Bændablaðið - 26.07.2012, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012i | i 26
Íslensk hönnun
T
extíllínan Flóra-icelandic
design eftir grafíska
hönnuðinn Ingunni
Þráinsdóttur, varð til eftir
listamannsdvöl hennar
í Vesterålen í Norður-Noregi
haustið 2010 þar sem Ingunn
stúderaði plöntulíf og bar saman
við plöntulíf á Austurlandi en
hún er búsett á Egilsstöðum.
Afrakstur vinnustofunnar var
heilmikið af teikningum sem
þróuðust svo yfir í þrívíðar textíl-
vörur.
Þrykkir jurtateikningar á nytjahluti
Bakgrunnur:
Ég er grafískur hönnuður með
B.Des. gráðu frá NSCAD University
í Halifax í Kanada. Ég starfa sem
grafískur hönnuður hjá Héraðsprenti
á Egilsstöðum og sem sjálfstætt
starfandi hönnuður en ég er með
vinnustofur bæði í Sláturhúsinu á
Egilsstöðum og heima hjá mér þar
sem dætur mínar eru ennþá ungar.
Ég er ættuð af Fljótsdalshéraði og
bý á Egilsstöðum með manni mínum
Ingvari Ríkharðssyni.
Upphaf:
Árið 2009 hóf ég framleiðslu á eigin
vöruhönnun. Þá teiknaði ég jóla-
mynstur og lét prenta fyrir mig jóla-
pappír, jólakort og litlar skissubækur
með hreindýrajólamynstri.
Ég hef haldið nokkrar mynd-
listar- og hönnunarsýningar bæði á
Íslandi sem og erlendis, til dæmis í
Noregi. Ég hef líka teiknað myndir
af dýrum í Vatnajökulsþjóðgarði
sem voru prentuð á tækifæriskort
og eru til sölu í Húsi handanna á
Egilsstöðum og í Snæfellsstofu í
Vatnajökulsþjóðgarði.
Efniviður:
Ég hef hannað ljós úr gæruskinni og
prjóni, ég bý til handgerðar bækur
eftir pöntun, sem sagt komið víða
við. Ég hef unnið að allskyns verk-
efnum með einstaklingum og stofn-
unum víða um land og teiknað slatta
af firmamerkjum fyrir félagasamtök
og fyrirtæki. Það er alltaf nóg að gera
og ég elska vinnuna mína.
Flóra er textíllína með silki-
þrykktum teikningum af jurtum
sem finnast bæði á Austurlandi og í
Vesterålen. Textíllínan samanstendur
meðal annars af tauservíettum með
ýmsum mynstrum, eins og til dæmis
bómull sem handlituð er með sortu-
lyngi, silkiþrykktum viskastykkjum
og púðum, þar sem tvinnað er saman
silkiþrykktum plöntumynstrum og
prjóni úr einbandi. Flóra er unnin úr
náttúrulegum efnum, bæði bómull
og osnaburg.
Innblástur:
Í vöruhönnuninni fæ ég innblástur úr
náttúrunni, ég elska að vera úti í nátt-
úrunni og að skoða litlu smáatriðin,
litlu blómin sem enginn tekur eftir,
fölnuð lauf á haustin og litina í nátt-
úrunni sem er einstök hér á Íslandi.
Ég held að það sé þessi norræna birta
sem sveipar landið okkar töfraljóma.
Framundan:
Nýjasta hönnunin hjá mér er í
textíllínunni Flóru. Nýverið frum-
sýndi ég púða í hönnunarversluninni
Kraum í Reykjavík sem ég hef verið
að handþrykkja og sauma. Einnig
hef ég prjónað ferköntuð stykki úr
íslensku einbandi sem ég sauma inn
í púðaverin. Íslenska ullin er svo
dásamlegt hráefni og ég gladdist
mikið þegar nýir og bjartir litir bætt-
ust inn í einbandslínuna. Ég stefni
á að útvíkka Flóru enn frekar með
borðdúkalínu og svuntum en það er
enn á teikniborðinu. Vöruþróun á
Íslandi er mjög kostnaðarsöm og ég
er ekkert að verða rík á þessu, ég er
bara að láta drauma rætast og gera
það sem mér finnst skemmtilegast.
Að vörurnar seljist er algjör bónu.
/ehg
Ingunn Þráinsdóttir er grafískur hönnuður sem hefur hannað og framleitt textíllínu þar sem plöntulíf er aðalþemað.
Viskustykki með plöntumynstri.
Samanbrotnar tauservíettur.Púðar úr línunni Flóra-icelandic design.
Á síðustu árum hefur sólpallasmíði
aukist mikið á Íslandi en eftir að
svokölluð kreppa skall á hafa
menn ekki verið eins stórtækir,
enda kostar efniviðurinn skild-
inginn. Það þarf þó ekki að vera
og með smá lagni má gera þennan
flotta pall fyrir lítinn tilkostnað.
Árni Davíð Haraldsson er að gera
upp húsið sitt að Gunnarsstöðum í
Þistilfirði og var búinn að rífa tröpp-
urnar frá húsinu til þess að hægt
væri að endurnýja lagnir í kringum
húsið. Í stað þess að steypa tröppur
smíðaði hann þennan pall úr Euro-
vörubrettum sem hann fékk gefins
hjá Ísfélaginu á Þórshöfn. Það eina
sem Árni kostaði til voru naglar,
listar til að fylla í rifurnar á brett-
unum og einnig timbur til að loka
fyrir endana. Síðan var bara að
viðarverja herlegheitin. Hann lét þó
ekki þar við sitja heldur gerði einnig
tvo litla sófa og borð úr brettunum,
og ekki þarf að hafa áhyggjur af því
að þessi sólhúsgögn haggist þó það
blási hressilega. Alls voru þetta 163
bretti. Einhver hafði orð á að þetta
væri kreppupallur og það má vera,
en ekki verri fyrir það. GBJ
Sólpallur úr vörubrettum