Bændablaðið - 20.11.2007, Qupperneq 26
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007
Tveir nýir klaufskurðabásar
eru komnir til landsins, annars
vegar á Suðurland og hins vegar
á Vesturland. Kynbótastöð Suður
lands mun reka básinn á Suður
landi en umsjónarmaður hans
verður Guðmundur Skúlason. Á
Vesturlandi verður Guðmundur
Hallgrímsson á Hvanneyri umsjón
armaður bássins þar. Báðar hafa
þeir farið á námskeið í klaufskurði
í Danmörku.
Það er viðurkennd staðreynd að
illa hirtar klaufir og fótamein hafa
verulega neikvæð áhrif á líðan kúa
og þar með nyt og frjósemi. Básinn
á Suðurlandi var kynntur nýlega
á tilraunabúinu á Stóra Ármóti
i Flóahreppi fyrir kúabændum.
Mikill áhugi er á básnum á meðal
kúabænda enda virkar hann vel og
er afkasta mikill.
Það voru hjónin og klaufskurð-
armeistararnir Bent og Jonna
Frandsen frá Danmörku sem sýndu
verklag sitt og handbragð á opna
húsinu. „Básinn virkar mjög vel
og það er mikil ánægja með hann.
Ég hef trú á því að kúabændur
verði duglegir að nýta sér básana
á Vesturlandi og Suðurlandi, þetta
er jú nauðsynlegur liður í vellíðan
kúnna og hefur áhrif á nyt þeirra,“
sagði Guðmundur Skúlason að-
spurður um nýju básana.
MHH
Klaufskurðarbásar á
Vestur og Suðurlandi
Dönsku hjónin ásamt þeim Guðmundi Skúlasyni (t.v), sem mun sjá um básinn á Suðurlandi og Guðmundi Hall
grímssyni á Hvanneyri (t.h.), sem mun sjá um básinn á Vesturlandi.
Guðmundur Skúlason, klaufskurðarmeistari að störfum. Jonna fylgist vel
með.
Ekkert jafnast á við vel snyrtar
klaufir enda hafa þær jákvæð áhrif
á nyt og frjósemi kúnna.
Fjölmargir kúabændur komu í opna húsið á Stóra Ármóti og kynntu sér
nýja klaufskurðarbásinn.
Í sumar var gert verulegt
átak í endurgerð Litlabæjar í
Skötufirði. Er endurbygging
hússins nú langt komin og lík
legt að það verði opið almenn
ingi næsta sumar. Fjöldi manns
hefur komið að húsinu undan
farin sumur og skoðað það
utan en húsið er allt í gömlum
stíl, útveggir hlaðnir úr torfi og
grjóti, torf á þaki en stafnar úr
timbri.
Endurbygging bæjarins hófst
árið 1999 en þá tók Þjóðminjasafn
Íslands bæinn til varðveislu. Síðan
hefur verið unnið að endurgerð
hússins með nokkrum hléum þó.
Litlibær er í Skötufirði í Ísa-
fjarðardjúpi og stendur örskammt
frá þjóðveginum. Jörðin fór í eyði
árið 1969, en á skilti sem stendur
við göngustíg heim að húsinu er
eftirfarandi lýsing:
Litlibær var reistur árið 1895
af tveimur vinafjölskyldum sem
upphaflega bjuggu hvor í sínum
hluta hússins. Frumbyggjendurnir
hétu Finnbogi Pétursson og Soffía
Þorsteinsdóttir og Guðfinnur Ein-
arsson og Halldóra Jóhannsdóttir.
Fólkið mun hafa lifað af sjávar-
fangi ekki síður en landbúnaði því
þarna er lítið undirlendi og land
grýtt og því óheppilegt til rækt-
unar. Húsið er 3.9 x 7.4 að grunn-
fleti en portbyggt loft er yfir jarð-
hæð. Tvö útieldhús voru skammt
frá íbúðarhúsinu. Alls munu 20
til 30 manns hafa búið í Litlabæ
þegar flest var.
Kristján Kristjánsson bóndi á
Hvítanesi sem er örskammt frá
Litlabæ er barnabarn Finnboga og
Soffíu. Hann er uppalinn í Litlabæ
og eigandi jarðarinnar. Kristján og
kona hans Sigríður Hafliðadóttir
hafa sýnt ófáum ferðalöngum hús-
ið undanfarin ár. Kristján segir
að mikill straumur fólks sé heim
að bænum, þannig skrifuðu um
1.300 manns í gestabók þar sum-
arið 2005. Kristján segist vonast til
að næsta sumar verði opnað safn
í Litlabæ sem sýni litla bóndann
í sínu daglega amstri við sjósókn
og landbúnað. Svo vel vill til
að Kristján segist hafa varðveitt
margt af gömlu áhöldunum sem
notuð voru hér áður og þau verða
væntanlega flutt aftur í sín gömlu
heimkynni með vorinu. Nefnir
hann þar m.a. skilvindu og strokk.
Einnig er hluti af innbúi afa hans
og ömmu þarna og gamlar bækur,
en Finnbogi var bókamaður og
keypti bækur sem bendir til að
fjárhagur fjölskyldunnar hafi verið
þokkalegur þrátt fyrir ómegð.
,,Ég er mjög ánægður með þetta
og tel að vel hafi tekist til með
þessa uppbyggingu. Það hefur tek-
ist að varðveita þetta gamla sem
hægt var en sumt var algerlega
ónýtt.
Hér mun fólk geta séð hvern-
ig þetta var í gamlatímanum en
svo hafa nútíma þægindi eins og
rafmagn og fleira verið tekið inn
i húsið,“ sagði Kristján á Hvítanesi
að lokum.
ÖÞ
Endurbyggingu Litlabæjar að ljúka
Litlibær í Skötufirði, uppbyggingin er nú langt komin. Ljósm. ÖÞ
Kristján Kristjánsson hefur sýnt
fjölmörgum Litlabæ á undanförnum
árum. Hér er hann í sumar ásamt
tveimur ferðalöngum. Ljósm. ÖÞ