Bændablaðið - 14.05.2008, Síða 7
7 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Hreiðar Karlsson segir að for-
sætisráðherra fari víða og færi
höfðingjum gjafir. Þó geri hann
sér mannamun.
Frægur mun verða Geir af
gjafmildi sinni,
gleður leiðtoga heimsins að
eigin sögn.
Páfanum bar hann biblíu í
rauðu skinni,
Brown mátti láta sér nægja
grafarþögn.
Ræddu um Evrópu
Davíð Hjálmar Haraldsson segir
svo frá fundi Geirs og Brán:
Gaspraði mikið Gordon Brán,
Geir komst þar varla nokkuð að
en ræddi samt lengi Evrópu án
þess eiginlega að vita það.
Gullna hliðið opið eða lokað
Pétur Stefánsson orti það sem
hann kallaði þanka fyrir þá sem
eru á leið út á lífið, eða bara
almennan freistinganna þanka:
Ég lokkast ei til djöfla díkis
í dans við tál og freistingar.
Þó hátt sé upp til Himnaríkis,
hólpinn mun ég enda þar.
Friðrik Steingrímsson svaraði
þanka Péturs og sagði:
Er héðan burt í hinsta sinn
heldur yfir sviðið,
er næsta víst að nafni þinn
neiti að opna hliðið.
Yrkir hver eins og hann lystir
Kristján Bersi orti þessa vísu
einhvern tíma þegar vel lá á
honum:
Á leirvefnum okkar yrkir hver
eins og hann lystir, – sem betur fer.
En hrifnastur þó ég alltaf er
af andskotans bullinu úr sjálfum
mér.
Velmegunarvandi
Hjálmar Freysteinsson orti, þegar
hann heyrði í Geir H. Haarde
ræða um velmegunarvandann,
þensluna, frestun framkvæmda
og segja, að allir yrðu að leggja
sitt að mörkum:
Hlotist getur vandi af
vinnuþjörkum
er velmegunin ógnar þjóðarhag.
Ég ætla að leggja mitt af mörkum
og mun því ekki gera neitt í dag.
Að sitja kyrr og njóta
Það er mikið til í þessari vísu
Péturs Stefánssonar:
Það er ýmsum mikið mál
í Mammonsgarði' að róta.
– Aðrir rækta sína sál,
sitja og kyrrðar njóta.
Þolinmæði
Hjálmar Freysteinsson, læknir
á Akureyri, orti þessa vísu um
kvefið:
Af langri reynslu lært ég hef
þá læknisfræði,
að það sem læknar þrálátt kvef
er þolinmæði.
Ljótasta áin
Hreiðar Karlsson segir: Jökulsá
á Dal hefur ekki verið í miklum
metum hjá þjóðinni fram undir
þetta!
Ýmsir kveina af eftirsjá,
aðrir þótt hljóðlega fagni.
Ljótasta og versta landsins á
loksins kemur að gagni.
Í aðdraganda kosninga
Séra Hjálmar Jónsson orti í að-
draganda síðustu kosninga:
Nú er offramboð mætra manna,
sem mörg nýleg dæmi sanna.
Fyrst er prófkjör og röðun,
síðan pólitísk böðun
og svo grátur og gnístran tanna.
Umsjón:
Sigurdór Sigurdórsson
ss@bondi.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
til breytinga á nokkrum lögum sem
varða m.a. matvæli og dýrasjúk-
dóma vegna innleiðingar á mat-
vælalöggjöf Evrópusambandsins
(ESB). Þessi ESB löggjöf hefur
verið lengi í smíðum og tekið mikl-
um breytingum til batnaðar á und-
anförnum árum. Lagabreytingarnar
hér á landi eru nauðsynlegar
sökum þess að Evrópusambandið
setti fram skilyrði um innleiðingu
nýju löggjafar ESB, ef Ísland ætl-
aði að halda áfram að flytja út
fisk og fiskimjöl í frjálsu flæði
til Evrópusambandsins. Ella yrði
íslenskur fiskur tekinn í skoðun á
landamærastöðvum sambandsins,
með tilheyrandi sýnatökum, rann-
sóknum og töfum. Það var því ekki
um annað að ræða fyrir íslensk
stjórnvöld en að semja við ESB um
þessi mál. Í upphafi samningafer-
ilsins var sett fram skýlaus krafa af
Íslands hálfu að löggjöf um lifandi
dýr yrði haldið fyrir utan samn-
ingana og samþykkti ESB það.
Þó að lagabreytingar þessar séu
mjög umfangsmiklar, sérstaklega
á íslensku matvælalöggjöfinni, þá
hefur breytingin á lögum um dýra-
sjúkdóma og varnir gegn þeim
vakið hvað mesta athygli. Það er
í þessum lögum sem bannið við
innflutningi á kjöti hefur verið og
stendur nú til að afnema. Þrátt fyrir
þetta bann þá hafa á undanförnum
árum verið veittar síauknar und-
anþágur af landbúnaðarráðuneytinu
til innflutnings á hráu og frosnu
kjöti, að fengnum meðmælum yfir-
dýralæknis. Ekki er til þess vitað
að þessi innflutningur hafi valdið
neinum vandamálum. Verði ofan-
greint frumvarp samþykkt nú á
vorþinginu, þá hefur Ísland aðlög-
unartíma í 18 mánuði vegna nauð-
synlegra aðgerða til innleiðingar
löggjafarinnar. Að þeim tíma lokn-
um eða um áramótin 2009 og 2010
mun geta hafist innflutningur, án
sérstakrar heimildar ráðuneytisins,
á því kjöti sem er löglega fram-
leitt eða innflutt í löndum ESB og
Noregi og síðar einnig Sviss. Sviss
er þessa mánuðina að semja við
ESB á svipuðum nótum og Ísland,
en þeir taka einnig yfir löggjöf um
lifandi dýr. Nauðsynlegt er að taka
fram að umfang þessa innflutnings
verður sennilega eins og hingað til,
fyrst og fremst háð tollum.
Núverandi löggjöf um innflutn-
ing á kjöti mun því líklega haldast
óbreytt fram til áramóta 2009 og
2010 og það gildir einnig um inn-
flutning ferðamanna á kjöti og
mjólkurvörum. Eftir aðlögunartím-
ann gengur í gildi sérstök löggjöf
ESB varðandi innflutning ferða-
manna á ýmsum búfjárafurðum,
þar sem ferðamenn mega þá taka
það magn sem þeir vilja af slík-
um vörum frá ESB og Noregi, en
ekki frá öðrum löndum, nema í
ákveðnu magni frá fáeinum til-
teknum löndum eins og Grænlandi
og Færeyjum. En hér, eins og með
innflutning á verslunarvöru, munu
tollar sennilega ráða ferðinni, þar
sem ferðamenn mega bara koma
með 3 kg af matvöru án þess að
greiða af því toll.
Áhættumat varðandi
dýrasjúkdóma
En víkjum nú að þeirri áhættu
sem að ofangreindar breyting-
ar geta haft í för með sér. Ef fyrst
er skoðuð aukin áhætta á því að
nýir dýrasjúkdómar geti borist til
landsins, þá er sú hætta vissulega
fyrir hendi. Mikilvægast er þó að
breytingarnar munu ekki ná til lif-
andi dýra og þar mun Ísland áfram
stjórna ferðinni, en það er með lif-
andi dýrum sem mest áhætta fylgir.
En einhver áhætta mun fylgja hugs-
anlega auknum innflutningi á hráu
og ófrosnu kjöti. Því gerði yfir-
dýralæknir, áður en samningaferill-
inn við ESB hófst, ákveðnar kröfur
um mótvægisaðgerðir hér á landi
til að mæta þessari áhættu. Það var
samþykkt og sérstakir fjármunir
fengust í þessum tilgangi. Sérstök
skimun vegna dýrasjúkdóma, sem
ekki hafa greinst hér á landi og
sem gætu hugsanlega borist með
hráu kjöti, er þegar hafin og verð-
ur hluti af árlegri vöktunaráætlun
Matvælastofnunar vegna dýra-
sjúkdóma. Það eru sem betur fer
tiltölulega fáir dýrasjúkdómar sem
eru þekktir fyrir að berast með hráu
kjöti og þá aðallega skæðir sjúk-
dómar sem ekki leyna sér, ef þeir
koma upp, svo sem gin- og klaufa-
veiki, fuglaflensa og svínapest.
Kúariða berst til dæmis ekki með
hráu kjöti, aðeins með menguðu
kjöt- og beinamjöli og sérstaklega
var samið við ESB um varanleg
ákvæði til að viðhalda áratuga
löngu banni okkar á innflutningi
þess. Í þessu sambandi er vert að
geta þess að hér á landi hefur verið
í gildi áratuga langt bann við fóðr-
un svína með matarleifum og svo
er einnig í flestum löndum ESB, en
slík fóðrun er þekkt smitleið þegar
smitefni dýrasjúkdóma leynast í
matarúrgangi.
ESB hefur nú sett umfangs-
mikla löggjöf og eftirlitskerfi með
dýrasjúkdómum, sem allir yfir-
dýralæknar í ESB og Noregi, Sviss
og Íslandi fá jafnóðum tilkynningar
um. Komi slíkir sjúkdómar upp í
ofangreindum löndum þá er sam-
kvæmt þessu kerfi strax lokað fyrir
útflutning á hráu kjöti og mjólk
frá viðkomandi landsvæðum, því
aðrar þjóðir í ofangreindum lönd-
um eru auðvitað jafn hræddir og
Íslendingar við að fá þessa sjúk-
dóma. Þjóðir eins og t.d. Danir eru
mjög harðar í að fylgjast með að
þessi kerfi virki í öllum ESB lönd-
um með sannfærandi hætti, vegna
útflutningshagsmuna sinna. Þjóðir
eins og USA og Japan eru fljótar að
loka á innflutning frá allri Evrópu,
ef þær fá minsta tilefni til að treysta
ekki dýrasjúkdómakerfum ESB.
Það er því mikill munur að hafa
ekki þurft að taka upp ofangreinda
löggjöf fyrr en nú vegna viðskipta-
hagsmuna okkar með útflutning á
fiski og fiskimjöli, þar sem löggjöf-
in og allt eftirlit með henni hefur
tekið miklum framförum á síðustu
árum. Þó skal ekki reynt að halda
því fram að það sé allt gallalaust
frekar en annað og því eru okkar
mótvægisaðgerðir til komnar.
Það er rétt að vekja athygli á því
að þeir tveir dýrasjúkdómar sem
vitað er um að hafi borist til lands-
ins á undanförnum 10 árum eru án
efa hingað komnir með fólki. Árið
1998 kom upp áður óþekktur vírus-
sjúkdómur í hestum sem síðar var
kallaður Hitasótt. Hann var mjög
smitandi en sem betur fer ekki
mjög hættulegur okkar hestum, en
breiddist út um allt land. Nær víst
er að þessi sjúkdómur er landlæg-
ur í Evrópu án þess að valda þar
vandræðum, utan þess að þekkt er
að íslenskir hestar, sem fluttir eru
út til Evrópu, veikjast fyrsta mán-
uðinn vegna ýmissa vírusa, sem þar
eru landlægir. Sennilega hefur sjúk-
dómurinn borist hingað vegna þess
að einhver ferðalangur var ógætinn
og kom hingað í hesthús beint úr
hesthúsum í Evrópu.
Hinn sjúkdómurinn kom upp í
Eyjafirði á síðari hluta ársins 2007
og er kallaður Hringskyrfi og er
hvimleiður húðsjúkdómur af völd-
um sveppa, sem leggst fyrst og
fremst á nautgripi, en getur borist
í fólk, sem getur einnig verið smit-
berar í dýr. Hann hefur nú einnig
greinst í Skagafirði. Sjúkdómurinn
er landlægur í flestum löndum
nema Íslandi. Þessa sjúkdóms hafði
áður orðið vart á árunum 1966 fyrir
norðan og 1987 fyrir sunnan, en
það tókst að útrýma honum með
markvissum aðgerðum. Í báðum
tilfellum var hægt að rekja sjúk-
dóminn til þess að hann hefði bor-
ist hingað með erlendu vinnufólki.
Þótt ekki hafi enn tekist að rekja
smitleiðir nú, þá er vart um annað
að ræða en að það hafi verið með
fólki sem kom erlendis frá. Einnig
er staðfest tilfelli af berklum sem
komu upp í nautgripum á skólabúi
norðanlands fyrir meira en 40
árum. Talið var fullvíst að erlendur
starfsmaður sem var berklaveik-
ur hafi smitað nautgripina. Í þessu
sambandi er vert að geta þess að
það eru útlendingar sem í mörgum
tilfellum vinna núna hér á landi
við umhirðu dýra og slátrun þeirra
og ef þetta fólk kemur frá löndum
Evrópusambandsins þá þarf það
ekki að ganga undir sérstaka heislu-
farsskoðun hér á landi áður en það
hefur vinnu hér.
Áhættumat varðandi lýðheilsu
Í núgildandi löggjöf um innflutn-
ing búfjárafurða hefur ekki bara
verið höfð hliðsjón af því að vernda
heilsu dýra, heldur mikil áhersla
lögð á að vernda einnig lýðheilsu,
t.d. gagnvart salmonellu, kam-
fýlóbakter og leifum af vaxtarauk-
andi efnum sem eru sums staðar
enn notuð, þó ekki í löndum ESB,
Noregi og Sviss. Stefnt er að því
að vernd gegn salmonellu muni
haldast óbreytt. En sú vernd gegn
kamfýlóbakter í kjúklingakjöti, sem
hefur fólgist í kröfunni um að allt
innflutt kjöti skuli hafa verið fryst
í a.m.k. 30 daga, fellur nú niður að
loknum aðlögunartímanum. Í ofan-
greindu frumvarpi er ákvæði, sem
tekið er beint úr Evrópulöggjöfinni
sem gefur möguleikann á að beita
sérstökum aðgerðum til að vernda
heilsu fólks, sé talið að ákveð-
in matvæli beri með sér heilsuvá.
Líklegt má telja að þessi ákvæði
munu verða notuð ef á þarf að halda
til að koma í veg fyrir innflutning á
kjúklingakjöti sem mengað er kam-
fýlóbakter og gæti sett í hættu þann
góða árangur sem Ísland hefur náð
við að koma í veg fyrir veikindi
fólks af völdum þessarar örveru.
Einnig er rétt að minnast á að
tríkínur, sem eru örsmá sníkjudýr,
geta leynst í kjöti, aðallega svína-
og hrossakjöti. Þessi sníkjudýr
hafa aldrei greinst í íslensku
kjöti og sjaldgæft er að þau finn-
ist í kjöti af eldisdýrum í löndum
Evrópusambandsins. Sníkjudýr
þessi geta verið banvæn berist þau í
fólk og því er gífurleg áhersla lögð
á eftirlit með þessu í kjötskoðun
flestra landa. Suða og frost drepa
þessi sníkjudýr. Hér á landi hefur
þó, enn sem komið er, aðeins verið
leitað eftir tríkínum í hrossakjöti
ætluðu til útflutnings til Evrópu.
Leit að tríkínum, við slátrun á öllu
hrossa- og svínakjöti verður nú
gerð að skyldu hér á landi. Tríkínur
finnast helst í villisvínum sem
veidd eru í skógum Mið- og Austur-
Evrópu. Varasamastar eru því alls
konar hrápylsur, sem eru heimatil-
búnar úr slíku kjöti, en pylsur sem
eru löglega framleiddar til sölu eiga
að vera úr kjöti sem kemur úr slát-
urhúsum þar sem kjötið hefur verið
prófað sérstaklega þar að lútandi.
Ef svo slysalega vildi til að sníkju-
dýr þessi bærust í húsdýr okkar,
þá ætti þeirra að verða strax vart í
auknu eftirliti við kjötskoðun hér
á landi í kjölfar nýju löggjafarinn-
ar. Hér eftir sem áður verður mikil
vörn í að neyta aðeins matvæla sem
eru löglega framleidd hér á landi
sem erlendis.
Niðurstaða
Eins og málum er nú háttað þá eru,
að mati yfirdýralæknis, meiri líkur
á að hingað berist framandi dýra-
sjúkdómar með fólki heldur en með
löglega innfluttu hráu kjöti.
Ekki eru miklar líkur á að lýð-
heilsu verði stefnt í aukna hættu
með umræddum breytingum, að
því gefnu að gerðar verði ráðstaf-
anir til að stemma stigu við inn-
flutningi á kjúklingakjöti menguðu
af kamfýlóbakter.
Innflutningur búfjárafurða
Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun
halldor.runolfsson@mast.is
Matvælalöggjöf
Sáðmenn sandanna
valin fræðibók ársins
Sáðmenn sandanna, Saga land-
græðslu á Íslandi 1907-2007
hefur verið valin besta fræði-
bók ársins 2007 af Upplýsingu,
Félagi bókasafns- og upplýs-
ingafræða. Tók höfundur bók-
arinnar Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðingur við viðurkenn-
ingarskjali úr hendi Sigrúnar
Klöru Hannesdóttur formanns
Upplýsingar.
Í rökstuðningi matsnefndar
segir meðal annars að mikill feng-
ur sé að bókinni því Sáðmenn
sandanna sé aðgengileg hand-
bók um landgræðslu á Íslandi
sem standist jafnframt fræðilegar
kröfur. Bókin hafi mikið nota-
gildi fyrir þá sem vilji kynna sér
sögu elstu landgræðslustofnunar
í heiminum og hvernig tekist var
á við gróður- og jarðvegseyðingu
með samstilltu átaki víða um land.
Matsnefndin ber einnig lof á stíl
bókarinnar sem hún segir falleg-
an og málfar frjótt og lifandi líkt
og gróðurinn sem fjallað er um.
Þá segir að fagmennska og vand-
virkni hafa verið í fyrirrúmi við
allan frágang.
Það var Landgræðsla ríkisins
sem stóð að útgáfu bókarinnar í
tilefni af 100 ára afmæli skipulegs
landgræðslustarfs á Íslandi. Að
sögn Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra er nú unnið að þýð-
ingu bókarinnar á ensku en mikil
eftirspurn hefur verið eftir þessari
sögu á erlendum tungumálum.
Frá afhendingu viðurkenningar fyrir bestu fræðibók ársins 2007. Frá
vinstri Elín Kristbjörg Guðbrandsdóttir form. matsnefndar Upplýsingar,
Andrés Arnalds úr ritnefnd Sáðmanna sandanna, Friðrik G. Olgeirsson
rithöfundur, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Sigrún Klara
Hannesdóttir formaður Upplýsingar.