Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20070 Ertu rík að vera bóndi? Hafa belj­ ur bragðskyn? Þær voru margar og misjafnar spurningarnar sem Berglind Hilmarsdóttir bóndi á Núpi undir Eyjafjöllum svaraði nemendum í 7. BS í Vogaskóla þegar hún kynnti störf bóndans í skólaverkefninu Dagur með bónda á dögunum. Nemendurnir fylgdust með af áhuga þegar Berglind sýndi þeim myndband með fæðingu kálfs og fleiru og ekki var síðri áhuginn og undr­ unin að túnin hjá Berglindi væru eins og um 100 fótboltavellir sam­ anlagt að stærð. Berglind hóf fræðslu sína á að kynna sjálfa sig og sveitina sína og virtust flestir krakkarnir vita hvar Skógafoss og Seljalandsfoss væri. „Sko, fossinn sem er hægt að labba á bakvið“, hváði í einum og annar sagðist keyra um þessar slóðir svona aðra hverja viku því mamma hans væri leiðsögumaður! Gamli og nýi tíminn Ósjálfrátt barst talið áður en langt um leið að gamla og nýja tímanum og hversu miklar breytingar hafa átt sér stað hér á landi undanfarin ár. Berglind útskýrði fyrir krökkunum að hún væri í raun borgarstelpa sem hefði fyrst kynnst sveitinni þegar hún var 13 ára gömul og fór í sveit að Hvammi í Landsveit. „Það er mikið breytt frá því ég var í sveit en þá hringdi ég bara einu sinni heim til mín og spjall- aði við mitt fólk þau sex ár sem ég dvaldi þar. Á þessum tíma voru eingöngu sveitasímar og það var rosalega dýrt að hringja. Hver bær hafði ákveðnar hringingar og þar sem ég var í sveit var löng, stutt og löng hringing. Það var ein sam- tengd lína svo allir í sveitinni gátu legið á hleri og þetta gat komið sér vel þegar boða átti til afmælis eða jafnvel funda því þá þurfti bara að hringja eitt símtal. Það var hinsveg- ar erfiðara að tala um persónuleg mál eins og segja frá því að einhver væri ófrískur eða eitthvað slíkt því þá var það rakleiðis búið að fréttast um alla sveit,“ útskýrði Berglind og sagði krökkunum eftirminnilega hlerunarsögu úr sveitinni sem féll vel í kramið hjá þeim. Oj, oj og aftur oj Því næst sýndi Berglind krökk- unum myndband sem hún útbjó á bænum sínum sem sýnir vel hin daglegu störf bóndans og mátti ýmist heyra fliss eða oj á meðan það rúllaði, enda ekki á hverjum degi sem krakkarnir sjá kálf fæðast á myndbandi eða fiman klaufsnyrti að störfum. Þegar atriðið þar sem fæðing kálfsins var sýnt mátti sjá krakkana færa sig til í stólunum og halla sér fram á borðin af áhuga en þegar kýrin þvoði nýfætt afkvæmi sitt mátti heyra samhljóma; „oj, oj“ og í framhaldinu; „oj, oj, étur hún slímið!“, í kennslu- stofunni. Þegar kálfurinn reyndi svo að standa upp eftir klukkustund- artilveru hér í heimi hlógu krakkarnir að klaufalegum tilburðum dýrsins; „Hann reynir strax að standa upp, er hún ekki stórkostleg þessi náttúra?“, segir kennarinn, Sigrún Björnsdóttir og greinilegt er að nemendurna þyrsti í meiri vitneskju um þessa stórkost- legu náttúru og spurningunum rigndi yfir Berglindi: Hanna: Af hverju sleikir hún þetta af kálfinum? Andri: Eru vítamín í þessu? (hildunum). Óðinn: Hafa beljur bragðskyn? Andri aftur: Er þetta ekki vont á bragðið? Berglind: Já, það eru næring- arefni eftir í hildunum sem eru góð fyrir kúna og þær hafa svo sann- arlega bragðskyn. Bragðið af hild- unum er svona eins og bragð af lík- ama, eins og úr munni. Óðinn: En hefur þú smakkað þetta? Berglind: Nei, það hef ég nú ekki gert en ég hef fundið lyktina af þessu og ég held að ég sé nálægt því að segja að bragðið af þessu sé eins og af tári. Þetta er eðli dýra að hreinsa og éta allt sem fyrst eftir burð til að taka sem mesta blóðlykt sem rándýr geta runnið á. Ef það er ekki gert gufar lyktin upp og fer með vindinum og þá eiga rándýr auðvelt með að renna á lyktina. Þarfanaut og skrýtin nautstyppi Fljótlega eftir að Berglind kom og blaðamaður með henni í för var þeim tjáð að nokkrum dögum áður hefðu skapast miklar umræður í bekknum um hvað þarfanaut væru og tilgang þeirra. Því var eðlileg- ast að fjalla um það hvernig kálfar verða til við þó nokkurt fliss nem- endanna. „Af hverju ætli við látum karlinn með bleika hanskann koma?“ veltir Berglind upp fyrir framan bekkinn eftir að Smári sæðingamaður hafði sýnt sýnishorn af starfi sínu á mynd- bandinu. „Við erum með margar kýr og við viljum eiga góðar kýr og ástæða fyrir því að ekki er jafn- mikil þörf á þarfanautum og áður er sú að við stundum kynbætur og við fáum sæði úr úrvalsnautum ofan úr Nautastöðinni í Borgarfirði. Þó er það þannig að í fyrsta sinn sem kýr verða kálffullar kallast þær kvíg- ur og þá tökum við besta nautið okkar í desember og hleypum því í girðingu með kvígunum,“ útskýr- ir Berglind og áréttar fyrir börn- unum að nauðsynlegt sé fyrir þann sem ætli að verða bóndi að fara í bændaskóla því annars gæti margt klúðrast í búrekstrinum. „Já, svona eins og í Dalalífi,“ segir Óðinn þá brosandi. Ein stelpan í bekknum réttir upp hendi og spyr hvort kvígur fái full- „Merkilegt að upplifa sveitina“ Berglind svarar spurningum áhugasamra nemenda í 7. BS í Vogaskóla eftir að þau höfðu séð myndband úr sveit­ inni hennar. Þetta er örugglega júgursmyrsl gæti Martin verið að hugsa. Frá vinstri: Benedikt Traustason: „Þetta var mjög skemmtilegt og mér fannst merkilegast að sjá kálfinn fæðast.“ Hafþór Gunnarsson: „Mér fannst gaman að sjá hvernig dagurinn er hjá bóndanum en ég ætla ekki að verða bóndi heldur kokkur þegar ég verð stór.“ Hanna Rún Eyþórsdóttir: „Það var ótrúlega merkilegt að upplifa sveitina en mig langar ekkert sérstaklega að verða bóndi, frekar snyrtifræðingur.“ Jóna Diljá Jóhannsdóttir: „Það var mjög skemmtilegt og fræðandi að sjá hvað bóndinn gerir, ég hef stundum farið í heimsókn til frænku minnar í sveit og það er mjög gaman.“ Þór, Viðar og Haukur voru sammála um að í krukku númer sex væri gras­ fræ og prófuðu meira að segja að smakka. Þeir Egill og Pétur Jóhann voru kampakátir þegar þeir efnagreindu inni­ haldið í krukkunum sex sem Berglind kom með.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.