Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 18
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS  26. FEBRÚAR 200918 Nautgriparækt Einn af eiginleikum NorFor er að finna næringar- og orkugildi heildar fóðurskammtsins, ekki einungis einstakra fóðurtegunda. Orku og próteineiginleikar (AAT og PBV) fóðursins eru ekki fastar stærðir, heldur þarf að taka tillit til mikilvægra samspilsáhrifa. Magn og samsetning fóður- skammtsins, þ.e. hlutfall gróffóð- urs og kjarnfóðurs, skiptir máli þegar finna á heildar næringar- og framleiðslulegt gildi fóðursins. Þar sem við getum ekki vitað næringarlegt og framleiðslulegt gildi fóðursins fyrr en við erum búin að setja saman þær fóðurteg- undir sem við ætlum að nota kallar NorFor á mikla og flókna útreikn- inga. Það er ekki mögulegt að reikna út næringargildi fóðursins eða áætla fóðurát með hugarreikn- ingi eða einfaldri vasareiknivél. En til þess að geta gert fóðuráætl- un hratt og örugglega hafa aðild- arlönd NorFor (Noregur, Svíþjóð og Danmörk) þróað hugbúnað sem vinnur á Internetinu. Þessi hug- búnaður hefur bæði samnorrænan hluta og hluta sem vinnur í hverju landi fyrir sig. Samnorræni hlut- inn samanstendur af fóðurtöflum, útreikningum fóðuráætlana og samskiptapakka við rannsókna- stofur sem senda inn niðurstöður efnagreininga. Hugbúnaður hvers lands notar svo upplýsingar í sínu landi frá skýrsluhaldi og upplýsing- ar sem liggja á samnorræna svæð- inu til þess að vinna áætlanir. Þá opnar notandi hugbúnaðinn í sinni tölvu, tengist kerfinu og sækir þar með upplýsingar inn í skýrsluhald- ið um búið. Því næst tengist hann fóðurtöflunum, sem geyma upplýs- ingar um fóðrið sem var efnagreint frá búinu, staðlaðar fóðurtegundir og upplýsingar um kjarnfóður sem er til sölu. Þá getur forritið reiknað fóðuráætlun byggða á öllum þess- um upplýsingum. Kosturinn við að láta hugbún- aðinn vera nettengdan er að þá hafa allir aðgang að sömu reikniaðferð- um og nýjar uppfærslur ná til allra notenda á sama tíma. Ísland kemur til með að nota norska hugbúnaðinn Tine Optifôr. Þar er hægt að vinna fóðuráætlanir á mismunandi hátt: 1. Fóðrun eftir raunverulegri nyt. 2. Fóðrun eftir meðal mjaltakúrf- um. 3. Heilfóður þar sem öllu er bland- að saman eða þar sem kjarnfóð- ur er gefið sérstaklega, að hluta eða að öllu leyti. 9.1 Gerð fóðuráætlana Við gerð fóðuráætlana finnum við út samsetningu fóðurs sem upp- fyllir næringarþörf dýrsins. Þegar við vinnum fóðuráætlanir viljum við taka tillit til fleiri en eins þátt- ar í einu. Til þess að það sé hægt þurfum við að notast við sjálfvirka útreikninga á samsetningu. Það þýðir að hugbúnaðurinn reiknar út og finnur samsetningu sem pass- ar við þær kröfur sem við höfum sett fram. Við getum t.d. sett fram kröfur um orku, AAT og PBV. Auk þess að vilja næringarfræðilega góða fóðursamsetningu viljum við einnig fá hagkvæma samsetningu. Það þýðir að við viljum fóðursam- setningu sem uppfyllir þau skilyrði sem við höfum sett en kostar sem minnst. NorFor finnur hagkvæm- ustu lausnina og í töflu 1 er hægt að sjá þá næringarfræðilegu þætti sem við viljum gera kröfu til við áætl- anagerð. Til þess að geta tekið tillit til margra þátta þurfum við að setja lágmarks og hámarks gildi fyrir þá fóðursamsetningu sem við ætlum að fá. Það þýðir að áætlunin sem við fáum út úr kerfinu liggur innan þessara gilda. Í töflu 1 sjáum við að orkujafnvægið skal liggja á bilinu 99,5 og 100,5 % og AAT-jafnvægið á milli 97 og 103%. Orkujafnvægi upp á 100% þýðir að orkan sem fæst úr fóðrinu er jafn mikil og orkuþörfin. Fóðurátið reiknast út frá fylligildi fóðursins og getur ekki farið yfir mögulegt át kýr- innar. Það er þess vegna sett sem hámarksgildi. Við áætlanagerð- ina er líka sett krafa um PBV og við 20 kg mjólkurframleiðslu skal það ekki vera undir 15 g/kg þe. Innihald fitusýra í fóðursamsetn- ingunni skal ekki vera hærra en 45 g/kg þe. vegna þess að of hátt fitu- sýruinnihald hefur neikvæð áhrif á meltanleika NDF í vömb, einnig getur of mikil fita í fóðri haft nei- kvæð áhrif á át. Í NorFor er einn- ig til hugtakið vambarjafnvægi. Það segir til um hlutfallið á milli auðleysanlegra kolvetna (sykurs og sterkju) og NDF (trénis). Til þess að koma í veg fyrir að vambarum- hverfið verði of súrt, sem veldur lægri meltingu á NDF, er sett krafa um að þetta hlutfall fari ekki yfir 0,6. Auk þessara krafna sem við setjum í útreikningunum finnur NorFor út fleiri viðmið. Áætlanagerð felur í sér að hug- búnaðurinn reynir að finna hag- kvæmustu fóðursamsetninguna (innan skilgreindra gilda) með því að prufa sig áfram með samsetn- ingar. Dæmi um svona útreikn- inga eru í töflu 2, þar sem unnið er með gróffóður og tvær mismun- andi kjarnfóðurblöndur. Áætlunin er gerð fyrir eina kýr sem mjólkar 30 kg OLM, er 600 kg og er komin 100 daga frá burði. Í fyrstu tilraun uppfyllir bland- an aðeins kröfuna um fitusýrur, en liggur rétt fyrir ofan mögulegt át og fyrir neðan í orku, AAT og PBV. Þar sem þetta inniheldur hæsta hlutfall gróffóðurs er þetta ódýrasta leiðin. En þar sem þessi lausn er ekki sú besta heldur hugbúnaðurinn áfram. Í fimmtu tilraun er fylligild- ið orðið rétt og þar með hámarks mögulegt át, en orku og AAT-gildin eru hærri en það sem við miðum við. Þessi leið er einnig dýrust. Í níundu tilraun eru bæði fylligildið og orkujafnvægið til friðs, en þar sem þarna er einungis notast við kjarnfóðurblöndu A verða AAT og PBV undir lágmarki. Þegar þetta gerist reynir forritið að taka inn kjarnfóðurblöndu sem hefur hærra AAT og lausnin við því kemur fram í tilraun 13. Þá eru AAT, PBV og fylligildið á réttu róli en orkujafn- vægið er aðeins of hátt. Í tilraun 15 eru allar kröfur uppfylltar og kostnaðurinn er 28,58 no.kr. En við viljum hagkvæmustu lausnina og í tilraun 16 hefur forritið fundið þá lausn sem bæði liggur allsstaðar innan skilgreindra marka og er eins ódýr og mögulegt er. Hversu lang- an tíma þetta tekur og hversu oft þarf að reikna fer eftir því hversu margar gerðir af fóðri á að nota og hversu ströng við erum á kröfunum. Í þessu dæmi prufar hugbúnaðurinn 16 sinnum, það tekur u.þ.b. 0,6 sek- úndur og við fáum einungis síðustu útgáfuna upp á skjáinn hjá okkur. En hvað gerist þegar við höfum eitthvert tiltekið gróffóður í hönd- unum og eina kjarnfóðurblöndu, sem við höfum nú þegar keypt? Þá verðum við kannski að losa aðeins um kröfurnar sem við miðum ann- ars við til þess að fá lausn sem hægt er að nota. Eins og í tilraun 9 í dæminu í töflu 2, þar sem aðeins önnur kjarnfóðurblandan er notuð. Samsetningin getur hins vegar ekki orðið við kröfum um AAT og PBV og því getur verið nauðsynlegt að lækka þær kröfur sem við setjum um AAT og PBV og prufa aftur, vit- andi að það sé ekki besta mögulega lausnin næringarlega séð. Ef við setjum AAT-lágmarkið í 96% og PBV í 0 g/kg þe. getum við fundið kostnaðarlega hagkvæmustu lausn- ina innan þessara nýju krafna. Þetta gefur gróffóðurát uppá 11,1 kg þe. og kjarnfóðurþörfin verður 10,2 kg. Ef við berum það saman við útkom- una í tilraun 16 þurfum við að sætta okkur við meiri kjarnfóðurnotkun og þar af leiðandi hærri kostnað, eða 29,25 no.kr. á móti 28,47 no.kr. í tilraun 16, þar sem við notuðum tvær gerðir af kjarnfóðri. Það er hægt að vinna áætlanir með fleiri en eina gerð af gróffóðri og láta for- ritið velja þá kjarnfóðurtegund sem passar best, einnig er hægt að setja inn í kerfið bygg og grænfóður sem nota á við fóðrunina. Tafla 2 sýnir okkur hvernig þetta fer fram fyrir eina kýr. Tine Optifôr getur hins- vegar unnið áætlanir fyrir margar kýr í einu. Þannig getum við unnið áætlun hratt og vel. Þetta getum við einnig notað til þess að skoða ýmsar samsetningar gróffóðurs og kjarn- fóðurs. Að vinna fóðuráætlanir með Tine Optifôr er ný aðferð til fóður- áætlana og krefst þess að þeir sem ætla að vinna áætlun læri á hugbún- aðinn. Núna fer fram undirbúnings- vinna á Íslandi þar sem ráðunautar prufa sig áfram með hugbúnaðinn við íslenskar aðstæður. Í framtíð- inni getum við boðið bændum upp á námskeið þar sem þeir geta lært að vinna sínar fóðuráætlanir með aðstoð hugbúnaðarins. BÓÓ Fóðuráætlanagerð með NorFor plan Tafla 1 Lágmarks og hámarks gildi fyrir þá þætti sem tekið er tillit til við áætlanagerð. Þáttur/breyta Lágmarks gildi Hámarks gildi Fylligildi fóðurs Mögulegt át x 0,97 Mögulegt át Orkujafnvægi, %* 99,5 100,5 AAT-jafnvægi, % 97 103 AAT/NOM, g/MJ 15 PBV, g/kg þe. 15** 40 Tyggitími, min/kg þe 32 Vambarjafnvægi 0,6 Fitusýrur, g/kg þe. 25*** 45 Dæmi um fleiri breytur sem mögulegt er að bæta við * Fóðrun sem mætir orkukröfum til mjólkurframleiðslu, vaxtar og fósturþroska ** lágmarks gildi fyrir PBV, miðað við nyt 15 g/kg þe við 20 kg mjólkur *** lágmarks gildi fyrir fitusýrur, miðað við nyt 25 g/kg þe við 20 kg mjólkur Gróffóður át, kg þe/dag Kjarnfóður kg þe/dag Kjarnfóður prósenta NDF, g/kg þe Sterkja, g/kg þe Hráprótein, g/kg þe NOM, MJ/dag AAT, g/dag PBV, g/dag Kalsíum, g/kg þe Magnesíum, g/kg þe Áætlun nr Gróffóður kg/þe. Kjarnfóður A kg Kjarnfóður B kg Fylligildi (7,1-7,3) Orkujafnvægi (99,5-100,5) AAT-jafnvægi (97-103) PBV (15-) Fitusýrur (25-45) Kostnaður NKR 1 13,8 2,2 3,4 7,5 93,3 93,4 13 31 21,55 5 10,0 4,5 8,0 7,3 108 104 15 38 35,29 9 11,1 10,2 0 7,2 100 96 0 35 29,25 13 11,5 2,8 6,8 7,3 102 101 16 36 29,68 15 11,7 2,6 6,5 7,3 100 99,4 16 35 28,58 16 11,8 2,8 6,2 7,3 100 99,5 15 35 28,47 Tafla 2. Dæmi um áætlangerð með eina gerð af gróffóðri og tvær kjarnfóðurblöndur. Nyt: 30 kg OLM. Tölunar í sviganum er lágmarks og hámarks gildi. Í lok síðasta árs var ákveðið að verja hluta af óframleiðslutengdum og minna markaðstrufl- andi stuðningi við mjólkurframleiðslu til eflingar skýrsluhaldsins og ræktunarstarfsins og voru í framhaldi kynntar til sögunnar reglur um gæða- stýringu í nautgriparækt. Reglurnar tóku gildi um síðastliðin áramót og gilda um framleiðsluár- ið 2008/2009. Helsta markmið með gæðastýringu í nautgriparækt er að efla skýrsluhaldið og þar með alla gagnasöfnun sem liggur til grundvallar sameiginlegu ræktunarstarfi. Afurðamat gripa byggist á mjólkurmagni og pró- teininnihaldi mjólkur og stendur afurðamat ásamt frumutölumælingum bak við 52% af heildarkynbóta- einkunn gripa. Athugun á sýnatöku árið 2007 leiddi í ljós að ekki höfðu verið tekin nein kýrsýni úr um 30% af öllum kúm sem verið höfðu á skýrslu það ár og talsverður hluti kúnna sem einhverjar mælingar höfðu verið gerðar á voru aðeins með 1-2 sýni, sem ekki getur talist marktækt til mats á efnahlutföllum mjólkur eða frumutölu. Jafnframt hefur verið við- tekin venja að um 25% af búum í skýrsluhaldi skili mjólkurskýrslum seinna en mánuði eftir mæling- armánuð, sem verður að teljast óviðunandi. Það er því eðlilegt að þær reglur sem gilda yfir- standandi verðlagsár miði fyrst og fremst að því að bæta skýrsluskil og efla kýrsýnatöku en jafnframt hefur verið reynt að gera ráð fyrir því að þetta fyrsta verðlagsár geti nýst til aðlögunar fyrir þá sem ekki hafa tekið fullan þátt í skýrsluhaldinu fram til þessa. Samkvæmt reglugerð nr. 670/2008 um greiðslu- mark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2008-2009 eru til ráðstöfunar á þessu verðlagsári 25 milljónir króna. Ákveðið var að greiða 20% flatt á þá skýrsluhaldara sem stand ast kröfur um gæðastýringu en 80% upphæðarinnar greiðist út miðað við árskúafjölda búsins. Gert verður upp þrisv- ar á ári út frá desember-, apríl- og ágústuppgjörum. Þar sem reglur um gæðastýringu voru ekki til- kynntar fyrr en í lok síðasta árs voru einungis sett þau skilyrði fyrir hlutdeild í fyrstu greiðslu, að við- komandi bú hefði skilað skýrslum ársins 2008 fyrir 21. janúar 2009. Skilyrði fyrir næstu seinni greiðsl- unum tveimur eru þau að skila þarf skýrslum inn til uppgjörs (inn í HUPPU) fyrir 11. næsta mánaðar eftir skýrslutöku og taka eitt kýrsýni á hvorum af fyrri ársfjórðungum ársins 2009. 599 bú náðu inn í fyrsta hluta gæðastýringar og voru þar af 17 bú sem skráðu sig ný í skýrsluhaldið og er ánægjulegt að fá þessa viðbót í hóp skýrsluhaldara. Þeir bændur sem taka virkan þátt í skýrsluhaldinu veita okkur ómetanlegar upplýsingar í ræktunarstarf- inu og viljum við sýna að við metum framlag þeirra mikils. Mikilvægt skref hefur nú verið tekið í þá átt. Einnig vonumst við til að tilkoma gæðastýring- ar í nautgriparækt muni hvetja fleiri til dáða svo að virkum þátttakendum í sameiginlegu ræktunarstarfi fjölgi. Með því aukum við möguleika okkar á að ná betri árangri í ræktun á íslensku mjólkurkúnni. GEH Gæðastýring í nautgriparækt Í öllu okkar sameiginlega ræktun- arstarfi eru réttar ætternisfærslur mikilvægar, ekki síst hvað varð- ar sameiginlega ræktunargripi, en það eru gripir sem hafa oft á tíðum umtalsverð áhrif á stofn- inn í heild sinni. Erfðatækni hefur fleygt fram síðastliðinn áratug og hafa staðfestingar á ætterni, með aðstoð DNA-greiningar, rutt sér til rúms og eru víða orðnar við- tekin venja. Má geta þess að slíkt hefur verið stundað í hrossarækt hér á landi um árabil. Það er mik- ilvægt að 100% vissa sé um ætt- erni þeirra gripa sem valdir eru sem sameiginlegir ræktunargripir og að öll vinna í kringum hið sam- eiginlega ræktunarstarf sé fag- mannleg og framsækin. Í bígerð er samningur milli Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands og Matís, sem felur í sér að Matís taki að sér ætternisprófanir á íslenskum nautgripum, en Matís annast nú þegar ætternisprófanir á hrossum og arfgerðagreiningu á næmi fyrir riðusmiti í sauðfé. Prófuð verða 11 sæti með þekktum örtunglum sem hefur sýnt sig að gefa greinargóðar niðurstöður um íslenskar kýr. Verður nú tekin upp sú stefna að allir nautkálfar, sem teknir verða inn á nýja nautastöð, verði ættern- isprófaðir m.t.t. til faðernis kálfs- ins og nautsmóðurinnar. Jafnframt verður unnið að því að byggja upp gagnabanka sem byggir á þeim lífs- ýnum sem til eru, úr þeim nautum sem tekin hafa verið til notkunar á nautastöð BÍ. Slíkur gagnabanki opnar mikla möguleika á því að hægt sé að skera úr um ætterni óættfærðra gripa eða þeirra sem vafi leikur á um faðerni. GEH/MBJ Ætternisgreiningar á nautum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.