Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 2
Þuríður Backman alþingismað
ur bar fram á Alþingi fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um
erfðabreytt aðföng í landbúnaði.
Ráðherra hefur svarað fyrirspurn
inni sem er í 7 liðum og sagði
Þuríður í samtali við Bændablaðið
að þetta sé ekkert svar og að hún
hafi í rauninni áhyggjur af því.
,,Annað hvort ríkir algert þekk-
ingarleysi á málinu eða þá að það er
enginn vilji til þess að fylgjast með og
vera samstiga Norðurlandaþjóðunum
og öðrum Evrópulöndum í þessu
máli. Við erum búin að vera með
gildandi Evrópureglur í 4 ár sem
hefði verið hægur vandi að taka upp
og hafa til hliðsjónar. Og að minnsta
kosti vera vakandi yfir því að bænd-
ur hefðu upplýsta stöðu mála um það
hverskonar kjarnfóður það er sem
þeir eru að nota. Þeirra sé þá valið,“
sagði Þuríður.
Hvaða kjarnfóður er þetta?
Hún segir að það komi hvergi fram
hvaða kjarnfóður það er sem verið
er að selja og segist ekki vera viss-
um að bændur geri sér grein fyrir
því hvaða kjarnfóður þeir séu að
kaupa. Hún segir enn fremur að í
svarinu komi ekki fram áhugi né
vilji til að bæta úr þessu þó svo,
úr því sem komið er, að ætlunin
sé að bíða eftir nýju reglunum og
innleiða þær en það kemur fram í
svarinu.
,,Ég tel að hægt sé að bregðast
við og gera ráðstafanir nú þegar til
þess að bændur vissu hvað þeir eru
með í höndunum. Á því virðist ekki
vera neinn áhugi,“ segir Þuríður og
bætir við að sá sérfræðingur sem
hafi aðstoðað ráðherra við samn-
ingu svarsins hafi ekki verið hlut-
laus í þessu máli og tali um kyn-
bætur með nýrri tækni í stað þess
að tala um erfðabreyttan fóðurbæt-
ur sem er staðreynd málsins.
Þuríður segist ætla að halda
áfram með þetta mál vegna þess
hve óljóst svar ráðherra sé. Svar
ráðherra má finna á vef Alþingis
www.althingi.is og er þetta þing-
skjal númer 154 og 100. mál. S.dór
Fréttir
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007
Í nýjasta hefti danska bænda
blaðsins LandbrugsAvisen er
skýrt frá því að bæði tilbúinn
áburður og þar af leiðandi allt
korn hafi hækkað mjög í verði
á þessu ári og spáð er enn frek
ari hækkun á næsta ári. Hjá
áburðarfyrirtæki í Árósum í
Danmörku er þegar komin fram
25 til 30% verðhækkun á þessu
ári. Þessi mikla verðhækkun á
áburði leiðir að sjálfsögðu til
verðhækkana á öllum fóðurbæti
þótt enn sé ekki hægt að segja til
um hve mikil hún verður.
Inn í þetta kemur að Rússar hafa
stóraukið maísframleiðslu sína en
hann er uppistaðan í lífeldsneyti
sem keyrir upp verð á maís bæði
þar og í Bandaríkjunum sem og á
korni um þessar mundir. Þá eru
Kínverjar farnir að borða fleira en
hrísgrjón og kalla því eftir áburði
í stórauknum mæli. Þessi aukna
eftirspurn kemur framleiðendum
áburðar á óvart því þeir hafa á und-
anförnum árum verið að draga úr
framleiðslu og loka verksmiðjum
vegna minnkandi eftirspurnar. Við
þetta bætast svo látlausar hækkanir
á olíuverði og allt verður þetta til
þess að verð á tilbúnum áburði og
fóðurbæti stórhækkar.
Ekkert lát á hækkunum
Lúðvík Bergmann, framkvæmda-
stjóri Búfanga sem er stór innflytj-
andi á tilbúnum áburði, sagði að
verð bæði á fóðurbæti og áburði
hefði hækkað jafnt og þétt allt þetta
ár og ekkert lát væri þar á.
Pétur Pétursson hjá Fóðurblönd-
unni sagði að aðalsendingarnar af
tilbúnum áburði kæmu til landsins
upp úr miðjum febrúar. Hins vegar
yrði að greiða áburðinn núna um
leið og hann er pantaður og það
væri alveg ljóst að stórfelldar verð-
hækkanir væru framundan, bæði á
áburði og fóðurbæti.
Í sama streng var tekið hjá SS
en sú sem rætt var við þar sagði að
verð væri ekki komið á þann áburð
sem kemur eftir áramótin en ljóst
að hækkun væri óumflýjanleg.
S.dór/–ÞH
Stórfelldar verðhækkanir framundan
á tilbúnum áburði og fóðurbæti
Hin árlega mjólkurvörusýn
ing í Herning í Danmörku var
haldin dagana 13.15. nóvem
ber. Fulltrúar íslenska mjólk
uriðnaðarins hafa annað hvert
ár farið á sýninguna og tekið
þátt í margskonar keppn
um við frændþjóðir okkar á
Norðurlöndum. Í ár lék lánið
síður en svo við íslensku kepp
endurnar því allar íslensku
mjólkurvörurnar voru stopp
aðar í sænska tollinum og
náðu því ekki til keppni á til
settum tíma. Skýringin er sú
að Íslendingarnir sendu vörur
sínar með flugi til Stokkhólms
í Svíþjóð en þar átti flutninga
bíll að taka við vörunum og
ferja til Herning í Danmörku. Í
Svíþjóð voru tollayfirvöld hins
vegar ekki á þeim buxunum að
hleypa tæplega 200 íslenskum
mjólkurvörutegundum áfram
til Danaveldis.
Bændablaðið hafði samband
við Magnús Ólafsson aðstoð-
arforstjóra hjá MS sem var
staddur úti á sýningunni. Hann
sagði þetta mikil vonbrigði fyrir
íslensku keppendurna: „Það á
eftir að fara ofan í saumana á
því hvað gerðist. Við sendum
yfir 200 sýnishorn af stað í síð-
ustu viku sem áttu að vera hér
úti fyrir helgi. Það var valið að
senda ostana með fraktflugi til
Svíþjóðar í stað almennrar vélar
til Kaupmannahafnar eins og við
gerðum árið 2005. Þá reyndar
skemmdist hluti af ostunum og
því var þessi flutningsleið valin
en Flugleiðir bjóða ekki upp á
fraktflug til Kaupmannahafnar,“
sagði Magnús Ólafsson en um
20 starfsmenn fyrirtækisins eru á
sýningunni.
„Ostarnir áttu aldrei að fara
inn í Svíþjóð og gegnum toll þar
heldur átti að fljúga áfram með
þá til Danmerkur eftir millilend-
ingu. Við höfum ekki feng-
ið nákvæma skýringu á því af
hverju þetta gekk svona fyrir sig
en þar sem við erum fyrir utan
Efnahagsbandalagið þarf að upp-
runamerkja vörur sem við vorum
í raun búin að gera en það voru
einhverjir fleiri skilmálar sem við
eigum eftir að fá á hreint. Það er
búið að fara fram gríðarlegur und-
irbúningur og við vorum hér með
dómara og annað. En við ætlum
að sofa á þessu og fara yfir málið
en þetta eru gríðarleg vonbrigði
fyrir okkur,“ sagði Magnús.
Sven Ålborg aðalritari Scandi-
navian Dairy Contest kvaðst afar
leiður yfir því að sumar vörurnar
hefðu ekki náð á sýninguna í
tíma: „Það var afar óheppilegt
hvernig fór fyrir Íslendingum
sem iðulega hafa staðið sig glimr-
andi vel á Mjólkursýningunni
í Herning,“ sagði hann í viðtali
við fréttavef Mejeriforeningen.
Alls voru 1.734 vörur skráðar til
keppni.
Mjólkurvörusýningin í Herning 2007
Íslensku mjólkurvörurnar
strand í Stokkhólmi!
Sigurvegarar á mjólkursýningunni „Scandinavian Dairy Contest 2007“.
Lengst til vinstri er Jóakim Danaprins en við hlið hans eru sigurveg
arar hinnar árlegu mjólkurvörukeppni ásamt forsvarsmönnum sýning
arinnar. Ljósm: Lars Aarø / Fokus
Í hléinu var meðal annars hægt að bragða á framandi eldistegundum og
kunnu gestir vel að meta það.
Vel sótt haustráðstefna Matís
Haustráðstefna Matís var haldin 15. nóvember þar sem margar áhugaverð-
ar framsögur voru haldnar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar
K. Guðfinnsson, setti ráðstefnuna og því næst hélt Sjöfn Sigurgísladóttir,
forstjóri Matís, erindi um hlutverk fyrirtækisins og framtíðarsýn. Þar á
eftir fylgdu ýmis erindi um mat, hollustu matar og möguleika í fiskeldi á
Íslandi svo fátt eitt sé nefnt. Í hléi var kynning í básum um líf- og erfða-
tækni í matvælaframleiðslu, matarhönnun nema úr Listaháskólanum var
kynnt, möguleikar í fiskeldi kynntir og hægt var að bragða á framandi eld-
istegundum ásamt því að rannsóknir Matís voru kynntar með hvannalömb
og fiskneyslu Íslendinga og fleiru. ehg
Mývatnssveit,
töfraland jólanna
Aðventudagskráin í Mývatns
sveit, töfralandi jólanna, hefst í
ár laugardaginn 24. nóv nk. kl.
15 með heimboði jólasveinanna
í Dimmuborgir. Þaðan er boðið í
kaffisamsæti í Skjólbrekku.
Einnig má nefna hið árlega jóla-
bað jólasveinanna í Jarðböðunum
laugardaginn 1. des kl. 18, laufa-
brauðsdag Dyngjukvenna 8. des og
jólahlaðborð allar helgar á Sel hótel
Mývatn. Jólasveinarnir verða dag-
lega í Dimmuborgum frá 1. des milli
kl. 13 og 15. Kaffihúsið í Vogafjósi
er opið um helgar milli kl. 14 og
20 og þangað mæta jólasveinarn-
ir á mjaltatíma. Ljósmyndasýning
Christmas Cities samtakanna með
Mývatnssveit sem þátttökuaðila
er haldin í Mývatnsstofu og margt
fleira. Nánari upplýsingar á www.
snowmagic.is
Þuríður Backman alþingismaður um svar við
fyrirspurn um erfðabreytt aðföng í landbúnaði:
Þetta er ekkert svar
Lokið við Kaldbaksveg
Nú er lokið framkvæmd
um við Kaldbaksveg en það
er vegur sem liggur sunnan
Grenjár upp á Grenjárdal í
um 400 m hæð.
Vegagerðin, KEA, Félag
vélsleðamanna í Eyjafirði og
Grýtubakkahreppur hafa borið
kostnaðinn af verkinu. Þessi
vegur er fyrst og fremst ætlaður
fyrir útivistarfólk, svo sem þá
sem fara með snjótroðaranum
upp á Kaldbak, vélsleðamenn,
skíðafólk og göngufólk.
Hvort einhvern tímann verði
hægt að koma upp skíðalyftu
þarna uppi skal ósagt látið á
þessari stundu en mjór er mik-
ils vísir.
Jötunn Vélar á Selfossi er í mik
illi sókn þessi dægrin. Fyrr á
árinu stofnaði fyrirtækið vélasöl
una TotalMaskiner í Danmörku
þar sem vöxtur hefur verið hrað
ari en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Alls eru starfsmenn þar ytra
orðnir ellefu talsins. Þann 1. des
ember yfirtekur fyrirtækið form
lega rekstur Remfló sem áður var
í eigu MS. Remfló sérhæfir sig í
sölu á alls kyns mjaltabúnaði og
rekstrarvörum fyrir kúabændur
en fyrirtækið hyggst bráðlega
blanda sér í samkeppni á mjalta
þjónum hér á landi. Þeir verða
af gerðinni SAC og eru smíðaðir
í verksmiðjum SAC í Hollandi.
Íslenskir kúabændur hafa hingað
til aðeins getað valið á milli Lely
og DeLaval mjaltaþjóna en nú
bætist þriðji valkosturinn við.
Nýjustu fréttir frá Jötni Vélum
eru þær að hinar vinsælu McHale
rúllu- og pökkunarvélar eru komn-
ar í umboðssölu hjá fyrirtækinu. Að
sögn Finnboga Magnússonar fram-
kvæmdastjóra er umboðið mikill
fengur fyrir Jötun Vélar. „Vélarnar
eru írskar og vel þekktar fyrir gæði
og áreiðanleika. Þær hafa verið á
íslenskum markaði um 15 ára skeið
og við ætlum markvisst að auka við
markaðshlutdeild þeirra sem við
teljum að nú sé um 20%. Þetta eru
bæði sambyggðar rúllu- og pökk-
unarvélar og aðskildar. Við finnum
fyrir því að bændur eru að biðja um
afkastameiri vélar og þá er McHale
kjörin lausn að okkar mati. Að
sjálfsögðu munum við halda áfram
sölu og þjónustu á Vicon rúlluvél-
um sem við höfum selt um árabil,“
segir Finnbogi og bætir því við
að í haust hafi útsendarar McHale
komið hingað til lands og heimsótt
flesta vélasalana. „Í kjölfarið feng-
um við umboðið sem við erum
mjög stolt af,“ segir Finnbogi fram-
kvæmdastjóri Jötuns Véla.
Jötunn Vélar á Selfossi færa út kvíarnar
Bjóða upp á McHale heyvinnsluvélar og mjaltaþjón frá SAC
Finnbogi Magnússon hjá Jötni
Vélum. Með tilkomu SAC mjalta
þjónsins býðst kúabændum þriðji
valkosturinn en Lely og DeLaval
hafa verið einráðir á íslenska mark
aðnum til þessa.