Bændablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 30
31Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 201
Smíðum glugga, hurðir og opnanleg fög í
þeim stærðum og gerðum sem henta þér.
ALLT FYRIR FJÓRHÓLIÐ
TÖSKUR · SPIL · LJÓSKASTARAR · GALLAR · HJÁLMAR · OFL.
* Verð á hjólum gilda út október eða á meðan birgðir endast.
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9, REYKJAVÍK. SÍMI 440 1220
N1 VERSLUN TRYGGVABRAUT 18-20, AKUREYRI. SÍMI 461 5522
Egilsstöðum, Reyðarfirði, Höfn, Selfossi, Akranesi, Hafnarfirði,
Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum, Ísafirði og Ólafsvík.
HISUN FJÓRHJÓL
Götuskráð fjórhjól, tveggja manna
með sætisbaki og spili.
700 cc
1.099.000 KR.
800 cc
1.299.000 KR.
HJÓL FRÁ KAWASAKI OG HISUN Á GÓÐU VERÐI*
100.00
0 kr.
AFS
LÁTT
UR
Töluvert er síðan uppskerutími
grænmetis hófst og eru bændur
á Suðurlandi nokkuð ánægðir
með útkomuna en þó sammála
um að árið nú verði lakara en í
fyrra. Bændablaðið ræddi einnig
við Olgu Guðmundsdóttur í garð-
yrkjustöðinni Silfurtúni, þar sem
aðaluppskeran er í jarðarberjum
og fer það mikið eftir birtuskil-
yrðum hvernig heildarútkoman
verður.
Þokkalega góð uppskera
„Þetta lítur ágætlega út en er aðeins
seinna en stundum áður. Það gerði
kulda í júní sem tafði aðeins upp-
skeruna en síðustu vikur hafa verið
mjög góðar og það hefur sprottið vel.
Sumir garðar eru komnir en aðrir
ekki, þetta er mislangt komið eins og
gengur. Það er gott ef grös geta staðið
ófrosin í tvær vikur enn. Allar helstu,
Gullauga, rauðar, Helga og Premiere
og fleiri tegundir til vinnslu verða
seldar forsoðnar. Ég er bjartsýnn, þó
að þetta verði aldrei metuppskera, en
hún getur orðið þokkalega góð fyrir
því,“ segir kartöflubóndinn Kristján
Gestsson í Forsæti IV í Flóahreppi,
sem reiknar með að taka upp nærri
400 tonn af jarðeplum þetta haustið.
„Ekki eins gott og í fyrra“
Ásdís Bjarnadóttir bóndi í Auðsholti
3 við Flúðir segir að uppskerutíminn
sé hafinn fyrir nokkru, en bændurnir
þar eru með þeim stærstu í gulrótar-
ræktun hérlendis og selja árlega í
kringum 130 tonn.
„Við erum komin af stað með
gulræturnar í sölu í verslunum en
búin að selja þær frá því í lok júlí á
bændamarkaðnum á Flúðum. Þetta
lítur þokkalega út og virðist stefna
í meðalár, en er ekki eins gott og
í fyrra. Júní var kaldur og það var
mikið rok hér sem setti strik í reikn-
inginn en á móti er ágúst búinn að
vera yndislegur, síðan spyr maður
bara að leikslokum. Við erum um
mánuð að taka upp en við byrjum
ekki að setja inn í kæligeymslur fyrr
en um miðjan september og náum að
selja fram í apríl,“ útskýrir Ásdís,
sem hræðist ekki næturfrost því
gulrætur þola það mun betur en til
dæmis kartöflur.
Fer eftir birtuskilyrðum
Í garðyrkjustöðinni Silfurtúni
náðum við í einn eigandann, Olgu
Guðmundsdóttur, en þar er áherslan
lögð á jarðarberjaræktun þó að einnig
séu þar ræktaðir tómatar, gúrkur,
rauðkál og örlítið af rauðrófum. „Það
hefur verið örlítil jarðarberjaupp-
skera hjá okkur en nú er haustupp-
skeran að byrja fyrir alvöru og ég
vona að hún verði út október. Við
erum með berin í stórum plasthúsum
og það fer ótrúlega mikið eftir birt-
unni úti hvernig útkoman verður. Því
meiri birta, því betri uppskera, en um
leið og það koma rigningartímabil og
skýjafar er uppskeran lakari. Þetta
lítur þokkalega vel út. Við höfum
verið að ná að selja berin í verslanir
fram í fyrstu vikuna í nóvember en
gæðin eru þá ekki jafnmikil og fyrr,
enda myrkrið orðið mikið á þessum
tíma.“
/ehg
Ágætt hljóð í grænmetisbændum þó reiknað
sé með heldur lakari uppskeru en í fyrra
Eiríkur Ágústsson garðyrkjubóndi í Silfurtúni á Flúðum hugar að
jarðaberjauppskerunni. Mynd / HKr.