Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 26. febrúar 2009 Hægt er að stuðla að mun meiri hagkvæmni og aukningu mark- aðsvirðis landbúnaðarafurða hér á landi en nú er með hagnýt- ingu rekjanleika og uppruna- merkingum, að sögn dr. Sveins Margeirssonar, sviðsstjóra virð- iskeðjusviðs Matís ohf. Í erindi sem hann hélt á Fræðaþingi landbúnaðarins fyrir stuttu fjall- aði hann meðal annars um hag- nýtingu rekjanleika og hvernig hægt er að nota upprunamerk- ingar í markaðslegum tilgangi. „Að vissu leyti má segja að bændur hér á landi séu á eftir hvað varðar skráningu og rekjanleika ef miðað er til dæmis við sjávar- útveginn. Nú er verið að safna upp- lýsingum hjá bændum í gegnum gæðastýringu í landbúnaði og kyn- bótastarf en það vantar að menn miðli þessu sín á milli, frá bónda og yfir á vinnslustigið. Í rúmt ár hefur verið verkefni í gangi á vegum Matís, Kaupáss, kjötvinnslna SS og Norðlenska, Samtaka Iðnaðarins og fleiri, þar sem rýrnun er kortlögð frá kjötvinnslu og í verslun. Þarna nýtum við rekjanleikann, horfum á hve mikið fer til baka af vörunni úr versluninni og hvernig hún er með- höndluð. Það sem vantar þó hér á landi er markvissari birgðastýring til að halda utan um það hvað gerist í hverjum hlekk fyrir sig,“ útskýrir Sveinn, sem segir jafnframt að rekj- anleiki bjóði upp á marga jákvæða kosti, eins og til dæmis markaðs- greiningu nýrra afurða á markaði, tækifæri fyrir nýjar vinnsluaðferðir og þróun á nýrri tækni við vinnslu matvæla svo fátt eitt sé nefnt. Markaðslegur ávinningur Sveinn bendir á að gæðastjórn- un skapi mikið af gögnum, enda byggi hún á þeim og að tenging gæða og eiginleika séu mikilvæg. Einnig sé hægt að nota, og eigi að nota, upprunamerkingar í mark- aðslegum tilgangi. „Það er hægt að hagnast veru- lega á því að allir hlekkir í virð- iskeðjunni vinni saman og að upp- lýsingum sé miðlað upp og niður keðjuna. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á afkomu og getur verið erfitt að ná yfirsýn yfir þá alla. Því er nauðsynlegt að vera með greiningartæki og rekjanleiki gefur möguleika á slíku. Þegar maður hugsar um hag- nýtingu rekjanleika í íslenskum landbúnaði, þá er fyrsti hlekk- urinn hjá bændum. Bændur þurfa að hugsa um hversu langt þeir eru frá markaði og hvernig þeir eigi að nýta beitiland sitt. Búsetuform þarf að stjórnast af landkostum,“ segir Sveinn og bætir jafnframt við: „Í ljósi breyttra aðstæðna er mikilvægt sem aldrei fyrr að hugsa út fyrir rammann. Bændur verða t.a.m. að hugsa út í það hverju síð- asta kílóið af fóðurbæti skilar þeim og eins síðasti áburðarpokinn. Er hægt að minnka kostnað aðfanga og standa betur að vígi fyrir vikið? Er hægt að stunda virðisaukandi nýsköpun og nýta þá fjárfestingu, sem er til staðar, betur?“ „Í matvælavinnslu er nýting á aukahráefni oft úrslitaþáttur um það hvort fyrirtæki hagnist eða ekki. Aukahráefnið getur oft gefið góðar tekjur og þessi hugsun á ekki síst við í dag, á tímum þegar eru margar atvinnulausar hendur í landinu.“ Úr einstefnuiðju í margstefnuiðju Það er mikilvægt fyrir íslenska bændur að þekkja þarfir markaðar- ins vel og einnig að lágmarka sóun á sínum afurðum. Í framtíðinni gæti einnig orðið meiri keppni um hylli neytenda en í dag er, ef bregð- ast verður við aukinni erlendri samkeppni, að mati Sveins. „Það er því miður staðreynd að hér hafa stjórnvöld á undanförn- um árum farið langt fram úr sér í einstefnuiðju í staðinn fyrir að líta til dæmis á aðra möguleika til að nýta orku. Hvað með frostþurrkun eða þurrkun almennt á matvæl- um? Ræktun á byggi er gott dæmi þar sem innlend jörð og orka eru notuð. Tekjur af smáframleiðslu í sveitum eru í mörgum tilvikum jaðartekjur sem geta haft veruleg áhrif á afkomu og oft nýtast litlar einingar betur en menn eiga von á. Við þurfum að horfa meira til þess að skapa eitthvað nýtt,“ útskýrir Sveinn og segir jafnframt: „Markmið með hagnýtingu rekjanleika er sem fyrr sagði að auka virði og hagkvæmni. Við hjá Matís höfum ekki gert mikið af því enn að vinna með allri virð- iskeðju landbúnaðarafurða í einu, frá haga til maga, en það er svo sannarlega markmið okkar að gera það. Við höfum m.a. aukið sam- starf við bændur mikið á sl. miss- erum í tengslum við matarsmiðju okkar á Höfn í Hornafirði, en þar hafa bændur og aðrir smáframleið- endur möguleika á að stunda vöru- þróun í samstarfi við sérfræðinga Matís á staðnum. Við þekkjum hvaða möguleikar eru í dag til fjár- mögnunar á nýsköpunar- og þró- unarverkefnum en þetta er alltaf spurning um útfærslu og samstarf. Innan sjávarútvegsins er til sjóður sem hefur það hlutverk að auka virði sjávarfangs (AVS) og ég hef velt því fyrir mér hvort ekki þurfi að efla enn frekar nýsköpun innan landbúnaðarins með viðlíka hætti. Þetta þarfnast að sjálfsögðu frekari útfærslu en jafnvel væri hægt að setja hluta af þeim stuðningi sem landbúnaður fær frá stjórnvöldum til að efla nýsköpun. Ég er líka alveg sannfærður um að fólk innan sjávarútvegs og landbúnaðar eigi að geta starfað meira saman og miðlað þekkingu sín á milli. Það væri einmitt tækifæri nú, því það er meiri leitni í íslenskt en hefur verið, sennilega í sögu lýðveld- isins, og hugmyndir um samstöðu hafa sjaldan verið eins sterkar og nú.“ ehg Hagkvæmni og markaðsvirði höfð að leiðarljósi við rekjanleika matvara „Tekjur af smáframleiðslu í sveit- um eru í mörgum tilvikum jaðar- tekjur sem geta haft veruleg áhrif á afkomu og oft nýtast litlar ein- ingar betur en menn eiga von á,“ segir Sveinn Margeirsson, sviðs- stjóri virðiskeðjusviðs Matís ohf. Bráðlega mun Evrópuþingið taka fyrir reglugerð sem fjallar um merkingar matvæla. Verði hún samþykkt í óbreyttri mynd hefur það gríðarlega þýðingu fyrir smá- bændur og landbúnað á harðbýl- um svæðum um alla Evrópu, því með henni verður þeim gert kleift að upprunamerkja vörur sínar. Skúli Thoroddsen, framkvæmda- stjóri Starfsgreinasambandsins, situr í vinnuhóp norrænna verka- lýðssamtaka sem hafa mikil áhrif á smíði reglugerðarinnar. Starfsgreinasambandið er aðili í samtökunum Nordisk Union (NU) sem gætir hagsmuna verkafólks í matvælaiðnaði. Sú samvinna teng- ist einnig samstarfi sambands ins við EFFAT á vettvangi Evr ópu sam- starfsins en nafn þess gæti útlagst Samtök starfsfólks í matvælafram- leiðslu, landbúnaði og ferðaþjón- ustu. „Fyrir hönd Starfsgreina sam- bandsins sit ég innan EFFAT í vinnuhópi um löggjöf ESB um mat væli, þar sem við Íslendingar höf um gert okkur gildandi, ásamt Norðmönnum, Svíum og Austur- ríkismönnum. Þarna stillum við saman strengi okkar og erum öll með hagsmuni starfsfólks í mat- vælaiðnaði að leiðarljósi. Störfin skipta miklu máli og það er ekki sama hvað er framleitt eða hvern- ig. EFFAT eru umsagnaraðilar um mál sem snúa að landbúnaði og matvælaframleiðslu innan Evr- ópu sambandsins og hafa mikil áhrif. Það sem við sem að þessu komum getum gert er til dæmis að hafa áhrif á merkingar matvæla og við höfum nú þegar fengið á okkar band kristilega demókratann Renate Sommer, sem leggur málið fyrir Evrópuþingið,“ útskýrir Skúli. 400 milljóna markaður Um þessar mundir er Evrópusam- bandið að móta reglugerð um hvern ig best sé að haga málum varð andi merkingar matvæla en hing að til hafa ekki gilt neinar regl- ur innan sambandsins um uppruna- merkingar þar sem markaðurinn, sem telur 400 milljónir manna, á að vera ein stór heild. „Í gegnum matvælavinnuhóp- inn erum við á Norðurlöndunum að fá fram breytingar á frumvarpinu um merkingar matvæla um að það verði leyfilegt að upprunamerkja matvæli frá landi og héraði. Við viljum ekki hafa falskar upplýs- ingar sem bitna á okkar gæðafram- leiðslu. Sem dæmi höfum við fisk sem er sendur til Kína, þar er hann flakaður, steiktur, raspaður og pakk- aður og sendur aftur til baka. Er þetta kínversk afurð eða evrópsk? Hvaðan kemur fiskurinn eða mat- varan? Það eru á bilinu fimm til sex hundruð þúsund störf í húfi innan Evrópusambandsins í matvælafram- leiðslu, svo það er mikið hagsmuna- mál fyrir marga að rétt og vel sé að málum staðið,“ segir Skúli og bætir jafnframt við: „Frá okkar hendi snýst þetta um að vernda störfin, en undir Starfsgreinasambandinu eru um þrjú þúsund starfsmenn í störfum tengdum landbúnaði. Við sem stundum landbúnað á erf- iðum svæðum eigum mikið undir að þetta gangi í gegn, við að gera okkar vöru samkeppnishæfari og að gera eitthvað sérstakt úr henni. Þá er hægt að merkja vöruna eftir uppruna, til dæmis alpalandslagið á þær austurrísku og kraftmikinn, fal- legan foss á þær íslensku svo dæmi séu tekin. Okkar möguleiki byggist á gæðum, hreinlæti, fagþekkingu og því að vörur okkar eru umhverf- isvænar og vistvænar.“ Vandamál og sóknarfæri Eftir að reglugerðin hefur verið full unnin mun hún fara fyrir Evr- ópuþingið í mars og ákvæði hennar verða að líkindum samþykkt. „Ég vil leggja áherslu á það að ef við göngum í ESB þá felast í því tækifæri og jafnvel ný sóknarfæri en auðvitað eru einnig vandamál því samhliða. Sé dæmi tekið um vandamál, þá eru dönsk svín send í sláturhús í Þýskalandi; hvort eru það dönsk eða þýsk svín þegar upp er staðið? Þegar ég minnist á tækifærin gæti maður horft til frönsku smábændanna, sem fram- leiða gæðaosta í mikilli samkeppni við verksmiðjuframleiðsluna og eiga í baráttu við fjölþjóðafyrirtæk- in. Nú sjá þeir, með þessari nýju reglugerð, færi á því að geta mark- aðssett eitthvað sérstakt frá sínu svæði,“ útskýrir Skúli, sem segir vinnuhópinn hafa fleiri verkefni á sinni könnu sem lúti beint að land- búnaði og ber þar að nefna næring- argildi matvæla og hvað loftslags- breytingar muni hafa í för með sér fyrir landbúnað í Evrópu. ehg Skúli Thoroddsen, framkvæmda- stjóri Starfsgreinasambandsins, sit ur í vinnuhóp meðal norrænna samtaka sem hafa áhrif við smíði reglugerðar innan Evr ópu sam- bands ins um upprunamerkingar mat væla. Reglur um upprunamerkingar matvæla í burðarliðnum innan Evrópusambandsins Sjóræningjaprinsessan á Selfossi Leikfélag Selfoss frumsýndi nýlega nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Ár mann Guðmundsson, Sjóræningjaprinsessuna, sem hann leikstýrir sjálf ur. Alls taka 18 leikarar þátt í sýningunni, auk fjölda aðstoðarfólks. Einnig leikur fjögurra manna hljómsveit stórt hlutverk í sýningunni. Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún. Hér er um bráðskemmtilegt verk að ræða þar sem leikararnir fara á kostum, ekki síst ungu krakkarnir, sem eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu skömmu fyrir frumsýningu. MHH Tvær nýjar og glæsi- legar reiðhallir í Rangárvallasýslu Á laugardaginn voru tvær nýj ar reiðhallir vígðar í Rangár valla- sýslu, annars vegar Rangárhöllin á Gaddstaðaflötum við Hellu og hins vegar Skeiðvangur við Hvols völl. Á báðum stöðunum var boðið upp á metnaðarfulla dag skrá við allra hæfi þar sem hest ar og menn voru í sviðsljós- inu. Hallirnar voru m.a. byggðar fyrir fjármagn sem Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, tryggði en hann lagði alls 330 millj- ónir króna til byggingar reiðhalla víða um land. Í Rangárhöllinni var m.a. undirritaður samning- ur á milli Landssambands hesta- manna, Ungmennafélags Íslands og Hestamannafélagsins Geysis í Rangárvallasýslu um meistaradeild í hestaíþróttum á landsvísu fyrir börn og unglinga á aldrinum 12-21 árs. Um tímamótasamning er að ræða og þann fyrsta sinnar tegund- ar hér á landi. MHH Bergur Pálsson var einn af aðal- mönnunum við opnun Skeiðvangs, nýju reiðhall- arinnar við Hvolsvöll, en hann er stjórn- arformaður Skeiðvangs ehf., sem sá um byggingu hallarinnar. Mikil ánægja er með höllina á meðal hestamanna á Hvolsvelli og í nágrenni. Oddvitar sveitarfélaganna þriggja, sem eiga í Rangárhöllinni, klipptu á borða þegar höllin var vígð form- lega. Frá vinstri: Unnur Brá Kon- ráðs dóttir, sveitarstjóri Rangár- þings eystra, Eydís Indriða dóttir, odd viti Ásahrepps og Þorgils Torfi Jóns son, oddviti Rangárþings ytra.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.