Bændablaðið - 26.07.2012, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 20122
Fréttir
Sækja þarf um styrk vegna gras-,
grænfóður- og kornræktar fyrir
10. september.
Reglur og umsóknareyðublað er
að finna á bondi.is. Hægt er að sækja
um rafrænt á Bændatorginu.
Styrkir til jarðræktar
árið 2012
Karl Pálmason, bóndi í
Kerlingardal austan Víkur í
Mýrdal, segir þurrka ekki hafa
orðið til vandræða í dalnum.
Miklir hitar að undanförnu hafi
hinsvegar leitt til gríðarlegrar
grassprettu. „Það eyðilagðist
ekkert af þurrki og sprettan er
svakaleg,“ sagði Karl.
Þegar blaðamaður Bænda-
blaðsins átti leið um þessar slóðir á
dögunum vöktu myndarlegir naut-
gripir á beit í grösugri heiðinni ofan
við bæinn athygli, því greinilega
var ekki um íslenskar kýr að ræða.
Þar voru kálfar óheftir á spena og
ljóst að þetta voru engar venjulegar
mjólkurkýr. Sagði Karl að nautgrip-
irnir væru holdablendingar.
„Uppistaðan er Galloway
en svo er búið að blanda í þetta
aðeins Angus og Limousine. Við
erum með um 100 nautgripi. Það
eru um 30 kýr sem bera og um 30
kálfar og eldri gripir. Við höfum
svo sem ekkert auglýst þetta sér-
staklega en mikil eftirspurn er eftir
kjötinu og greinilega skortur á góðu
nautakjöti á markaðnum. Annars
erum við aðallega með fjárbúskap
og með um 450 kindur,“ sagði Karl
Pálmason. /HKr.
Engin vandræði vegna þurrka í Kerlingardal
- Svakaleg spretta segir Karl Pálmason bóndi sem með 450 kinda bú og ræktar holdanautgripi
Þær eru stæðilegar blendingskýrnar í Kerlingardal sem aldar eru þar á bæ til kjötframleiðslu.
Myndir / HKr.
Geitum hefur fjölgað um tæp þrjú-
hundruð á landinu á síðustu fimm
árum og voru í fyrra ríflega átta-
hundruð talsins. Verulegar áhyggj-
ur voru af því að íslenski geita-
stofninn gæti hreinlega þurrkast
út en árið 1983 voru til að mynda
ekki nema 200 geitur í landinu.
Geitastofninn er nokkuð dreifður
um landið en þó er ekki ein einasta
geit á Vestfjörðum. Flestar eru
geiturnar á Vesturlandi, ríflega
300 talsins. Er líklegt að þar gæti
áhrifa frá Geitabúinu á Háafelli
í Hvítaársíðu en Geitfjársetur
Íslands opnaði einmitt formlega
þar síðasta laugardag.
Dræm sala veldur fjölgun hrossa
Þetta er meðal þess sem kemur fram
í búfjártölum Matvælastofnunar en
tölur síðasta árs voru birtar í síðasta
mánuði. Í tölunum má sjá að hrossum
fjölgar milli ára og voru á síðasta ári
78.277, ríflega þúsund fleiri en árið
2010. Sú tala rímar við það hversu
sala á hrossum úr landi eftir hrun
hefur verið dræm. Hins vegar verður
án efa athyglisvert að sjá fjölda
hrossa í tölum fyrir yfirstandandi ár
þar eð vitað er að óvenju miklum
fjölda hefur verið slátrað á þessu ári.
Ástæður þess hafa bæði verið dræm
sala og einnig minni heyfengur víða
um land í fyrra. Langflest hross eru
á Suðurlandi, ríflega 28.000.
Fé fækkar eftir fjölgun
Sauðfé fækkar hins vegar um tæp
5.000 milli ára en í fyrra voru tæp
475.000 fjár í landinu. Leiða má
líkum að því að erfiðleikar við
heyöflun í fyrra hafi haft eitthvað
að gera með þá fækkun en til saman-
burðar má nefna að milli áranna 2009
og 2010 fjölgaði sauðfé í landinu um
10.000. Þrátt fyrir fækkunina nú er
20.000 fleira fjár í landinu nú en var
fyrir fimm árum síðan. Hins vegar er
sauðfé nú fast að helmingi færra en
þegar flest var árið 1978 en þá var
sauðfé í landinu rúmlega 891.000.
Flest fé er nú á Norðurlandi-Vestra,
rúm 107.000.
Flestar kýr á Suðurlandi
Um eitt þúsund færri nautgripir voru í
landinu í fyrra en árið 2010. Á síðasta
ári voru 72.773 nautgripir í landinu.
Þar af voru ríflega 26.000 mjólkur-
kýr og tæplega 19.000 geldneyti.
Holdakýr voru hér ríflega 1.000 á
síðasta ári. Langflestar mjólkurkýr
voru á Suðurlandi, tæplega 10.000.
Á síðasta aldarfjórðungi hefur mjólk-
urkúm í landinu fækkað um ríflega
7.000 talsins. Hins vegar hefur naut-
gripum í heild sinni fjölgað á sama
tíma um hátt í 3.000.
Tæplega 200 kanínur í landinu
Á síðasta ári voru tæplega 35.000
minkar í landinu, um 1.500 færri
en árið áður. Flestir urðu þeir árið
1988, ríflega 86.000 talsins. Þá eru
haldnir 2 refir sem húsdýr á land-
inu. Árið 2007 voru þeir 93 en árið
2008 ekki nema 5. Skýringin er sú
að seinasta refabú landsins lokaði á
þessu tímabili en flestir urðu refir í
landinu 21.480 árið 1986. Þá voru
193 kanínur í landinu á síðasta ári.
Efnahagshrunið fækkaði svínum
Fjöldi svína stendur nokkurn veg-
inn í stað milli ára og töldust svín
í landinu vera 3.619 í fyrra. Hefur
þeim fækkað nokkuð frá efnahags-
hruni en árið 2008 voru 4.265 svín í
landinu.
/fr
Búfjártölur Matvælastofnunar - Sauðfé um helmingi færra en þegar mest var:
Geitum fjölgar hægt en örugglega
Upprekstri sauðfjár á
Almenninga mótmælt
Skógrækt ríkisins er mótfallin
flutningi sauðfjár inn á svæði
í næsta nágrenni Þórsmerkur.
Þaðan geti fé farið óheft inn í
Mörkina en beit er talin geta skað-
að margra áratuga uppgræðslu á
svæðinu.
RÚV greindi frá því á þriðjudag
að Sveitarstjórn Rangárþings Eystra
hafi heimilað afréttarfélagi Vestur-
Eyfellinga upprekstur sauðfjár á
Almenninga sem er afréttur norðan
Þórsmerkur. Afréttarsvæðið hefur
nú um nokkurra ára skeið verið
friðað fyrir beit en 2009 tóku hand-
hafar afréttareignar á landssvæði
Almenninga að óska eftir að fá að
nýta eign sína.
Fram kemur í fréttinni að skóg-
ræktarmenn á Suðurlandi séu ósáttir
við niðurstöðuna, en í úrskurði
sveitarstjórnar er umsjónarmönnum
Þórsmerkur enginn frestur gefinn til
að girða Mörkina af.
Þá mótmælir Skógrækt ríkis-
ins harðlega upprekstri sauðfjár á
Almenninga. Skógræktin telur skyn-
samlegra fyrir upprekstrarhafa að
halda áfram uppgræðslu landsins
og beitarfriðun þar til það er skógi
vaxið.
Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri sagði í samtali við RÚV að
sú ákvörðun tveggja fjáreigenda
að senda nokkra tugi sauðfjár á
Almenninga í nágrenni Þórsmerkur
sé óumdeilanlegt brot á fjallskila-
samþykkt Rangárvallasýslu, og sé
í bága við nýja samþykkt sveitar-
stjórnar um upprekstur.
Meðal fjölmargra uppgræðslu-
verkefna Landgræðslunnar sum-
arið 2012 er samstarfsverkefni
hennar með Vegagerðinni um
heftingu sandfoks í nágrenni brúa
á Suðurlandi, þ.e. frá Markarfljóti
austur að Bakkakotsá. Unnið hefur
verið að verkum sem þessum í ára-
raðir, t.d. við Markarfljót, en mark-
mið þeirra er að koma í veg fyrir
sandfok og myndun sandskafla á
þjóðveginum. Eðli málsins sam-
kvæmt er oft talsvert af lausu efni
í nágrenni árfarvega. Í kjölfar eld-
goss í Eyjafjallajökli ágerðist þessi
vandi þar sem mikið af gosefnum
barst niður árnar með tilheyrandi
uppsöfnun á efni við brýrnar eða
skemmdum á farvegum. Þær voru
lagfærðar með uppgreftri eða með
gerð nýrra varnargarða. Mikil hætta
var á að þetta efni myndi spilla færð
á þjóðveginum þegar vind hreyfði og
því var gripið til þess ráðs að græða
upp svæði. Þetta þykir hafa heppnast
vel og hefur aukið umferðaröryggi
á vegum úti.
Uppgræðsla
heftir sandfok
Gróðurþekjan kemur í veg fyrir
sandfok við þjóðveginn. Meðfylg-
jandi mynd er af uppgræðslu frá
fór vegurinn í sundur í kjölfar hlaups
Mynd / Jóhann Þórsson