Bændablaðið - 17.12.2009, Qupperneq 7
7 Bændablaðið | fimmtudagur 17. desember 2009
Úr Svarfaðardal kemur þessi
fagurlega gerða hringhenda.
Þar er rík hefð fyrir vísnagerð í
göngum. Hinn ástsæli söngvari,
Jóhann Daníelsson, hafði um
nokkurt skeið haft í burðarliðn-
um seinni part að vísu, en ekki
fundið henni verðugan fyrripart.
Fyrriparturinn verður svo til
nokkru síðar frá Hirti bónda á
Tjörn. Saman sungu þeir svo
vísu þessa gjarnan í göngum á
Sveinsstaðaafrétti:
Gekk í dögun grýtta jörð,
glóði lögur mjalla,
sumarfögur sauðahjörð,
seig úr drögum fjalla.
Sárar minningar eiga sumir frá
eltingarleik við rollur. Hær ings-
staða-Móða hafði lengi þreytt
gangnamenn í Svarf að ardal, þó
engan sem Þórarin Hjart ar son
frá Tjörn:
Ósigur er aumt að játa,
eftir mörg og frækin spor.
Farðu í rassgat rolluskjáta,
og reyndu að drepast svo úr hor.
Haustið er ekki einungis upp-
skerutími sauðfjárbænda.
Loðdýrabændur fella hvolpa
sína og pelsa skinnin. Einn
þessara bænda, Hjalti heitinn
Haraldsson Syðra-Garðshorni
í Svarfaðardal hafði haust eitt
lokið pelsun sinna skinna, en
verðlag var það haust í dapr-
ara lagi, og tók hann það til
bragðs að frysta öll sín skinn og
bíða betra verðs. Gesti bar að
Garðshorni, og vildi Hjalti bera
þeim munngát nokkurt, hvað
hann hafði falið í frosti hjá refa-
skinnunum. Kynnti hann gestum
sínum mjöðinn með þessari
fallegu vísu:
Í kistu mína kafað hef
en kannski mest í gríni.
Lá þar köld hjá látnum ref
lögg af brennivíni.
Næst birti ég ykkur lesendum
gamla gersemisvísu, sem lýsir
með skemmtilegum hætti heið-
arferð á hesti. Vísan er eftir
Pétur Jakobsson frá Breiðu-
mýri í Reykjadal:
Heiðin-Hvamms af hófum dengd,
hestar af mæði skjálfa.
Átta sinnum er á lengd,
við eilífðina sjálfa.
Næstu vísur eru hirtar af „Leir“,
hinum lokaða vísnavef. Davíð
Hjálmar Haraldsson er fislétt
vísnaskáld og listagóður limru-
gerðarmaður. Þannig opnar hann
Leirinn 21. nóvember sl.:
Leirinn er hreinn sem lausamjöll,
er leggst yfir berjamóinn,
klappir og grös og kjörrin öll,
uns kem ég og pissa í snjóinn.
Og limra Davíðs er um hvass-
viðri:
Allt til að fjúka var fokið,
svo fádæma mikið var rokið,
að Helga í Mó,
hóstaði og dó,
því stormurinn stíflaði kokið.
Þegar Ármann Gunnarsson
héraðsdýralæknir í Eyjafirði
lét af störfum eftir langa og
dygga þjónustu, orti Einar
Kolbeinsson frá Bólstaðarhlíð
honum eftirmæli:
Lúta höfði lasin dýr,
líka bændur fræknir.
Í Eyjafirði nú er nýr,
niðurskurðarlæknir.
Ég óska lesendum gleðilegra
jóla, árs og friðar.
Umsjón:
Árni Jónsson
kotabyggd1@simnet.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Samkeppniseftirlitið birti ákvörð-
un og álit um samruna Kaup fé-
lags Skagfirðinga (KS), Mjólku
og Vogabæjar 10. desember síð-
ast lið inn. Sam keppnis eftir lit-
ið gerir ekki athugasemdir við
sam runa KS og Vogabæjar og
kemst sömuleiðis að þeirri niður-
stöðu að eftirlitið hafi ekki lög-
sögu varðandi samruna KS og
Mjólku. Fyrirtækin séu bæði af-
urðastöðvar í mjólkuriðnaði og
samruni þeirra falli ekki undir
gildissvið samkeppnislaga enda
sé ákvæði í búvörulögum sem
heimili sameiningu afurðastöðva.
Þrátt fyrir þetta gagnrýnir Sam-
keppniseftirlitið samrunann
harð lega og segir hann hamla
sam keppni. Sam keppniseftirlitið
bein ir jafnframt þeim tilmæl-
um til ráðherra að hann beiti sér
fyrir afnámi 71. greinar búvöru-
laga um samruna afurðastöðva í
mjólkuriðnaði. Sömu leiðis að bú-
vöru lögum verði breytt með þeim
hætti að heimilt verði að skipta
upp mjólkurafurðastöðvum.
Þreifingar um aðkomu KS að
rekstri Mjólku hófust í upphafi árs
og voru þær að frumkvæði for-
svarsmanna Mjólku. Segja má að
viðræður hafi staðið með hléum allt
frá þeim tíma og fram til 18. sept-
ember síðastliðins þegar tilkynnt
var um kaup KS á 87,5 prósents
hlut í Mjólku og helmings hlutar
í Vogabæ. Erfið fjárhagsleg staða
Mjólku var meginástæða þess að
hafnar voru viðræður um komu KS
að rekstri fyrirtækisins.
Í áliti Samkeppniseftirlitsins
er því haldið fram að samvinna
mjólkursamlaga innan Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði
(SAM) sé skaðleg fyrir neytendur
og framleiðendur og leiði til hærra
vöruverðs. Þá gagnrýnir eftirlitið
landbúnaðarráðuneytið harðlega
fyrir samkeppnishamlandi vinnu-
brögð við undirbúning lagafrum-
varpa og reglna. Er þar sérstaklega
tiltekið frumvarp til breytinga á
búvörulögum þar sem gert var ráð
fyrir að refsa mætti afurðastöð sem
tæki við mjólk utan kvóta og setti á
innanlandsmarkað. Þetta gagnrýndi
Samkeppniseftirlitið meðal annars
með minnisblaði til ráðuneytisins
en það taldi ljóst að ef lagafrum-
varpið hefði orðið að lögum hefði
það komið sér illa fyrir Mjólku í
samkeppni við afurðarstöðvarnar
innan SAM. Rétt er þó að halda
til haga að samkvæmt lögum skal
umframmjólk markaðssett erlendis
og í umræddu fraumvarpi var ekki
verið að breyta þeim lögum heldur
eingöngu verið að taka upp refsi-
ábyrgð.
Álitið snertir mjólkuriðnaðinn í
heild
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
KS vildi ekki tjá sig mikið efnis-
lega um álit Samkeppnisstofnunar
en sagði ljóst að álitið snerti mjólk-
uriðnaðinn í heild en ekki aðeins
sameiningu KS og Mjólku. Hins
vegar væri ljóst að með þessum
ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins
væri samruni KS og Vogabæjar og
KS og Mjólku staðfestur.
Rögnvaldur Ólafsson varafor-
maður SAM tók í sama streng og
Þórólfur. „Það er ljóst að ákvæði
búvörulaga eiga við um samein-
ingu KS og Mjólku og mér þykir
tilkynning Samkeppniseftirlitsins í
hæsta máta furðuleg í því ljósi. Ég
hefði haldið að það væri Alþingis að
setja lög og Samkeppniseftirlitsins
að vinna eftir þeim.“
Fyrirkomulag hér á landi leiðir
ekki til hærra vöruverðs
Einar Sigurðsson framkvæmda-
stjóri Mjólkursamsölunnar segir
félagið hafna því að það fyrirkomu-
lag sem er hér á landi á mjólk-
urvinnslu og sölu leiði til hærra
vöruverðs til neytenda en ella.
„Mjólkursamsalan er félag í eigu
um 700 kúabænda um allt land og
við bendum á að mjólkurvinnslan
er eina atvinnugreinin með beinni
aðkomu neytenda að verðlagn-
ingu með setu fulltrúa stéttarfélaga
í verðlagsnefndum hráefnis frá
bændum og afurða til neytenda.
Mjólkuriðnaðurinn hefur farið í
gegnum gríðarlega hagræðingu
undanfarin ár og afkoma í grein-
inni undanfarið og tölulegar stað-
reyndir sýna glöggt að þeim ávinn-
ingi hefur verið skilað til neytenda
í formi lægra vöruverðs en ella og
bænda í formi hærra afurðaverðs“
segir Einar.
Einar segist jafnframt telja að
Samkeppniseftirlitið hafi öll þau
tæki sem þarf til að sinna eftirliti
með starfsháttum á þessum markaði
og öll gögn Mjólkursamsölunnar
standi eftirlitinu vitaskuld opin.
Fagnar áliti Samkeppnisstofnunar
Ólafur M. Magnússon forstjóri
Mjólku fagnar áliti og ákvörð-
unum Samkeppniseftirlitsins. „Ég
get tekið undir hvert orð í áliti
Samkeppniseftirlitsins. Hvernig
búið er um hnútana í þessari grein
er með ólíkindum. Það er ekkert
launungarmál að það er algjörlega
nauðsynlegt að auka samkeppni í
þessari grein sem við störfum í. Sú
skoðun mín breytist ekkert þó að
við förum að vinna með Kaupfélagi
Skagfirðinga. Það á að afnema allar
undanþágur frá samkeppnislögum í
þessari grein eins og öðrum.“
Ólafur segir gleðiefni að í áliti
Samkeppnisstofnunar sé það stað-
fest að koma Mjólku inn á mark-
aðinn hafi haft afgerandi áhrif til
lækkunar á vöruverði til neytenda.
Jafnframt er gleðiefni að fá KS inn
sem sterkan bakhjarl fyrir Mjólku.
„Kaupfélag Skagfirðinga er félag
sem hefur staðið mjög vel vörð um
sína hagsmuni og sinna umbjóð-
enda og borið höfuð og herðar yfir
önnur samvinnufélög í landinu. Ég
vona að Mjólka verði áfram það afl
sem muni veita aðhald á þessum
markaði.“
Kaupin valda titringi
Þingmenn bæði stjórnar og stjórn-
arandstöðu hafa óskað eftir því
að þingnefndir fjalli um fyrir-
hug uð kaup (KS) á Mjólku.
Ólína Þorvarðardóttir þingmaður
Samfylkingarinnar hefur ósk að
eftir sameiginlegum fundi við-
skipta nefndar og sjávarút vegs- og
landbúnaðarnefndar vegna málsins
og hið sama hefur Eygló Harðar-
dóttir þingmaður Fram sóknar-
flokks ins gert. Eygló hefur sömu-
leiðis kallað eftir því að á þann
fund komi fulltrúar viðkomandi
ráðu neyta, Bændasamtaka Íslands,
Sam keppniseftirlitsins auk fulltrúa
KS og Mjólku.
Þá sagði Gylfi Magnússon við-
skipta- og efnahagsráðherra að
skelfilegt væri að einokun myndi
nú ríkja á mjólkurmarkaði með
kaupum KS á Mjólku. Gylfi segist
telja eðlilegt að ákvæði 71. grein-
ar búvörulaga verði felld niður
enda sé það engan veginn eðlilegt
að ákveðnar atvinnugreinar séu
að hluta eða jafnvel verulegu leyti
undanskildar samkeppnislögunum.
Í sjónvarpsfréttum Ríkisút-
varps ins 10. desember síðastliðinn
sagði Gylfi að hann teldi að Mjólka
ætti að fara í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu. Spurður hvort
hann teldi að fella ætti niður skuldir
Mjólku sagði Gylfi að hann teldi best
væri ef hægt væri að vinna úr mál-
efnum Mjólku þannig að eftir stæði
sjálfstætt fyrirtæki sem væri öflugur
keppinautur á markaði og hefði alla
möguleika til að veita stóra fyrirtæk-
inu sem fyrir væri það aðhald sem
æskilegt og nauðsynlegt væri á þess-
um markaði eins og öðrum.
Neytendasamtökin taka undir álit
Samkeppnisstofnunar
Þá hafa Neytendasamtökin tekið
undir sjónarmið Samkeppnis eftir-
lits ins á heimasíðu sinni. Þar kemur
fram að það sé mat samtakanna að
öll fyrirtæki eigi að heyra undir
samkeppnislög. Neytendasamtökin
krefjast þess að búvörulögunum
verði þegar breytt þannig að sam-
keppnislög gildi um samruna og
samstarf afurðastöðva í mjólkur-
iðn aði rétt eins og annarra fyr-
irtækja í landinu. Einnig telja Neyt-
endasamtökin með tilliti til ein-
okunar innan mjólkuriðnaðarins,
að þegar eigi að heimila frjálsan
og tolllausan innflutning á mjólk-
urvörum til að tryggja samkeppni
á þessu sviði og sem lægst verð til
neytenda. Neytendur geti ekki unað
við óbreytt ástand.
Ráðherra segir athugasemdir um
verklag ráðuneytisins út í hött
Í áliti Samkeppniseftirlitsins er
verk lag landbúnaðarráðuneytisins
við undirbúning lagafrumvarpa og
reglna gagnrýnt harkalega. Í álitinu
kemur fram að Samkeppniseftirlitið
telur verklagið „samkeppnishaml-
andi og til þess fallið að vekja
tortryggni á markaði um að fulls
jafnræðis sé gætt þegar sjónarmið
mismunandi hagsmunaaðila eru
metin.“
Jón Bjarnason sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra segir að
Samkeppniseftirlitið ráði í sjálfu
sér hvað það sendi frá sér og tjái
sig um. „En þetta er náttúrulega
fullkomlega órökstutt og gjörsam-
lega út í hött. Með þessum orðum
er ekki aðeins verið að væna ráðu-
neytið um vanhöld í sinni vinnu
heldur einnig Alþingi og nefndir
þess við sína vinnu. Mér finnst ekki
samboðið opinberri stofnun að hafa
uppi svona orð og það væri ráð
fyrir Samkeppniseftirlitið að rök-
styðja betur sitt mál.“
Í álitinu er þeim tilmælum beint
til landbúnaðarráðherra að hann
beiti sér tafarlaust fyrir afnámi 71.
greinar búvörulaga sem heimilar
„mjólkurafurðastöðvum samruna
og samkeppnishamlandi samráð
utan gildissviðs samkeppnislaga.“
Undir þetta hefur Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra tekið í fjölmiðl-
um eins og áður er greint frá. Jón
segir að ekki hafi verið rökstutt að
þessi heimild hafi valdið framleið-
endum eða neytendum tjóni. „Ég
held að það sé eins gott að fara yfir
það áður en menn fara að breyta
þessum ákvæðum, menn skulu
alla vega fara yfir stöðuna eins og
hún er. Á grundvelli slíkrar úttekt-
ar skulu menn svo meta hvort þörf
er á slíkri breytingu. Ef lög reynast
illa er sjálfsagt að endurskoða þau
en ég vil þá fá að sjá röksemdir
fyrir því að svo sé. Ég hef í sjálfu
sér ekkert um orð Gylfa að segja,
hann kemur fram á sínum forsend-
um en það þarf að horfa til margra
þátta í þessu. Menn ættu að fara
varlega í að setja fram fullyrðing-
ar af þessu tagi án þess að þær séu
vandlega rökstuddar.“
Samruni KS og Mjólku
samræmist lögum
Í áliti Samkeppniseftirlitsins er
þeim tilmælum jafnframt beint til
ráðherra að beita sér fyrir breyt-
ingum á búvörulögum með því
að sett verði í þau ákvæði sem
feli í sér heimild til að skipta upp
mjólkurafurðastöðvum til að koma
megi við samkeppni í vinnslu og
sölu á mjólk og mjólkurafurðum
neytendum og bændum til hags-
bóta. Jón Bjarnason bendir á að
Mjólkursamsalan sé í félagslegri
eigu um sjöhundruð bænda og
þar séu allir á jafnréttisgrundvelli.
„Þetta er ekki sambærilegt til að
mynda við fákeppnina á mat-
vörumarkaðinum þar sem smá-
söluverslunin er í eigu örfárra ein-
staklinga sem náð hafa fákeppni-
eða einokunarstöðu á markaði. Ég
velti fyrir mér til hvaða aðgerða
Samkeppniseftirlitið hefur gripið til
að setja því skorður. Þetta er þekkt
staðreynd sem við höfum verið að
glíma við og af því höfum við haft
miklar áhyggjur. Það má velta fyrir
sér hvernig Samkeppniseftirlitið
ætlar að beita sér á þeim vettvangi,
það hefur ekki sést mikið til þess
hvað það varðar.“
Jón segir að í ljósi þess að nið-
urstaða Samkeppniseftirlitsins sé
sú að samruni KS og Mjólku fari
eftir lögum, þá sé álit stofnunar-
innar býsna langt og mikið. „Það
er val þeirra manna sem eru þarna
í forystu. Það má kannski segja að
tónninn í þessu áliti sé svona timb-
urmenn ársins 2007 þegar allar
lausnir voru þær sömu. Auðvitað
er alveg sjálfsagt að skapa sem
best skilyrði til samkeppni hér en
við megum ekki gleyma heilbrigðri
skynsemi í þessum efnum. Frjáls
samkeppni er ekki lögmál per se
fyrir sjálfa sig. Ef að okkar kjör
og afkoma er best tryggð á félags-
legum grunni er það leið sem við
eigum að fara.“ fr
Kaup KS á Mjólku staðfest
Samkeppniseftirlitið gagrýnir samrunann harðlega og telur hann hamla
samkeppni. Landbúnaðarráðherra segir álit Samkeppniseftirlitsins
fullkomlega órökstutt