Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 32
4. tölublað 2009  Fimmtudagur 26. febrúar Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út 12. mars Nýr Kyron á kr. 4.490.000,- Framsæknir svínabændur í Laxárdal Allt fóðurbygg íslenskt Bændablaðið sagði frá því í haust að stærsta sérútbúna korn sílóið til sveita væri risið við bæinn Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þegar blaðamaður var það á ferð þann 24. september var unnið hörðum höndum að því að koma sílóinu í gagnið. Nú er sílóið komið að fullu í gagnið og mun gegna lyk- ilhlutverki í framtíðaráformum þar á bæ því stefnan er sett á að allt bygg sem notað er til fóðrunar svína sé af íslenskum uppruna. Sjá þeir fram á að ná því takmarki í fyrsta skiptið nú í ár, að fóðra svínin samfellt í heilt ár á íslensku byggi. Kornsílóið og íslenska byggið Kornsílóið gnæfir yfir húsin í Lax- árdalnum enda 13 m að hæð og 9,3 m í þvermál. Það tekur um 400 tonn af byggi og afkastageta áfyll- ingarbúnaðarins er um 50-60 tonn á klukkustund. „Sílóið hefur virkað vel í alla staði. Fyrst og fremst er um gríðarlega vinnuhagræðingu að ræða fyrir okkur. Það tók okkur áður kannski hálfan dag að fylla á litlu sílóin okkar en nú tekur sama verk ekki nema um hálftíma. Þá hafa gæði kornsins haldist mun betur en áður og rakaskemmdir eru úr sög- unni,“ segir Björgvin Þór Harðarson spurður um hvernig sílóið hafi reynst frá því það var reist í haust. Hann segir að kornsílóið sé liður í ákveðinni stefnumótun sem unnið er eftir í Laxárdal. „Við höfum stefnt að því fóðra svínin á íslensku byggi. Með svo stórt síló gefur það okkur tækifæri á að taka á móti miklu magni, einmitt á þeim álags- tímum þegar þurrkstöðvarnar lenda í vandræðum með geymslupláss hjá sér. Tíðarfar hjá okkur Íslendingum gerir það að verkum að hlutirnir ger- ast mjög hratt á þreskingartímanum og við vildum vera í stakk búnir að geta tekið á móti því íslenska korni sem í boði er og við sjáum fram á að við þurfum að nota.“ Hann segir að með því að nota eingöngu bygg sem sé íslenskt að uppruna – og laust við alla eiturefna- notkun – þá sé verið að taka skref í þá átt að auðkenna svínarækt þeirra betur. „Við höfum meiri áhuga á því að sérkenna afurðir okkar og auka verðmæti þeirra en að auka fram- leiðsluna. Við viljum fara svipaðar leiðir og garðyrkjubændur hafa verið að fara með upprunamerkingar þar sem íslenska fánanum er flaggað og hefur gefist vel.“ Samstarf við Landgræðsluna og aukning í kornrækt Á síðasta ári ræktuðum við um einn þriðja af okkar byggþörf á um 50 ha landi. Á þessu ári stefnum við að því að auka það upp í 100 ha. Við munum því komast nálægt því að rækta um helming þess byggs sem við þurfum á þessu ári, sem er um 400-500 tonn. Ég er ekki viss um að við komumst neitt lengra með frekari stækkun.“ Bændurnir í Laxárdal hafa notið góðs af samstarfi við Landgræðsluna í Gunnarsholti, þar sem takmarkað landrými er til kornræktar við Stóru- Laxá í Gnúpverjahreppi. „Samstarfið hófst fyrir um 9 árum, en þá stóð Landgræðslan sjálf í kornrækt. Við byrjuðum þá að kaupa af þeim korn og svo þróuðust mál þannig að ekki fékkst lengur mannskapur til að sinna byggökrunum þannig að upp kom sú staða að okkur bauðst að taka við þeim. Núna leigjum við land hjá Landgræðslunni og ég held að þetta sé gott samstarf; við nytj- um landið og ræktum okkar eigið bygg en þeir fá leigutekjur og halda landinu í rækt. Á síðasta ári vorum við að taka upp tún sem höfðu ekki verið hreyfð í um 20 ár.“ Stærstu notendurnir á íslensku byggi Sem fyrr segir er stefnt að því í Laxárdal að allt bygg sem notað er í fóður verði íslenskt, allan ársins hring. Björgvin segir að í fyrsta skipt- ið í ár sé von til þess að þetta takist. En hversu hátt hlutfall er byggið í fóðurblöndunni. „Svínaræktendur eru með þetta aðeins breytilegt. Venjulegar blöndur innihalda m.a. soja, hveiti, maís og bygg – og sumir nota líka brauðmeti. Það er mis- munandi hver hlutföllin eru á milli bænda. Við höfum ákveðna sérstöðu þar sem við notum íslenska byggið í 50-80% hluta fóðurblöndunnar. Hveitihluti fóðursins er um 10-30% og til að auka orkuinnihald fóðurs- ins höfum við notað íslenska fitu sem unnin er af Kjötmjöli. Þannig er megin hugmynd okkar að framleiða eins íslenska vöru og við erum fær um að gera. Ég er alveg sannfærður um að Íslendingar eru að bíða eftir því að fá svínakjöt sem hægt er að auðkenna alveg sérstaklega sem íslenska framleiðslu.“ Pizzavagn og sala beint frá býli Árið 2003 komu upp talsverðir rekstr arerfiðleikar í svínaræktinni. Björg vin og kona hans Petrína hófu því að starfrækja Pizzavagninn – sem nú hefur öðlast öruggan sess í hugum íbúa í uppsveitum Árnessýslu. Björg vin segir að kona hans hafi fengið hugmyndina og hann hafi fljótlega ráðist í að smíða vagninn. Frá 2003 hefur Pizzavagninn farið um uppsveitir Árnessýslu og við- skiptavinirnir hafa getað gengið að honum á vísum stað á Laugarvatni, Árnesi, Borg, Flúðum, Brautarholti, Reykholti og Selfossi að auki. Björgvin segir að þau leggi sig fram um að hafa hráefnið sem ferskast. „Hluti af álegginu kemur beint frá býli; í þeim skilningi að við kaupum papriku, sveppi og tómata sem fer á pizzurnar frá garðyrkjubændum á Flúðum, en beikonið og hakkið kemur frá okkur. Reyndar er hakkið blandað við nautahakk og það kemur frá nágrönnum okkar í Þrándarholti og á Fossi. Þá er eingöngu notaður íslenskur ostur.“ En það eru ekki bara pizzur sem boðið er upp á í Pizzavagninum. Miðvikudaginn 18. febrúar sl. var farið af stað með nýjung í sölu þegar boðið var upp á unnið svínakjöt, beint frá Laxárdal, til sölu í vagninum á Selfossi. „Við höfum verið að selja á undanförnum árum heila og hálfa skrokka beint frá býli. Grísunum er slátrað hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi, skrokkarnir fara svo í vinnslu hjá Krás á Selfossi, eða við seljum þá óunna. Við höfum haft ákveðinn öruggan viðskiptavinahóp sem hefur leitað til okkar með kaup á kjöti og höfum við þá ýmist sent kjötið hvert á land sem er eða það hefur verið sótt. Þar sem þetta eru kannski ekki hagkvæmar eða aðlaðandi stærðareiningar fórum við að spá í að koma kjötinu í neyt- endavænni umbúðir og hvernig við gætum gert það aðgengilegra. Pizzavagninn var kjörinn til þess að koma þessu til viðskiptavinanna og nú er bara að sjá hvernig þessu verður tekið.“ Kjötsalan hafði lítið verið auglýst þegar Pizzavagninn kom á Selfoss, en þrátt fyrir það tókst að selja nokkra pakka sem eru um 10 kg hver – og telur Björgvin það vera prýðilegan árangur og gefi von um góðar viðtökur. Blaðamaður getur vitnað um vin- sældir Pizzavagnsins, gæðin á flat- bökunum og ferskleika hráefnisins. Hann hitti starfsfólk Pizzavagnsins á Laugarvatni eitt kalt febrúarkvöld- ið og þáði flatböku. Síminn stoppaði ekki á meðan blaðamaður staldraði við, enda margir soltnir menntskæl- ingar á heimavist Menntaskólans á Laugarvatni. Pizzavagninn er með eigin vef (www.pizzavagninn.is) þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um vöruúr- val og dagskrá Pizzavagnsins. Nýting á metangasi í Laxárdal Björgvin er framsýnn bóndi og hefur háleitar hugmyndir um hvernig nýta megi hinn orkumikla úrgang sem hleðst upp í Laxárdalnum dag hvern. „Já, mig dauðlangar til að fara út í svona metangasvinnslu. Við erum náttúrulega með þennan haug hérna; bæði frá kúabúi móðurbróður míns og frá svínunum og það er ansi freistandi að reyna að nýta sér þetta. Við byrjuðum að pæla í þessu ég og félagi minn, sem er efnaverkfræðing- ur, fyrir nýsköpunarverkefni IMPRU á Norðausturlandi á síðasta ári. Þar þróuðum við útlínur að verkefni við vinnslu á metangasi en stoppuðum eiginlega á nýtingarmöguleikunum. Á Íslandi er markaður með metan það óþróaður að jafnvel þó að það tækist að vinna metan í nokkrum mæli þá væri erfitt að selja það. Bæði er lítið framboð af vélum og bifreiðum á Íslandi, sem nota metan, til kaupa fyrir neytendur og eins eru dælustöðvar fáar. Ég sé ekki annað en að Ísland þurfi eins og aðrar þjóð- ir að fara í endurskoðun á sínum eldsneytismálum. Nágrannalönd okkar eins og Svíþjóð, Danmörk og Þýskaland eru langt komin á þessu sviði. Við þurfum á láta reyna á hvaða möguleikar eru til staðar hér á landi til hægkvæmrar nýtingar á metani. Fyrir liggur að rafmagnsframleiðsla með metani er tæknilega tiltölulega auðveld en orkan yrði varla sam- keppnisfær. Ég hefði því viljað skoða betur hagnýtingu á metani hér á búinu sjálfu og þá helst í sambandi við kornræktina. Einfaldasta og hag- kvæmasta nýtingin á metangasi hjá okkur væri líklega sú að þurrka korn. Ég sé t.d. alveg fyrir mér í nánustu framtíð að við getum farið að brenna gasið og nýtt það þannig til að knýja þurrkstöð fyrir korn- ið. Svínaskíturinn er talinn vera jafnvel hentugri í slíka vinnslu en kúamykjan og áburðurinn verður jafnvel betri þegar metanið er farið úr honum. Framtíðarsýnin væri svo jafnvel að gera býlið sjálfbært um orkunotkun, þannig að vélar og bílar þess gengju algjörlega fyrir því metani sem yrði þar til.“ -smh Síminn stoppaði ekki á meðan blaðamaður staldraði við. Björgvin Þór Harðarson svínabóndi í Laxárdal. myndir | smh

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.