Bændablaðið - 01.09.2011, Side 34
35Bændablaðið | fimmtudagur 1. september 2011
Nú þegar fer að kólna með haustinu er
nauðsynlegt að eiga góða og hlýja ullar-
sokka sem er fljótlegt að prjóna og eru
þægilegir að ganga í.
Nr. 35/37, 38/39, 40/42 - fótlengd 22-24-
26 cm.
Hæð sokks 13-15-17 cm.
Efni: Eskimogarn 100 % ull frá Drops. 200 g
litur að eigin vali, sjá á www.garn.is
Prjónar nr 12. Prjónfesta 10x10 cm. = 8
X 20 umferðir. Garðaprjón með tvöföldu
Eskimogarni.
Leiðbeiningar:
Hvert sinn sem snúið er við í miðjum prjóni
er tekin 1 L framan af og strekkt á garninu,
snúið við og prjónið svo áfram til þess að
ekki myndist gat.
Aðferð:
Sokkurinn er prjónaður fram og til baka með
garðaprjóni ofan frá og niður og endar á
tánni.
Passið prjónfestuna.
Fitjið upp 20-20-21 L með tvöföldu
Eskimogarni og prjónum nr 12. Í næsta
prjóni frá röngu eru 2 fyrstu og 2 síðustu L
prjónaðar saman, þá eiga að vera 18-18-19
L á prjóninum. Prjónið fram og til baka þar
til stykkið mælist 5 cm, en þá er prjónaður
hæll þannig;
Prjónið 6 L, snúið við, prjónið 5 L tilbaka,
aukið út með því að prjóna 2 L í síðustu
L á prjóninum. Prjónið 1 umferð yfir allar
lykkjurnar. Prjónið 6 L, snúið við, prjónið 5
L tilbaka, aukið út með því að prjóna 2 L í
síðustu L í umferðinni. Prjónið 1 umferð yfir
allar lykkjurnar*.
Endurtakið *til* alls 4-5-6 sinnum þá eiga að
vera 26-28-31 L á prjóninum. Setjið prjóna-
merki í ystu L eftir síðustu úrtöku, mælið
síðan þaðan það sem eftir er. Haldið áfram
með styttar umferðir og úrtökur þannig
* Prjónið fyrst 2 L á prjóninum saman, 5
L, snúið og prjónið 6 L til baka. Prjónið 1
umferð yfir allar lykkjurnar, prjónið fyrstu
2 L saman, 5 L, snúa, prjóna 6 L til baka,
prjónið 1 umferð yfir allar lykkjurnar*.*
Endurtakið * til * alls 5-6-7- sinnum þá eiga
að vera 16-16-17 L á prjóninum. Prjónið nú
fram og tilbaka án úrtöku þar til sokkurinn
mælist 18-19-20 cm. frá prjónamerkinu,
þá eru 4-5-6 cm. eftir til enda. Takið nú úr
fyrir tánum. Prjónið fram og tilbaka yfir
allar lykkjurnar á prjóninum, takið jafn-
framt úr 2-1-1 jafnt yfir prjóninn frá réttu
alls 3-4-5 sinnum, þá eiga að vera 10-12-12
L á prjóninum. Prjónið því næst saman 2 og
2 L = 5-6-6 L eftir. Dragið þráðinn gegnum
afganginn af lykkjunum og saumið endann
fastan. Saumið saman undir fætinum og
upp að efri kantinum, passið að saumurinn
verði ekki of þykkur.
Amelía Björk Davíðsdóttir er
alveg að verða átta ára gömul og
hlakkar mikið til þess að bæta
einu ári við í safnið. Hún æfir fim-
leika og fótbolta en stefnir á að
verða dýralæknir í framtíðinni.
Nafn: Amelía Björk Davíðsdóttir.
Aldur: 7, að verða 8 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Garður.
Skóli: Gerðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Að læra og í sundi.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur.
Uppáhaldshljómsveit: Pascal
Pinon.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
flutti í Norðurkot vegna þess að það
var svo gaman að búa þar.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég æfi fimleika og
fótbolta.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Fara á leikjanet en
ég fer samt ekki mikið í tölvu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég festist uppi í
tré í sumarbústaðnum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að taka til í herberginu
mínu.
Ætlar þú að gera eitthvað sér-
stakt í vetur? Vera í skólanum, æfa
fimleika og fótbolta og lesa góðar
bækur. /ehg
Festist eitt sinn uppi í tré
Amelía Björk er í Gerðaskóla í Garði
en í sumar hjálpaði hún ömmu sinni
Sigríði H. Sigurðardóttur í æðarvarp-
inu í sumar í Norðurkoti við Sand-
gerði.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Fljótprjónaðir sokkar
PRJÓNAHORNIÐ
Petmax.is vefverslun frí heimsending um allt land með Íslandspósti
Dýrin elska OK fóðrið...
T
il
b
o
ð
ið
g
il
d
ir
ti
l l
o
k
a
se
p
te
m
b
e
r
Kynningartilboð 15 kg. fóðurpoki
6.950 kr.
Hágæða hráefni - Ljúffengt bragð
- Fallegur feldur - Betri heilsa
Frí heimsending um allt land
ER EKKI KOMINN TÍMI Á ÞÍNA HUGMYND?
HÝSI-MERKÚR ehf. - Völuteigur 7, Mosfellsbæ
Sími 5346050 - hysi@hysi.is / www.hysi.is
Það er alltaf jafn ánægjulegt þegar hugmynd verður að vel heppnuðum veruleika eins og
sést á þessari mynd frá Fjarkastokk, Þykkvabæ.
Ef þú skoðar heimasíðuna okkar, undir “Frá hugmynd að veruleika” sérðu myndir
og teikningar af nokkrum húsum frá okkur sem þjóna sem fjárhús, fjós, reiðhallir, hesthús,
bílskúrar, iðnaðarhúsnæði o.s.frv.
Láttu okkur vita hvaða hugmynd þú hefur og saman gerum við hana að veruleika.
Leifs æðardúnn
Óska eftir dúni til útflutnings.
Greiði hátt verð.
Upplýsingar í síma 893-8554
eða 0047-9303 7099.
leifm@simnet.is.
Óska eftir að kaupa
allar tegundir dráttarvéla,
diesel lyftara og jarðtætara
af öllum stærðum.
Uppl. í síma 866-0471 - traktor408@gmail.com
Bleikjuseiði til sölu
Fjallableikja ehf.
að Hallkelshólumí Grímsnesi
hefur til sölu bleikjuseiði.
Upplýsingar: Jónas 862-4685 og Guðmundur
8939-777 eða fjallableikja2010@gmail.com