Bændablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 4
Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 20114 Fréttir Eftir afnám útflutningsskyldu á kindakjöti fylgir útflutningur nokkuð gengissveiflum krónunnar: Meðaltalssala íslensks kindakjöts erlendis síðustu 11 ár er tæp 18% af heildarsölu - Hefur mest farið í 25-30% þegar gengið hefur verið hvað hagstæðast fyrir útflutning Samkvæmt tölum Landssamtaka sauðfjárbænda dróst sala á kindakjöti saman á fyrstu sjö mánuðum þessa árs samanborið við sama tímabil 2010. Á það bæði við sölu á innanlandsmarkaði og útflutt kindakjöt. Þegar skoðuð er salan á kindakjöti fyrstu sjö mán- uði áranna 2001 til og með 2011, kemur í ljós að útflutningur hefur verið mjög sveiflukenndur og hafa tveir útflutningstoppar skorið sig úr á þessu tímabili. Heildarsala kindakjöts á öllu tímabilinu nam 48.568 tonnum. Þar af nam útflutningur 8.541 tonni. Meðaltals útflutningurinn fyrstu sjö mán- uðina á þessu árabili var því tæp- lega 17,6%. Gengi krónunnar lykilatriði gagnvart útflutningi Í kjölfar efnahagshrunsins 2008 féll íslenska krónan verulega, sem gerði útflutning á íslenskri framleiðslu fýsilegri en áður. Það átti ekki bara við iðnaðarvörur og fisk, heldur líka kindakjöt. Afurðastöðvar gripu því tækifærið og juku útflutning úr 305 tonnum fyrstu sjö mánuði ársins 2008 í 861 tonn á sama tímabili 2009 og 1.320 tonn 2010. Nú hefur heldur verið dregið úr útflutningi á ný, eða í 1.138 tonn. Tvö tímabil mikils gengisfalls á liðnum 11 árum Allt fram á mitt ár 2009 voru íslensk- ir bændur skyldaðir til að flytja út ákveðinn hluta lambakjötsfram- leiðslunnar og fengu þá minna greitt fyrir þann hluta. Þessi útflutnings- skylda hafði veruleg áhrif á umfang útflutningsins þó að gengið hafi líka ráðið miklu. Eftir að útflutningsskyldan var afnumin er gengið stærsti áhrifa- þátturinn. Nokkur ár skera sig úr hvað útflutning varðar og fylgir hann- greinilega sveiflum á gengi krón- unnar. Þegar gengið hefur verið hvað sterkast hefur verið dregið úr útflutningi, enda lítið upp úr honum að hafa. Þannig komu útflutnings- toppar á árunum 2002 og 2003 en þá var mikið offramboð og verðlækk- anir á svínakjöti í landinu, sem ollu samdrætti í lambakjötssölu innan- lands. Samt virðast menn hafa verið nokkuð seinir að kveikja á perunni varðandi möguleika á auknum útflutningi kindakjöts vegna gengis- lækkunarinnar 2001. Miðgengi bandaríkjadollars, skráð hjá Seðlabanka Íslands 24. júlí ár hvert, sýnir að gengi krónunnar var mjög hátt skráð rétt fyrir netbólu- hrunið um síðustu aldamót, eða á 79 krónur. Það hrundi í 102 krónur á dollar 2001 og þá hefði verið hagkvæmt að grípa til útflutnings á kindakjöti, sem þó var ekki gert fyrr en á árinu 2002. Gengið steig svo á ný í 83 krónur 2002 og 78 krónur 2003. Þá var greinilegt að botninn var dottinn úr hagkvæmni útflutnings, sem hófst af krafti á árinu 2002. Gengi krónunnar hélst síðan mjög hátt gagnvart dollar á árunum 2004 og fram á mitt ár 2008 þegar það stóð í 79 krónum þann 24. júlí. Á þessu tímabili urðu íslenskir útflytj- endur fyrir mikilli tekjuskerðingu, vegna ofmats á styrkleika krónunnar að þeirra mati. Innflutningur óx þá verulega, m.a. á matvælum á kostnað innlendrar framleiðslu með tilheyr- andi viðskiptahalla. Útflutningur í takt við hagkvæmni Um haustið 2008 hrundi spilaborgin og þar með gengi krónunnar. Um mitt ár 2009 stóð það í 126 krónum á dollar. Útflutningur á kindakjöti var þá orðinn mjög hagstæður, sem sýnir sig í tölum LS um aukningu á útflutningi. Gengi dollars var síðan 123 krónur í júlí 2010. Það hefur nú lítillega styrkst á ný og er komið í 115 krónur enda er útflutningur á kindakjöti farinn að dragast saman að nýju. Tveir útflutningstoppar á 11 árum Fyrstu sjö mánuðina 2002 voru flutt út 1.022 tonn, eða svipað og á sama tíma á þessu ári. Útflutningurinn 2002 nam samt ekki nema um 21,5% sem er talsvert minna hlutfall en nú. Skýringin er að sala á kindakjöti innanlands var þá um 24% meiri en hún er í dag. Á árinu 2003 var flutt meira út af kindakjöti fyrstu sjö mánuðina en á árinu á undan. Nam útflutningurinn þá 1.166 tonnum, sem er 28 tonnum meira en á sama tíma á þessu ári. Voru þetta um 25% af heildarsölu kindakjöts á árinu 2003 en innan- landssalan dróst þá saman. Heildarsalan á kindakjöti fyrstu sjö mánuðina 2011 nam 3.997 tonnum á móti 4.425 tonnum á sama tímabili árið 2010. Á innan- landsmarkaði voru seld samtals 2.859 tonn af kindakjöti fyrstu sjö mánuðina 2011. Þar af voru 2.611 tonn af lambakjöti og 248 tonn af öðru kindakjöti. Á sama tíma voru flutt út 1.138 tonn af kindakjöti, en í því er ekki bara lambakjöt, heldur líka ærkjöt, slög, innmatur og aðrar afurðir. Þetta eru um 28% af heildar- sölunni. Til samanburðar voru seld 3.105 tonn af lamba- og kindakjöti á innan- landsmarkaði fyrstu sjö mánuðina 2010, eða 246 tonnum meira en á sama tíma á þessu ári. Munurinn er ekki mikill milli ára og samsvarar rúmlega einnar viku sölu á mark- aðnum yfir sumartímann. Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 voru svo flutt út 1.320 tonn, sem eru tæp 30% af heildarsölunni, og 28% á þessu ári. Þannig er ljóst að hlutfallslega minna var flutt út af kindakjöti á þessu ári en í fyrra. /HKr. Í fyrri viku flutti Norðlenska á Húsavík út þrjá gáma af lamba- og kindaafurðum. Vakti fyrirtækið athygli á þessu á vefsíðu sinni í ljósi umræðunnar upp á síðkastið um að einungis „bestu bitarnir“ séu fluttir utan. Bendir fyrirtækið á að megninu af því sem nú er á leið út hefði verið fargað fyrir fáeinum árum. „Undanfarin ár hefur verið unnið að því að koma ýmsum aukaafurðum á markað erlendis og síðustu miss- eri töluvert verið selt úr landi. Nú verða send utan 12 tonn af lamba- og kindafitu, 9 tonn af lamba- og kindaslögum, 25 tonn af beinum og 25 tonn af mör. Fyrir nokkrum árum hefði öllu þessu þurft að farga nema slögunum,“ segir í frétt frá Norðlenska. „Bestu bitarnir“ Sigmundur Hreiðarsson, vinnslu- stjóri Norðlenska er ekki sáttur við þá neikvæðu og ósanngjörnu umræðu sem verið hafi um lamba- kjöt, stöðu þess á markaði og bændur í landinu að undanförnu og vonast til að úr henni fari að draga. Hann segir menn hafa vaðið fram með upphrópanir um skort á lambakjöti og heimtað innflutning og eins hafi því verið slegið upp í umræðunni að bestu bitarnir væru fluttir úr landi. Málflutningur af því tagi lýsi van- þekkingu, en Sigmundur segir að nú að undanförnu hafi Norðlenska flutt út um 70 tonn af lambafitu, -beinum og -mör sem og úrbeinuðum slögum. Alls hafi fyrirtækið flutt út af þessum afurðum á þriðja hundrað tonna, þ.e. af aukaafurðum sem sumir telji greinilega til „bestu bitanna“. Innanlandsmarkaður gengur fyrir Sigmundur segir Norðlenska flytja sáralítið út af t.d. lærum og hryggjum, en fyrirtækið reyni að sinna Færeyingum eins og kostur er. „Okkar stefna og metnaður er skýr, innanlandsmarkaðurinn gengur fyrir og ætti að vera þannig hjá öllum,“ segir hann og bendir á að með öllu óviðunandi sé ef sú staða kemur upp að ekki sé til lambakjöt í verslunum fyrir landsmenn, á veitingastaði og fyrir ferðaþjónustuna. „Með því móti skiljum við eftir vinnuna og virðisaukann hér heima, en skrokkar í plasti og grisju sem settir eru beint í gáma og sendir úr landi skila ekki miklum virðisauka,“ segir Sigmundur. Mánuðina janúar til og með maí 2011 voru flutt út 1.178 tonn af kindakjöti, 187 tonn af innmat og sviðum, 185 tonn af gærum og 450 tonn af ull. Heildar útflutningsverð þessara afurða nam 1,3 milljörðum króna á FOB-verði að því er fram kom á haustfundi Landssamtaka sauðfjárbænda í Þingborg nú nýverið. Þetta er samt verulega minni útflutn- ingur en sömu mánuði árið áður þó af umræðunni mætti ætla að stærsti hluti kindakjötsframleiðslunnar og bestu bitarnir séu seldir úr landi. /MÞÞ/HKr. Norðlenska selur tugi tonna af slögum fitu, beinum og mör til útlanda - „Skiljum vinnuna og virðisaukann eftir heima,“ segir Sigmundur Hreiðarsson vinnslustjóri                     Allar tölur í tonnum 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Lambakjöt selt innanlands 3.302 3.322 3.159 3.568 3.523 3.465 3.511 3.587 2.670 2.801 2.611 Annað kindakjöt selt innanlands 394 420 332 437 427 500 549 515 382 304 248 Útflutt kindakjöt 635 1.022 1.166 850 506 397 341 305 861 1.320 1.138 Heimild: Landssamtök sauðfjárbænda         ! !   "   #! $%! !   % &  %%  %!   $ !      Hestamenn funda: Landsmót fram- tíðarinnar - Fundaherferð framundan Ekki eru allir á eitt sáttir um mál- efni landsmóts hestamanna og skemmst er að minnast umræðna um staðarval. Landsmótsnefnd er nú að hefja fundaherferð um landið til kynningar á skýrslu sem byggir á niðurstöðum nefnd- armanna um málefni landsmóta hestamanna. Fyrsti fundurinn verður á Stekkhól á Höfn í Hornafirði föstudagskvöldið 2. september kl. 20:00. Annar fundurinn verður á Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 11:00 laugardaginn 3. september og þriðji fundurinn í Top Reiter höllinni á Akureyri kl. 16:00 sama dag, 3. september. Í tilkynningu frá Landsmótsnefnd og stjórn LH eru hestamenn hvattir til að sækja fundina, koma sjónar- miðum sínum á framfæri og taka þátt í skemmtilegum umræðum um landsmót framtíðarinnar. Stjórn Samstöðusjóðs sem stofnaður var með stuðningi fyrirtækja og almennings vegna Grímsvatnagossins, ákvað á fundi sínum hinn 30 ágúst s.l. að styrkja eftirfarandi verkefni í Skaftárhreppi. 1. Koma að samstarfi með Skaftárhreppi og Vinnumálastofnun um verkefnið sem fengið hefur vinnuheitið Bros, til að hreinsa og mála Grunnskólann á Kirkjubæjarklaustri. Leikskólann og Dvalarheimili aldraðra. 2. Styrkja ásamt fleirum að bændafólk á svæðinu fái stuðning til að taka sér leyfi frá störfum í nokkra daga. 3. Styrkja samtökin „Friður og Frumkraftar" sem eru samtök aðila starfandi í ferðaþjónustu. 4. Styrkja Björgunarsveitir í Vestur –Skaftafellssýslu. 5. Styrkja Skaftárstofu, Upplýs- ingamiðstöð á Kirkjubæjarklaustri. 6. Styrkja hausthátíð Skaftfellinga, uppskeruhátíðina í okt. n.k. Guðni Ágústsson formaður stjórnar Samstöðusjóðs segir að stjórnarmenn verkefnisins vilji þakka góðan vilja fyrirtækjanna til að styðja Skaftfellinga í þeim miklu hremmingum sem gosið olli á vormánuðum. Hann segir að framundir þetta hafa verið að koma loforð frá fyrir- tækjum um stuðning og ennfremur hafa einstaklingar og félagasamtök hafi lagt fram peninga til verk- efnisins. Áætla megi að loforðin um stuðning nálgist nú 25 til 30 milljónir samtals. „Mest um vert var þó hið mikla sjálfboðastarf og aðstoð sem björg- unarsveitir, almannasamtök og almenningur veitti heima mönnum í gosinu." Stjórn Samstöðusjóðsins á eftir að fara yfir fleiri hugmyndir og beiðnir um stuðning sem borist hafa til sjóðsins og eru að berast. Grímsvatnagos: Samstöðusjóður styrkir 6 verkefni

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.