Bændablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 2012 Bændablaðið á netinu... www.bbl.is Pálina Hjaltadóttir er fædd og uppalin á Bæ, Gunnar Dalkvist er frá Mýrartungu 1 í Reykhólasveit. Þau keyptu helminginn af for- eldrum Pálinu árið 2000 og þá 160 hausa. Þau tóku svo við seinni helmingnum árið 2005. Býli? Bær. Staðsett í sveit? Trékyllisvík. Ábúendur? Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Dalkvist, Aníta Mjöll Dalkvist, fædd 2006, Magnea Fönn Dalkvist, fædd 2008. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við fjögur, Guðbjörg Þorsteinsdóttir móðir Pálínu, tveir hundar; Elding og Bella. Stærð jarðar? Ræktað land um 40 hektarar, auk dals og hlíða. Tegund býlis? Sauðfé. Fjöldi búfjár og tegundir? Það var talið í vor; 700 hausar í húsum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Á sumrin vöknum við þegar við erum búin að sofa, förum og vinnum ýmislegt tilfallandi og skríðum svo í bælið þegar við verðum syfjuð. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Smalamennskur og sauðburður þegar vel gengur/sauðburður þegar illa gengur. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Það er spurning. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Fólkið sem er í forsvari fyrir bændur er að reyna að gera sitt besta. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Það er nú stóra spurningin. Vel, ef við segjum nei við ESB. Við tölum ekki um hinn kostinn. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Í lambakjötinu og mjólk- urafurðum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör og lýsi. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Fiskurinn og lamba- kjötið. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við keyptum féð frá Hafnardal. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Bær Heimasæturnar með uppáhaldshrútnum. Pálína og Gunnar með þær hér að ofan til hægri. Það er yndislegt á heitum sumardögum að búa sér til frískandi heilsudrykk til að sötra í góðra vina hópi á pallinum eða svölunum, nú eða í útilegunni. Hér er það hugmyndaflugið sem ræður og yfirleitt verður útkoman ljómandi góð. Grænn undradrykkur Fyrir 1 120 g spergilkál, ferskt eða frosið 30 myntublöð 1 epli, kjarnhreinsað 2 dl ferskur eplasafi 1 tsk. anísfræ eða lakkrísrótarduft Aðferð: Öllu skellt í blandara og látið ganga í nokkrar mínútur. (Úr smiðju Þorbjargar Hafsteinsdóttur). Heilsudrykkurinn Skarpi 1 papaya, (skerið í sundur, hreinsið fræin og afhýðið) 1/2 hunangsmelóna 1/2 glas vínberjasafi 1/4 glas trönuberjasafi Aðferð: Þeytið öllu vel saman. Ef þú vilt fá matarmeiri drykk þá bættu endilega saman við einni skeið af hreinu mysuprótíni. Þessi er góður fyrir meltingu og nýru. (Úr smiðju Lifandi markaðar). /ehg Undradrykkir til hressingar www.heimavik.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.