Bændablaðið - 14.05.2008, Page 28
28 Bændablaðið | Þriðjudagur 14. maí 2008
Nú er sá tími sem bændur þurfa
að hafa sérlega góða orku og
mikið úthald og því er nauðsyn-
legt að neyta matar í samræmi
við það. Því er léttur en kolvetna-
og járnríkur kvöldmatur tilval-
inn til að hlaða batteríin áður
en næstu kindur eru komnar að
burði.
Kjúklingur með tímíankartöflum
2 laukar
1 msk. smjör/olía, til steikingar
800 g kartöflur
1 tsk. salt
1 ½ dl grænmetisteningur
1 ½ dl mjólk
1 msk. maíssterkja
4 kjúklingabringur
2 tsk. tímían
Aðferð:
Skerið bringurnar til helminga og
brúnið á pönnu í olíu. Leggið til
hliðar. Skerið laukinn og brúnið
á pönnu. Skrælið kartöflurnar og
sjóðið í potti með örlitlu salti og
uppleystum grænmetisteningi í um
10 mínútur. Bætið kjúklingabring-
unum og kartöflunum út á pönnuna
með lauknum. Blandið mjólk og
maíssterkju saman og hellið yfir.
Látið sjóða við lágan hita í um 10
mínútur. Kryddið með tímían og
berið fram með heitri blómkálsmús
og kaldri jógúrtsósu.
Heit og holl blómkálsmús
1 blómkálshaus
1/3 sellerírótarhaus
10 dropar sætuvökvi
salt
pipar
múskat (má sleppa)
2-3 msk. smjör
Aðferð:
Takið blómkálshausinn í sundur og
skerið í hæfilega stóra bita. Skerið
sellerírót í smáa bita og setjið ásamt
blómkáli í pott með sjóðandi vatni.
Sjóðið í um 10 mínútur eða þar til
blómkálið verður meyrt, gætið þess
að mauksjóða það ekki. Sigtið vatn-
ið frá blómkálinu og sellerírótinni
og maukið bitana í matvinnsluvél.
Setjið sætuefni og krydd saman
við og hrærið svolítið áfram þar til
engir stórir bitar eru eftir í mauk-
inu. Setjið smjör í pottinn, hellið
blómkálsmaukinu saman við og
steikið það í smjörinu stutta stund.
Hrærið vel í á meðan og alls ekki
láta blómkálsmaukið brúnast.
Köld og frískandi sósa
3 dósir jógúrt án ávaxta
3 hvítlauksrif
3 cm. engiferbútur
salt
pipar
Aðferð:
Setjið jógúrtið í skál. Merjið hvít-
lauksrifin út í ásamt engiferbútn-
um. Saltið og piprið eftir smekk.
Látið sósuna standa í það minnsta
klukkutíma í ísskáp áður en hún er
borin fram. ehg
MATUR
Hollt og staðgott í sauðburðinum
2 5 7
8 1
6 9
5 4 1
9 7 6 8
5 4 1
6 3
5 9
3 7 4
6 3
1 9 4
8 7
1 9
6 2 5 8
7 4
3 6
5 9 4
8 3
2 3 8
3 1
8 6
9 1 8
5 4
3 9 5
6 9
7 4
1 4 2
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Kjúklingur með tímíankartöflum er léttur og góður hversdagsréttur. (Mynd:
www.nordiskmat.se).
Á aðalfundi Kaupfélags Skag-
firðinga á dögunum kvaddi Þór-
ólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
sér hljóðs og ávarpaði Stefán
Gestsson, fyrrverandi bónda og
kennara á Arnarstöðum í Sléttu-
hlíð. Stefán sat þarna sem full-
trúi á aðalfundi kaupfélags í
fimmtugasta skipti og var honum
afhent bókargjöf af þessu tilefni.
Stefán sagði, þegar hann þakk-
aði fyrir gjöfina, að hann hefði fyrst
verið kjörinn fulltrúi á aðalfund
kaupfélags Austur-Skagfirðinga
árið 1959 og raunar verið kjör-
inn í stjórn félagsins það ár. Þegar
félagið var svo sameinað kaup-
félagi Skagfirðinga árið 1970 var
Stefán kjörinn í stjórn KS, þar sem
hann sat samfleytt til ársins 1999
og var raunar formaður stjórnarinn-
ar síðustu árin. Hafði hann þá setið
samfellt í stjórn þessara tveggja
kaupfélaga í 40 ár. Eftir þetta hefur
hann verið fulltrúi Hofsdeildar á
aðalfundum kaupfélagsins og ávallt
verið fundarstjóri.
Stefán sagði við þetta tækifæri
að hann hefði ekki átt von á því að
vera heiðraður á þessum vettvangi
og síst af öllu fyrir þaulsætni.
ÖÞ
Hefur setið 50 aðalfundi
í samvinnuhreyfingunni
Þórólfur (í ræðustól) afhenti Stefáni Gestsyni gjöf í tilefni þessa merka
áfanga. Ljósm. ÖÞ
Kvennakórinn Norðurljós á
Hólmavík hyggst gefa út geisla-
disk í sumar og er áformað að
hann verði kominn út fyrir bæj-
arhátíðina Hamingjudaga á
Hólmavík. Kórinn var í nokkurs
konar búðum við upptökurnar
sem fram fóru í Hólmavíkurkirkju
á dögunum og stóðu yfir í um
þrjá daga. Naut kórinn aðstoð-
ar Strandamannanna og tón-
listarsnillinganna Zakaríasar
Gunnarssonar, Gunnars Þórð -
arsonar og Kjartans Valdi-
marssonar. Gunnar er fæddur á
Hólmavík og sagði það ánægju-
legt að taka þátt í þessu: „Þegar
Sigríður kórstjórnandi kallar þá
mætir maður á staðinn. Þær eru
búnar að standa sig eins og hetjur
stúlkurnar og þetta er bara hið
besta mál. Svo er bara að virkja
fjölmiðlafulltrúann, opna „My
space“ og hugsa alþjóðlegt.“
Ætlunin er að um 14 lög verði
valin á diskinn, að sögn Sigríðar
Óladóttur, stjórnanda kórsins.
„Þar á meðal eru lög eftir Gunnar
Þórðarson og textar eftir ýmsa
Strandamenn eða fólk sem tengist
Ströndum á einhvern hátt. Þeirra á
meðal eru Gunnlaugur Sighvatsson,
Brynjólfur Sæmundsson og Stefán
Gíslason. Við erum gjarnan á rólegu
og ljúfsáru nótunum og vorum nú
að tala um hvort það þyrfti að láta
vasaklúta fylgja hverjum diski,“
sagði Sigríður. Ekki er komið nafn
á diskinn ennþá, en það mál er í
vinnslu.
Kvennakórinn Norðurljós var
stofnaður 1999 og hefur starfað
óslitið síðan. Að jafnaði eru milli
20 og 30 konur í kórnum og hafa
sumar verið með frá upphafi. Þær
koma frá Drangsnesi, Hólmavík og
nærsveitum, allt suður í Bitrufjörð.
Kórinn hefur komið fram víða um
land og einnig farið til Danmerkur
og Skotlands, svo eitthvað sé nefnt.
Þá hefur verið töluvert um að kór-
inn komi fram með öðrum kórum,
enda eru þær vinsælar og eftirsótt-
ar af karlakórum vítt og breitt um
landið, eins og þær sjálfar segja og
brosa út í annað.
kse
Geisladiskur frá kvennakórnum Norðurljósum
Zakarias Gunnarsson glaðbeittur við upptökur með kórnum.
Gunnar Þórðarson og Sigríður Óladóttir stjórnandi kórsins.