Bændablaðið - 26.02.2009, Side 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 26. febrúar 2009
Á markaði
Í liðinni viku kynntu flestir
áburðarinnflytjendur verðlista
sína. Verð á helstu tegundum
túnáburðar hækkar á bilinu
10-35% milli ára, miðað við bestu
kjör. Sé miðað við 30% hækkun
frá fyrra ári hækka útgjöld verð-
lagsgrundvallarbús í mjólk um
hálfa milljón kr. eða 2,65 kr./lítra.
Fyrir verðlagsgrundvallarbú
sauðfjárafurða nemur hækkunin
um 250.000 kr. eða um 35 kr. á kg
kjöts. Miðað við að meðalhækk-
un til bænda nemi 30% á þessu
ári hefur áburðarkostnaður auk-
ist um 130% á tveimur árum á
sauðfjár- og kúabúum. Sé litið á
kartöflubú þá var meðal áburð-
ar- og efniskostnaður samkvæmt
ársreikningum þeirra árið 2006,
1,2 millj. kr. Gróflega áætlað
þýða hækkanir sl. þriggja ára að
áburðarkostnaður meðal kart-
öflubús í ár verði um 3 milljónir
króna.
Í ljósi verðbreytinga á áburði
til bænda hér á landi er fróðlegt að
skoða þróun áburðarverðs í Noregi.
Hæst varð verðið í október sl. haust,
um það leyti sem hráefnaverð á
heimsmarkaði náði hámarki. Verð
hefur nú lækkað á ný en lætur engu
að síður nærri að vera 100% en í
febrúar 2007. Hér á landi er hækk-
unin 120-130% sem er athyglisvert
í ljósi þess að á sama tíma hefur
íslenska krónan veikst um 50%
gagnvart þeirri norsku.
Önnur aðföng
Á undanförnum mánuðum hefur
kjarnfóðurverð á heimsmarkaði
farið lækkandi. Hæst fór kjarnfóð-
urverð hér á landi í október sl. en
hefur nú lækkað aftur í kjölfar
styrkingar krónunnar og lækkandi
heimsmarkaðsverðs. Í meðfylgj-
andi töflu er áætlað sama verð á
kjarnfóðri og í verðlagsgrundvelli
kúabús í september sl. Kornverð
á heimsmarkaði virðist hafa náð
lágmarki sínu og fer nú hækkandi
á ný. Gengisþróun krónunnar mun
því ráða miklu um þróun kjarnfóð-
urverðs á komandi vikum.
Verð á díselolíu hefur farið
lækkandi og reiknað er með sömu
lækkun og vísitala neysluverðs
sýnir frá september 2008 til janúar
2009. Ekki er að sinni lagt mat á
verðbreytingar á rúlluplasti en aðrir
kostnaðarliðir eru hækkaðir sam-
kvæmt vísitölu neysluverðs til að
endurspegla áhrif almennra verð-
lagsbreytinga.
Áburðarblanda.
Efnainnihald (hrein efni)
Febrúar
2007
Janúar
2008
Október
2008
Febrúar
2009
N-P-K NOK/tonn NOK/tonn NOK/tonn NOK/tonn
18-3-15 2.430 2.730 5.100 4.910
22-2-12 2.375 2.625 4.975 4.790
Kalksaltpétur 1.700 1.870 3.050 3.010
OPTI-KAS 27-0-0 (4S) 2.500 3.900 3.750
Kalísúlfat 41% kornað 3.900 4.000 5.100 7.700
17. feb.07 17. jan.08 1. okt.08 20. feb.09
Gengi norsku krónunnar,
skv. Seðlabanka
10,98 12,04 18,56 16,51
N-P-K ISK/tonn ISK/tonn ISK/tonn ISK/tonn
18-3-15 26.691 32.861 94.651 81.064
22-2-12 26.087 31.597 92.331 79.083
Kalksaltpétur 18.673 22.509 56.605 49.695
OPTI-KAS 27-0-0 (4S) 72.380 61.913
Kalísúlfat 41% kornað 42.838 48.148 94.651 127.127
Verð á aðföngum landbúnaðarins
Þróun og horfur
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir janúar 2009
Framleiðsla
jan.09
2009
nóv.08
jan.09
feb.08
jan.09
Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
m.v. 12 mán.janúar '08 3 mán. 12 mán.
Alifuglakjöt 547.056 1.546.084 7.242.792 -22,5 -19,4 -5,5 26,4%
Hrossakjöt 138.347 548.669 1.000.365 -3,4 5,3 -0,1 3,6%
Nautakjöt 326.241 887.661 3.588.969 -5,2 -9,5 -0,4 13,1%
Sauðfé * 0 215.289 8.930.113 0,0 1,5 3,4 32,5%
Svínakjöt 523.228 1.675.067 686.226 4,8 13,5 10,5 24,4%
Samtals kjöt 1.534.872 4.872.770 21.448.465 -9,3 -4,6 1,8
Innvegin mjólk 10.766.374 30.531.041 126.255.576 1,9 1,6 1,1
Sala innanlands
Alifuglakjöt 545.385 1.538.229 7.235.541 -24,9 -19,9 -4,4 28,6%
Hrossakjöt 79.318 280.984 691.558 22,3 32,7 6,3 2,7%
Nautakjöt 315.900 878.890 3.590.265 6,8 -11,1 -0,2 14,2%
Sauðfé ** 321.384 1.224.584 7.083.113 -55,3 -27,6 -1,3 28,0%
Svínakjöt 522.766 1.675.764 6.689.752 4,6 13,5 10,5 26,5%
Samtals kjöt 1.784.753 5.598.451 25.290.229 -24,0 -11,0 1,0
Sala á fitugrunni 8.593.526 28.338.228 112.064.594 -2,63 -2,8 2,56
Sala á próteingrunni 9.493.901 27.212.053 116.688.231 -4,34 -5,21 1,32
* Sauðfé lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
** Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana.
Framleiðsla á kjöti var 9,3% minni en í sama mán-
uði 2008. Mest munar um 22,5% samdrátt í ali-
fuglakjöti og tilsvarandi 25% samdrátt í sölu þess.
Framleiðsla og sala svínakjöts hefur aukist um
10,5% sl. ár, þar af 13,5% síðustu 3 mánuði.
Sala á kjöti var 24% minni en á sama tíma í fyrra og
um 11% síðustu þrjá mánuði. Mestur samdráttur er í
sölu kindakjöts milli mánaða, 55,3% og 27,6% sé horft
til síðustu þriggja mánaða. Þetta má að einhverju leyti
skýra með því að sala vegna sprengidags féll á janúar í
fyrra. Eins var mikil sala í október og raunar mánuðina
ágúst til október en þá nam söluaukning 30% miðað
við sama tíma 2007. Landsmenn búa því að góðum
kjötbirgðum í frystikistum sínum. Sala á alifuglakjöti
dróst, eins og áður segir, saman um 25% en sala á öðru
kjöti jókst.
Framleiðsla mjólkur sl. 12 mánuði miðað við janúar-
lok var 126,3 milljónir lítra. Heldur hefur dregið úr sölu
mjólkurafurða síðustu 3 mánuði miðað við tímabilið
nóvember 2007-janúar 2008. Þyngst vegur þar 10,6%
samdráttur í sölu osta, í janúar var samdráttur í ostasölu
t.d. 11,9% frá janúar 2008. Sala á jógúrtvörum hefur
dregist saman um 16,6% sl. 12 mánuði og skyri um
2,5%. Drykkjarmjólk er hins vegar að styrkja stöðu sína,
sala í janúar var 7,2% meiri en í sama mánuði í fyrra og
á ársgrundvelli nemur aukningin 3,8%. EB
Framleiðsla og sala á búvörum í janúar
Raforkukostnaður vegur víða
þungt í búrekstri, til dæmis í
ylrækt. Meðfylgjandi graf sýnir
þróun dreifigjaldskrár RARIK frá
desember 2005. Í febrúar 2007
var dreifingarkostnaður notenda
í dreifbýli hækkaður umfram
hækkanir til notenda í þéttbýli.
Dreifingarkostnaður var hækkaður
um 15% þann 1. janúar sl. og er
hækkunin nokkuð umfram hækk-
un vísitölu neysluverðs, eins og
grafið sýnir. Þessi skipta gjaldskrá
er t.d. talin kosta garðyrkjubænd-
ur 66 milljónum króna meira en ef
notendur í dreifbýli greiddu sama
dreifingarkostnað og notendur í
þéttbýli.
EBÞróun dreifigjaldskrár RARIK frá desember 2005 til janúar 2009
Innflutt kjöt árið 2008
Tímabil janúar-desember, magn í kg
Alifuglakjöt 530.398
Nautakjöt 339.788
Svínakjöt 279.760
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 22.667
Samtals 1.172.613
Útflutningur ýmissa búvara árið 2008
Útflutningur á kindakjöti árið 2008 nam 1.803 tonnum og skiptist
milli landa eins og meðfylgjandi tafla sýnir. Mikilvægustu viðskipta-
löndin með tilliti til magns og verðmæta eru Noregur, Bretland og
Færeyjar.
Frá áramótum – kg Frá áramótum – fob
Bandaríkin 64.975 67.113.334
Bretland 721.775 177.786.390
Danmörk 110.608 32.857.248
Færeyjar 242.121 144.488.161
Japan 140.433 95.705.533
Noregur 400.544 295.367.321
Víetnam 76.688 10.756.438
Önnur lönd 45.517 24.281.582
Samtals 1.802.661 848.356.007
Útflutningur á hrossakjöti nam ríflega 328 tonnum og þar vegur
Rúss landsmarkaður þyngst, 240,6 tonn eða 73% af útflutningi fara á
Rússlandsmarkað.
Af þurrmjólk voru flutt út 844,6 tonn fyrir 178,9 milljónir króna fob
og af smjöri 796,7 tonn fyrir 224,3 millj. króna fob. Mest var flutt til
Egyptalands, 188 tonn, Hollands 171 tonn og Bretlands, 160 tonn. Alls
voru flutt út 165,8 tonn af skyri að andvirði um 80 millj. króna fob, þar
af fóru 153 tonn til Bandaríkjanna fyrir tæpar 75 milljónir króna. Þá nam
útflutningur á ostum 8,8 tonnum að fob verðmæti 5,7 millj. kr.
Útflutningur á hreinsuðum æðardún nam 2.020 kg og var meðalverð
107.731 kr./kg fob. Loks voru flutt út minkaskinn fyrir 1.037.568.063
krónur eða rösklega einn milljarð króna. EB
Þróun dreifigjaldskrár RARIK
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur Bændasamtaka
Íslands
eb@bondi.is
Verðlagsmál