Bændablaðið - 26.02.2009, Side 32
4. tölublað 2009 Fimmtudagur 26. febrúar
Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út
12. mars
Nýr Kyron á kr. 4.490.000,-
Framsæknir svínabændur í Laxárdal
Allt fóðurbygg íslenskt
Bændablaðið sagði frá því í haust
að stærsta sérútbúna korn sílóið til
sveita væri risið við bæinn Laxárdal
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Þegar blaðamaður var það á ferð
þann 24. september var unnið
hörðum höndum að því að koma
sílóinu í gagnið. Nú er sílóið komið
að fullu í gagnið og mun gegna lyk-
ilhlutverki í framtíðaráformum
þar á bæ því stefnan er sett á að
allt bygg sem notað er til fóðrunar
svína sé af íslenskum uppruna. Sjá
þeir fram á að ná því takmarki
í fyrsta skiptið nú í ár, að fóðra
svínin samfellt í heilt ár á íslensku
byggi.
Kornsílóið og íslenska byggið
Kornsílóið gnæfir yfir húsin í Lax-
árdalnum enda 13 m að hæð og
9,3 m í þvermál. Það tekur um 400
tonn af byggi og afkastageta áfyll-
ingarbúnaðarins er um 50-60 tonn
á klukkustund. „Sílóið hefur virkað
vel í alla staði. Fyrst og fremst er
um gríðarlega vinnuhagræðingu að
ræða fyrir okkur. Það tók okkur áður
kannski hálfan dag að fylla á litlu
sílóin okkar en nú tekur sama verk
ekki nema um hálftíma. Þá hafa
gæði kornsins haldist mun betur en
áður og rakaskemmdir eru úr sög-
unni,“ segir Björgvin Þór Harðarson
spurður um hvernig sílóið hafi reynst
frá því það var reist í haust.
Hann segir að kornsílóið sé liður
í ákveðinni stefnumótun sem unnið
er eftir í Laxárdal. „Við höfum
stefnt að því fóðra svínin á íslensku
byggi. Með svo stórt síló gefur það
okkur tækifæri á að taka á móti
miklu magni, einmitt á þeim álags-
tímum þegar þurrkstöðvarnar lenda
í vandræðum með geymslupláss hjá
sér. Tíðarfar hjá okkur Íslendingum
gerir það að verkum að hlutirnir ger-
ast mjög hratt á þreskingartímanum
og við vildum vera í stakk búnir að
geta tekið á móti því íslenska korni
sem í boði er og við sjáum fram á að
við þurfum að nota.“
Hann segir að með því að nota
eingöngu bygg sem sé íslenskt að
uppruna – og laust við alla eiturefna-
notkun – þá sé verið að taka skref í
þá átt að auðkenna svínarækt þeirra
betur. „Við höfum meiri áhuga á því
að sérkenna afurðir okkar og auka
verðmæti þeirra en að auka fram-
leiðsluna. Við viljum fara svipaðar
leiðir og garðyrkjubændur hafa
verið að fara með upprunamerkingar
þar sem íslenska fánanum er flaggað
og hefur gefist vel.“
Samstarf við Landgræðsluna og
aukning í kornrækt
Á síðasta ári ræktuðum við um einn
þriðja af okkar byggþörf á um 50 ha
landi. Á þessu ári stefnum við að því
að auka það upp í 100 ha. Við munum
því komast nálægt því að rækta um
helming þess byggs sem við þurfum
á þessu ári, sem er um 400-500 tonn.
Ég er ekki viss um að við komumst
neitt lengra með frekari stækkun.“
Bændurnir í Laxárdal hafa notið
góðs af samstarfi við Landgræðsluna
í Gunnarsholti, þar sem takmarkað
landrými er til kornræktar við Stóru-
Laxá í Gnúpverjahreppi. „Samstarfið
hófst fyrir um 9 árum, en þá stóð
Landgræðslan sjálf í kornrækt.
Við byrjuðum þá að kaupa af þeim
korn og svo þróuðust mál þannig að
ekki fékkst lengur mannskapur til
að sinna byggökrunum þannig að
upp kom sú staða að okkur bauðst
að taka við þeim. Núna leigjum við
land hjá Landgræðslunni og ég held
að þetta sé gott samstarf; við nytj-
um landið og ræktum okkar eigið
bygg en þeir fá leigutekjur og halda
landinu í rækt. Á síðasta ári vorum
við að taka upp tún sem höfðu ekki
verið hreyfð í um 20 ár.“
Stærstu notendurnir
á íslensku byggi
Sem fyrr segir er stefnt að því í
Laxárdal að allt bygg sem notað er
í fóður verði íslenskt, allan ársins
hring. Björgvin segir að í fyrsta skipt-
ið í ár sé von til þess að þetta takist.
En hversu hátt hlutfall er byggið í
fóðurblöndunni. „Svínaræktendur
eru með þetta aðeins breytilegt.
Venjulegar blöndur innihalda m.a.
soja, hveiti, maís og bygg – og sumir
nota líka brauðmeti. Það er mis-
munandi hver hlutföllin eru á milli
bænda. Við höfum ákveðna sérstöðu
þar sem við notum íslenska byggið
í 50-80% hluta fóðurblöndunnar.
Hveitihluti fóðursins er um 10-30%
og til að auka orkuinnihald fóðurs-
ins höfum við notað íslenska fitu
sem unnin er af Kjötmjöli. Þannig er
megin hugmynd okkar að framleiða
eins íslenska vöru og við erum fær
um að gera. Ég er alveg sannfærður
um að Íslendingar eru að bíða eftir
því að fá svínakjöt sem hægt er að
auðkenna alveg sérstaklega sem
íslenska framleiðslu.“
Pizzavagn og sala beint frá býli
Árið 2003 komu upp talsverðir
rekstr arerfiðleikar í svínaræktinni.
Björg vin og kona hans Petrína hófu
því að starfrækja Pizzavagninn – sem
nú hefur öðlast öruggan sess í hugum
íbúa í uppsveitum Árnessýslu.
Björg vin segir að kona hans hafi
fengið hugmyndina og hann hafi
fljótlega ráðist í að smíða vagninn.
Frá 2003 hefur Pizzavagninn farið
um uppsveitir Árnessýslu og við-
skiptavinirnir hafa getað gengið að
honum á vísum stað á Laugarvatni,
Árnesi, Borg, Flúðum, Brautarholti,
Reykholti og Selfossi að auki.
Björgvin segir að þau leggi sig fram
um að hafa hráefnið sem ferskast.
„Hluti af álegginu kemur beint frá
býli; í þeim skilningi að við kaupum
papriku, sveppi og tómata sem fer
á pizzurnar frá garðyrkjubændum
á Flúðum, en beikonið og hakkið
kemur frá okkur. Reyndar er hakkið
blandað við nautahakk og það kemur
frá nágrönnum okkar í Þrándarholti
og á Fossi. Þá er eingöngu notaður
íslenskur ostur.“
En það eru ekki bara pizzur sem
boðið er upp á í Pizzavagninum.
Miðvikudaginn 18. febrúar sl. var
farið af stað með nýjung í sölu þegar
boðið var upp á unnið svínakjöt, beint
frá Laxárdal, til sölu í vagninum á
Selfossi. „Við höfum verið að selja
á undanförnum árum heila og hálfa
skrokka beint frá býli. Grísunum er
slátrað hjá Sláturfélagi Suðurlands
á Selfossi, skrokkarnir fara svo í
vinnslu hjá Krás á Selfossi, eða við
seljum þá óunna. Við höfum haft
ákveðinn öruggan viðskiptavinahóp
sem hefur leitað til okkar með
kaup á kjöti og höfum við þá ýmist
sent kjötið hvert á land sem er eða
það hefur verið sótt. Þar sem þetta
eru kannski ekki hagkvæmar eða
aðlaðandi stærðareiningar fórum
við að spá í að koma kjötinu í neyt-
endavænni umbúðir og hvernig
við gætum gert það aðgengilegra.
Pizzavagninn var kjörinn til þess
að koma þessu til viðskiptavinanna
og nú er bara að sjá hvernig þessu
verður tekið.“ Kjötsalan hafði lítið
verið auglýst þegar Pizzavagninn
kom á Selfoss, en þrátt fyrir það
tókst að selja nokkra pakka sem eru
um 10 kg hver – og telur Björgvin
það vera prýðilegan árangur og gefi
von um góðar viðtökur.
Blaðamaður getur vitnað um vin-
sældir Pizzavagnsins, gæðin á flat-
bökunum og ferskleika hráefnisins.
Hann hitti starfsfólk Pizzavagnsins
á Laugarvatni eitt kalt febrúarkvöld-
ið og þáði flatböku. Síminn stoppaði
ekki á meðan blaðamaður staldraði
við, enda margir soltnir menntskæl-
ingar á heimavist Menntaskólans á
Laugarvatni.
Pizzavagninn er með eigin vef
(www.pizzavagninn.is) þar sem hægt
er að nálgast upplýsingar um vöruúr-
val og dagskrá Pizzavagnsins.
Nýting á metangasi í Laxárdal
Björgvin er framsýnn bóndi og hefur
háleitar hugmyndir um hvernig
nýta megi hinn orkumikla úrgang
sem hleðst upp í Laxárdalnum dag
hvern. „Já, mig dauðlangar til að
fara út í svona metangasvinnslu. Við
erum náttúrulega með þennan haug
hérna; bæði frá kúabúi móðurbróður
míns og frá svínunum og það er ansi
freistandi að reyna að nýta sér þetta.
Við byrjuðum að pæla í þessu ég og
félagi minn, sem er efnaverkfræðing-
ur, fyrir nýsköpunarverkefni IMPRU
á Norðausturlandi á síðasta ári. Þar
þróuðum við útlínur að verkefni við
vinnslu á metangasi en stoppuðum
eiginlega á nýtingarmöguleikunum.
Á Íslandi er markaður með metan
það óþróaður að jafnvel þó að það
tækist að vinna metan í nokkrum
mæli þá væri erfitt að selja það.
Bæði er lítið framboð af vélum og
bifreiðum á Íslandi, sem nota metan,
til kaupa fyrir neytendur og eins eru
dælustöðvar fáar. Ég sé ekki annað
en að Ísland þurfi eins og aðrar þjóð-
ir að fara í endurskoðun á sínum
eldsneytismálum. Nágrannalönd
okkar eins og Svíþjóð, Danmörk og
Þýskaland eru langt komin á þessu
sviði.
Við þurfum á láta reyna á hvaða
möguleikar eru til staðar hér á landi
til hægkvæmrar nýtingar á metani.
Fyrir liggur að rafmagnsframleiðsla
með metani er tæknilega tiltölulega
auðveld en orkan yrði varla sam-
keppnisfær.
Ég hefði því viljað skoða betur
hagnýtingu á metani hér á búinu
sjálfu og þá helst í sambandi við
kornræktina. Einfaldasta og hag-
kvæmasta nýtingin á metangasi
hjá okkur væri líklega sú að þurrka
korn. Ég sé t.d. alveg fyrir mér í
nánustu framtíð að við getum farið
að brenna gasið og nýtt það þannig
til að knýja þurrkstöð fyrir korn-
ið. Svínaskíturinn er talinn vera
jafnvel hentugri í slíka vinnslu en
kúamykjan og áburðurinn verður
jafnvel betri þegar metanið er farið
úr honum. Framtíðarsýnin væri svo
jafnvel að gera býlið sjálfbært um
orkunotkun, þannig að vélar og
bílar þess gengju algjörlega fyrir
því metani sem yrði þar til.“
-smh
Síminn stoppaði ekki á meðan blaðamaður staldraði við.
Björgvin Þór Harðarson svínabóndi í Laxárdal. myndir | smh