Bændablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 20124
Fréttir
Víða sviðin jörð eftir langvarandi þurrka - bændur fagna rigningu síðustu daga:
Ástandið miklu verra
en í fjöldamörg ár
- segir Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp
Þó farið hafi að rigna á landinu
um síðustu helgi hefur stans-
laus þurrkatíð mestallan júní og
júlí gert bændum víða um land
erfitt fyrir. Þar sem verst er hafa
tún brunið illa og grasspretta
er lítil sem engin. Staðan hjá
Rögnu Aðalsteinsdóttur, bónda á
Laugabóli við Ísafjarðardjúp, er
þar engin undantekning. Þegar tíð-
indamaður Bændablaðsins var þar
í heimsókn 11. júlí var fátt annað
að sjá en sviðin tún af sólbruna.
„Veðurfarið er alltaf að færast
meira í það horf að hitinn verður
svo mikill að maður hreinlega þolir
hann ekki,“ segir Ragna. „Hér í
Laugardalnum er búið að vera í
langan tíma blankandi logn á daginn
og steikjandi hiti en kannski svolítill
andvari með kvöldinu. Ástandið er
miklu verra núna en hefur verið í
fjöldamörg ár.“
Slær ekki fyrr en einhverntíma
í ágúst
„Ég reikna ekki með að slá hér neitt
fyrr en einhverntíma í ágúst, það er
ekkert gras á túnunum. Aðalsteinn
á Strandseljum fékk t.d. ekki nema
eina rúllu af túni hér niður við sjóinn
þar sem hann fékk 30 í fyrra. Þar
er algjör auðn.“ Finnst Rögnu því
blóðugt að hafa eytt miklu fé í kaup
á áburði sem ekki hafi orðið til neins
gagns á túnunum.
Í fyrra var fyrrihluti sumars líka
mjög þurr en svo rættist aðeins úr.
Ragna gat því náð nægum heyjum
fyrir það fé sem sett var á síðastliðinn
vetur og gott betur. Gat hún m.a. selt
nokkrar heyrúllur í Súgandafjörð
fyrir nautgripi í vor.
Er nú með rúmar hundrað kindur
og einn kött
„Núna er þetta hinsvegar ömurlegt.
Maður sér túnin brenna og sama
veðri er spáð næstu daga og jafn-
vel vikur.
Ég er svo sem ekki með margt fé
núna, rúmar hundrað kindur og svo
einn kött,“ segir Ragna. Hún hefur
oft hefur verið með umfangsmeiri
búskap og þá bæði með kindur og
kýr.
„Ég var mest með 324 kindur en
sá fljótlega að það er ekki fjöldinn
sem gildir heldur afkoman eftir
hverja kind. Hér áður fyrr var staðið
yfir fénu og passað upp á að það
hefði næga beit. Nokkrum sinnum
var meira að segja farið með þær
yfir á Hjarðardal við Þernuvík til að
þær hefðu nóg að bíta. Núna er þetta
aflagt.“
Fólk á að fara vel með dýrin sín
Ragna er óhress með fregnir af
fólki sem hugsar illa um dýrin sín
og passar ekki nægilega vel upp á
að þau hafi nægt fóður.
„Mér finnst hrikalegt að það skuli
vera til níðingar eins og fregnir hafa
verið af nýverið, sem fara illa með
dýr. Það er skelfilegt. Það hafa verið
að birtast myndir af grindhoruðum
hrossum sem menn hafa ekkert með
að gera. Þá finnast mér það engir
mannasiðir að hafa kýr lokaðar
inni í húsum allt árið um kring og
jafnvel í steikjandi hitum á sumrin.
Víða er ljót meðferð á dýrum, jafn-
vel á hundum í Reykjavík eins og
komið hefur fram í fréttum. Ég sendi
Dýraverndarfélaginu 20 spurningar
um slík mál en þeir eru ekki farnir
að svara ennþá.“
Matvælaöryggið vanmetið
Ragna er heldur ekki hrifin af núver-
andi ríkisstjórn og á um hana mörg
lýsingarorð sem vart eru prenthæf.
„Ég veit ekki hvað þetta fólk er að
hugsa sem nú stjórnar þessu landi. Ég
skil heldur ekki á hverju fólk ætlar
að lifa í framtíðinni ef á að flytja
inn öll matvæli. Það er ekki allt fínt
sem kemur frá útlöndum, það hef ég
séð sjálf á mínum ferðalögum víða
um lönd. Ég held líka að fólk viti
afskaplega lítið hvað það er í raun
að kaupa.“
Hún telur líka varhugavert hversu
lítið sé hugsað um mikilvægi þess
að eigin landbúnaðarframleiðsla
og fiskveiðar Íslendinga skapi mat-
vælaöryggi ef einhver óáran kemur
upp erlendis, eins og ítrekað hafi
gerst á síðustu öld.
Settist að á Laugabóli árið 1958
Ragna settist að á Laugabóli við
Ísafjarðardúp árið 1958 með einn son
en hafði þá áður verið þar á sumrin í
mörg ár. Hún er nú 87 ára gömul en
ótrúlega hress þó hún þurfi að treysta
á hækju eftir erfið fótbrot í tvígang.
Örlögin hafa reyndar verið Rögnu
afar óblíð í gegnum tíðina og hvert
áfallið af öðru dunið yfir hennar fjöl-
skyldu.
„Ég er samt hér ennþá - og öllum
til leiðinda,“ segir Ragna og hlær.
„Ég held svo bara áfram að rífast um
tófuna við sveitarstjórann í Súðavík
og alla aðra sem að málinu koma.“
/HKr.
Helgina 10.–12. ágúst næstkom-
andi verður sannkölluð skemmti-
helgi þar sem Samtök ungra
bænda og Félag ungra bænda
á Norðurlandi standa saman að
miklu húllumhæi í Eyjafjarðarsveit
í kringum keppnina Ungi bóndi
ársins 2012. Keppnin í ár verður
haldin laugardaginn 11. ágúst á
sameiginlegri Handverkshátíð
og Landbúnaðarsýningu við
Hrafnagilsskóla.
Fleira er þó ætlunin að gera til
að helgin verði skemmtileg á allan
hátt og má meðal annars nefna „Pub
quiz“ sem haldið verður föstudags-
kvöldið 10. ágúst kl. 21 á Kaffi kú.
Spurningarhöfundur og spyrill er
enginn annar en Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir. Veglegir vinningar
verða í boði og öllum er frjáls þátt-
taka.
Á laugardeginum munu ungir
bændur frá öllum landshlutum hefja
keppni kl. 14 um þann merka titil
Ungi bóndi ársins og er þar keppt um
Jötun Véla-bikarinn. Keppnin sam-
anstendur af fjölmörgum skemmti-
legum þrautum sem fela í sér öll
hefðbundin störf nútímabónda og
m.a. verður keppt í bændaboðhlaupi
og rjómaþeytingi.
Ekki verður sunnudagurinn síðri
því þá koma allra yngstu bændurnir
og sýna kálfa og hefst sýningin kl.
13. Krakkar 14 ára og yngri keppa
um fallegasta kálfinn, best tamda
kálfinn og sá kálfur sem hæst skor-
ar fyrir alla eiginleika fær titilinn
Gullkálfurinn 2012. Keppendur í
kálfakeppnina má skrá í tölvupósti
á netfangið nem.saramaria@lbhi.is
eða í síma 846-9024. Eftirfarandi
upplýsingar þurfa að fylgja við
skráningu: Fullt nafn keppanda og
heimilisfang, nafn, númer og ætt-
erni kálfs (nöfn á föður og móður).
Eftir kálfasýninguna keppir svo
Steingrímur Eyjólfsson við Birgi
Arason í rúningi en Birgir er rún-
ingsmeistari frá því í fyrra og mun
rúningskeppnin hefjast kl. 14.
Eins og sést er dagskráin þétt
og margt um að vera á þess-
ari sameiginlegu Handverks- og
Landbúnaðarsýningu og ætti enginn
að missa af þessu. Hægt er að skoða
dagskrá hátíðarinnar á heimasíðunni
www.handverkshatid.is.
Laugaból um miðjan júní. Sviðin jörð og engin spretta á heimatúninu frekar en öðrum túnum á bænum. Myndir HKr.
Ragna Aðalsteinsdóttir, 87 ára bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp, er
Húllumhæ hjá ungbændum á Norðurlandi 10.–12. ágúst:
Keppa í bændaboðhlaupi
og rjómaþeytingi
Skilaboð bænda til vegfarenda sem leið eiga um Hornafjörð fara ekkert á
skammt frá þjóðveginum. Svipuð sjón blasir við víðar um sveitir á Austur-
landi, Norðurlandi og víðar. Mynd / HKr.
Fyrstu göngur í Eyjafjarðarsveit
verða 1. og 2. september
Ákveðið var á fundi fjallskila-
nefndar nýverið að fyrstu göngur
í Eyjafjarðarsveit verði 1. og
2. september frá Fiskilæk að
Möðruvallafjalli.
Annars staðar í sveitarfélaginu
verða göngur 8. og 9. september.
Norðan Fiskilækjar verður þó smalað
um leið og heimalönd í Fnjóskadal.
Aðrar göngur verða hálfum mán-
uði síðar. Ákveðið var einnig að
hrossasmölun verði 12. október og
hrossaréttir 13. október.
Nýtt deiliskipulag ISAVIA við
Egilsstaðaflugvöll var til umfjöll-
unar á fundi skipulags- og bygg-
inganefndar Fljótsdalshéraðs
nýlega, en umræðu frestað þar sem
umsagnir frá opinberum aðilum
sem um málið þurfa að fjalla hafa
ekki borist.
Meðal gagna í málinu var undir-
skriftalisti á þriðja hundrað íbúa, sem
Broddi Bjarnason talsmaður hópsins
afhenti bæjarstjóra nýlega. Þar er
skorað á ISAVIA og skipulagsyfirvöld
að gera ráð fyrir gönguleið umhverfis
flugvöllinn í deiliskipulaginu. Þá
þyrfti reyndar líka að koma til breyt-
ing á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Sömuleiðis þarf að skoða allar örygg-
iskröfur og fá heimild landeiganda.
Að því frágengnu væri síðan
mögulegt að gera þarna greiðfæra
gönguleið og jafnvel að leggja sér-
stakan göngustíg umhverfis afgirta
svæðið. Með gönguleiðinni opnast
möguleiki fyrir útivistarfólk til
að fylgjast með margbreytilegu
flugi flugvéla og fugla á og við
Egilsstaðaflugvöll.
Vilja gönguleið umhverfis
Egilsstaðaflugvöll