Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 Árshátíð Landssamtaka sauðfjárbænda verður haldin föstudaginn 30. mars nk. í Súlnasal Hótel Sögu Hátíðin hefst kl 19.00 með fordrykk. Skemmtidagskrá undir borðum og dansleikur með hljómsveit Geirmundar að loknu borðhaldi. Veislustjóri verður Guðni Ágústsson og ræðumaður kvöldsins Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskólans. Forréttur: Rjómalöguð sjávarréttasúpa með gulrótarflani Aðalréttur: Lambahryggvöðvi með smjörbakaðri kartöflu, fennelsalati og rauðvínssósu Eftirréttur: Kókos búðingur með ananas og myntu Miðaverð fyrir mat, skemmtun og dansleik er kr. 6.500. Tekið er við miðapöntunum hjá Bændasamtökunum í síma 563- 0300. Þeim sem ætla að gista á Hótel Sögu er bent á að tryggja sér herbergi í tíma í síma 525-9900. Hópar, 8 manns eða fleiri geta pantað borð. Árshátíðarnefnd www.sindri .is / sími 5 75 0000 FESTINGAR ERU OKKAR FAG 49.736 m/vsk 5.980 STK BOLTAR, RÆR OG SKINNUR Sverleiki 3 - 12mm | Lengd allt að 120 mm 3.530 stk boltar 8.8 1.600 stk rær 850 stk skinnur Ný netverslun Næsta Bændablað kemur út 15. mars Árshátíð Landssambands kúabænda 2012 Hótel Selfossi laugardagskvöldið 24. mars. Árshátíð Landssambands kúabænda verður haldin á Hótel Selfossi laugardagskvöldið 24. mars n.k. Húsið opnar kl. 19.00. Miðapantanir eru í síma 460 4477 og er miðaverð 7.000 kr. Herbergjapantanir á Hótel Selfossi eru í síma 480 2500. Veislustjóri verður Páll Stefánsson dýralæknir og hljóm- sveitin Stuðlabandið mun halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Forréttur: Humarsúpa með fínsöxuðum skelfiski Aðalréttur: Hægelduð nautalund með rjómakartöflum, árstíða grænmeti og rauðvínssósu. Eftirréttur: Frönsk súkkulaðiterta með skógarberjum. Kúabændur eru hvattir til að fjölmenna! Árshátíðarnefnd Landssambands kúabænda. Þórisstaðir Grímsnes og Grafningshreppi Um er að ræða jörðina Þórisstaði sem er 150 ha að stærð. Þar af er ræktað land um 30 ha. Á jörðinni er 164,8 fm steinsteypt íbúðarhús sem byggt var árið 1973. Að auki eru eftirfarandi útihús: 212,0 fm hesthús og 137,6 fm sambyggð hlaða sem búið er að innrétta sem trésmíðaverkstæði. Mikil uppbygging er í sveitinni m.a. er nýr grunnskóli og glæsileg sundlaug og íþróttahús á Borg sem er í ca. 10 km fjarlægð frá jörðinni. Stutt er í alla helstu þjónustu m.a er heilsugæslustöð í Laugarási. Selfoss er í um 30 km fjarlægð og Reykjavík um 80 km fjarlægð. Verð 82,0 millj.kr. Steindór Guðmundsson Löggiltur fasteignasali: Sími 480-2901 steindor@log.is Hallgrímur Óskarsson Sölumaður Sími 480-2902 halli@log.is Sími 480-2900 Fasteignaskattur á hesthús: Vilja breytingar á lögum Byggðarráð Húnaþings vestra hefur skorað á innanríkisráðherra að leggja nú þegar fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga þannig að hesthús í þéttbýli verði skatt- lögð með öðrum hætti en núver- andi lög gera ráð fyrir. Á fundi byggðarráðsins fyrir skömmu var ályktun ásamt bókun þessa efnis lögð fram og samþykkt samhljóða. Í bókun byggðarráðs kemur fram að samþykkt er að fresta gjalddögum á hesthús í þéttbýli til 1. júlí næst- komandi og að þeir verði 6 talsins. Komi til þess að Alþingi samþykki breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, sem hafi áhrif á álagn- ingu fasteignaskatts ársins 2012 á hesthús í þéttbýli, er jafnframt ljóst að sveitarfélagið mun leggja fast- eignaskattinn á að nýju til samræmis við þær lagabreytingar. Safnasafnið – Alþýðulistasafn Íslands hlaut á dögunum Eyrarrósina, viðurkenningu fyrir afburða menn- ingarverkefni á landsbyggðinni og var hún veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Magnhildur Sigurðardóttir og Níels Hafstein tóku við verðlaununum úr hendi Dorritar Moussaieff, forsetafrúar, sem er verndari Eyrarrósarinnar. Safnasafnið stendur við Þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar. „Eyrarrósin hefur margs konar þýðingu. Hún staðfestir það orð- spor sem fer af Safnasafninu, eflir það á ýmsa lund, gerir því kleift að markaðssetja sig með öðrum hætti en hingað til, en síðast en ekki sízt varpar hún ljóma á far- sælt samstarf safnsins við íbúa Svalbarðsstrandarhrepps sem hafa tekið þátt í sýningum safnsins frá árinu 1999,“ segir Níels Hafstein hjá Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Níels segir að veiting Eyrarrósarinnar hafi nú þegar bor- ist samstarfsaðilum safnisns bæði vestan hafs og austan til eyrna og sé mikils virði í þeirra augum. Safnasafnið vinnur að því að mynda regnhlífasamtök fyrir alþýðulista- fólk í Evrópu, en helztu forkólfar þess eru Gaia Museum í Danmörku og Museum dr. Guisling í Belgíu. Samtals taka 40 aðilar þátt í þessu samstarfi, listasöfn og listhús, félög og aðrar menningarstofnanir. „Safnasafnið vinnur nú að rann- sóknum á lífi og myndlistarstarfi Sölva Helgasonar í samvinnu við Þjóðminjasafnið og er stefnt að útgáfu bókar. Þá er verið að skipu- leggja fjölda nýrra sýninga sem verða opnaðar 19. maí í tengslum við Alþjóðlega safnadaginn,“ segir Níels. Magnhildur Sigurðardóttir og Níels Hafstein tóku við verðlaununum úr hendi Dorritar Moussaieff, forsetafrúar, sem er verndari Eyrarrósarinnar. Safnasafnið á Svalbarðsströnd hlaut Eyrarrósina: „Staðfestir orðspor“ - segir Níels Hafstein hjá Safnasafninu

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.