Bændablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 201212 Fréttir Öll efnistaka er nú háð framkvæmdaleyfi Öll efnistaka er nú framkvæmda- leyfisskyld, en reglur um slíkt tóku gildi um síðustu mánaðamót. Eigendum eða umráðamönnum eignarlands er þó heimil minni háttar efnistaka til eigin nota, nema um sé að ræða jarðmyndanir og vistkerfi sem njóta sérstakrar verndar. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar vekur athygli á þessu á vefsíðu sinni en þar segir ennfremur að þetta þýði að sækja þurfi um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórnar fyrir allri efnistöku annarri en til einkanota á viðkom- andi eignarlandi. Þar með eru taldar eldri námur, sem ekki eru með gilt framkvæmdaleyfi. Jafnframt er bent á það að efnistökusvæði skal ekki standa ónotað og ófrágengið lengur en þrjú ár. Þrátt fyrir ákvæðið um efnistöku til einkanota má enginn framkvæma neitt í eða við veiðivatn, allt að 100 m frá bakka, sem áhrif getur haft á fiskigengd þess, afkomu fiskstofna, aðstæður til veiði eða lífríki vatnsins að öðru leyti, án leyfis Fiskistofu. Nýtt aðalskipulag um efnistöku- svæði í Eyjafjarðarsveit tók gildi 25. ágúst 2011 og eru íbúar hvattir til að kynna sér það. Norðurlandamótið í hestaíþrótt- um verður haldið í Eskilstuna í Svíþjóð dagana 2. – 5. ágúst næst- komandi. Hafliði Halldórsson liðs- stjóri hefur ásamt landsliðsnefnd LH, Jóhanni R. Skúlasyni og Hugrúnu Jóhannsdóttir þjálfara, unnið hörðum höndum að undir- búningi liðsins sem nú er orðið fullmótað. Skipan liðsins var tilkynnt í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal mánudaginn 16. júlí. Liðið er skipað 10 fullorðnum knöpum og 8 ungmennum. Þetta eru ýmist gríðar- lega efnilegir knapar eða knapar í fremstu röð í keppnisheiminum í Íslandshestamennskunni. Flestir liðsmenn landsliðsins eru nú þegar haldnir utan til að þjálfa sína hesta en aðrir fara á næstu dögum. Það eru skemmtilegir tímar fram- undar og við hér heima munum fylgj- ast vel með okkar fólki etja kappi við sterka keppinauta okkar í Eskilstuna. LH minnir á að hægt verður að kaupa aðgang að beinni útsendingu frá mótinu dagana 4. - 5. ágúst á vefsíðunni www.nc2012.se. Norðurlandameistaramótið í hestaíþróttum í Eskilstuna í Svíþjóð: Landslið Íslands fullmótað Agnar Snorri Stefánsson Fengur fra Staagerup F1, T2, P1, P2, PP1 Denni Hauksson Divar från Lindnäs T1, F1, P2, PP1 Eyjólfur Þorsteinsson Losti frá Strandarhjáleigu T1, V1 Guðlaug Marín Guðnadóttir Toppur frá Skarði P1, P2 Hinrik Þór Sigurðsson Andvari från Stenlia T1, F1, P2, PP1 Jón Bjarni Smárason Gaukur frá Kílhrauni V1, T2 Reynir Örn Pálmason Tór frá Auðholtshjáleigu V1, T2 Snorri Dal Viktorius frá Höfn T1, V1 Viðar Ingólfsson Skvísa vom Hrafnsholt V1, T2 Þórður Þorgeirsson Týr frá Auðholtshjáleigu T1, V1 TIL VARA: Eyjólfur Þorsteinsson B-Moll frá Vindási T1, V1 Dagbjört Hjaltadóttir Reynir frá Hólshúsum T1, V1 Elín Rós Sverrisdóttir Hector från Sundsby T1, V1 Flosi Ólafsson Kveikur fra Lian T1, V1 Helena Kroghen Aðalsteinsdóttir Fiðla frá Þingeyrum F1, T2, P2, PP1 Kári Steinsson Spyrnir frá Grund 2 T1, V1 Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir Vordís frá Hofi 1 T1, V1 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Svaði frá Reykhólum T1, V1 Teitur Árnason Pá fra Eyfjord T1, F1, P1, P2, PP1 TIL VARA: Helena Kroghen Aðalsteinsdóttir Silfri frá Litlu-Sandvík T1, V1 Frá setningu Landsmóts hestamanna 2012 í Víðidal. Mynd / HKr. Þóra Katrín Kolbeins kom færandi hendi í hátíðarmessu í Torfastaðakirkju í Biskupstungum í Bláskógabyggð sunnudaginn 24. júní og færði kirkjunni altarisdúk sem hún hannaði og saumaði sjálf. Blaðið hafði samband við Þóru og spurði um aðdraganda málsins. „Sirrý á Vatnleysu [Sigríður Egilsdóttir] kom að máli við mig hvort ég gæti saumað altarisdúk í Torfastaðakirkju og auðvitað varð ég við því. Ég byrjaði að sauma eftir réttir í fyrra og kláraði dúkinn í lok apríl. Hann átti hug minn allan og sat ég löngum stundum við saumaskap. Þegar ég byrjaði að sauma langaði mig strax að sauma hann til minn- ingar um tengdaforeldra mína og hjónin í Fellskoti sem eru mér mjög kær. Ég orðaði þetta við manninn minn og honum fannst það alveg frá- bært. Þá var tilgangurinn svo ljúfur og kær með allar þessar minningar úr sveitinni. Athöfnin var alveg frábær, séra Egill gerði þetta svo flott og eftirminnilegan dag og ekki spillti gleðinni að Sigurður Erlendsson, bóndi á Vatnsleysu, spilaði á org- elið. Svo ákváðu barnabarnið mitt, Magnús Gunnar Erlendsson, og Fríða Hrönn Elmarsdóttir að láta skíra yngstu dóttur sína þennan dag og hún heitir Emilína Birna Magnúsdóttir. Það var falleg stund og ég hélt á henni undir skírn. Í lokin talaði Brynjar Sigurðsson á Heiði, formaður sóknarnefndar, falleg orð til mín og sóknarnefndin færði mér fallegan blómvönd, svo var öllum kirkjugestum boðið í Aratungu í súpu, brauð, kaffi og konfekt í boði Kirkjunnar en kökur á borðum voru frá Jónu Ólafsdóttur á Vatnsleysu. Þetta var yndislegur dagur og sól og gleði yfir öllu,“ sagði Þóra Katrín. /MHH Þóra Katrín Kolbeins við altarisdúkinn sem hún saumaði og gaf Torfastaða- kirkju. Þóra er gift Magnúsi Gunnari Erlendssyni frá Vatnsleysu og dvaldi mörg sumur í sveit í Fellskoti við gott atlæti. Tengdaforeldrar hennar voru Erlendur Björnsson og Kristín Sigurðardóttir í Vatnsleysu I og fólkið sem hún var í sveit hjá í Fellskoti voru þau Katrín Þorsteinsdóttir og Þórarinn Guðlaugsson. Hannaði og saumaði altarisdúk og gaf Torfastaðakirkju í Biskupstungum Í lok 2. ársfjórðungs í ár bjuggu rúmlega 7000 manns á Vestfjörðum, sem er fjölgun um tæplega 0,43% frá sama tíma fyrir ári. Þá fjölgaði íbúum fjórðungsins um fjörutíu frá 1. ársfjórðungi. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar var nokkuð jafnt skipt milli kynja, konur voru 3.425 og karlmenn 3.595. Erlendir ríkisborgarar voru 645 og fjölgaði um 35 frá sama tíma fyrir ári. Þá fjölgaði íbúum í Bolungarvík, Reykhólahreppi, Vesturbyggð, Árneshreppi og Strandabyggð milli ára samkvæmt Hagstofunni. Íbúum fækkaði hins vegar í Ísafjarðarbæ og Tálknafjarðarhreppi en íbúafjöldinn stóð í stað milli ára í Súðavíkurhreppi og Kaldrananeshreppi. Í Bolungarvík bjuggu 910 manns í lok 2. ársfjórðungs, 3.760 í Ísafjarðarbæ, 280 í Reykhólahreppi, 280 í Tálknafjarðarhreppi, 920 í Vesturbyggð, 190 í Súðavíkurhreppi, 60 í Árneshreppi, 100 í Kaldrananeshreppi og 520 í Strandabyggð. Vestfirðingum fjölgar Patreksfjörður Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.