Bændablaðið - 26.07.2012, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 20126
LOKAORÐIN
„Ég er bóndi og allt mitt á undir sól og regni“
Málgagn bænda og landsbyggðar
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.600 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.300.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
LEIÐARINN
Það hefur verið afar ánægjulegt
að fylgjast með þeirri miklu upp-
byggingu sem átt hefur sér stað í
ferðaþjónustu í sveitum landsins.
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan
leitun var að bændagistingu svo
ekki sé minnst á ferðaþjónustu
í sveitum. Nú er öldin önnur og
ekki þarf að aka langt til að sjá
skilti við vegkantinn sem vísar
á gistingu, veitingar og oftar en
ekki margvíslega afþreyingu fyrir
ferðamenn.
Erlendir ferðamenn hafa mjög
dásamað að geta fengið að sjá hvað
íslenskir bændur eru að gera í sínu
daglega lífi og fá þannig innsýn í
íslenska sveitamenningu. Það er
samt ekki svo að hægt sé að bjóða
erlendum eða íslenskum ferða-
mönnum upp á hvað sem er. Sannast
þar máltækið „glöggt er gests auga“.
Frá Olympíuleikaborginni
London berast nú þær fréttir að
þarlendir gistihúsa og veitinga-
staðaeigendur hafi ætlað að græða
vel á Olympíuleikunum og hafi því
skrúfað upp verðlagning á gistingu
og þjónustu. Nú blasa hinsvegar við
þeim endalausar afbókanir því gest-
um blöskraði verðlagið. Þó þarna sé
um erlent dæmi að ræða ættum við
Íslendingar að líta okkur nær.
Kanadísk fjölskylda sem verið
hefur á ferð um Vesturland, Vestfirði,
Norðurland og Suðurland síðastlið-
inn hálfan mánuð segir ekki allar
sínar farir sléttar og felldar.
Víst var fólkið afar hrifið af
landinu og sagði að þjónusta bæði
í sveitum og í þéttbýli væri víða til
fyrirmyndar. Það sem stuðaði þetta
fólk þó mjög var að allt of víða mætti
því þumbaraháttur þjónustufólks
og verðlag sem var ekki í nokkru
samræmi við veitingarnar og suma
gististaðina sem dvalið var á. Sögðu
þau að víða væru gestir krafðir um
tvöfalt hærra gjald en þau þekktu
frá sínu heimalandi þrátt fyrir lágt
gengi íslensku krónunnar. Töldu þau
þetta vera afar neikvæða auglýsingu
fyrir landið.
Nefndu þau einnig dæmi af
bankastjóra sem þau könnuðust við
í Skotlandi sem hafði áhuga á að
fara til Íslands. Það hafi hinsvegar
komið babb í bátinn þegar banka-
stjórinn kannaði kostnaðinn. Flug,
gisting í fjórar nætur og fæði kostaði
jafn mikið fyrir hann og fjölskyld-
una eins og hálfsmánaðar ferð til
Thailands með fullu fæði og hætti
hann því snarlega við Íslandsferðina.
Í ljósi þessa væri kannski rétt
hjá íslenskum ferðaþjónustuaðilum
að staldra aðeins við svo þeir þurfi
ekki að upplifa skelfingu hótel- og
veitingamanna í London. /HKr
Þessi orð skáldsins eiga einstak-
lega vel við í dag. Nú sem áður
hefur það sannast að bændur eiga
afkomu sína undir veðurfarinu.
Í fréttum hafa komið fram upp-
lýsingar um mikla og langvarandi
þurrka og grasbrest. Ljóst er að
heyfengur verður mun minni hjá
mörgum bændum en þeir höfðu
væntingar um. Þurrkar hafa
einnig haft áhrif á beitarhaga og
valdið vatnsskorti, hvort sem er
til brynningar búfjár eða búrekst-
urs. Þurrkar hafa ekki síður áhrif
á gæði gróðursins. Hey getur verið
kraftminna fóður, líkt og beit á
landi sem ofþornar.
Ekki er mögulegt að gera grein
fyrir heildartjóni eða tjóni einstakra
bænda á þessari stundu en þegar
hefur verið undirbúin sérstök vöktun
á ástandinu.
Margir samverkandi þættir
Víst hefur áður árað illa á Íslandi og
tíðarfar verið erfitt en nú virðast all-
margir samverkandi þættir hafa gert
málin erfiðari en ella. Gríðarlegar
hækkanir á almennum aðföngum
búskapar hafa leitt til þess að styrkur
búanna til að mæta áföllum er minni
en áður. Ekki þarf að fjölyrða um
efnahagsástand sem snertir bændur
ekki síður en aðra.
Færri og stærri bú leiða af sér
nýjar aðstæður sem ekki væru til
staðar ef búin væru fleiri og minni.
Því er oft mikið undir á stórum
búum þegar illa horfir með heyfeng.
Eitt af þeim bjargráðum sem
oft hefur þurft að grípa til er ein-
faldlega meiri notkun á kjarnfóðri,
sem að stórum hluta er innflutt.
Af hag erlendra bænda berast líka
ógnvænlegar fréttir, m.a. af gríðar-
legum uppskerubresti á korni í
Bandaríkjunum. Hækkandi verð á
kornmörkuðum sýnir að stefnir í
hamfarir.
Árið 2008 var um að ræða miklar
verðhækkanir á mat á heimsvísu.
Þá hækkaði verð á kornmörkuðum
verulega. Við slíkar aðstæður er ekki
fýsilegt að bregðast við heyskorti
með innkaupum á kjarnfóðri.
Sífellt minnkandi birgðir af korni
á heimsvísu gera markaði sérstak-
lega viðkvæma, enda virðast slíkar
breytingar eða sveiflur helst hitta
okkur hér á landi fyrir með því að
innflutt matvæli hækka í verði til
neytenda. Þeim hækkunum virðist
hafa verið auðvelt að koma fram
í hækkandi matvælaverði, en inn-
lend framleiðsla nær samt ekki
að rétta sinn hlut á sama hátt.
Efnahagskreppan í heiminum veldur
hins vegar samdrætti í neyslu sem
heldur talsvert aftur af verðhækk-
unum á heimsvísu.
Innlend kornrækt hjálpar til
Búgreinar, þar sem helstu aðföngin
eru kornvara, horfa fram á verulega
íþyngjandi kostnað. Aukin kornrækt
hér á landi mun þó hjálpa umtalsvert
til. Þá ríður á að uppskera í haust
lukkist vel og þroski kornsins verði
sem bestur.
Þrátt fyrir erfiðleika og þurrka
er samt enn ekki ástæða til að ætla
annað en að heyfengur verði í heild-
ina nægur í haust. Enn er sumar og
sprettutíminn ekki búinn.
Það er áhættuspil að veðja á
markaðinn
Í ástandi sem þessu kristallast hvers
vegna þjóðir verja sinn landbúnað –
vernda hann og styðja. Til að gæta
hagsmuna sinna. Búvörur á heims-
markaði eru aðeins brotabrot af mat-
arframleiðslunni. Þjóðir, sem ætla
að eiga alla framfærslu sína undir
duttlungum markaðarins, taka þátt í
áhættusömum leik sem líkja má við
fjárhættuspil. Í slíkum spilum er líka
hægt að tapa.
Hefðum við þolað 60% hækkun
á mat einn daginn hér á hrunári?
Myndum við þola 100% hækkun
á matvælum á næsta ári vegna
afleiðinga uppskerubrests á korni?
Það er mikilvægt að allir þessi hlutir
séu settir í samhengi. Þess vegna er
fréttin um sölnuð tún af þurrki slæm
frétt fyrir neytendur og alla bændur,
á sama hátt og fréttin um kornbrest í
Bandaríkjunum er grafalvarleg. Um
afleiðingar þessa þarf hins vegar að
ræða af yfirvegun og án upphlaupa.
Þegar allt kemur til alls eru það
sólin og regnið sem ráða mestu í
afkomu bænda um heim allan og
snerta um leið hag allra íbúa jarðar.
/HB
Glöggt er gests augað
Bær júlímánaðar hjá Ferðaþjónustu
bænda er Bjarteyjarsandur á
Hvalfjarðarströnd. Bjarteyjar-
sandur er skemmtilegur staður
fyrir alla fjölskylduna þar sem
boðið er upp á fjölbreytta afþrey-
ingu árið um kring og áhersla lögð
á mat beint frá býli og heimilislegt
andrúmsloft.
Bjarteyjarsandur er bær þar sem
sauðfjárrækt og ferðaþjónusta eru
tvinnuð saman með ýmsum hætti,
með hugmyndafræði sjálfbærrar
þróunar að leiðarljósi. Gisting er í
vel útbúnum sumarhúsum og á tjald-
svæði.
Samkvæmt viðskiptavinum og
starfsfólki Ferðaþjónustu bænda
veita gestgjafarnir á Bjarteyjarsandi
einstaklega hlýja og persónulega
þjónustu og eru til fyrirmyndar í
umhverfismálum og þróun nýrra
afþreyingarmöguleika.
Á Bjarteyjarsandi er opið allt
árið og er gestum boðið að taka
þátt í hefðbundnum störfum á sauð-
fjárbúi. „Smalamennska og réttir eru
skemmtilegur árstími og mörgum
finnst ómissandi að taka þátt í þessum
haustfagnaði með okkur. Rúningur,
hrútaskoðanir, tilhleypingar og
sónarskoðun (fósturvísatalning) auk
annarra starfa, svosem kræklinga-
tínslu, eru meðal þeirra verka sem
við bjóðum gestum að taka þátt í,“
segir Arnheiður Hjörleifsdóttir, bóndi
á Bjarteyjarsandi.
Bjarteyjarsandur er vinsæll hjá
barnafólki en dýralífið á bænum
er mjög fjölbreytt. Hvalfjörðurinn
býður einnig upp á margvíslega
útivistarmöguleika, s.s. gönguferð-
ir, hjólreiðar og sjósund. Tónlist
og aðrir menningarviðburðir eru
líka orðnir hluti af upplifuninni
á Bjarteyjarsandi: „Hingað hafa
komið í heimsókn landsfrægir tón-
listarmenn og rithöfundar en við
tökum líka stundum upp á því sjálf
að syngja og spila fyrir gesti, jafnvel
á ýmsum tungumálum og það vekur
oft áhuga og ánægju meðal gesta,“
segir Arnheiður.
Þá taka gestgjafar á Bjarteyjar-
sandi vel á móti hópum í mat í
Hlöðuna, sem var nýlega stækkuð.
Matseðillinn er byggður á því hráefni
sem er á bænum, meðal annars þurrk-
að og grafið ærkjöt og lambakjöt,
Botnsheiðarbláberjalæri, fjallafillet,
lamborgarar, sveitakæfa, ýmiss konar
kryddmauk, fíflahunang, haugarfa-
pestó og margt fleira.
Nánari upplýsingar um bæ mán-
aðarins má finna hér: http://www.
sveit.is/baeir/baer_manadarins
Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd
–Skemmtilegur staður fyrir alla fjölskylduna
BÆR MÁNAÐARINS – JÚLÍ 2012
Gestgjafar á Bjarteyjarsandi Gudmundur og Arnheidur.