Bændablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 1
14. tölublað 2012 Fimmtudagur 26. júlí Blað nr. 375 18. árg. Upplag 24.000
14
„Ég skil ekki af hverju er verið
að vernda jafn grimmt dýr og
tófuna. Tófunni hefur farið mjög
fjölgandi, er nú farin að svelta
á Hornströndum og sækir því
annað. Hún hefur verið að leika
sér hér við bæinn og er að eyði-
leggja möguleikana á því að vera
hér með búskap. Það þýðir ekk-
ert að basla við að búa hér því
refurinn er að leggja þetta í eyði.
Á síðastliðnum sex árum vantar
mig nákvæmlega 173 lömb af fjalli
sem tófan hefur hirt,“ segir Ragna
Aðalsteinsdóttir bóndi á Laugabóli
við Ísafjarðardjúp.
Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika
stendur Ragna samt enn vaktina þó
orðin sé 87 ára gömul og eigi erfitt
um gang eftir að hafa fótbrotnað í tví-
gang. Hún hefur reynt að að fá refa-
skyttur til að halda refnum í skefjum
en það dugar ekki til. Hún segir að
þar sé við ramman reip að draga, því
refaskyttur megi ekki veiða nema
takmarkaðan fjölda og á ákveðnum
svæðum. Þá sé þetta líka undir duttl-
ungum sveitarstjórnarmanna komið
hvernig veiðunum sé háttað.
„Tófan er komin út um allt og
ellefu tófur sáust meira að segja
í Kópavoginum í fyrra. Hér í
Laugardal sér maður ekki fugla
langtímum saman, refurinn drepur
allt sem hreyfist. Það er helst að
maður sjái hér hrafna á lífi. Svo eru
menn jafnvel að ala þetta upp sem
yrðlinga og sleppa síðan lausu aftur
út í náttúruna.
Ég ætla bara að vona að við göng-
um aldrei í Evrópusambandið þar
sem bannað er að drepa refi. Samt er
ég dauðhrædd um að eigi að þröngva
okkur þangað inn,“ segir Ragna.
/HKr.
- Sjá nánar spjall við Rögnu um
mikla þurrka og búskapinn á bls. 4
Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp:
Hefur misst 173 lömb
í tófuna á sex árum
„Refurinn er að leggja þetta í eyði,“ segir Ragna Aðalsteinsdóttir bóndi á Laugabóli. Mynd / HKr.
Mynd / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir.
Drottningar
á hestbaki
Drottningareið Snæfaxa var farin
fimmtudaginn 12. júlí í blíðskap-
arveðri enda hefur veðrið leikið
við landann sem aldrei fyrr. Að
þessu sinni var riðið frá Þórshöfn
yfir að Felli í Bakkafirði og mun
það vera gömul póstleið.
Alls tóku þrjátíu konur þátt í
reiðinni og héldu flestar út alla
leið. Eitthvað var stoppað til að
væta kverkarnar og hvíla hrossin,
sem fetuðu annars lipurlega grýtta
reiðleiðina. Á endastöð biðu síðan
dýrindis veitingar, holugrillað
lambalæri og meðlæti. Kvennareið
sem þessi er orðin að árlegum við-
burði enda hefur áhugi á hesta-
mennsku aukist mikið á svæðinu.
Nokkuð er um að menn séu að bæta
aðstöðu sína og aðgengi að þessari
skemmtilegu íþrótt.
Hestamannafélagið hélt fyrr í
sumar reiðnámskeið fyrir börn og
fullorðna og var metþátttaka hjá
ungu kynslóðinni sem gefur vonandi
vísbendingar um efnilega hestamenn
á komandi árum.
/GBJ
Langvarandi þurrkar
hafa víða valdið tjóni
Bændur víða um land biðu í ofvæni
eftir rigningu sem spáð var um
síðustu helgi. Úrkoman varð þó
víða minni en menn vonuðust eftir.
Miklir þurrkar í júní og það sem
af er júlí hafa tafið grassprettu og
eru tún víða orðin gul og líflaus.
Að sögn Ólafs Dýrmundssonar
landnýtingarráðunautar er víða
að skapast mjög alvarlegt ástand
vegna þessa og ljóst að tjónið er
þegar orðið talsvert.
„Bændasamtökum Íslands hafa
borist fjölmargar ábendingar frá
bændum og öðrum sem málin
varða. Sem dæmi eru verulegar
áhyggjur vegna yfirvofandi upp-
skerubrests á túnum og ökrum á
mörgum bæjum í Húnaþingi og í
Austur-Skaftafellssýslu en í raun eru
slíkar fréttir að berast úr öllum lands-
hlutum,“ segir Ólafur. „Verst er þó
ástandið þar sem ræktunin byggist
á söndum og melum.“
Árni Snæbjörnsson segir að sam-
kvæmt reglum Bjargráðasjóðs sé
heimilt að bæta tjón vegna uppskeru-
brests af völdum þurrka á ræktuðu
landi og fordæmi séu fyrir slíkum
greiðslum.
„Bændasamtökin leggja til að
öll búnaðarsambönd í landinu geri
könnun á ástandinu sem fyrst og
fylgist síðan grannt með framgangi
mála næstu vikurnar,“segir Árni.
„Einnig þarf að skrá þá bæi sem hafa
orðið fyrir umtalsverðu tjóni og meta
umfang þess, þ.e. hversu stór hluti
túna er ónýtur vegna þurrka.“
Hann segir brýnt sé að bændur
haldi saman góðum upplýsingum
um ástandið.
Garðyrkja & ræktun
Blaðauki
19-21
Vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki
í Heydal við Ísafjarðardjúp
24
Ilmurinn úr
Gamla fjósinu