Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 13
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 200713
Aðalfundur Félags hrossabænda
fór fram á Hótel Sögu 9. nóv.
sl. Rétt til fundarsetu áttu full
trúar aðildarfélaganna níu sem
mynda heildarsamtökin og var
mæting góð; öll aðildarfélögin
sendu fulltrúa sína til fundar. Á
dagskrá voru hefðbundin aðal
fundarstörf, auk þess sem þeir
Magnús Jósefsson í Steinnesi og
Finnur Ingólfsson í Vesturkoti
fluttu skemmtileg og fróðleg
erindi undir heitinu „Þekking
– fagmennska – fjármagn“. Þar
fóru þeir yfir sýn sína á hrossa
ræktina sem atvinnugrein og var
gaman að heyra ólík sjónarmið
hins gamalgróna hrossabónda og
viðskiptamannsins sem sér ónýtt
viðskiptatækifæri í hrossarækt
inni.
Félagið heiðraði einnig Guðna
Ágústsson, fyrrverandi landbún-
aðarráðherra, á fundinum og þakk-
aði honum góð störf í þágu íslenska
hestsins. Einar Kr. Guðfinnsson
landbúnaðarráðherra ávarpaði
fundinn, hvatti hestamenn til frek-
ari dáða og kvaðst myndu leggja
sitt af mörkum til að atvinnugreinin
hrossarækt gæti blómstrað áfram
sem nú. Á fundinum var einnig
undirritaður samstarfssamningur á
milli FHB og Landbúnaðarháskóla
Íslands þar sem kveðið er á um
samstarf við rannsóknir og end-
urmenntun, meðal annars.
Kristinn Guðnason í Árbæjar-
hjáleigu var endurkjörinn formað-
ur FHB til þriggja ára en um aðra
stjórnarmenn var ekki kosið að
þessu sinni. HGG
Kristinn Guðnason endur
kjörinn formaður FHB
Frá undirritun samstarfssamnings FHB og LbhÍ. Ágúst Sigurðsson, rektor
LbhÍ og Kristinn Guðnason, formaður FHB, staðfestu samninginn.
Guðni Ágústsson með myndina af
sjálfum sér sem FHB afhenti hon
um sem þakklætisvott fyrir störf
hans sem ráðherra í átta ár.
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Það var ekki spurning!
Lárus Gestsson í Haukatungu I
keypti KUBOTA dráttarvél fyrir
3 árum.
Hann segist aldrei hafa átt liprari,
öruggari eða sparneytnari vél.
Þess vegna var auðvelt að velja sér
nýja dráttarvél og nú á Lárus
tvær KUBOTA dráttarvélar.
Lárus gerir kröfur um gæði.
Hvaða kröfur gerir þú ??
www.bbl.is