Bændablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 39
15. tölublað 2011 Fimmtudagur 1. september
Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út
15. september
Landssamband kúabænda heilgrillaði 227 kílóa naut í þúsund manna veislu á Akureyrarvöku:
Framtakið hitti í mark og kjötið smakkaðist frábærlega
„Ég er ekki í vafa um að fram-
takið hitti beint í mark og kjötið
smakkaðist frábærlega,“ segir
Baldur Helgi Benjamínsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, en á Akureyrarvöku
um liðna helgi bauð LK gestum
og gangandi að bragða á heil-
grilluðu nauti. Með steikinni
var borið fram grænmeti frá
garðyrkjustöðinni Brúnalaug
í Eyjafjarðarsveit og piparsósa
frá Norðlenska. Landssamband
kúabænda fagnaði fyrr á árinu
25 ára afmæli sínu.
19 mánaða naut frá Búvöllum
Nautið var frá Sveinbirni og Huldu
á Búvöllum í Aðaldal, 19 mánaða
gamalt af landnámskyninu. Því var
slátrað hjá Norðlenska á Akureyri 16.
ágúst síðastliðinn, fór í flokk UN 1
A og var 227 kíló.
Baldur Helgi segir að nautið hafi
um sína daga eingöngu verið fóðrað
á heyi, eftir að mjólkurskeiði lauk.
Þúsund diska veisla
Framkvæmdastjórinn keypti eitt
þúsund pappadiska og gaffla fyrir
veisluna og segir 50 diska hafa
gengið af, þannig að 950 manns að
minnsta kosti hafi notið veitinganna,
en eitthvað var um að börn deildu
diskum með foreldrum sínum.
„Það var kveikt undir bola
kl.13.30 á föstudag og kynt til 23.
Þá var tekin hvíld til kl. 6 á laugar-
dagsmorgni þegar fýrað var undir
að nýju, en á hvíldartímanum var
skrokknum pakkað inn í álpappír sem
svo var tekinn af um morguninn,“
segir Baldur Helgi.
Skorið í þrjá og hálfan tíma
Byrjað var að skera strax eftir hádegi
á laugardag eða kl. 13.
„Við vorum sleitulaust að til
kl. 16.30, þegar allt var uppurið,“
segir Baldur, en með við fram-
reiðsluna voru þau Anna Jónsdóttir
bóndi á Svalbarði og stjórnarmaður
í Félagi eyfirskra nautgripabænda
og Sveinbjörn Tryggvason bak-
ari, ættaður frá Mýri í Bárðardal.
„Sveinbjörn er hokinn af reynslu í
því að heilgrilla naut og að hans mati
var þetta einhver besti og holdmesti
skrokkur sem hann hefur komist í,“
segir Baldur Helgi. /MÞÞ
$+
C
(! % +
!
Myndir / MÞÞ
C
(!
!
#)
$ !
$
!
!
%&
Tæplega eitt þúsund gestir nutu veitinga í boði LK á Akureyrarvökunni, en
sambandið lagði sitt af mörkum til að gera vökuna sem ánægjulegasta og
#!