Bændablaðið - 14.05.2008, Síða 27
27 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Hörður Guðmundsson, húsasmíða-
meistari og bóndi í Refsmýri í
Fellum á Fljótsdalshéraði, keypti á
dögunum gamla gróðurhús Barra
á Egilsstöðum, sem var aflagt þegar
Barri byggði upp nýja aðstöðu á
Valgerðarstöðum í Fellum.
Húsið er alls um 2000 fermetr-
ar að grunnmáli, með límtrésburð-
arbitum, hefðbundnum langbönd-
um og klætt með tvöföldu plexi-
gróðurhúsagleri. Hörður ætlar að
nota helming hússins sjálfur og
reisa aftur sem fjárhús heima á
Refsmýri. Hinn helmingur hússins,
um 1000 fermetrar, er til sölu. Að
sögn Harðar hafa þó nokkrar fyr-
irspurnir komið vegna þess og eru
menn jafnvel að hugsa um fjárhús-
byggingu í því sambandi.
Hörður hefur látið teikna fyrir sig
750 kinda fjárhús inn í þetta 1000
fermetra rými í sínum helmingi
Barrahússins. Núverandi fjárstofn
í Refsmýri er 300 kindur og segist
Hörður ætla að fjölga í honum.
„Húsið liggur allt núna, búið
að taka það niður og það er tilbúið
til flutnings, ég er búinn að grafa
grunninn heima í Refsmýri og ætla
að flytja sökkulinn þangað líka.
Ég mun líka nota glerið af hús-
inu áfram á nýja staðnum, allavega
til að byrja með, þetta er svipað
plexigler og er á garðstofum og það
er í miklu betra ástandi og sterk-
ara en ég reiknaði með í upphafi.
Gert var ráð fyrir að setja yleining-
ar utan á húsið eftir flutninginn, en
það bíður eitthvað.
Samkvæmt kostnaðaráætlun
er kostnaðurinn nálægt helmingi
minni en væri við að byggja nýtt,
með yleiningunum inniföldum.
Þetta með kostnaðinn er að vísu
alltaf afstætt; ég tel vinnuna mína
ekki með og síðan er eftir alls konar
frágangur, það vill safnast saman
þegar upp er staðið,“ segir Hörður
Guðmundsson, bóndi í Refsmýri.
SigAð
Það er gömul trú gárunga að
Drangsnesingar hafi fund-
ið upp grásleppuna og því eru
nýleg áform um að koma þar
upp grásleppusetri vel við hæfi.
Hugmyndin er að á setrinu verði
sögusýning um veiðar og verkun
grásleppu frá upphafi til þessa
dags. Hvort sem Drangnesingar
hafa fundið upp grásleppuna eða
ekki, er ljóst að veiðar og útflutn-
ingur á grásleppu hófust þar um
1946 og eftir það var farið að
veiða grásleppu og verka hrogn
á Drangsnesi. Þar er nú unnið
að því að koma upp grásleppu-
og nytjasetri og nýlega fékkst
tveggja milljóna króna styrkur
úr sjóði vegna mótvægisaðgerða í
ferðaþjónustu til þessa verkefnis.
Bændablaðið ræddi við
Jón Hörð Elíasson og Ásbjörn
Magnússon sem báðir eru í þriggja
manna undirbúningshóp um stofn-
un grásleppu- og nytjaseturs. Jón
Hörður segir styrkinn gera það að
verkum að nú verði farið í fullan
gang með verkefnið og stofnað um
það félag, en stofnfundur er áfor-
maður á næstu dögum. Hann segir
undirbúninginn hafa farið í fullan
gang þegar fundur áhugamanna
um málið var haldinn laust eftir
áramótin og mættu rúmlega tuttugu
manns á þann fund. Undirbúningur
að stofnun grásleppu- og nytjaset-
urs á Drangsnesi hófst laust upp úr
síðustu áramótum en hugmyndin er
þó ekki ný af nálinni og er meðal
annars sótt til grásleppusýning-
ar sem lengst af hefur verið hluti
af bæjarhátíðinni Bryggjuhátíð
á Drangsnesi. Jón Hörður bind-
ur vonir við að þetta verkefni sé
engin undantekning á þeirri sam-
stöðu sem Drangsnesingar eru
þekktir fyrir. Gríðarlegt átak þarf
þó til að koma svona starfsemi á
laggirnar þar sem húsnæði er ekki
til staðar og öll hönnunarvinna er
eftir, og mikill kostnaður sé við
verkefni sem þetta. Áætlanir gera
ráð fyrir að starfsemin geti hafist
á Bryggjuhátíð 2010, þó hún verði
ef til vill komin í gang að einhverju
leyti fyrr. Gangi allar áætlanir eftir
er með að fleiri nytjum verði gerð
skil og þetta verði því grásleppu-
og nytjasetur Stranda.
kse
Grásleppu- og nytjasetur Stranda
Gamla gróðurhús Barra fær nýtt hlutverk
Gamla gróðurhús Barra á Fljótsdalshéraði fær fljótlega nýtt hlutverk. Helmingur þess verður fjárhús að Refsmýri
í Fellum. Mynd SigAð
Guðbjörg starfsmaður fiskvinnslunnar Drangs að skilja grásleppuhrogn.
Ásbjörn Magnússon t.v. og Jón Hörður Elíasson eru í undirbúningshópi
fyrir stofnun grásleppusetursins á Drangsnesi.
Eins og undanfarin ár mun ég veita þjónustu sem felst í að
eitra fyrir flugum í húsum og kóngulóm sem oft setjast að
utan á húsum og valda fólki ama.
Einnig öðrum skríðandi skordýrum, og músum.
Aðgerðin er hreinleg og farið eftir ströngustu kröfum um
meðferð eiturefna.
Endingartími aðgerðar er undantekningarlítið eitt ár.
Vinsamlegast látið vita af ykkur sem fyrst svo hægt sé að
skipuleggja og veita sem besta þjónustu.
Byrjað verður á Héraði og niðri á fjörðum síðan haldi
með suðurströndinni, svo mun ég verða að Minna-Núpi í
Gnúpverjahreppi eins og venjulega.
Jón Svansson
meindýraeyðir
(Austfirðingurinn)
Orðsending til bænda og
Sumarhúsaeigenda
Sérhæfð þjónusta í dreifbýli!.
Flugnaeyðing og eyðing kóngulóar
Sími 893-5709 - netfang hakarl1@simnet.is
Stáli frá Kjarri
Is1998187002
Stáli frá Kjarri verður til afnota í Kjarri sumarið 2008.
Hryssur verða sæddar frá miðjum maí til júní loka.
Verð pr. hryssu kr. 150.000.-
Upplýsingar og pantanir hjá Helga Eggertssyni
482-1718 eða 897-3318 Netfang: kjarr@islandia.is
w w w. i s l e n s k a r h a e n u r. i s