Bændablaðið - 06.09.2012, Qupperneq 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2012
Vélabásinn
Umhverfisstofnun sendi frá sér
fréttatilkynningu þann 27. ágúst
undir fyrirsögninni „Göngum
vel um landið í leit að fé“.
Tilkynningunni er beint til smala
á vélknúnum ökutækjum. Í niður-
lagi hennar kemur fram að heimilt
sé að aka utan vega vegna starfa
við landbúnað á landi utan miðhá-
lendisins, sem sérstaklega er nýtt
sem landbúnaðarland, að því til-
skildu að ekki hljótist af því nátt-
úruspjöll.
Það er vissulega þörf á að minna
á slíkan utanvegaakstur og að bænd-
ur sem aðrir leggi sig fram um að
ganga vel um landið. Ég hefði þó
viljað sjá í þessari tilkynningu frá
Umhverfisstofu góð ráð um notkun
ökutækja við smölun en reyni að
bæta aðeins úr því hér.
Prófun á klifurhjóli til að
sannreyna fullyrðingar
Þann 18. ágúst 2011 var auglýst í
Bændablaðinu mótorhjól undir fyrir-
sögninni „Nýjung í smalamennsku,
létt klifurhjól“. Það átti ekki að
skemma land og vera umhverfisvænt.
Þrátt fyrir að hafa keyrt mótorhjól
í 30 ár var þetta það mikil nýjung
fyrir mig að ég taldi mig þurfa að
prófa hjólið í smalamennsku til
að sannreyna þessar fullyrðingar í
auglýsingunni. Þann 15. september
2011 skrifaði ég smalasöguna og að
hjólið hefði staðist prófið. Það var
umhverfisvænt, tætti ekki upp gróður
og var gott til smölunar.
Ég skrifaði ekki allt sem ég reyndi
á þessu hjóli því þar var ég að bera
hjólið saman við fjórhjól, sexhjól og
hesta sem voru með mér í þessum
göngum. Hvað gróðurvernd varðar
tel ég persónulega að klifurhjólið hafi
haft vinninginn í samanburði við öll
önnur tæki og líka hesta.
Skömmu eftir þessi skrif mín í
Bændablaðinu kom að máli við mig
bóndi og spurði hvort ég gæti ekki
miðlað af þekkingu minni til bænda
í von um betri umgengni til gróður-
vemdar í tengslum við tvíhjól og fjór/
sexhjól. Hér að neðan eru nokkur
veigamikil atriði sem gætu hugsan-
lega hjálpað notendum slíkra tækja
að vernda gróður eins og mögulegt
er.
Byltingarkenndar tækninýjungar
Tækninýjungar í fjöðrun og hjól-
börðum á klifurhjólum eru svo bylt-
ingarkenndar að enginn trúir hvernig
þau eru í akstri á grónu landi nema
að sjá það með eigin augum. Fyrir
nokkru voru ráðunautum í jarðrækt
hjá Bændasamtökunum kynnt svona
hjól. Jarðræktarráðunautarnir trúðu
varla ökumönnunum sem kynntu
hjólin og vildu meina að einhver
brögð hlytu að vera í tafli við kynn-
inguna. Að lokum sannfærðust þeir
þó og gátu fallist á að mótorhjól væri
ekki bara mótorhjól, þessi klifurhjól
væru öðruvísi.
Sum tæki eiga alls ekkert erindi á
gróið land
Þegar ég prófaði klifurhjólið í göng-
unum á síðasta ári var það ekki í
fyrsta sinn sem ég smalaði á mótor-
hjóli, og reynsla mín er að sum tæki
eigi alls ekkert erindi á gróið land
sökum uppbyggingar.
Tökum t.d. „motocrosshjól“.
Þau eru hönnuð til keppnisaksturs
á sérútbúnum brautum og eru mjög
óhentug til smalamennsku. Gírkassi
er ekki gerður fyrir hæga ferð,
vélinni er ætlað að vera á miklum
snúningi og ef hún er það ekki getur
hún ofhitnað. Fjöðrunin er of stíf
og hentar hvorki í miklu grjóti né
þúfum. Motocrosshjól eru að öllu
jöfnu með 19 tommu afturdekk og
mjúk 19 tommu dekk eru einfaldlega
ekki flutt til landsins.
Svokölluð „endurohjól“ eru
svipuð og motocrosshjól og eru
endurohjól sem flutt eru hingað til
lands oftast með stóra vél. Ef hjólið
er með minni vél en 400 cc og aftur-
dekk undan klifurhjóli má notast við
svoleiðis hjól við smalamennsku á
ýmsum stöðum, þó að til séu undan-
tekningar um stærð hjólanna.
Sexhjólin verri en fjórhjólin
Hvað varðar fjórhjól og sexhjól, þá
geta sexhjólin verið mjög notadrjúg
til smalamennsku. Þau þola samt illa
mikinn skak-akstur og vilja liðast
í sundur. Einnig vilja sexhjól tæta
upp gróður og skilja eftir sig mikil
för eftir öftustu hásinguna ef beygt
er harkalega. Til að lágmarka þann
skaða er best að vera með sem slétt-
ust dekk á öftustu hásingunni á sex-
hjólum. Mitt persónulega mat er að
sexhjól skemmi gróður mun meira en
fjórhjól. Spurningin er þó hvort ekki
mætti taka fremri afturdekkin undan
sexhjólunum við smalamennsku til
að lágmarka gróðurskemmdir. Ef
keypt eru ný dekk undir sexhjól er
mjög gott að geyma gömlu slitnu
dekkin til að geta sett undir öftustu
hásinguna þegar ekið er í viðkvæm-
um gróðri.
Kraftlitlu og léttustu fjórhjólin
henta vel
Fjórhjól undir 500cc eru sennilega
þau hjól sem henta einna best og þá
á fínmunstruðum dekkjum. Þessi
litlu fjórhjól eru yfirleitt um 100-
200 kg léttari en stóru 800+ cc hjólin,
fljóta því mjög vel og eru oftast með
minni þunga á hvern fersentimetra
á jörðinni en sexhjól, þótt hjólin á
jörðinni séu aðeins fjögur.
Engin þörf á drulluspyrnudekkjum
í smalamennsku
Engin þörf er á að vera á einhverjum
drulluspyrnudekkjum í smölun því í
raun henta gömlu hálfslitnu dekkin
best og marka minnst í gróið land.
Ef landið er blautt er hætta á að það
vaðist upp í drullu. Því verður ein-
faldlega að reyna að krækja fyrir
viðkvæmustu staðina. Sé verið að
krækja fyrir blautan stað vegna hættu
á að festa sig er nánast alltaf betra
að fara upp fyrir blauta staðinn ef
sá kostur er fyrir hendi. Þá losna
menn við að skemma gróðurinn
fyrir neðan.
Stóru og kraftmiklu fjórhjólin oft
miklir skaðvaldar
Stóru og þungu 800 cc fjórhjólin eru
oftast óttalegir skaðvaldar fyrir gróið
land því að í hvert sinn sem gefið er
í er krafturinn og þunginn svo mikill
að smá spól mynda sár, en litlu hjólin
eru svo mátulega kraftlaus og létt að
þau spóla síður.
Létt klifurhjól henta best
Ef ég væri að fara í göngur í dag og
mætti velja mér vélknúinn fararskjóta
mundi ég hiklaust velja klifurhjól af
gerðinni GasGas TX 125 Randonee
frá JHM Sport á Stórhöfðanum. Það
er ekki nema 85 kg og er að mínu
mati sérhannað fyrir smalamennsku.
Hjólið er létt og mjúk dekkin fara vel
með gróður. Það er með fjögurra lítra
bensíntank og nægan kraft án þess
að hætta sé á spóli og er sérstaklega
hannað til að klifra á mjög hægri ferð.
Þá er það með rafstarti og kostar ekki
nema 625.000 krónur fyrir utan virðis-
aukaskatt. Ég hef tröllatrú á klifurhjól-
um og tel mikla framtíðarmöguleika
í notkun þeirra við búskap. Eftir að
hafa prófað þetta GasGas hjól verð ég
að segja að það er ótrúlega notadrjúgt
og gott til brúks.
Vélknúin farartæki henta misvel til smölunar:
Létt klifurhjól og léttustu
fjórhjólin henta best
– Sum tæki eiga alls ekkert erindi á gróið land
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
GasGas TX 125 Randonee.