Bændablaðið - 14.05.2008, Page 17
17 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
FORÐUMST SLYSIN Í SUMAR!
Eigum til á lager úrval af
Þýsk hágæðavara á hagstæðu verði
Krókhálsi 16, Reykjavík - Gleráreyrar 2, Akureyri - Sími 588 2600 - www.velaver.is
drifsköftum, drifskaftshlífum, hjöruliðum,
kúplingum, drifskaftsrörum og krossum.
Kröfur um ódýr matvæli verða
sífellt háværari í samfélaginu en í
sumum tilvikum koma þær niður
á gæðum vörunnar. Ástæða er
til að óttast þá þróun sem getur
orðið í þessum efnum, að mati
þeirra Eiðs Gunnlaugssonar,
framkvæmdastjóra Kjarnafæðis
á Akureyri og sonar hans,
Gunnlaugs Eiðssonar aðstoð-
arframkvæmdastjóra.
Félagið er nær aldarfjórðungs
gamalt, en starfsemin hófst árið
1985 þegar Eiður og Hreinn bróð-
ir hans hófu að framleiða pítsur og
hrásalat á Akureyri. Starfseminni
hefur vaxið fiskur um hrygg og
er Kjarnafæði nú í hópi öflug-
ustu matvælaframleiðslufyrir-
tækja landsins. Það á hlut í ýmsum
félögum öðrum víða um land, m.a.
Norðanfiski, sósu- og salatgerðinni
Nonna litla, hluta af Sláturfélagi
Vopnfirðinga og tæplega helmings-
hlut í nýju félagi um rekstur slátur-
húss og kjötvinnslu SAH-Afurða á
Blönduósi. Starfsmenn eru um 220
talsins.
Eiður segir að Kjarnafæði hafi
alla tíð lagt mikla áherslu á gæði,
að vanda til verka og að veita góða
þjónustu. Samkeppni í matvæla-
geiranum hefur alltaf verið mikil,
en Gunnlaugur segir að rekstur
félaga í greininni nú sé mun ábyrg-
ari en var fyrir nokkrum árum.
Meiri metnaður sé til staðar, menn
leggi sig alla fram en það þýði ekki
annað í því samkeppnisumhverfi
sem matvælafyrirtækin starfi í.
Kjarnafæði hafi alla tíð lagt áherslu
á að bjóða upp á vönduð matvæli.
Stefnan er að svo verði áfram um
ókomna tíð.
Öfgafullar kröfur um endalaust
ódýrari matvæli koma niður á
gæðum
Nú telja þeir feðgar að blikur séu
á lofti. Kröfur um ódýr matvæli
verði æ háværari og í sumum til-
vikum komi það niður á gæðum
þeirra. „Við lítum á það sem skyldu
okkar að framleiða ódýr, góð og
holl matvæli og því hef ég nokkrar
áhyggjur af þeirri þróun sem mér
sýnist stefna í, að þessar öfgafullu
kröfur um endalaust ódýrari og
ódýrari mat komi niður á gæðum,“
segja þeir. Eiður bendir á að mat-
vælaframleiðendur freistist til að
framleiða matvæli á ódýran hátt,
sem sum hver innihaldi allt að 50%
af hertri fitu og séu þar af leið-
andi afskaplega óholl. „Við höfum
áhyggjur af þessari þróun og vilj-
um sporna við fæti,“ segir hann.
„Það er nú einu sinni svo að á
einhverjum tímapunkti ná menn
botni framleiðslukostnaðar með
hagræðingu, eftir það þurfa menn
að finna hjáleiðir til að gera mat-
vælin ódýrari, eins og við höfum
séð í löndum þar sem offitufarald-
ur geisar, s.s. Bandaríkjunum og
víðar, þar sem framleiðendur hafa
troðið í dýrin vaxtarhormónum
fyrir slátrun og fyllt kjötið af auka-
efnum eftir slátrun til að ná niður
matvælaverði. Mér líst ekki á það,
mér er ekki sama um hvað fólkið
lætur ofan í sig,“ segir Eiður. „Nú
er íslenski markaðurinn að byrja að
fylgja þessari þróun, á markaðinn
er komið mikið úrval af djúpsteikt-
um vörum sem eru eftirlíkingar af
góðum vörum, s.s. snitsel og cor-
don bleu, en í stað úrvalskjöts er
„soffa“ sett í form og steypt saman
með fitu. Þessi hraðsteikti hrylling-
ur inniheldur allt að 50% af hertri
fitu og er þar af leiðandi afskaplega
óhollur.“
Þeir Eiður og Gunnlaugur hafa,
sem fyrr segir, áhyggjur af þesari
þróun og vilja sporna við fæti. „Við
hjá Kjarnafæði vinnum markvisst
að því að bjóða frekar upp á hrein-
ar kjötafurðir, úr alvöru kjöti með
sem fæstum aukaefnum. Við höfum
fundið að viðskiptavinum okkar
líkar vel þessi fastheldni,“ segir
Eiður. „Framleiðsla á matvælum
felur í sér mikla ábyrgð, sem ekki
á að víkja sér undan í skjóli skyndi-
gróða.“
Framleiðsla á matvælum felur í sér ábyrgð sem
ekki má víkja sér undan í skjóli skyndigróða:
Óttast að kröfur um
ódýr matvæli komi
niður á gæðum
Þeir Gunnlaugur Eiðsson og Eiður Gunnlaugsson í Kjarnafæði segja
íslenska markaðinn farinn að fylgja þeirri þróun sem átt hefur sér stað í
Bandaríkjunum; á markaðinn sé komið mikið úrval af djúpsteiktum vörum
sem séu eftirlíkingar af góðum vörum og innihaldi sumar hverjar allt að
50% herta fitu. Þeir vilja sporna við slíkri þróun.