Bændablaðið - 14.05.2008, Page 19
19 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Reykjalundur er rótgróið fyrirtæki og á sér langa sögu í framleiðslu á plast-
vörum. Fyrirtækið hefur nú í seinni tíð aukið þjónustu á öðrum sviðum t.d. í
plastfittings, dælubúnaði hverskonar, gólfhitakerfum svo fátt eitt sé talið.
Reykjalundur framleiðir hina kunnu Búreks girðingastaura sem hafa notið mikilla
vinsælda og reynst vel í margbreytileika íslensks veðurfars og landslags.
Einnig býður Reykjalundur paströr, allt frá hefðbundnum vatnsrörur til röra, sem
henta vel til ræsagerðar.
Starfsmenn söludeildanna í Mosfellsbæ og á Akureyri veita ráðgjöf við efnisval
ásamt frekari upplýsingar um vörur og þjónustu Reykjalundar.
Aukin þjónusta
Reykjalundar
um allt land
PLASTRÖR, DÆLUR, FITTINGS, RAFGIRÐINGAR
Þórsstíg 4, 600 Akureyri, sími 460 1760, 270 Mosfellsbær, sími 530 1700, rp@rp.is
hennar sem hágæða hollustuvöru,
sem seld er á þeim mörkuðum þar
sem gæði og heilnæmi skipta meira
máli en verð.
Í töflunni hér til hliðar má sjá
upplýsingar um vatnsmagn og
hitastig í allnokkrum lindum á
Suðurlandi. Tekið skal fram að
ekki er um tæmandi lista að ræða.
Gera má ráð fyrir að á nokkrum
stöðum í fyrrgreindum lista sé ekki
mögulegt að fá leyfi fyrir starfsemi
tengdri fiskeldi vegna umhverf-
isverndarsjónarmiða. Sjá má að
verulegt framboð er á sjálfrennandi
lindarvatni á þó nokkrum stöð-
um, þar sem hægt væri að fram-
leiða umtalsvert magn af bleikju.
Á sumum þessara staða er einnig
möguleiki á heitu eða volgu vatni,
sem myndi gera viðkomandi svæði
verulega athyglisverð með fisk-
eldi í huga. Hafa skal í huga að
auka mætti rennsli verulega með
því að bora grunna holu á slíkum
svæðum. Einnig þar, sem ekki er
sjáanlegt sjálfrennandi vatn, mætti
fá það fram með borun.
Framtíðarsýn
Víða um heim eru menn að prófa
sig áfram með nýjar eldistegund-
ir og hefur gengið mjög vel með
sumar. Hér á landi hefur mikið verið
lagt í eldi á lúðu, barra, sæeyrum,
sandhverfu og núna síðustu miss-
erin þorski. Litið er á eldi þessara
tegunda sem nýsköpun en bleikjan
er ekki á sama báti. Margir telja að
í ljósi reynslu sl. 25 ára sé fullreynt
hvar og hvernig best sé að standa
að eldi hennar. En þó svo að stóru
strandeldisstöðvarnar henti vel til
bleikjueldis er óliklegt að byggðar
verði fleiri í þeim tilgangi. Við telj-
um að enn sé sóknarfæri í bleikj-
unni og að það felist í einfaldleik-
anum. Gera þarf heildstæða áætlun
sem byggir á því sem að framan er
nefnt: Einfalt og ódýrt eldisrými,
sjálfrennandi heilnæmt lindarvatn,
eldi í smáum stíl (e. farm product)
á bújörðunum. Allt þetta gefur
ímynd af vistvænni, sjálfbærri og
heilnæmri vöru. Bleikjan verður
alltaf sérvara (e. niche product) og
því verður að gefa henni eins mikla
sérstöðu og hægt er.
Gera þarf stórskala tilraun með
eldi á bleikju í lengdarstraumsrenn-
um af því tagi sem að framan var
lýst. Út frá þeirri tilraun yrði hægt
að gera kostnaðar- og arðsem-
isáætlanir, sem síðan yrðu kynntar
þeim aðilum sem búa yfir vænlegri
aðstöðu til eldis. Lögð yrðu drög
að stofnun bleikjusamlags en ekki
farið í framkvæmdir fyrr en ákveð-
inn lágmarksfjöldi framleiðenda
hefði skuldbundið sig til þátttöku.
Í mörg undanfarin ár hefur gengi
krónunar verið óhagstætt útflutn-
ingsgreinum og bleikjuframleið-
endur hafa ekki farið varhluta af
því. En núna er lag.
Greinina skrifuðu Trausti Stein-
dórsson og Sveinbjörn Oddsson hjá
Marine Spectrum ehf. – ráðgjafa -
fyrirtæki í fiskeldi. Vefslóð fyr-
irtækisins er www.marinespectrum.
com
Starfsmenntanám
· Blómaskreytingar
· Búfræði
· Garðyrkjuframleiðsla
· Skógur og umhverfi
· Skrúðgarðyrkjubraut
www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands
Umsóknarfrestur um skólavist
er til 4. júní
Ný stjórn Félags tamningamanna var kjörin á framhaldaðalfundi sem fór fram í Bændahöllinni 28. mars s.l.
Formaður var kjörin Sigrún Ólafsdóttir, Hallkelsstaðahlíð, varaformaður Herdís Reynisdóttir, ritari Þórdís Anna
Gylfadóttir, gjaldkeri Hrefna María Ómarsdóttir, meðstjórnandi Elka Guðmundsdóttir. Varamenn sem starfa að
fullu í stjórn eru Þórarinn Eymundsson formaður norðurdeildar og Guðmundur Arnarsson formaður suðurdeild-
ar. Á myndinni má sjá hina nýju stjórn að Elku frátalinni, talið frá vinstri: Þórarinn, Herdís, Sigrún formaður,
Hrefna, Þórdís og Guðmundur.
Vönduð hús sem eru klædd með yl-einingum.
Stálgrindarhús ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í
innflutningi á Stálgrindarhúsum.
Fyrirtækið leggur metnað í að sameina vönduð hús,
góða þjónustu og gott verð.
Uppl. Í síma 661-9651 og 690-8050 eða á www.stalgrind.is
www.stalgrind.is