Bændablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 19
19Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 201
Lýður B. Skarphéðinsson
sérfræðingur í göngugreiningum
verður á ferð um landið
Seyðisfjörður, Heilbrigðisstofnun
Mánudaginn 12. september
Vopnafjörður, Íþróttahús
Miðvikudaginn 14. september
Húsavík, íþróttahöllin
Fimmtudaginn 15. september.
Akureyri, íþróttahöllin
Föstud, og laugardag 16 og 17 sept.
Dalvík, íþróttamiðstöð
Mánudaginn 19. september
GÖNGUGREININGAR
Þriðjudaginn 6. september
Fáskrúðsfjörður, Heilsugæslan
Miðvikudaginn 7. september
Reyðarfjörður, Heilsugæslan
Fimmtudaginn 8. september
Föstudaginn 9. september
Egilsstaðir, Sjúkraþjálfun
Laugard, og sunnudag 10 og 11. sept
VIÐ VELJUM SKÓ EFTIR FÓTLAGI OG NIÐURSTIGI
Tímapantanir í síma 5526600
Bændur á norðanverðu landinu enn í heyskap
Miðað við kuldatíð fram eftir sumri rættist vel úr
Bændur á norðanverðu landinu
eru enn í heyskap, seinni sláttur
er víða í gangi í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, en flestir reyna
hvað þeir geta að ná svipuðu
magni og náðst hefur undanfarin
ár. Ætla má að heyskapur sé allt
að mánuði síðar á ferðinni en í
venjulegu árferði. Vorið var ein-
staklega kalt og stóð kuldatíð yfir
allan júnímánuð, sem í seinni tíð
er harla óvenjulegt.
Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar,
segir að miðað við hversu dökkar
horfurnar voru síðastliðið vor og
langt fram á sumar hafi ræst ótrúlega
vel úr: „Þetta er eiginlega betra en
nokkrum manni gat látið sér detta
í hug þá.“
Ólafur segir að víðast hvar í
Eyjafirði sé uppskera vel í meðal-
lagi og á einstöku svæðum, einkum
frammi í Eyjafirði, sé hún mjög
góð. „Á ákveðnum svæðum voru
miklir þurrkar og þar er uppskera
eðlilega minni af þeim sökum, eins
er uppskeran nokkuð misjöfn á þeim
svæðum þar sem kal var mest á liðnu
vori, en almennt má segja að það
rættist mun betur úr en menn þorðu
að vona eftir kuldatíð í vor og byrjun
sumars,“ segir hann.
Duglegir að endurvinna tún
og sá grænfóðri
Ólafur segir að bændur á kalsvæðum
hafi verið duglegir að endurvinna
tún sín og sá grænfóðri. Nú síðustu
daga hafi spretta tekið vel við sér, og
víða sé uppskeran bara nokkuð góð.
Þá nefnir hann að bændur hafi tekið
tún á leigu í auknum mæli enda sé
talsvert framboð af slíku, víða hafi
búskap verið hætt og tún ekki nýtt.
Allt hafi þetta hjálpað til og útlit fyrir
að nægt framboð verði af heyi, þó að
á einstaka bæjum sé uppskera með
minna móti.
„Fram til þessa hefur vantað
þurrk. Nú lítur út fyrir að verði þurrt
næstu daga og þá má gera ráð fyrir
að bændur ljúki heyskap á þessu
sumri, en víða á þó eftir að heyja
grænfóðurakra,“ segir Ólafur.
Reyna hvað þeir geta
að ná svipuðu magni
María Svanþrúður Jónsdóttir, hér-
aðsráðunautur á Húsavík, segir að
bændur í Suður-Þingeyjarsýslu séu
margir hverjir enn að heyja: „Það er
þó nokkuð um að menn séu enn að
slá, en heyskapur er þremur, fjórum
vikum seinna á ferðinni í sumar en í
venjulegu árferði,“ segir hún. Þannig
vissi hún um bændur í Öxarfirði sem
voru við slátt um liðna helgi og í
Bárðardal voru einstaka bændur að
slá í byrjun vikunnar.
Að sögn Maríu reyna bændur nú
sem þeir best geta að ná upp svipuðu
magni og vant er, sumir hafi fengið
lánuð eða leigð tún, sem ekki væru
annars nýtt, til viðbótar við heimatún
sín og á þann hátt reynt að ná upp
magninu. María segir erfitt að segja
fyrir um heygæði á þessari stundu, en
í fljótu bragði sýnist sér þau almennt
lakari en undanfarin ár.
Gera má ráð fyrir
að verð á heyi hækki
María segir ómögulegt að segja nú
hver þróun mála verði, sumir hafi
næg hey, aðra vanti töluvert upp á
og muni þurfa að kaupa hey. Þannig
sé til að mynda ljóst að þar sem kal
var í túnum sé uppskera eðlilega
minni, en víða í sýslunni var 20 til
40% kal í túnum í vor. Gera megi
ráð fyrir að nokkur eftirspurn verði
eftir heyi í haust og vetur og geti
það leitt til þess að verð hækki. „Það
er ljóst að margir hafa ekki bolmagn
til að kaupa mikið af dýru heyi,“
segir María og telur fyrirsjáanlegt
að einhverjir muni grípa til þess
ráðs að fækka bústofni sínum.
„Allt er þetta óljóst á þessari
stundu, þar sem heyskapur er víða
enn í gangi er ekki ljóst hver endan-
leg niðurstaða verður,“ segir hún.
/MÞÞ