Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 Markaðsbásinn Óraunhæfar væntingar um hraðferð inn í ESB Í sumar verða þrjú ár síðan Ísland sótti um aðild að ESB. Aðildarviðræðurnar hófust svo formlega í júní 2010. Viðræðunum er skipt í 33 kafla. Alls hafa verið opnaðir 11 kaflar og þar af er samningum lokið um 8 þeirra og þeim því lokað tímabundið. Í hinum þremur hefur ESB sett fram skilyrði fyrir lúkningu við- ræðna um þá. Þessir kaflar eiga það sameiginlegt að efni þeirra fellur undir EES-samninginn. ESB er búið að senda frá sér rýniskýrslur um 11 kafla til við- bótar þeim 11 sem viðræður eru hafnar um. Í þeim hópi er að finna þá kafla sem flest helstu hagsmuna- mál Bændasamtaka Íslands falla undir. Í tveimur þessara kafla hafa verið sett skilyrði af hálfu ESB fyrir því að hefja samningaviðræður; landbúnaði og byggðamálum. Af öðrum mikilvægum málaflokkum sem viðræður eru ekki hafnar um má nefna matvælaöryggi, en undir þann kafla fellur löggjöf um inn- flutning á búfjárafurðum og lifandi dýrum, umhverfismál og tollamál. Frá því er viðræðurnar hófust hefur oft verið látið í veðri vaka, m.a. af utanríkisráðherra og for- manni samninganefndarinnar, að þær ættu að geta gengið hratt fyrir sig og Ísland vilji opna alla erfiða kafla sem fyrst. Sérstakar væntingar hafa verið bundnar við að þessir kaflar verði opnaðir nú, meðan Danir gegna formennsku innan ESB. En hver er svo staðan? Í Morgunblaðinu þann 21. febrúar sl. segir Stefán Haukur Jóhannesson, formaður íslensku samninganefndarinnar, að ekki liggi fyrir hvenær erfiðu kafl- arnir í samningaviðræðunum verða opnaðir. Hann vonast þar til að fimm kaflar verði opnaðir á ríkjaráðstefnu í lok mars en ekki er tilgreint hvaða kafla þar er um að ræða. Orðrétt segir síðan: „Við höfum lagt á það áherslu að opna þessa svokölluðu erfiðu kafla eins fljótt og auðið er en Evrópusambandið hefur sitt verklag.“. Loksins nú eru forystumenn við- ræðnanna af Íslands hálfu farnir að viðurkenna að ESB viðhefur sitt verklag og viðræðuferlið lúti lög- málum þess, ekki Íslands. Allt tal um að „kíkja í pakkann“ og sjá hvað stendur til boða er sannarlega blekk- ing. Þetta kristallast hvað best í því að ESB vill ekki ræða sjávar- útvegsmál fyrr en það hefur lokið sinni heimavinnu, en endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar stendur þar yfir. Það hefur því reynst enn ein blekkingin að Ísland fengi aðild að endurskoðun hennar með því að sækja um aðild að ESB, eins og ítrekað var haldið fram í upphafi aðildarviðræðnanna. Opið og lýðræðislegt ferli? Í þingsályktun Alþingis var undir- strikað mikilvægi þess að viðræðu- ferlið yrði opið og fulltrúar hags- munaaðila ættu breiða aðkomu að því. Skipaður var fjöldi samninga- hópa um einstök viðfangsefni. Þegar frá líður er ekki laust við að þetta sé farið að taka á sig aðra mynd. Til dæmis hefur aðeins einn fundur verið haldinn í samningahópi um landbúnað síðan ESB kynnti opn- unarskilyrði sín þann 5. september í fyrra. Þá skipaði utanríkisráðherra 6 manns í samstarfsnefnd sem af hálfu ESB er skipuð fulltrúum hags- muna- og félagasamtaka í Evrópu. Samráðstarfsnefndinni er ætlað ráðgefandi hlutverk í viðræðunum. Þrátt fyrir þá miklu hagsmuni sem eru undir fyrir sjávarútveg og það að 40% af fjárlögum ESB renni til land- búnaðar er enginn fulltrúi þessara aðila í nefndinni og ekki var leitað til samtaka þessara atvinnuvega við skipunina. Þá heyrir til algerra undan- tekninga að efni sem kemur frá ESB tengt viðræðunum sé þýtt á íslensku. Hvernig á almenningur að geta sett sig inn í þetta flókna ferli þegar stærstur hluti þeirra gagna sem kemur frá ESB er aðeins til á ensku? Viðræðurnar snúast um aðlögun Í framvinduskýrslu ESB frá síðast- liðnu hausti var víða vikið að því að Ísland eigi eftir að innleiða löggjöf ESB. Þetta eru skýr skilaboð. Það er semsagt sífellt að koma betur í ljós að ESB fylgir ákveðnu verklagi í viðræðunum við Ísland, verklagi sem er þekkt úr fyrri stækkunar- viðræðum. Viðræðurnar fara því algerlega fram á forsendum ESB, ekki Íslands. Dæmið um stöðuna í viðræðunum nú varðandi sjávar- útveg sýnir glöggt að Ísland á ekki að vera gerandi í að móta löggjöf ESB í þessum viðræðum, slíkt hefur aldrei staðið til. /EB Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtaka Íslands eb@bondi.is ESB-mál Betri fjós Snorri Sigurðsson ráðgjafi hjá Viden- centeret for landbrug í Danmörk Haldið 22. mars á Stóra Ármóti Páskaskreytingar Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar- stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ Haldið 31. mars í Hveragerði Ræktun áhugaverðra krydd-, lauk- og matjurta í eigin garði Í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða Auður Jónsdóttir garðyrkjufræðingur Haldið 31. mars í Tjarnalundi í Dölum Fræðslufyrirlestur um kynbótamat íslenskra hrossa Í samstarfi við Hestamannafélagið Dreyra Dr. Elsa Albertsdóttir LbhÍ Haldið 12. apríl á Akranesi Tálgunarnámskeið - ferskar viðarnytjar Ólafur Oddsson Skógrækt ríkisins Hefst 13. apríl í Hveragerði Að breyta sandi í skóg - endurheimt skóglendis í samstarfi við Hekluskóga og Héraðs- og Austurlandsskóga Ása L. Aradóttir prófessor við LbhÍ, Hreinn Óskarsson Hekluskógum, Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ og Þröstur Eysteinsson Skógrækt ríkisins Hefst 13. apríl hjá LbhÍ í Hveragerði og 20. apríl á Egilsstöðum Baráttan við illgresið - í tún-, garð- og kornrækt Jón Guðmundsson plöntulíffræðingur Haldið 25. apríl á Stóra Ármóti Pottaplöntuskreytingar Guðrún Brynja Bárðardóttir brautar- stjóri Blómaskreytingabrautar LbhÍ Haldið 27. apríl í Hveragerði Tögl - frá sterti til handverks Lene Zachariassen hagleikskona Hefst 4. maí hjá LbhÍ á Hvanneyri Endurmenntun LbhÍ Jarðrækt nytjajurtir og nýting búfjáráburðar Guðni Þorvaldsson og Ríkharð Brynjólfsson prófessorar við LbhÍ Hefst 6. mars á Egilsstöðum Ísgerð Í samstarfi við Farskólann og Matís Jón Brynjar Birgisson mjólkurfræð- ingur og ísáhugamaður Haldið 10. mars á Flúðum, 23. apríl á Sauðárkróki og 24. apríl á Hvammstanga Innflutningur plantna aðferðir og áhætta Í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands, Félag garðplöntuframleiðenda, Skógrækt ríkisins og Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið Ian Murgatroyd skosku skógar- þjónustunni, Helga Ösp Jónsdóttir MAST, Ólafur Njálsson Félag garð- plöntuframleiðenda, Erling Ólafsson Náttúrufræðistofnun, Guðmundur Halldórsson Landgræðslan, Halldór Sverrisson LbhÍ og Sigurgeir Ólafsson sérfræðingur Haldið 10. mars í Hveragerði Fóðrun og fóðurþarfir sauðfjár Jóhannes Sveinbjörnsson lektor LbhÍ Haldið 12. mars á Sauðárkróki Húsgagnagerð úr skógarefni Ólafur Oddsson Skógræktar ríkisins Hefst 16. mars í Vaglaskógi og Bygging hrossa Í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Austurlands Þorvaldur Kristjánsson, kynbóta- dómari og sérfræðingur hjá LbhÍ Haldið 17. mars á Egilsstöðum Bætt mjólkurgæði Snorri Sigurðsson ráðgjafi hjá Viden- centeret for landbrug í Danmörk Haldið 20. mars á Hvanneyri og í fjarfundi á Egilsstaði og Sauðárkrók Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Við erum líka á Facebook - facebook.com/namskeid Aðalfundur WorldFengs var haldinn í Bændahöllinni, Reykjavík, 20. febrúar sl. Umræðuefnið var ársskýrsla WorldFengsverkefnisins, sem Jón Baldur Lorange, verkefnis- stjóri WorldFengs, lagði fram og kynnti. Að sögn Jóns Baldurs kom rekstur WorldFengs vel út í fyrra, eins og síðastliðin ár, og náðist að vinna þau verkefni í WorldFengs sem stefnt var að árið 2011. Áskrifendum fjölgaði um 32% á milli áranna 2010 og 2011 og eru þeir í dag 12.533 talsins í 24 löndum. Mesta fjölgunin var í Þýskalandi, Íslandi og Svíþjóð. Á árinu 2012 verður unnið að mörgum spennandi verk- efnum. Stjórn WorldFengs, en hana skipa 2 frá Bændasamtökum Íslands og 2 frá FEIF, alþjóðsamtökum eigenda íslenska hestsins. Frá vinstri: Jón Baldur Lorange, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Bændasamtakanna, Jens Iversen, forseti FEIF, Marlise Grimm, ræktunarleiðtogi FEIF og Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt. Stjórn WorldFengs fundar í Bændahöllinni Bændablaðið á netinu... www.bbl.is Næsta blað kemur út 15. mars NÚ BLÁSUM VIÐ TIL VEISLU Föstudaginn 9. Mars ætla Vinir Tungnarétta að standa fyrir stórhátíð í Aratungu. Margt spennandi verður á dagskrá eins og pakkauppboð, happdrætti, hinn alkunni tungnaréttasöngur og margt margt fleira. Allur ágóði af samkomunni mun renna beint til enduruppbyggingar á Tungnaréttum. Húsið opnar kl.19:00 og herlegheitin hefjast svo stundvíslega kl 20:30 Erum á Facebook(Vinir Tungnarétta) Allir hjartanlega velkomnir Vinir Tungnarétta

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.