Bændablaðið - 01.09.2011, Síða 31
32 Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 2011
Tól og tækni
Á vordögum fjallaði ég lítillega
um litla, sparneytna díselfólksbíla,
en flest bílaumboðin bjóða slíka
bíla. Bílaumboðið ASKJA er með
umboð fyrir KIA, er sífellt að auka
markaðshlutheild sína á íslenskum
bílamarkaði og býður KIA Cee'd
í nokkrum útfærslum á verðbilinu
2.890.000 upp í 4.090.000.
KIA Cee'd er hægt að fá með dísel-
vél frá 90 hestöflum upp í 115 hestöfl,
ýmist beinskiptar eða sjálfskiptar.
Bíllinn sem ég reynsluók heitir KIA
Cee'd EX 1,6, fimm dyra, díselknúinn
og sjálfskiptur.
Eftir að hafa stillt sætið í þá stöðu
sem ég vil hafa sæti í við akstur var
sett í gang.
Vel hljóðeinangraður
Mér hefur alltaf fundist díselhljóð
í litlum bílum leiðinlegt hljóð, en í
þessum bíl heyrðist nánast ekkert í
vélinni (svo „hljóð-leiðindin“ voru
hverfandi í KIA Cee'd). Stjórntæki
og mælaborð eru öll á þægilegum
stöðum, en oft hef ég ekki séð á allt
mælaborðið fyrir stýrinu í öðrum
bílum, en sjónarhornið var gott
bæði á mælaborð og út fyrir bílinn.
Í stýrinu vinstra megin er útvarpinu
stjórnað og hægra megin er „cruise
control“ -stýring.
Eyðslan niður í 4,8 á hundraðið
Fyrst ók ég hefðbundinn innan-
bæjarakstur og virtist mér ég vera
að eyða á bilinu 7 til 7,5 lítrum af
dísel á hundraðið, í blönduðum akstri
virtist ég vera að eyða um 6,5 lítrum.
Frá Vogum á Vatnsleysuströnd og
til Hafnarfjarðar stillti ég „cruise
control“ -kerfið á 90 km. hraða og í
Hafnarfirði sýndi meðaleyðslan 4,8
lítra á hundraðið.
Gott veggrip og góð fjöðrun
Á leiðinni út á Vatnsleysuströnd
prófaði ég bílinn á möl með því að
beygja út af Reykjanesbrautinni við
Straum og renna út að eyðibýlinu
Óttarsstöðum . Þessi malarvegsslóði
er mjög grófur, holóttur og hlykkj-
óttur, en malarvegahljóðið var lítið
undir bílnum. Veggrip var gott og
fjöðrunin tók vel í holurnar svo varla
fannst fyrir þeim.
Góður kraftur
Af malarveginum beygði ég inn
á Reykjanesbrautina og gaf vel í á
steyptum veginum, 115 hestarnir skila
bílnum vel áfram og úr kyrrstöðu og
upp í hámarkshraða er bíllinn ekki
nema nokkrar bíllengdir, sé slegið vel
í hrossin 115.
Þægilegur
Allt pláss inni í bílnum er gott og
sætin þægileg og margstillanleg, með
hitara sem kemur sér vel á kaldan
bossa á köldu Ísalandi. Miðstöðin er
frekar fljót að hitna, útvarp gott og
USB-tengi er fyrir útvarpið (iPod- og
MP3-tenging).
Stórt farangursrými
Farangursrými er mjög stórt miðað
við stærð bílsins og í öllum hornum
eru festingar fyrir teygjunet til að festa
niður farangurinn. Undir hleranum í
botni farangurshirslunnar eru nokkur
misstór hólf (eins og yfirstærð af
hnífaparaskúffu) sem henta vel fyrir
smærri hluti, s.s. verkfæri, tóg og fl.
Einnig er hægt að leggja niður aftur-
sætin í bílnum, sem rúmlega tvöfaldar
farangursplássið.
Kostir:
7 ára ábyrgð, kraftmikill, rúmgóður,
farangursrými stórt, miðstöð frekar
fljót að hitna, lítið malarvegahljóð,
sparneytinn.
Ókostir:
Fullkominn bíl er varla hægt að lasta,
en ég hefði viljað að bíllinn hefði
verið á upprunalegu hjólbörðunum,
en ekki heilsárshjólbörðunum sem
undir honum voru. Það eina sem mér
fannst að var að bíllinn virkar mjög
lágur að framan, samt sem áður er
gefið upp að undir lægsta punkt séu
tæpir 15cm., en einhvernveginn fannst
mér það ekki stand ast og sérstaklega
ekki að framan.
Verð: 3.930.000 kr.
Lengd: 4.235 mm
Breidd: 1.790 mm
Hæð 1.480 mm
Hestöfl: 115
Þyngd: 1.367 kg
KIA Cee'd:
Kraftmikill, rúm góður
og sparneytinn
Ég held að það sé nokkuð sérís-
lenskt fyrirbæri að þegar fólk hitt-
ist eða heyrist er byrjað að ræða
veðurfarið og ýmislegt því tengt
og ætla ég einmitt að byrja á því
í þessum pistli.
Hér í Þingeyjarsýslu, og held
ég að það eigi við um mest allt
Norðurland, voraði vel en fljótt
kom í ljós að tún voru víða mikið
skemmd af kali. Upp úr miðjum maí
kólnaði mjög eins og kunnugt er, öll
spretta stoppaði þannig að víða var
fé á gjöf nánast út júní og kýr voru
víðast að koma út í byrjun júlí.
Sláttur hófst ekki almennt fyrr en
upp úr miðjum júlí en er nú að mestu
lokið þegar þetta er skrifað. Ljóst er
að háarsláttur verður mun minni en
undanfarin ár og grænfóður er illa
sprottið og því óljóst hver uppskeran
verður.
Litlar líkur eru á að bygg nái
þroska að neinu ráði á þessu hausti
hér Norðanlands. Sýnir það hversu
vangæf sú ræktun getur verið, þó
svo að hún hafi lukkast sæmilega
af og til. Hér í Þingeyjarsýslu var í
vor sáð byggi í 160-170 ha. Það er
talið að kosti um 100.000 kr. að sá
í ha þannig að þarna fara verulegir
fjármunir í súginn. Það er talað um
að nýta megi byggið sem grænfóð-
ur þegar það nær ekki þroska og
minnka þannig tjónið en það verður
þá að gerast það snemma að það sé
lítið eða ekki skriðið, annars er það
mín reynsla að slíkt er mjög ólyst-
ugt fóður. Reyndar er oft erfitt að
meta þetta. Nýleg grein eftir Jónatan
Hermannsson á vef Bændablaðsins
ætti að auðvelda mönnum þetta
mat, þó hún kæmi fullseint til þess
í sumar. Enginn styrkur fæst út á
bygg nema það sé þreskt, sem m.a.
hefur gert það að verkum að menn
hafa verið að þreskja það mjög illa
þroskað og jafnvel að þurrka það
með olíu. Hafa svo staðið uppi með
dýrt og lélegt fóður.
Það hefur mikið verið rætt á
hátíðarstundum að kornrækt eigi
mikla framtíð fyrir sér hér á landi,
svo og önnur ræktun sem hingað til
hefur farið fram á suðlægari breidd-
argráðum. Það eru vafalítið til svæði
hér á landi þar sem þessi ræktun á
framtíð fyrir sér en sumarið í sumar
sýnir okkur að það á ekki allsstaðar
við. Þær hugmyndir úr ráðuneyti
Jóns Bjarnasonar að stórauka beri
styrk til kornræktar, kemur því til
þess að gera fáum bændum til nota.
Það er mér svosem ekki áhyggjuefni,
nema fyrir þær sakir að ólíklega fæst
til þess fjármagn nema taka það af
öðrum ríkisframlögum sem flestir
bændur njóta, þ.e. öðrum ræktunar-
framlögum eða beingreiðslum.
Alla vega verður að gera vandaða
úttekt á því hvar sé vænlegast að sá
byggi hér á landi og hversu mikið sé
hægt að framleiða, áður en þetta er
gert. Það ætti að vera komin allgóð
reynsla manna á því með þessari
„frímerkjaræktun“ vítt og breitt um
land. Mér finnst að ef við þurfum
að breyta okkar styrkjakerfi á þann
hátt að minnka vægi beingreiðslna,
þá njóti öll ræktun þess. Það kemur
fleiri bændum að notum og ég held
að við getum bætt okkar fóðuröflun
almennt á hagkvæmari hátt en með
kornrækt. Enginn má þó skilja orð
mín svo að ég vilji mála kornræktina
út í horn. En ég vona að ráðherra
fari ekki út í neinar aðgerðir nema
í nánu samstarfi við samtök bænda.
Að undanförnu hefur farið fram
sterk umræða, einkum á meðal versl-
unar í landinu, um að afnema beri
allar hömlur á að flytja inn kjöt á
sama tíma og verulegur samdráttur
er í sölu á kjöti hér á innanlands-
mörkuðum. Það er kannski skiljan-
legt að verslunaraðilar berjist fyrir
þessu, þar sem eingöngu er hugsað
um stundargróðann, en að ýmsir
framámenn í þjóðfélagi sem berst
við atvinnuleysi og skort á gjaldeyri
skuli taka undir þetta er lítt skiljan-
legt. Ég held nú samt að bændur
eigi svolitla sök á því hvernig þessi
umræða hefur þróast á liðnum vikum
með heldur klaufalegri framsetningu
á annars nokkuð eðlilegri kröfu á
hækkun á launalið sínum. Þetta segir
okkur það að nú sem aldrei fyrr þurfi
að vanda okkar málflutning þegar
að svo veigamiklum þáttum kemur
í afkomu okkar.
Nýlega var sagt frá því í fréttum
að fjöldi umsókna um inngöngu í
búfræði- og búvísindanám hefði tvö-
faldast á liðnum misserum. Vonandi
er það ekki atvinnuleysisvofan sem
ræður því, heldur það að unga fólkið
hefur trú á okkar að mörgu leyti
ágæta landbúnaði.
Er skynsamlegt að auka stuðning við kornræktina?
Raddir kúabænda - af naut.is
Sveinbjörn Þór Sigurðsson
Búvöllum í Aðaldal
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
„
# $
%
+! $# $
>+!
&
?
I !
!
#&
!
%&
" !
Helstu mál :
Séu gamlir vegir ekki notaðir geta
þeir eyðilagst í frosti og sökum
gróðurs. Hér má sjá 2 myndir af
sama veginum, sem gerður var
um Vatnsleysuströnd rétt fyrir
aldamótin 1900.
Neðri myndin er af vegi sem
var aflagður og hætt að fara hann
á milli 1930 og 1940, þegar endur-
bætur voru gerðar á veginum og hann
færður nær Vatnsleysubæjunum.
Efri myndir af sama vegi. Sá veg-
stubbur hefur alltaf verið notaður, en
aðeins lítillega og fengið lágmarks
viðhald. Þetta er vegstubburinn
sem skógræktarmenn í Vogum á
Vatnsleysuströnd nota til að komast
á skógræktarsvæðið sitt. Þarna má
enn sjá fallegt handbragð við upp-
hleðslu með handafli í vegköntunum.
/HLJ
Frostið eyðileggur
fljótt ónotaða vegi
()
#!
! %+!
!%%
$
+
+!
!
#
I! $% !
!
%+! #!
&
!
! # Myndir / HLJ