Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 36
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20073
Það er nauðsynlegt að hugsa
aðeins um línurnar áður en
átveislan mikla, jólahátíðin, skell
ur á en borða þó alltaf næring
arríkan og hollan mat. Hér koma
uppskriftir að fínu síðdegisboði í
góðra vina hópi þar sem nauta
pottréttur og salat með parmask
inku og rauðum vínberjum fara
vel saman. Með kaffinu skemmir
svo ekki fyrir að hafa ávexti með
hafraklístri og ljúffengum van
illuís með.
Afmælisnautapottur fyrir hóp
6 kg gott nautakjöt
4 bréf stroganoff
3-4 laukar, saxið smátt
5 pakkar ferskir sveppir, skornir í
sneiðar
5 gular/ rauðar paprikur, skorið í
bita
½ l rjómi
3 tsk. Oskar kjötkraftur
salt
pipar
Aðferð:
Skerið kjötið í teninga, húðið
ofnskúffu með olíu eða olíuúða.
Brúnið kjötið í 3-4 hlutum í ofn-
skúffu við 200°C. Setjið kjötið í 2-
3 potta og vatn svo rétt fljóti yfir.
Setjið eina teskeið af kjötkraftinum
í hvern pott, sjóðið í 20-30 mín-
útur, fer eftir stærð bitanna. Bætið
stroganoffi við ásamt lauk og sjóð-
ið áfram varlega í 10-15 mínútur.
Bætið því næst sveppum og papr-
ikum við og sjóðið áfram varlega í
10-15 mínútur. Að endingu bætið
við rjómanum og saltið og piprið
eftir smekk.
Gott er að elda pottréttinn fyrirfram
og hita upp í 80-100°C í nokkrum
eldföstum mótum í ofni, þá þarf
ekki að standa yfir potti og passa
að það brenni ekki við. Passið að
geyma ekki heitan eða volgan pott-
rétt í lokuðu íláti því þá súrnar
pottrétturinn. Lok má fara á réttinn
þegar hann er orðinn kaldur.
Salat með parmaskinku og rauð
um vínberjum
spínat eða klettasalt (eða blöndu af
báðu)
2 rauðar paprikur
1 pakki kokteiltómatar
1 rauður vínberjaklasi
2-3 sneiðar parmaskinka
1/2 rauðlaukur
1/2 agúrka (ef vill, er ekki nauðsyn-
leg)
½ krukka fetaostur
sýrður rjómi 10%, í plastflösku
Sósa:
1 msk. dijonsinnep
4-5 msk. ólífuolía
1 msk. eplaedik
Aðferð:
Skerið niður paprikur, tómata, vín-
ber, rauðlauk og agúrku og setjið í
skál. Rífið salatið niður og bætið
við ásamt parmaskinku. Bætið
fetaostinum við og sprautið að vild
sýrðum rjóma yfir salatið eða berið
sýrða rjómann fram samhliða sal-
atinu. Blandið öllu hráefni sósunnar
saman og berið fram með salatinu.
Ávextir með hafraklístri
4 stórar þroskaðar ferskjur
250 g þroskuð brómber
60 g púðursykur
3 tsk. kanill
125 g hveiti
125 g risahafrar
125 g púðursykur
150 g smjör (skorið í bita)
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Skerið ferskj-
urnar allan hringinn, snúið í sundur
og losið steininn. Takið steininn úr
með teskeið. Skerið ferskjuhelm-
ingana í tvennt og síðan hvern bita
í þrennt. Skolið vel brómberin og
þerrið. Blandið 60 g af púðursykri
og kanil saman í skál. Bætið ferskj-
unum og brómberjunum saman við
og hrærið vel svo sykurblandan
umlyki ávextina. Sigtið hveitið í
skál með púðursykrinum og hrær-
ið. Bætið höfrunum við og hrær-
ið öllu vel saman. Notið fingurna
til að mylja smjörið saman við og
þegar allt er vel blandað og komið í
litla kekki er blandan tilbúið. Hellið
ávöxtunum í ofnfast mót, dreifið
hafraklístrinu yfir og bakið í ofni í
um 30 mínútur eða þangað til rétt-
urinn er gullinn og girnilegur. Gott
að bera fram með vanilluís.
ehg
MATUR
Bragðgóður nautapottur og ljúffengt parmaskinkusalat
8 1
3 7
3 9 1
4 2 9
1 8 6 2
2 7 6
2 4 5
6 9
8 4
1 6 5
9 1 3
4 9
7 4
2 1 3 8
9 6
8 1
5 4 6
2 9 5
8 2
4 6
3 2 1 8
8 2 9 7
3 5
1 5 2 9
6 9 3 1
4 8
1 3 1
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Minnisvarðinn Bríetarbrekka afhjúpaður
Þann 7. nóvember síðastliðinn var minnisvarðinn Bríetarbrekka,
eftir myndlistarkonuna Ólöfu Nordal, vígður við formlega
athöfn á horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis í Reykjavík.
Reiturinn er til minningar um mestu kvenréttindabaráttukonu
Íslandssögunnar, Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Forsaga minnisvarð
ans er sú að í fyrra voru liðin 150 ár frá fæðingu Bríetar, auk þess
sem Kvenréttindafélag Íslands átti100 ára afmæli, og af því tilefni
kviknaði sú hugmynd að reisa Bríeti minnisvarða á reitnum.
Þann 28. desember árið 1887 hélt Bríet, fyrst íslenskra kvenna, fyr-
irlestur sem bar heitið „Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna“. Bríet
stofnaði fyrsta kvennablaðið hér á landi árið 1885 og var einn stofn-
enda Kvenréttindafélags Íslands og formaður þess á árunum 1907-
1928. Bríet var fyrst íslenskra kvenna kjörin á þing, árið 1922. ehg
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, ávarpar viðstadda
við afhjúpun Bríetarbrekku. Myndir:
Ávextir með hafraklístri er einfaldur
og í raun svolítið hollur eftirréttur.
Í tilefni af því að 200 ár eru liðin
frá fæðingu Jónasar Hallgríms
sonar opinberaði Mjólkursam
salan í samstarfi við Hvíta húsið
nýja heimasíðu um skáldið í Iðnó
í Reykjavík í byrjun nóvember.
Þar má finna veggspjald með
816 náttúrumyndum sem mynda
andlit Jónasar og vísar sérhver
þeirra í atriðisorð úr íslensku
náttúruljóði. Ef smellt er á mynd
birtist ljóð, sem tengist mynd
efninu, í fullri lengd ásamt nafni
höfundar og þannig er ljóð og
náttúra tengd saman á lifandi
hátt. Ef um örnefni er að ræða er
staðsetningin sýnd með punkti á
landakorti.
Ljóð Jónasar Hallgrímssonar
skipa stærstan sess á vefnum en
þar má finna alls 443 ljóð eftir 119
höfunda frá 19. og 20. öld. Þessi
nýi vefur er langviðamesta safn
íslenskra náttúruljóða sem nokkru
sinni hefur verið tekið saman. Um
leið markar hann alger tímamót í
því hvernig hægt er nálgast fróðleik
um íslenskar bókmenntir og náttúru
á lifandi og myndrænan hátt. Auk
heimasíðunnar gefur MS einnig
út veggspjald sem unnið er í sam-
vinnu við Námsgagnastofnun sem
dreifir veggspjaldinu í alla grunn-
skóla landsins.
Slóð á síðuna er www.jonas.
ms.is
Stærsta safn íslenskra náttúruljóða
Fagna þjónustu við Dimmuborgir
Stjórn Markaðsráðs Þingeyinga hefur samþykkti ályktun vegna
Dimmuborga í Mývatnssveit. Þar er því fagnað að koma eigi upp
fræðslu, upplýsingagjöf og snyrtiaðstöðu við Dimmuborgir.
„Hefur aðstöðuleysið þar valdið vandræðum og umhverfisósóma
og á Landgræðslan þakkir skildar fyrir að taka nú til höndum og
byggja upp þjónustu fyrir þá mörgu sem koma til að njóta náttúrufeg-
urðar í Dimmuborgum,“ segir í ályktuninni. Enn fremur segir að komi
hið opinbera ekki með fjármagn til að leysa aðkallandi þjónustumál,
styðji ráðið það eindregið að Landgræðslan hafi vörslu og umsjón með
Dimmuborgum sem kostuð verði af greiðslum ferðamanna. MÞÞ
Guðbrandur Sigurðsson forstjóri MS afhendir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra