Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20073 Fólkið sem erfir landið Þú færð ráðgjöf og tilboð hjá sölufulltrúum okkar í eftirfarandi símanúmerum; Söludeild Reykjavík s. 569 2200 og söludeild Akureyri s. 460 9610. Einnig geturðu sent fyrirspurnir á netfangið soludeild@ms.is eða með bréfsíma í númer 569 2222. Á vefsíðu okkar www.ostur.is er að finna nánari upplýsingar um sælkeraostakörfurnar okkar og ostana sem í þeim eru. Gómsæt gjöf fyrir sælkera Falleg gjafakarfa með úrvali af bragðgóðum íslenskum ostum er tilvalin jólagjöf handa starfsfólki og viðskiptavinum www.ostur.is Langar að leggja fyrir sig fatahönnun Marý Heiðdal er á fyrsta ári í „gaggó“ í Seyðisfjarðarskóla. Nú er ferming framundan hjá Marý í vor og því er fermingarfræðslan fast­ ur liður hjá henni í vetur ásamt skólagöngunni. Nafn: Marý Heiðdal. Aldur: 13 ára. Stjörnumerki: Fiskarnir. Búseta: Baugsvegur 5, Seyðisfirði. Skóli: Seyðisfjarðarskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Smíði. Hvað er uppáhalds dýrið þitt? Páfagaukur. Uppáhaldsmatur: Pasta. Uppáhaldshljómsveit: Fall Out Boy. Uppáhaldskvikmynd: Good Luck Chuck. Fyrsta minningin þín? Þegar ég datt og braut tönn í Skólaselinu. Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Nei. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Að vera á MSN­spjall­ rásinni og hlusta á tónlist. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Sennilega fatahönnuður. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Veit ekki. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að bíða í tvo tíma á flug­ velli. ehg Marý Heiðdal Karlsdóttir (t.v.) 8. bekk ásamt vinum sínum Daða Sigfússyni 9. bekk og Höllu Björg Ólafsdóttur 9. bekk. Lokabindið í bókaröðinni um galdrastrákinn Harry Potter kom út á íslensku í liðinni viku og hvar er eðlilegra að kaupa slíka bók en í Galdrasafninu á Ströndum? Einar Friðfinnur Alfreðsson varð fyrstur til að kaupa Harry Potter og Dauðadjásnið og fékk að launum að velja sér eina af eldri bókunum. Sigurður Atlason er við afgreiðsluna og Jakob Ingi Sverrisson vinur Einars var líka mættur. Grýla og jólasveinar á Stokkseyri Nú eru jólasveinar og for­ eldrar þeirra farnir að sjást í byggðum, þar á meðal á Stokkseyri. Álfa­, trölla­ og norðurljósasafnið á Stokkseyri fer í nýjan búning þegar líða fer að jólum. Grýla og hennar hyski fer á stjá í safninu og jólamarkaður er opnaður. Þótt Grýla sé stór og ófrýnileg er hún innst inni besta skinn og ætlar að taka vel á móti stórum og smáum gestum safnsins. Grýludagar hefjast laug- ardaginn 17. nóvember og standa fram á þrettándann, 6. janúar. Jólasveinarnir koma svo einn af öðrum í hellinn til Grýlumömmu. Sá fyrsti, Stekkjastaur, mætir kátur 12. desember og sá síðasti hverfur til fjalla á þrettándanum. www.bbl.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.