Bændablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 26. júlí 2012
1 9 6 2
9 7 6
9 3 7 8
3 9 7
6 1 2 9
8 3 9
2 8 1 4
8 7 1
1 6 3 4
3 2
6 9
9 7 8 5
5 3 4
3
1
7 2 5
5 9
6 4 7 8
9 4 1 5
9
1 6 8
4 1 9 8 7
6
7 5
7 823
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar
er að setja réttar tölur frá 1-9 í
eyðurnar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóðrétt
og heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
PRJÓNAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hestakona
af Guðs náð
5
9
Þessi þvottastykki má nota sem
borðklúta eða þvottastykki allt
eftir vilja hvers og eins.
Falleg vinkonugjöf eða til að
gleðja gestgjafana í sumar-
bústaðnum.
Stærð; 21x21 cm.
Garn; Paris bómullargarn frá Drops.
Litir að eigin vali.
Prjónar nr. 5.
Fitjað upp 36 l og prjónað þar til
stykkið mælist 21 cm.
Græna stykkið á myndinni;
Falskt stroff.
1. Umf: slétt.
2. Umf: 1 sl og 1 br.
3. Endurtekið.
Ljósgula stykkið;
Perluprjón
Sinnepsgulur og appelsínugulur.
Lítið rúðumynstur;
1. Umf: 3Sl , 3 brugðnar
2. -4. umf: sl yfir sl og br yfir br.
3. umf: 3sl og 3 br
Endurtakið.
Ljósblágrænn og bleikur.
1. umf: slétt.
2. umf: 4 sl 4 br .
Endurtakið 1. og 2. umf.
Dökkblágrænn og bleikur
Stórt rúðumynstur.
1. umf: 6 sl,6 br endurtekið.
2.-8. umf: sl yfir sl og br yfir br.
9. umf: 6 br 6 sl endurtekið
10.-16. umf: br yfir br og sl yfir sl.
Endurtakið 1.-16.umf alls 3svar.
Kornblár og rauður.
Garðaprjón.
Tilvalin
þvottastykki
í bústaðinn
Snædís Birta Ásgeirsdóttir er mikil
hestakona og mun verja miklum
tíma í sumar í hesthúsunum
þar sem hún hún verður einn af
kennurum og aðstoðarmönnum
á reiðnámskeiðum í reiðskóla
Hestamenntar við Varmárbakka
í Mosfellsbæ.
Nafn: Snædís Birta Ásgeirsdóttir.
Aldur:12 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Reykjavík /Grafarvogi.
Skóli: Rimaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íslenska.
Hvað er uppáhalds dýrið þitt?
Hestar.
Uppáhaldsmatur: Pizza.
Uppáhaldshljómsveit: Reiðmenn
Vindanna (Helgi Björns) og Justin
Bieber.
Uppáhaldskvikmynd: War Horse
og Titanic.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
fór fyrst á hestbak en þá var ég um
fjögurra ára gömul.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég stunda hestamennsku
og ég er að læra á píanó.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að vera á Facebook
og í hestaleikjum.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Tamningakona og
hestaræktandi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég fór út í haga
til hesta sem ég þekkti ekkert og
skellti mér á bak á einum hesti og
hann klikkaðist með mig á baki!
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að gera ekki neitt.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Ég ætla að sinna hestum.
/ehg
Bókin „Á refaslóðum“
endurútgefin
Bjarmaland, félag atvinnumanna
við refa og minkaveiðar hefur
endurútgefið bókina Á refaslóðum
eftir Theódór Gunnlaugsson frá
Bjarmalandi.
Bókin hefur verið ófáanleg í
áratugi og vonandi verða viðtökur
góðar. Bókina má fá hjá Snorra
Jóhannessyni á Augastöðum auk
þess sem hún mun siðar verða seld
í völdum verslunum.
Á bókarkápu skrifar Aðalsteinn
Jónsson Víðivöllum Fnjóskárdal:
„Bókin „Á refaslóðum" kom
fyrst út árið 1955 og var gefin út af
Búnaðarfélagi Íslands. Hafði félagið
samið við bókarhöfund Theódór
Gunnlaugsson frá Bjarmalandi að
skrifa kennslubók um refaveiðar.
Theódóri tókst afburða vel að
leysa það verk af hendi og hefur
bókin allar götur síðan verið refa-
skyttum ómetanlegur þekkingar-
brunnur í þeirra störfum.
Úr smiðju Theódórs kom bókin
sem er miklu víðfeðmara fræðslurit
um refinn en aðeins það sem veiðar
varðar. Bókin er ítarleg umfjöllun
um allt sem refnum tengist, þar
á meðal samskipti manns og refs
frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar
til okkar daga. Bókin er einstætt
fræðslurit, skrifað af gríðarlegri
þekkingu höfundar á viðfangsefn-
inu og krydduð mörgum skemmti-
legum og lærdómsríkum frásögum
úr veiðiferðum.
Theódór fæddist á Hafursstöðum
í Öxarfirði 27. mars 1901 og lést á
Húsavík 12. mars, 1985. Við læri-
sveinar hans í Bjarmalandi vottum
minningu hans virðingu og þakkir
fyrir frábæra kennslubók og aðra þá
arfleið er hann skildi okkur eftir að
lífsgöngu lokinni.“
Næsta
Bændablað
kemur út
9. ágúst