Bændablaðið - 20.11.2007, Side 18
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20071
Árleg bændahátíð á Austurlandi
var haldin í Valaskjálf laugardag
inn 3. nóvember síðastliðinn.
Að sögn Freyju Gunnarsdóttur
í undirbúningsnefndinni féll
hátíðin niður um nokkurra ára
skeið en var nú haldin í tíunda
skipti eftir að hún var endurreist.
Sitt fyrra blómaskeið átti þessi
viðburður hins vegar á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar.
Veislustjóri á hátíðinni var Ómar
Ragnarsson sem fór á kostum, enda
vanur maður á ferð.
Heiðursgestir hátíðarinnar voru
Magnús Jónsson veðurstofustjóri og
kona hans, Karitas Sigurðardóttir.
Skemmtiatriði voru m.a. í hönd-
um ,,Heimasætanna“ Sigurlaugar
Jónsdóttur og Margrétar Daggar
Guðgeirsdóttur sem sungu eins
og englar, meðal annars lög eftir
Bjartmar Guðlaugsson af nýút-
komnum diski þar sem þær syngja
lög hans ásamt öðrum. Einnig
sungu Vallargerðisbræður, sem
mynda kvartett ungra manna úr
borg óttans suður þar, og tókst virki-
lega vel upp við að syngja raddað
ýmsa þekkta gamla slagara og nýja
við píanóundirleik.
Formaður Búnaðarsambands
Austurlands, Vigdís Sveinbjörns-
dóttir á Egilsstöðum, afhenti verð-
laun og viðurkenningar.
Kjarkur og þor sveitanna, verð-
launagripur hannaður og smíðaður
af Hlyni og Eddu á/í Miðhúsum,
var nú afhentur í níunda sinn.
Hann kom að þessu sinni í hlut
hjónanna Lindu Steingrímsdóttur
og Þorsteins Guðmundssonar á
Ketilstöðum í Útmannasveit, fyrir
uppbyggingu kúabús.
,,Þorsteinn og Linda eiga ekki
sínar rætur hér eins og algengast er
um þá sem búa hér í sveitunum, en
þegar þau fóru að horfa í kringum
sig eftir bújörð varð það niðurstað-
an að kaupa Ketilsstaði og þangað
fluttu þau sunnan af landi vorið
1993 með tvö ung börn. Mér skilst
að það sumar hafi alveg vantað hina
rómuðu veðurblíðu Austurlands
en væntanlega hefur bara þurft að
herða þessa Sunnlendinga. Það
virðist bara hafa tekist þokkalega
og þau hafa ekki setið auðum hönd-
um eftir að þau fluttu austur.
Árið 1998 fóru þau út í að
stækka og endurbyggja íbúðarhús-
ið af miklum myndarskap og 2005
var farið út í fjósbyggingu. Þar
eru 60 básar fyrir kýr og kvígur
auk geldneytaaðstöðu. Auk þess
hefur framleiðslurétturinn verið
aukinn frá því að vera 89 þúsund
lítrar í það sem nú er, 460 þúsund
lítrar. Tveir mjaltaþjónar sjá um
mjaltirnar í nýja fjósinu, enda eins
gott því Þorsteinn er gjarnan á ferð-
inni vítt og breitt um Héraðið til
að afla heyja,“ sagði Vigdís meðal
annars þegar hún afhenti Lindu og
Þorsteini farandgripinn sem fylgir
þessari vegsemd.
Búnaðarsamband Austurlands
hefur síðustu ár afhent verðlauna-
gripi á bændahátíð fyrir afurðir
bæði í sauðfjárrækt og mjólk-
urframleiðslu og fyrir hrossa-
rækt. Sláturfélag Austurlands og
Mjólkurbú Flóamanna gáfu á sínum
tíma farandgripi hvort í sinni grein
og Félag hrossabænda gaf síðan
grip til að verðlauna hrossarækt á
svæðinu.
Verðlaun fyrir afurðahæsta
kúabúið fengu bændur á Hánefs-
stöðum við Seyðisfjörð, þau Jón
Sigurðsson og Svanbjörg Sigurð-
ardóttir. Afurðahæsta sauðfjárbúið
var Lundur á Völlum en þar búa
bræðurnir Jón og Sigurhans Jóns-
synir. Fyrir hæst dæmda kynbóta-
hross sem er að koma í fyrsta skipti
til kynbótadóms var Guðrún Á.
Eysteinsdóttir á Tjarnarlandi, einn-
ig í Útmannasveit, verðlaunuð.
Eftir borðhald og skemmtiatriði
lék hljómsveit Friðjóns Jóhannsson-
ar fyrir dansi. SigAð
Þeir tóku við viðurkenningum, hver
fyrir sína búgrein. Jóhann Jónsson
fyrir Hánefsstaðabúið og mjólk
urframleiðsluna, Jón Jónsson fyrir
Lundsbúið og sauðfjárræktina og
Einar Eysteinsson fyrir systur sína
Guðrúnu, Tjarnarlandsbúið og
hrossaræktina.
Konurnar sungu „við erum ofaná“
Vala Valtýsdóttir og Ásta Jóhanns
dóttir syngja af innlifun og mikl
um sannfæringarkrafti í keppni
um hvort konur eða karlar syngja
hærra.
Nei..nei.. „við erum ofaná“. Hlíðar Eiríksson, Jónas Bjarki Björnsson og
Þórarin Magni Ragnarsson malda í móinn og sungu hvað þeir lifandi gátu,
en máttu ekki við margnum, konurnar ætluðu sér alltaf að vera ofaná. Bak
við þá sést í Ágúst Hjartarson og Stefán Kristmannsson gaf þetta strax
frá sér, vitandi að það borgar sig ekki að malda í móinn þegar konur eru
annars vegar.
Fjölmenni var mætt og að sögn Freyju Gunnarsdóttur var þetta ein fjölmennasta Bændahátíðin frá því hún var
endurreist. Myndir SigAð
Bændahátíð á Austurlandi
Glens, glaumur og
verðlaunaafhending
Rögnvaldur Ragnarsson á Hrafnabjörgum var að sjálfsögðu mættur ásamt
Þórlaugu Sigfúsdóttur.
Vigdís Sveinbjörnsdóttir formaður Búnaðarsambands Austurlands afhend
ir Lindu Steingrímsdóttur og Þorsteini Guðmundssyni á Ketilstöðum verð
launagripinn ,,Kjark og þor sveitanna”.
Tvær á tali, Kristín
Rögnvaldsdóttir
og Sigurrós Soffía
Jónasdóttir ræða það
sem er efst á baugi.
,,Hvað ætli sé þarna niður á milli brjóstanna á Freyju” veislustjórinn Ómar
Ragnarsson og Freyja Gunnarsdóttir í undirbúningsnefnd, stinga saman
nefjum, aðallega nefi Ómars.