Bændablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2012
Sundlaugin í Ólafsvík er um margt
merkileg laug. Árið 1961 sam-
þykkti hreppsnefnd Ólafsvíkur
að hefja undirbúning að bygg-
ingu sundlaugar og íþróttahúss
og var fé að upphæð 100 þúsund
krónur veitt til framkvæmdanna.
Jes Einar Þorsteinsson arkitekt var
ráðinn hönnuður hússins og var
til ráðgjafar þar til húsið var vígt
árið 1970. Nú hafa verið gerðar
nýjar teikningar vegna fyrirhug-
aðra breytinga en meðal þeirra er
útiaðstaða.
Laugin er að sögn heimamanna
„kósý“ innilaug sem hefur að mestu
haldið sínu upprunalegu útliti. Einn
heitur pottur er við laugina. Það sem
er merkilegt við laugina umfram
flestar aðrar laugar er að áður var
hún íþróttahús á vetrum. Þá var lagt
parket gólf yfir laugina sjálfa og
kenndar skólaíþróttir auk annarra
íþrótta. Sundkennsla fór því fram að
vori og hausti. Þessu fyrirkomulagi
var hætt árið 2000 þegar nýtt íþrótta-
hús var vígt í Ólafsvík.
Sundlaugin í Ólafsvík er opin frá
16:00 til 20:00 á virkum dögum og
frá 13:00 til 17:00 á laugardögum
í vetur. Nánari upplýsingar má fá í
síma 433-9910 eða með pósti á net-
fangið sigrun@snb.is.
Sundlaugin í Ólafsvík
Laugar landsins
Dagana 22. til 25. ágúst sl.
var haldinn vinnufundur um
WorldFeng (WF) með Sænska
Íslandshestafélaginu, SIF, í
Strömsholm í Svíþjóð. Svíar
ákváðu strax í upphafi að nýta sér
WF sem sitt eina ættbókarkerfi,
voru fyrstir utan Íslands til að
opna frían aðgang að WF fyrir alla
félaga sína og hafa verið dyggir
stuðningsmenn WF-verkefnisins
alla tíð.
Utan fóru Þorberg Þ. Þorbergsson,
forritari WF og Jón Baldur Lorange,
verkefnisstjóri WF. Megintilgangur
fundarins var að fara yfir útgáfuáætl-
un WF 2012 og 2013 og endurmeta
hana í ljósi þeirra athugasemda sem
Svíar lögðu í púkkið. Fundað var
með Göran Häggberg, ræktunarleið-
toga SIF, og Magdalenu Hoveklint,
skrásetjara WF í Svíþjóð. Göran er
á níræðisaldri og var einn af stofn-
endum Sænska Íslandshestafélagsins
fyrir um 40 árum síðan. Magdalena
hefur unnið á skrifstofu SIF undan-
farinn áratug og hefur því unnið í WF
frá því hann var opnaður árið 2001.
Svíar nýta WF sem ættbókarkerfi
með svipuðum hætti og Íslendingar
og Danir; sem aðalskráningarkerfi,
til útgáfu hestavegabréfa og eigenda-
skírteina, fyrir kynbótasýningar,
DNA-ætternisgreiningar o.s.frv.
Þá var fundað með dr. Þorvaldi
Árnasyni, höfundi BLUPsins fyrir
íslensk hross, en hann er búsettur í
Svíþjóð. Umræðuefnið var sá hluti
WF sem snýr að ,,valpörunum“ og
hvernig mætti endurbæta þann hluta
svo hann nýttist ræktendum enn betur
í WF. Þorvaldur gerði einnig grein
fyrir nýjum og athyglisverðum niður-
stöðum rannsókna um ,,töltgenið“
sem nýlega voru kynntar í tímarit-
inu Nature, en Þorvaldur kom að
þessum rannsóknum. Í framhaldinu
var haldinn fundur með Sofiu Mikko,
forstöðumanni DNA-rannsókna við
Landbúnaðarháskólann í Uppsölum
(SLU), en SLU hefur verið þátttak-
andi í DNA-verkefninu innan WF á
undanförnum árum og sent inn DNA-
ætternisniðurstöður í miðlægan
gagnagrunn WF ásamt átta öðrum
rannsóknarstofum.
Á fundinum var m.a. leyst úr
ýmsum tæknilegum úrlausnarefnum
með tæknimönnum SLU, svo sem
gagnasamskiptum milli tölvukerfa,
svo unnt væri að auka þjónustuna
við ræktendur. Að síðustu var haldinn
kvöldfundur um WF með nokkrum
áhugasömum félögum í SIF til að
ræða um notagildi upprunaættbókar-
innar fyrir sænska hrossaræktendur.
Í maí fór Jón Baldur í heimsókn
til Danska Íslandshestafélagsins í
Vilhelmsborg í sömu erindagjörðum.
WorldFengur: Ný útgáfa
12. september 2012
Þann 12. september verður sett á
netið ný útgáfa af WorldFeng sem
hefur verið í þróun undanfarna
mánuði samkvæmt útgáfuplani
WorldFengs. Helstu nýjungar eru:
Eigendur hrossa um allan heim
geta sett inn ljósmyndir af hrossum
sínum beint í gegnum heimaréttina
sína.
Félagar í Danska Íslandshestafél-
aginu geta skráð inn geldingu og
afdrif í gegnum heimaréttina (gátu
áður aðeins skráð athugasemd um
hross sín). Í Svíþjóð munu eigend-
ur geta skráð geldingu í heimarétt.
Kynbótasýningar á forsíðu ,,free-
zone“verða flokkaðar eftir því
hvort þeim er lokið eða ekki,
sýningum er raðað eftir tímaröð
(miðað við dagsetninguna í dag)
og síðan löndum.
Ræktendur geta tengt hross sín
beint við grunnupplýsingar um
hross á ,,free-zone“ af heimasíðum
sínum án endurgjalds.
Unnt er að leita eftir við-
urkenndumstóðhestum í þeim
löndum þar sem stóðhestar þurfa
að vera viðurkenndir til að nota í
ræktunarstarfi.
Margvíslegar endurbætur á skrán-
ingu skrásetjara WF á ættbókar-
upplýsingum.
Samningurinn við Stefnu
endurnýjaður
Í sumar var samningur við hugbúnað-
arhúsið Stefnu á Akureyri um hugbún-
aðargerð fyrir Bændasamtök Íslands
(BÍ) endurnýjaður. Árangursríkt sam-
starf hefur verið milli upplýsinga-
tæknisviðs Bændasamtakanna og
Stefnu ehf. um hugbúnaðargerð frá
árinu 2007. Á þessu tímabili hefur
verið unnið að þróun á HUPPU,
AFURÐ og Bændatorgi í samstarfi
við forritara upplýsingatæknisviðs BÍ
en öll þessi vefforrit eru skrifuð í PHP
forritunarmálinu ofan á Oracle mið-
læga gagnagrunna Bændasamtakanna.
sviðsstjóri tölvudeildar
Bændasamtaka Íslands
jbl@bondi.is
Jón Baldur Lorange
Upplýsingatækni og fjarskipti
Upplýsingatæknibásinn
Svíar dyggir stuðningsmenn WorldFengs verkefnisins:
Voru fyrstir utan Íslands til að opna frían aðgang
Þorberg, Magdalena og Göran létt í lund. Mynd / JBL
Sveitasæla 2012
Skagfirðingar hafa alltaf kunnað
að skemmta sér og öðrum með
ýmsu móti. Landbúnaðarsýningin
og bændahátíðin Sveitasæla var
haldin laugardaginn 25. ágúst
í reiðhöllinni Svaðastöðum.
Bændablaðið leit við og fangaði
stemminguna í máli og myndum.
Inni í reiðhöllinni voru um 30
sýnendur með kynningar- og sölu-
bása sem flestir tengdust landbúnaði
á einn eða annan hátt og var mis-
mikið lagt upp úr stærð og umfangi
bása, en sumir sýnendur náðu meiri
athygli gesta en aðrir. Vel uppsettur
kynningarbás frá minkabúinu á Mön
í Gnúpverjahreppi vakti verðskuld-
aða athygli með fallegri uppstillingu,
en þar voru kynntir ýmsir handunnir
skrautmunir
sem unnir
eru úr minka-
s k i n n u m .
Einnig sýndu
þau muninn á
minkaskinn-
um dagsins í dag og fyrir um 20-25
árum og var greinilegt að munurinn í
stærð og áferð skinna er mikill.
Það er sama hvar Guðmundur
Hallgrímsson kemur og sýnir rún-
ing, alltaf nær hann að fanga athygli
þeirra sem eru í námunda við hann og
eftir að hafa rúið kindurnar lét hann
börn sem voru á sýningarsvæðinu
fara með ullina til tveggja kvenna
frá Ullarselinu á Hvanneyri til að
sýna hvernig lopaband var unnið úr
ullinni.
Á útisvæðinu voru nokkrir véla-
salar með kynningar á nýjustu land-
búnaðartækjunum s.s. dráttarvélum í
öllum stærðum og gerðum, vögnum,
sáningarvélum og vökvunarbúnaði
sem virkaði vel í norðangarranum.
Þar var einnig keppt í hæfni gröfu-
manna og haldin sýning á smala-
hundum, en hundarnir smöluðu
nokkrum kindum inn í ansi athyglis-
verða vigt sem getur flokkað fé eftir
þunga og sparað mikla vinnu við
flokkun á sláturfé. Sýnendur á úti-
svæðinu höfðu orð á því að töluvert
færri gestir hefðu verið á Sveitasælu í
ár miðað við árið áður og vildu kenna
um að stutt hafi verið frá sýningunni
að Hrafnagili fyrr í mánuðinum, en
undirritaður vill frekar kenna um
norðannæðingi sem gerði það að
verkum að flestir sýningargestir
voru aðallega inni í reiðhöllinni,
því ef maður var á útisvæðinu fékk
maður að finna hvaðan sögnin að
vera að „krókna“ gæti hugsanlega
verið ættuð.
Takk fyrir góða sýningu og
skemmtun. /HLJ Guðmundur Hallgrímsson sýndi snilli sína við að rýja fé með vélklippum.
Stelpurnar úr Ullarselinu á Hvanneyri
sýndu hvernig ullin var unnin og gert
band úr henni.
Áætlað var að um 2000 manns hefðu
heimsótt sýninguna og stundum var
höllin vel mönnuð. Myndir /HLJ