Bændablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 16
Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 201116
I
#!%+!
& Mynd / Sigfús Ingi Sigfússon.
Á annað þúsund gestir mættu
á Sveitasælu í Skagafirði
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin
Svaðastaðir við Sauðárkrók
blésu til landbúnaðarsýningar og
bændahátíðar í Skagafirði laugar-
daginn 20. ágúst. Þar bar margt
fróðlegt og skemmtilegt fyrir augu
og fjölmenni mætti á svæðið.
Sigfús Ingi Sigfússon, verkefna-
stjóri í atvinnumálum Skagafjarðar
segir að í fyrra hafi um 1.500 manns
mætt á svæðið en nú hafi gestirnir
verið enn fleiri. „Veðrið var fínt,
logn, nokkuð hlýtt en sólarlítið.“
Meðal atriða sem á boðstólum
voru má nefna sveitamarkað, kynn-
ingu á fyrirtækjum tengdum land-
búnaði, fróðleik um fornar vinnslu-
aðferðir til sveita, smalahundasýn-
ingu, hrútasýningu, kálfasýningu,
vélasýningu skagfirskra bænda og
vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir
börn, hæfileikakeppni gröfumanns-
ins, keppni í dráttarvélaakstri, klauf-
skurði og bændafitness svo eitthvað
sé nefnt. Auk þess sem öllum gestum
var boðið í grillveislu þar sem skag-
firskir skemmtikraftar létu ljós sitt
skína. Seinna um kvöldið gátu gestir
skellt sér á dansleik á Mælifelli.
Gröfumenn röktu bolta
„Það var keppt í skagfirska ung-
bóndanum eða bændafitness sem
slegið var saman við bænda-fitness
á skemmtivökunni. Hæfileikakeppni
gröfumannsins var líka ansi skemmti-
leg en þar glímdu menn við að rekja
fótbolta á vélgröfum.“
Að sögn Sigfúsar gafst gestum
jafnframt gullið tækifæri til að sækja
skagfirska bændur heim. Ábúendur
á Syðra-Skörðugili á Langholti
voru með opið hrossaræktarbú,
hesthús og fjárhús, Hamarsbúið
í Hegranesi var með opið fjós og
Syðra-Skörðugil á Langholti bauð
gestum að skoða loðdýrabúið á
staðnum.
Geitafiðuverkefni kynnt
Þarna var sýnt hefðbundið handverk
af ýmsu tagi og einnig hvernig vefn-
aður er ofinn úr bandi sem spunnið
er úr hári geita.
Anna María Lind Geirsdóttir,
búfræðingur og MA í textílmynd-
list kynnti þetta einmitt í síðasta
Bændablaði. Þar kom fram að ullin
á geitunum skiptist í strý og fiðu.
Strýið er grófgert en fiðan afar fín-
gerð og stundu kölluð kasmírull sem
m.a. er notuð til að búa til fín sjöl og
aðra slíka hluti.
Anna María hefur einmitt verið
með geitafiðuverkefni í gangi í sam-
vinnu við Jóhönnu B. Þorvaldsdóttur
á Háafelli. Þá hefur Anna einnig
kembt geitur í Keldudal í Skagafirði.
Geitur eru rúnar með allt öðrum hætti
en sauðfé, því þær eru kembdar á
vorin og sumrin þegar þær ganga
úr hárum. Af hverri geit koma um
80-100 grömm af hárum en reikna
má með að um 50% af því sé nothæf
geitafiða að því er fram kemur í grein
Önnu Maríu.
D !% !
%+! #!
% Mynd / SIS
9
$
"
) #
+
%
+
Mynd / Hjalti Árnason
8
%#
!
$ Mynd / SIS