Bændablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 201210
Fréttir
Sumarstemning á Íslandsmóti í hestaíþróttum
Hér verður ekki komist hjá
því að gagnrýna Steingrím
J. Sigfússon sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra alvar-
lega fyrir reglugerð sem heimil-
ar ferðamönnum að koma með
til landsins osta unna úr ógeril-
sneyddri mjólk í Frakklandi.
Gerilsneyðing mjólkur á sér
langa sögu bæði hérlendis og
erlendis og snýr að lýðheilsu
fólks. Ríkissjónvarpið hefur
nýlega sýnt mynd um afrek
franska prófessorsins Louis
Pasteur sem fann upp gerilsneyð-
ingu mjólkur og matvæla og er
talinn einn fremsti afreksmaður
vísinda sem snúa að lýðheilsu.
Hann fann ennfremur upp lyf
gegn hundaæði.
Landbúnaðarráðherra gerir
reglugerðarbreytingu við lög um
varnir gegn því að dýrasjúkdómar
og sýktar afurðir berist til lands-
ins hinn 23. maí s.l. Það er fyrst
nú í júlí að málið kemst í fréttir.
Íslenskum kúabændum er heimilt
að drekka ógerilsneydda mjólk
heima á bæ en það er lögbrot
að viðlögðum sektum að selja
ógerilsneydda íslenska mjólk
eða vörur framleiddar úr henni.
Franskir bændur rétthærri
Nú má bera hina frönsku osta inn
í landið með lifandi bakteríum.
Franskir bændur eru rétthærri
í íslenskri lögsögu en okkar
bændur. Það er ekki „landbúnað-
armafían“, eins og ESB-sinnarnir
segja gjarnan, sem hafa komið
þessu banni í gegnum löggjöfina,
það voru færustu vísindamenn
og mannalæknar sem lögðu það
til fyrir löngu síðan til að fara að
ráðum Louis Pasteur og verjast
einum illvígasta sjúkdómi þess
tíma, berklunum. Nú mega hinir
og þessir ferðamenn bera með
sér ost úr ógerilsneyddri mjólk til
landsins og þær fréttir berast úr
landbúnaðarráðuneytinu að þetta
sé gert til að auðvelda störf toll-
varða í Keflavík.
Látum við fíkniefnin óáreitt,
eða hvað?
Ég varð því ekki hissa þegar
hinn snjalli fréttamaður Íslands,
Gísli Einarsson í Borgarnesi,
spurði hvort ekki væri þá líka
rétt að „hætta að leita að eitur-
lyfjum til að auðvelda störf
tollvarðanna“. Samtök afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði (SAM)
hafa nú skrifað ráðherra bréf
og óskað eftir því að fá afrit af
greinargerð, gögnum og tillögum
Matvælastofnunar (MAST), þar
með yfirdýralæknis, um við-
komandi innflutningsheimild.
Samtökin óska enn fremur eftir
upplýsingum um hvort gerð hafi
verið áhættugreining (áhættumat,
áhættustjórnun, áhættukynning)
vegna ákvörðunar um að breyta
áður gildandi innflutningsbanni
á ógerilsneyddum mjólkur-
afurðum.
Kúariða, gin- og klaufaveiki
og hundaæði?
Öll bönn eru erfið og þau eru
sett af illri nauðsyn. Í ESB eru til
hundrað dýrasjúkdómar meðan
við eigum örfáa og höfum varist
þeim með kjafti og klóm. Við
eigum heilbrigða dýrastofna og
heilnæm matvæli og engin önnur
þjóð gengur jafn örugg að mat-
borði sínu og við.
Hvenær falla svona múrar,
ekki síst þegar verið er að bora
á þá göt? Hvað gæti gerst hér í
framhaldinu? Gin- og klaufaveiki
barst með spægipylsu ferða-
manns til Hollands. Kúariðan er
til staðar um alla Evrópu, hunda-
æðið er enn að skjóta upp koll-
inum þar. Innflutningur á lifandi
dýrum og því miður matvælum
er dauðans alvara, Steingrímur
J. Sigfússon, það veist þú sem
jarðfræðingur og sveitamaður.
Og grátkórinn hefur ekki þakkað
þér þennan glannaskap, hann
hrópar þegar á meiri opnun og
meiri áhættu og notar fegursta
orðið, FRELSI, í því sambandi.
Gerilsneyðingin var frelsi
og lífsbjörg milljóna manna.
Bönnin voru sett í öndverðu af
illri nauðsyn til að verja heilsu
manna og dýra.
Guðni Ágústsson framkvæmdastjóri SAM skrifar:
Innleiðing gerilsneyðingar
bjargaði milljónum manna
Íslandsmótið í hestaíþróttum fór
fram á Vindheimamelum um síð-
ustu helgi í frámuna veðurblíðu.
Hestakostur þótti mjög góður og
keppni hörð.
Helstu sigurvegarar mótsins hljóta
að teljast Jakob Svavar Sigurðsson
og Alur frá Lundum II og Viðar
Ingólfsson og Már frá Feti. Jakob og
Alur sigruðu í fimmgangi og einnig í
slaktaumatölti. Viðar og Már, sigruðu
í gæðingaskeiðinu og urðu þriðju í
fimmganginum, sem dugði þeim til
sigurs í samanlögðu í fimmgangs-
greinum. Þá náði Árni Björn Pálsson
á Stormi frá Herríðarhóli þeim magn-
aða árangri að sigra í tölti en hann
komst inn í A-úrslitin úr B-úrslitum.
Snurðulaust mótshald
Mótið gekk vel fyrir sig að sögn
Eyþórs Einarssonar, framkvæmda-
stjóra þess. Dagskrá gekk snurðu-
laust og stemningin var góð í brekk-
unni. Góð mæting var á mótið á loka-
deginum, sunnudegi, en í heildina
höfðu mótshaldarar vonast eftir
fleiri gestum. Trúlega hefur slæm
veðurspá haft mikið að segja um
mætingu en vitað er að fólk hætti við
að koma vegna spárinnar. Hins vegar
rættist ekki úr henni eins og áður
segir og nutu keppendur og gestir
einmuna veðurblíðu á mótinu. Þá
segir Eyþór að þrátt fyrir að ýmsir
hafi hætt við að koma á svæðið hafi
fjöldi áhorfenda verið svipaður og á
síðustu mótum.
Fjöldi þátttakenda var heldur
meiri í ár heldur en á síðasta ári þegar
mótið var haldið á Selfossi. Um 160
hestar tóku þátt í mótinu nú, margir
í fleiri en einni grein en skráningar
til keppni voru 229.
Hér að neðan má sjá helstu úrslit
Íslandsmótsins.
Úrslit í fimmgangi:
1. Jakob Svavar Sigurðsson
Alur frá Lundum II – 7,76
2. Haukur Baldvinsson
Falur frá Þingeyrum – 7,55
3. Viðar Ingólfsson
Már frá Feti – 7,45
Úrslit í fjórgangi:
1. Guðmundur Björgvinsson
Hrímnir frá Ósi – 7,83
2. Hekla Katharína
Kristinsdóttir
Vígar frá Skarði – 7,73
3. Eyjólfur Þorsteinsson
Hlekkur frá Þingnesi – 7,57
Úrslit í tölti:
1. Árni Björn Pálsson
Stormur frá Herríðarhóli – 8,83
2. Hinrik Bragason
Smyrill frá Hrísum – 8,50
3. Sigurbjörn Bárðarson
Jarl frá Mið-Fossum – 8,44
Úrslit í slaktaumatölti:
1. Jakob Svavar Sigurðsson
Alur frá Lundum II – 8,58
2. Valdimar Bergstað
Týr frá Litla-Dal – 7,92
3. Árni Björn Pálsson
Hrannar frá Skyggni – 7,63
Úrslit í gæðingaskeiði:
1. Viðar Ingólfsson
Már frá Feti – 8,08
2. Sigurbjörn Bárðarson
Flosi frá Keldudal – 8,00
3. Haukur Baldvinsson
Falur frá Þingeyrum – 7,96
Úrslit í 100 metra skeiði:
1. Þórarinn Eymundsson
Bragur frá Bjarnastöðum – 7,58
sekúndur
2. Daníel Ingi Smárason
Hörður frá Reykjavík – 7,62
sekúndur
3. Sigurbjörn Bárðarson
Andri frá Lynghaga – 7,65 sek-
úndur
Úrslit í 150 metra skeiði:
1. Sigurbjörn Bárðarson
Óðinn frá Búðardal – 14,01 sek-
úndur
2. Elvar Einarsson
Hrappur frá Sauðárkróki –
14,76 sekúndur
3. Eyjólfur Þorsteinsson
Vera frá Þóroddsstöðum – 14,79
sekúndur
Úrslit í 250 metra skeiði:
1. Daníel Ingi Smárason
Blængur frá Árbæjarhjáleigu –
22,34 sekúndur
2. Sigurbjörn Bárðarson
Flosi frá Keldudal – 23,01 sek-
úndur
3. Guðmundur Björgvinsson
Gjálp frá Ytra-Dalsgerði –
23,10 sekúndur
Íslandsmeistarar í samanlögðum
fimmgangsgreinum:
Viðar Ingólfsson og Már
frá Feti
Íslandsmeistarar í samanlögðum
fjórgangsgreinum:
Hekla Katharína Kristinsdóttir
og Vígar frá Skarði.
/fr
Árni Björn og Stormur ríða fagnandi sigurhring eftir að Íslandsmeistaratitillinn í tölti var kominn í hús. Mynd / Jón Björnsson