Bændablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 31
31 Bændablaðið | fimmtudagur 26. febrúar 2009
Ástir og örlög, kristni og heiðni,
víkingar og indíánar, gleði og sorg.
Allt kemur þetta fyrir í nýjum
rokksöngleik sem Eyfirðingar
hafa tekið til sýninga í leik-
húsi sínu, Freyvangsleikhúsinu.
Söngleikurinn heitir Vínland og
er eftir heimamanninn Helga
Þórsson í Kristnesi. Auk þess að
semja leikritið semur hann, ásamt
félögum í hljómsveitinni Helgi
og hljóðfæraleikararnir, alla
tónlist, smíðaði einnig leikmynd
og ásamt eiginkonu sinni, Beate
Stormo, hannaði hann búninga,
en Beate hefur verið potturinn og
pannan í saumaskapnum og naut
við það aðstoðar handlaginna
saumakvenna úr sveitinni þegar
álagið var hvað mest.
„Þetta hefur vissulega verið
mikil vinna, við höfum ekki gert
mikið það sem af er ári nema stúss-
ast í þessari sýningu og sinna fjöl-
skyldunni. Við höfum ekki tekið
að okkur önnur verkefni með enda
í mörg horn að líta,“ segir Helgi.
Bændablaðið renndi fram í Kristnes
á frumsýningardaginn og spjallaði
við þau Helga og Beate. Þó svo fáir
tímar væru í frumsýningu kváð-
ust þau rólegheitin uppmáluð, en
Helgi brenndi diska með tónlist úr
verkinu í gríð og erg og kom fyrir
í umslögum. „Það er gott að hafa
eitthvað að sýsla, maður er þá ekki
gangandi stöðugt um gólf að hugsa
um það sem betur hefði mátt fara.“
Fyrir um tveimur árum las Helgi
Íslendingasögur og segist hafa orðið
hugfanginn af Eiríks sögu rauða
og Grænlendingasögu. „Í þessum
sögum eru atburðir sem margir
kannast eitthvað við, mismikið þó,
því það sem matreitt er ofan í íslensk
grunnskólabörn hefur töluvert verið
ritskoðað,“ segir hann, og ekki síður
hafi þeir sem unnu við ritun sagn-
anna í munkaklaustrum á þrettándu
öld verið ritskoðaðir. „Það er greini-
legt að ritarar hafa verið hugfangn-
ir af verkefninu, en maður skynjar
líka sterkt að þeim er gert að halda
kostum kristninnar á lofti á kostnað
heiðninnar,“ segir Helgi.
Eftir lesturinn skrifaði hann
grunninn að verkinu og hefur síðan
unnið að því hörðum höndum að
koma því á framfæri. „Það hefur
kostað blóð, svita og tár,“ segir
hann, en markmiðinu var náð þegar
Freyvangsleikhúsið ákvað að taka
verkið upp á sína arma. Söngprufur
voru í nóvember, ráðið var í hlut-
verk og æfingar fóru lítillega af
stað fyrir jólin, en kraftur var svo
settur í þær eftir áramót.
Alls saumaðir um 30 búningar
Helgi hefur verið liðtækur leikari
hjá Freyvangsleikhúsinu um árin,
en stígur ekki á svið í verki sínu,
honum þótti það ekki passa. „Það
er líka ærið nóg að gera í öðru,“
segir hann og kveðst í raun undr-
andi yfir öllum þeim handtökum
sem inna þurfi af hendi til að koma
upp einni sýningu.
Beate kom sér fyrir í fundarher-
bergi í Freyvangsleikhúsinu. „Það
hefur allt verið undirlagt af sauma-
skap síðustu vikur,“ segir hún, en
alls voru saumaðir um 30 búningar
fyrir sýninguna. „Það er nánast allt
saumað nema brækur og sokkar.“
Þá hafa þau einnig útbúið vopn
fyrir sýninguna sem og aðra leik-
muni. „Við höfum verið að smíða
sverð og axir og fleiri vopn en ein-
hverju var líka smalað saman hér í
sveitinni,“ segja þau.
Beate hefur ekki áður tekið þátt
í störfum Freyvangsleikhússins,
en hefur haft gaman af. Hún hefur
mikið unnið við saumaskap og tvö
síðastliðin ár hafa þau hjón efnt
til tískusýninga sem notið hafa
vinsælda og sýna þá heimasaum-
aðan og -hannaðan fatnað; Eyfirsku
tískuna. Beate hefur um árabil tekið
þátt í störfum Gásahópsins og er
tjaldbúðameistari hans, en hópurinn
hefur árlega haldið Miðaldadaga að
Gásum í Hörgárbyggð. Þá saumar
hún einnig búninga fyrir skautafólk
á Akureyri, brúðar- og árshátíða-
kjóla, en að auki fæst hún við eld-
smíði í gamalli hlöðu við Kristnes.
Bæði vinna þau heima við og sinna
líka tómstundabúskap eins og þau
kalla það, eiga þrjár geitur og einn
hafur, 8 kindur og 14 íslenskar
landnámshænur. Þá eru þau líka
með kanínur, bæði loðkanínur og
holdakanínur en ein slík, Ljósapera
að nafni, er týnd og þótti Helga
ekki úr vegi að auglýsa eftir henni í
Bændablaðinu! Eins hafa þau sinnt
garðyrkjustörfum og grisjun skóga.
Fjallar umfram allt um
mennskuna
Um Vínland segir í tilkynningu að
verkið sé byggt á fornri íslenskri
arfleifð, það gerist á tímum vík-
inga meðal norrænna manna í
Grænlandi, en sögusviðið færist
líka yfir til Vínlands í Ameríku.
Þó svo að ástir og örlög, kristni og
heiðni, víkingar og indíánar komi
við sögu fjalli verkið þó umfram
allt um mennskuna, sem ætíð sé
söm við sig um aldirnar. Spenna og
ástríður setja svip sinn á verkið, en
gamansemin svífur yfir vötnum út í
gegn. Yfirbragðið er dálítið villt og
fantasían ræður meiru en eintómur
raunveruleiki fornaldar, þá leggur
höfundur mikið upp úr glæsileika
og kynþokka.
„Þetta hefur verið mjög
skemmti legur tími, það er gaman að
taka þátt í sýningu sem við eigum
svona mikið í, sjá hana taka breyt-
ingum og þróast og fá að vera með
puttana í þessu öllu. Þannig að við
hlökkum bara til að sjá hverjar við-
tökurnar verða,“ segja þau Beate og
Helgi. MÞÞ
Tómstundabændurnir Helgi og Beate í Kristnesi leggja sitt af mörkum til
leiklistarlífsins
„Þetta hefur kostað blóð, svita og tár!“
Svipmyndir úr sýningu Freyvangs-
leikhússins á söngleiknum Vínland
eftir Helga Þórsson, teknar á æf-
ingu.
Hjónin í Kristnesi, Helgi Þórsson
og Beate Stormo bera hitann og
þungann af sýningunni.
Meistaradeildin
komin á fullt
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er hafin af fullum
krafti. Um er að ræða mótaröð þar sem keppt er á
hálfs mánaðar fresti yfir vetrartímann í fjölbreyttum
greinum hestaíþrótta. Tvö mót hafa þegar farið fram;
fyrst hraðafimi, þar sem Eyjólfur Þorsteinsson og
Stúfur frá Miðkoti báru sigur úr býtum og svo fjór-
gangur, þar sem Sigurður Sigurðarson og Suðri frá
Holtsmúla sigruðu eftir harða og spennandi keppni.
Meistaradeildin er bæði liðakeppni og einstaklings-
keppni, en sjö lið taka þátt og skipa þrír knapar hvert
lið. Eftir fyrstu tvö mótin leiðir lið Málningar keppn-
ina með 85 stig, en lið Skúfslækjar kemur næst með
72 stig. Áðurnefndir sigurvegarar, þeir Eyjólfur og
Sigurður, sitja í fyrsta og öðru sæti í einstaklings-
keppninni eins og er með 17 og 12 stig. Næsta mót
í Meistaradeildinni verður haldið fimmtudaginn 5.
mars nk. í Ölfushöllinni og þar verður keppt í slak-
taumatölti. HGG
Sigurður Sigurðarson og Suðri frá Holtsmúla sigruðu
fjórganginn. Mynd | ÖK
Þjónustuauglýsingar ● Þjónustuauglýsingar ● Þjónustuauglýsingar ● Þjónustuauglýsingar ● Þjónustuauglýsingar
Til sölu Polaris X2500
2007 árg, ekið 890km
Aukahlutir
framstuðari,
afturstuðari,hiti
í handföng,mjög
vel með farið
Áhvílandi ca.
1,400. (ísl lán)
ca 30 þús. á mán,
fæst á yfirtökuUppl: 891-7976
Búhagur ehf Skarði
Við tökum að okkur smíðar á:
● Pípuhliðum
● Hringgerðum
● Innréttingum í útihús
● Handriðum
● O.fl. úr járni sem þig vanhagar um
Sími:4351391 8921391 skard@vesturland.is