Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 1
42
4. tölublað 2012 Fimmtudagur 1. mars Blað nr. 365 18. árg. Upplag 24.000
28
39 milljónir greiddar til innleggjenda:
KS og SKVH greiða
bændum uppbót
Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki
og Sláturhús KVH á Hvammstanga
hafa ákveðið að greiða öllum inn-
leggjendum 2,15% uppbót fyrir
innlegg síðasta árs.
Alls er upphæðin 39 milljónir
króna sem er til skiptanna. Uppbótin
verður greidd út á næstu dögum til
þeirra sem lögðu inn sauðfé, naut-
gripi og hross á árinu. Að sögn
Ágústar Andréssonar, sláturhússtjóra
hjá KS, þá er þessi ákvörðun tekin
í kjölfar góðs rekstrar á síðasta ári.
„Það er jákvæð afkoma og hagræð-
ing í rekstri sem gerir okkur kleift
að greiða bændum uppbót fyrir inn-
legg síðasta árs. Útflutningur hefur
skilað góðum tekjum en aðalástæðan
er sú hagkvæmni sem félögin hafa
náð fram í krafti stærðar sinnar að
undanförnu," sagði Ágúst.
Kínverjar leita eftir samvinnu við íslenska gróðurhúsabændur:
Vilja reisa gróðrarstöð í Guiyang-
héraði að íslenskri fyrirmynd
- Óska eftir samstarfi við Hafberg Þórisson í Lambhaga um uppbygginguna
Hafberg Þórisson, garðyrkju-
maður í garðyrkjustöðinni
Lambhaga í Reykjavík og Jóhanna
Guðjónsdóttir, eiginkona hans,
tóku á móti kínverskri sendinefnd
á föstudag í fyrri viku. Ástæðan
fyrir komu Kínverjanna er áhugi
forsvarsmanna í Guiyang-héraði
fyrir að koma þar á fót garðyrkju-
stöð af svipaðri gerð og Hafberg
rekur í Lambhaga í útjaðri
Reykjavíkur, með hans hjálp.
„Hugmyndin hjá þeim er að
kanna möguleika á því að framleiða
úti í Kína hágæða salat eins og ég er
að framleiða. Þá hafa þau sýnt áhuga
á að ég setji þetta upp með þeim.
Ég er tilbúinn til þess gegn vissum
skilyrðum,“ segir Hafberg.
Í hópnum voru tvær konur,
Gao Xiu Li prófessor frá Guiyang
Medical University og doktor í lyfja-
fræði, ásamt dóttur sinni, og Xiao
Ling Yang, yfirmaður tæknimála í
Guiyang héraði (Guiyang Science
& Technical Department). Með þeim
var Jón Steindórsson framkvæmda-
stjóri, sem er í viðskiptatengslum
við Kína.
„Þetta er þriðja sendinefndin
sem kemur til mín frá Kína í svip-
uðum erindagjörðum og það hlýtur
að koma að því að eitthvað verði
úr þessu,“ segir Hafberg. „Ég get
skaffað þeim allt sem þarf til að setja
upp svona stöð. Þetta er lagt þannig
upp að ég myndi stjórna uppbygg-
ingunni ytra en Jón myndi síðan stýra
stöðinni.“
Í skoðunarferð um stöðina bauð
Hafberg gestunum að bragða á spín-
ati sem hann hefur nýverið hafið
ræktun á en svo skemmtilega vill
til að það er kínverskt að uppruna.
Ekki var annað að sjá en að fulltrúum
Kínverja líkaði vel við íslensk-kín-
verska spínatið.
Sunnudaginn 19. febrúar kom
svo enn einn hópur útlendinga í
garðyrkjustöðina Lambhaga. Þar
voru á ferð japanskir kvikmynda-
gerðarmenn sem voru að taka efni
í mynd um það hvernig Íslendingar
nýta sér jarðhitann. Mun það vera
í tengslum við vaxandi ótta Japana
við nýtingu kjarnorku til raforku-
framleiðslu, í kjölfar slyssins sem
þar varð í kjarnorkuveri í kjölfar
jarðskjálfta og flóða í fyrra. /HKr.
Kínversk sendinefnd frá Guiyang-héraði í heimsókn í Lambhaga. Talið frá vinstri: Hafberg Þórisson garðyrkjumaður
og Jóhanna Guðjónsdóttir eiginkona hans, Jón Steindórsson framkvæmdastjóri, dóttir Gao Xiu Li, þá er Xiao Ling
Myndir / HKr.
Jóhanna Guðjónsdóttir gefur Jóni Steindórssyni og Gao Xiu Li að smakka á
íslenskræktuðu kínversku spínati. Var ekki annað að heyra en að gestunum
líkaði spínatið afar vel.
Hafberg ræðir við kínversku fulltrúana um aðstæður og orkumál fyrir nýja
garðyrkjustöð í Kína, sem hugsanlegt er að hann taki þátt í að reisa.
þjónustu landbúnaðarins á Búnaðarþingi á þriðjudag. Mynd / HKr.
- Nánar um Búnaðarþing 2012 í blaðauka bls. 23-26
Bærinn okkar
Hlíð
Íslenskt kristalsjávarsalt
á markað
14
Eðlilegt að líta á reynslu
annarra við stefnumótun
Samþykkt var á Búnaðarþing 2012
sem lauk í gær ályktun um nauð-
syn þess að lækka eldsneytisverð.
Það verði gert með því að dregið
verði úr skattlagningu á eldsneyti.
Að mati búnaðarþingsins kemur
hækkun eldsneytisverðs undan-
farinna ára hvað harðast niður á
íbúum landsbyggðarinnar. Senda á
ályktunina til fjármálráðuneytis og
þingnefnda ásamt því að ýta á eftir
málinu við stjórnvöld með öðrum
leiðum.
Algjör samstaða var um tillöguna
á þinginu og var málið samþykkt með
einni umræðu en að öllu jöfnu þarf
tvær umræður til að samþykkja mál
sem tekin eru upp á búnaðarþingi.
Skattar á eldsneyti
verða að lækka
Mikil eining ríkti á þinginu um ályktun um nauðsyn á lækkun eldsneytisverðs.