Bændablaðið - 14.05.2008, Síða 21
21 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Út er komin
árbók Ferða-
félags Íslands
2008 og er höf-
undur henn-
ar Hjörleifur
Guttormsson
náttúrufræð-
ingur, sem
skrifar um
Úthérað ásamt Borgarfirði
eystra, Víkum og Loðmund-
ar firði. Fallegar ljósmyndir
sem flestar eru eftir höfundinn
skreyta bókina, auk þess sem
hún hefur að geyma nákvæm
kort af þeim byggðarlögum sem
fjallað er um. Daníel Bergmann
annaðist umbrot á bókinni.
Kort í árbókinni eru teiknuð
af Guðmundi Ó. Ingvarssyni, að
forskrift höfundar hvað örnefni
varðar. Auk staðfræðiuppdrátta er
þar að finna óvenju margar skýr-
ingarmyndir um jarðfræði, lífríki
og fornminjar. Prófarkalestur var í
höndum ritnefndarmannanna Árna
Björnssonar, Eiríks Þormóðssonar
og Guðrúnar Kvaran. Þá vann Helgi
Magnússon við skráargerð. Jón
Viðar Sigurðsson ritstýrði verkinu.
Bókin fjallar um fjölbreytt og
einkar áhugavert svæði, bæði hvað
varðar náttúrufar og möguleika til
útivistar. Þar skiptast á eyðibyggðir
í hrikalegri umgjörð og nærliggj-
andi svæði með byggð í blóma.
Loðmundarfjörður og Víkur
eiga sér langa og merkilega byggð-
arsögu sem náði fram yfir miðja
síðustu öld. Nú njóta þessir staðir
með sitt einstaka náttúrufar mik-
illa vinsælda meðal útivistarfólks.
Sama má segja um Borgarfjörð
eystra með sinni margrómuðu
umgjörð. Bókarhöfundi tekst á sinn
einstaka hátt að leiða lesandann um
landið og flétta á skemmtilegan hátt
saman sögu og lýsingu á náttúrufari
og mannlífi. Frá Borgarfirði liggur
leiðin til Egilsstaða, þaðan sem lagt
er upp í ferð um byggðir Úthéraðs:
Eiðaþinghá, Hjaltastaðaþinghá,
Fell, Hróarstungu og Jökulsárhlíð
allt út á Standandanes norðan
Héraðsflóa. Þetta söguríka svæði
býr yfir mikilli náttúrufegurð og
fjölbreyttu gróðurfari og dýralífi,
sem endurspeglast vel í fjölmörgum
myndum og uppdráttum. Útkoman
er glæsileg bók sem er í senn fræð-
andi og hvatning til lesandans að
kynna sér svæðið af eigin raun.
Hjörleifur Guttormsson hefur nú
skrifað sex árbækur fyrir Ferðafélag
Íslands og hafa þær allar notið mik-
illa vinsælda. Í þeim er fjallað um
landið austanvert frá Lómagnúp
norður í Öxarfjörð og bera þær
heitin Austfjarðafjöll (1974), Norð-
Austurland, hálendi og eyðibyggð-
ir (1987), Við rætur Vatnajökuls
(1993), Austfirðir frá Álftafirði til
Fáskrúðsfjarðar (2002), Austfirðir
frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar
(2005) og nú bætist við Úthérað
ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og
Loðmundarfirði (2008). Bækurnar
fást allar á skrifstofu FÍ, nema
árbókin 1974, sem er uppseld.
Á útgáfuári eru árbækur
Ferðafélags Íslands sendar félags-
mönnum í Ferðafélaginu en fara í
almenna sölu ári síðar. Um átta þús-
und félagsmenn eru nú í Ferðafélagi
Íslands. Hægt er að ganga í félagið
og fá þá nýir félagar árbókina senda
heim, en árgjaldið er kr. 4.900.
Árbækur Ferðafélags Íslands
hafa komið út í óslitinni röð frá
árinu 1928 og eru á heildina litið
einstæður bókaflokkur um land og
náttúru, í raun altæk Íslandslýsing
á meira en tólf þúsund blaðsíðum.
Hefur Ferðafélagið alla tíð kostað
kapps um að gera þær sem best úr
garði. Ritröðin endurspeglar sam-
fellu í efnistökum þar sem náttúra,
saga og menning eru í öndvegi og
framfarir í ljósmyndun og prentun
endurspegla kröfur hvers tíma.
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN
HELLU
22.–24. ÁGÚST 2008
Búnaðarsamband Suðurlands Austurvegi 1 800 Selfoss 480 1809 johannes@bssl.is www.landbunadarsyning.is
Tryggðu þér svæði
– bókaðu núna!
www.landbunadarsyning.is
22.–24. ÁGÚST 2008
Samstarfsaðilar:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
PO
RT
h
ön
nu
n
Bændur - Verktakar
Sau fjárbændur athugi !!!
L a m b o o s t og F l o r y b o o s t
Pasta til inntöku fyrir lömb – 100% náttúrulegt
L A M B O O S T
Lamboost er fæ ubótarefni sem er au ugt af broddmjólk og
næringarefnum og er sérstaklega hanna me
Eykur orku - Nau rur, glúkósi, ríglyserí ar
- Broddur
Heilbrig - Mjólkurs rugerlar
F L O R Y B O O S T
Floryboost stu lar a jafnvægi
- Vi
,
Eykur orku
- Nau
Au
Nánari uppl singar getur ú fengi hjá d ralækninum ínum e a hjá
umbo sa ila.
Umbo sa ili: D raheilsa ehf. 564 2240
Árbók FÍ 2008
Úthérað ásamt Borgarfirði
eystra, Víkum og Loðmundarfirði