Bændablaðið - 14.05.2008, Síða 26
26 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Ráðstafanir gegn skordýraplágu
í fjósum og mjólkurhúsum er eitt
hinna árlegu vorverka til sveita,
en flugur sem oft fylla fjós og
skepnuhús eru ekki bara hvim-
leiðar, þeim fylgir sóðaskapur
og þær eru að auki sýklaberar.
Þær skíta hvarvetna þar sem þær
setjast og bera með sér aragrúa
af sýklum og óhreinindum sem
valdið geta sjúkdómum í mönn-
um og skepnum.
Nú nýlega var tekið í notk-
un nýtt fjós að Stóru-Tjörnum í
Ljósavatnsskarði í Suður-Þing-
eyjarsýslu en áður en kúm var
hleypt inn í fjósið mætti Hjalti
Guðmundsson meindýraeyðir á
staðinn og úðaði fjósið hátt og
lágt að innan með skordýraeitri.
„Tilgangurinn era að halda fjósinu
flugnalausu að minnsta kosti þetta
árið og vonandi lengur, oft dugar
að úða annað hvert ár,“ segir Hjalti.
Um tilraun sé að ræða menn vonist
til að árangurinn verði góður af því
að úða fjósið áður en kýr komu þar
inn. Best væri segir hann ef árang-
urinn yrði svo góður að flugan næði
ekki að kvikna.
Hjalti hefur verið á ferðinni með
græjur sínar í tæp 10 ár og segir
vaxandi að bændur láti úða fjós
sín með skordýraeitri til að koma
í veg fyrir flugnamergð þar. Nýrri
fjós segir hann erfiðari viðureignar
en þau eldri, þar er hærra til lofts
og í þeim er meira stál sem flugur
sækja í með tilheyrandi sóðaskap.
„Þetta er víða mikil plága, það er
sums staðar svo mikið um þessar
húsflugur að vart er hægt að opna
munninn,“ segir Hjalti.
Húsflugurnar sækja mjög í
galvaníserað járn t.d. á brautum
og mjaltarkerfum og eftir nokkrar
vikur er járnið iðulega orðið svart
af skít eftir þær. Hætta er á að járn-
ið ryðgi svo í kjölfarið.
Flugum meinilla við hreinlæti og
kulda!
Kristján Gunnarsson mjólkureft-
irlitsmaður hjá MS á Akureyri segir
flugurnar hvimleiðar í fjósum, þær
eigi það til að setjast að á mjólk-
urtönkum og áhöldum til mjólk-
urframleiðslu, „og rata því miður
býsna oft ofan í mjólkina með til-
heyrandi ólystilegheitum, óþrifnaði
og sýklaferli.“ Kristján bendir á að
flugur geti mengað allt umhverf-
ið, fjósið sem er matvælafram-
leiðslustaður. Óþefur af völdum
flugnaplágu er líka mikill og segir
Kristján að mjólk sé afar sækinn
á lyktarmengun og geti tekið í sig
óbragð af ólyktinni.
Þá nefnir Kristján að það sé
skylda samkvæmt mjólkurreglu-
gerð að sjá til þess að halda flugum
og meindýrum í skefjum í fjósum
og mjólkurhúsum „og því ættu
allir að láta eitra fyrir flugu á vorin
þegar hún er að byrja að kvikna,“
segir hann. Bendir Kristján á að
tvennt sé flugum meinilla við;
hreinlæti og kulda. Því ættu bænd-
ur að kappkosta að halda fjósum
og mjólkurhúsum eins hreinum og
unnt er og hafa þau vel loftræst og
eins köld og mögulegt er.
Kæru lesendur.
Nú þegar vorið er loksins komið
fyrir norðan og sunnan er marg-
ur garðeigandinn eflaust farinn að
huga að ýmsu sem bíður í garðinum
eftir veturinn. Sumt af þessu gerum
við sjálf, mörg hver sinna öllum
þessum verkum sjálf en aðrir fá
aðstoð eða láta jafnvel garðyrkju-
fólk alfarið um umhirðu garðsins.
En sama hver innir verkin af hendi,
þá þarf að ganga í þau og heilsa
þannig vorinu um leið með klipp-
ingum, snyrtingum og snurfusan á
nánasta umhverfi.
Klippingar
Ágætt er að klippa runna og tré sem
ekki er nú þegar búið að eiga við,
sérstaklega á þeim stöðum lands-
ins þar sem brum eru enn ekki farin
að opna sig verulega. Margir hafa
þegar lokið klippingum í garðinum.
Annars staðar sleppur klipping
kannski enn til þótt heldur seint sé
orðið. En gott er að fara yfir gróð-
urinn, þótt ekki sé mikið klippt.
Það þarf kannski að taka af brotnar
greinar. Eða grisja berjarunna örlít-
ið. Fyrir þau ykkar sem ekki eru
vön að standa í slíku, þá er gott að
lesa sér aðeins til og klippa þá frek-
ar minna en meira. Einnig er hægt
að hóa í garðyrkjufólk og biðja um
ráðleggingar og aðstoð.
Áburðargjöf
Flestar plöntur gleðjast yfir smá
áburði, nú þegar þær eru að vakna
úr vetrardvalanum. Gott er að
dreifa fljótlega blákorni eða hús-
dýraáburði á grasflötinn. Eins
þiggja runnar og tré gjarnan auka-
næringu og þá má einnig notast við
kornin. Yfir rósir er gott að dreifa
húsdýraáburði og safnhaugsmold.
Húsdýraáburði, fiskimjöli og safn-
haugsmold ásamt öðrum lífrænum
áburði má blanda saman við mold-
ina í grænmetisgarðinum. En það
verður auðvitað að bíða aðeins með
það ef frost er ekki enn farið úr
jörðu. Með húsdýraáburðinn verður
þó að varast að hann liggi ekki upp
við jurtirnar og brenni þær.
Ruslatínsla og tiltekt
Þær eru óheyrilega margar, flug-
eldaleifarnar sem koma undan
snjósköflunum sem bráðna í vor-
sólinni. Þá er auðvitað að grípa
ruslapoka og safna þessu saman
ásamt öðru rusli sem slysast hefur
inn í garðinn og kemur greinilega úr
ýmsum áttum. Það eru nammibréf,
hamborgaraumbúðir, gosflöskur
og fjöldinn allur af plastpokum og
einhverju plasti. Sjálfsagt er hægt
að gera eitthvað skemmtilegt með
þetta en flest af ruslinu fer bara
hreinlega í ruslið á mínu heimili.
Greinar sem klipptar hafa verið
af runnum og minni trjágrein-
ar, lauf og annað sem fellur til af
plöntunum í garðinum má setja í
safnhauginn, en þá verður að búta
greinar smátt niður eða kurla þær.
Þar sem víða er líklegt að eitthvað
frjósi á næturnar á næstunni er
betra að flýta sér ekki um of að taka
plöntuleifar af beðunum heldur
leyfa þeim að liggja aðeins lengur
til þess að skýla plöntunum.
Svo eru það mannvirkin og
útbúnaður ýmiss konar sem tilheyr-
ir tilverunni í garðinum. Gott er að
yfirfara garðverkfærin og jafnvel
taka til í þeim ef það hefur ekki
verið gert um haustið, gera við,
dytta að og endurnýja. Einnig er
þörf á að yfirfara húsgögn og koma
þeim út ef þau hafa verið geymd
inni við. Kannski er gott að dytta
eitthvað að pallinum eða öðrum
mannvirkjum, olíubera, mála eða
jafnvel smíða þau hreinlega. Það
þarf að athuga með grillið, rólurnar
og sandkassann.
Ræktunin hefst
Þar sem veðurspekingarnir leyfa,
þar er hægt að hefjast handa við
sáningu, plöntun og niðursetningu
útivið. Víða er þó enn of snemmt
til þess að fara út í þetta, en annars
staðar er komið hálfgert sumar og
vel tímabært að planta út. Ef útlit
er fyrir næturfrost eða kuldadaga er
þó ljómandi gott og eiginlega nauð-
synlegt að breiða yfir nýgróðursett-
ar plöntur eða taka þær inn fyrir ef
hægt er, ef þær eru til dæmis í pott-
um. Víðast hvar er fljótlega hægt
að stinga upp grænmetisgarðinn og
setja niður kartöflur.
Já, og ekki má gleyma vorlauk-
unum! Og heldur ekki illgresinu.
Viljugar en óvinsælar jurtir eru oft
fljótar til á vorin. Þau ykkar sem
alls ekki viljið fífla og annað illgresi
í garðinum ættuð að taka strax þær
plöntur sem skjóta upp kollinum nú
í vorinu. Þá er stundum minna af
þeim þegar líður á sumarið.
Og að byrja að njóta
Þegar fyrstu fíflablöðin fara að
stinga sér upp úr jörðinni er afar
ljúffengt að taka þau í salatið. Fersk
blöðin af birkitrjánum eru frábær í
te og eins sem krydd. Svo eru það
afskornu blómin. Rabbarbarinn er
jafnvel farinn að skjóta upp koll-
inum og er þá mögulegt að taka
fyrstu stilkana á næstu vikum og
fram eftir sumri, en á sumum stöð-
um á landinu er hann jafnvel kom-
inn svo langt nú þegar. Auk þess er
tilvalið er að skera sér páskaliljur
og svo túlípana og hafa í vasa inni
og fá þannig örlítið af vorinu inn í
húsið.
Eftir öll þessi verk og líka inn á
milli þeirra er bráðnauðsynlegt að
setjast út í garð með góðan bolla af
kaffi eða tei og láta vorsólina baka
vangann undir góðum samræðum
við vini. Það er jafnvel bara gott að
byrja vorverkin á þessu, fyrir þau
ykkar sem það vilja!
Kristín Þóra Kjartansdóttir
sagnfræðingur og garðyrkjunemi
kristinkj@gmx.net
Gróður og garðmenning
Nú er góður tími til að
pæla í garðveislum í sumar.
Hvað er skemmtilegra en að
bjóða vinum heim í garð í sum-
arblíðunni, borða góðan mat
úti við, leika og spjalla? Svo er
hægt að skipuleggja enn stærri
garðveislur, ja, bara fyrir göt-
una eða hverfið og kynnast
fólkinu í kring, um leið og fólk
spókar sig í almenningsgarði
eða á opnu svæði hverfisins!
Þau er mörg verkin sem bíða okkar í garðinum á vorin en einnig margt til að njóta eins og þessir rabbabararar
sem boða komu sumarsins.
Vorverkin í garðinum
Í Ríkisútvarpinu birtist nýlega
viðtal við dýralækni á Austur-
landi þar sem hann gagnrýnir
notkun á minkasíu við veiðar á
villimink og telur hana ómann-
úðlega. Svipuð sjónarmið hafa
heyrst frá dýralæknum áður.
Í tilefni af þessum viðhorfum,
sem eru byggð á misskilningi á og
fáfræði um þessa aðferð við minka-
veiðar, vill Landssamband veiði-
félaga að eftirfarandi komi fram.
Villiminkur er aðskotadýr í
íslenskri náttúru og veldur þar stór-
felldu tjóni á fiski í ám og vötn-
um, svo og á fuglalífi almennt.
Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir
veiðirétthafa og alla, sem fiskveiðar
stunda í ám og vötnum, að koma í
veg fyrir það tjón sem villimink-
urinn sannarlega veldur. Sérstaklega
eru seiði, sem alast upp í ferskvatni,
viðkvæm fyrir afráni villiminksins.
Því er nauðsynlegt að beita öllum
tiltækum ráðum til þess að halda
villimink í skefjum og koma í veg
fyrir tjón af hans völdum.
Hin nýja veiðiaðferð, að nota
minkasíur, hefur reynst afar árang-
ursrík og hafa veiðifélög og fleiri
aðilar um allt land notað hana
með góðum árangri. Aðferðin er
einföld og skjótvirk og minkur
sem fer í síurnar drepst tafarlaust.
Því er rangt með farið að hér sé
um ómannúðlegri veiðiaðferð að
ræða umfram aðrar, viðurkenndar
aðferðir við veiðar á villimink.
Landssamband veiðifélaga
vekur sérstaklega athygli á því að
minkasíur hafa verið samþykktar
sem lögleg veiðiaðferð af Umhverf-
isstofnun.
Fréttatilkynning frá Landssambandi
veiðifélaga
Minkasíur eru lögleg veiðiaðferð
Nýtt fjós að Stóru-Tjörnum úðað gegn skordýrum áður en kýrnar komu inn
Vonumst til að halda fjósinu flugnalausu
Hjalti Guðmundsson meindýraeyð-
ir á Akureyri.
Hjalti að störfum í nýja fjósinu á Stóru-Tjörnum.
Afleysingaþjónusta á bændabýlum
Búgarður – Ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi óskar
eftir að ráða starfsmann til afleysingastarfa á bændabýl-
um. Æskilegt er að viðkomandi hafi búfræðimenntun og
reynslu af landbúnaðarstörfum, sérstaklega á kúabúum.
Starfskjör eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í
síma 460-4477, einnig má senda tölupóst
á netfangið vignir@bugardur.is
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
skulu sendast til Búgarðs - Ráðgjafaþjónustu,
Óseyri 2 603 Akureyri.