður fótaðgerðarfræðingur. Þórey hefur einkum stundað fisk- vinnslu- og aðhlynningarstörf, m.a. á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík. Ljóðagerð Þóreyjar er mótuð af störfum hennar. Hún horfir inn á við og tjáir hugsanir sínar frem- ur en að lýsa umhverfi sínu og atburðum. Hún laðar fram hið bjarta og jákvæða en henni er það vel ljóst að lífsglíman hefur verið mörgum þung. En jafnframt verður hið per- sónulega, sem hún tjáir, almennt og algilt og lesandinn finnur hlið- stæður í eigin huga. Fyrir þá, sem vilja senda sínar eigin kveðjur og þakkir, er mörg „mottó“ að finna í ljóðum Þóreyjar að grípa til til að tjá betur eigin hugsanir. Ljóðin í bókinni fylgja hefð- bundnum bragreglum, orðfærið er eðlilegt og hugsunin heilbrigð. Því hefur lengi verið haldið fram að kveðskapur sé þjóðaríþrótt Íslendinga og Þórey á heima í þeim fjölmenna hópi. Það, sem undirritaður þekkir til, þá er þetta sérstakt fyrir Ísland og Íslendinga og aðalsmerki þjóðarinnar sem útlendingar kalla söguþjóð en allt eins má kalla ljóða- og kveðskap- arþjóð. Bókin er 87 bls., hún er til sölu hjá Magnúsi Stefánssyni á Fáskrúðsfirði, síma 475 1211 og 867 2811, netfang: maggistef1@ simnet.is og kostar kr. 2.500, burð- argjald innifalið. Matthías Eggertsson Ritfregn Til blárra fjalla tinda

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.